Morgunblaðið - 08.04.1982, Qupperneq 38
38
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 8. APRÍL 1982
Málverkasýning
á Akureyri
Ingvar Þorvaldsfion listmálari opnar málverkasýningu í listsýn-
ingarsal Myndlistaskólans á Akureyri í dag, skírdag, klukkan 15.
I>ar sýnir Ingvar 40 nýjar vatnslitamyndir og er þetta 12. einka-
sýning hans, auk þess sem hann hefur tekið þátt í fjölda samsýn-
inga.
Sýningin veröur opin daglega frá klukkan 15 til 22 til annars
páskadags.
Minnisblað
lesenda
Málverkasýning
á Fáskrúðsfirði
Málverkasýning var opnuð á Fáskrúösfirði mánudaginn 4. april
síðastliðinn og verður hún opin til 12. þessa mánaðar, og er
sýningin þáttur í vorgleði Fáskrúðsfirðinga.
Myndirnar á sýningunni, 23 alls, eru eftir 21 árs Fáskrúðsfirð-
ing, Ólaf Theódór Ölafsson, en hann lauk prófi frá málara-
deild Handíða- og myndlistarskóla íslands á síðasta ári. Þetta
er fyrsta sýning Olafs og eru myndirnar á sýningunni unnar
með blandaðri tækni. Ljðsmynd Aibert.
1 Innrótting i Ascona Berlína 2 Mœlaborð með amp-hita-eyðslu og snúnlngshraðamœlum 3 Asœna 4 dyra Berlina
Haíir þú aldrei sezt undir stýri d
þessum t>£L, íœrð þú líklega aldrei
skilið hvaða kostir fylgja
skynsamlegri hönnun.
í Ascona erm.a.:
Glœsilegt áklœðí á sœtum og gólíteppi i víðeigandi lit, 2ja hraða rúðuþurkur með biðtíma, 3ja
hraða hitablásari, teppalögð farangursgeymsla, halogen aðalljós, litað öryggisgler, kvartsklukka,
viðvörunarljós íyrir aðalljós, rúðuþurka/sprauta á aíturrúðu i 5 dyra bílnum. sportfelgur, sérstaklega
styrk fjöðrun fyrir íslenzka vegi o.m.fl.
$ VÉIADEILD SAMBANDSINS
Ármúla 3 Reykjavík MÚLAMEGIN ) Sími38900
HÉR fara é eftir nokkrar handhægar upplýsingar, sem
nauðsynlegt eöa þægilegt getur veriö aö hafa viö hönd-
ina yfir hátíöina.
Slysadeild
Borgarspítala er opin allan sólar-
hringinn. Síminn er 81200.
Slökkviliöið
í Reykjavík: 11100, í Hafnarfiröi
51100, Akureyri 22222.
Lögreglan
í Reykjavík: 11166, á Akureyri
23222, Kópavogi 41200 og í Hafn-
arfiröi 51166.
Sjúkrabílar
í Reykjavík 11100, í Hafnarfiröi
51100 og á Akureyri 22222.
Læknavarsla
Nætur- og helgidagavarsla fer
fram til kl. 8 á þriöjudagsmorgun
og er síminn 21230.
Göngudeild Landspítalans
er opin á skírdag og annan páska-
dag kl. 14—15 og á laugardag kl.
14—16. Síminn er 29000.
Tannlæknavakt
veröur alla daga hátíöarinnar í
Heilsuverndarstööinni viö Baróns-
stíg kl. 14—15 nema laugardaginn
kl. 17—18. Simi 22417.
Messutilkynningar
eru birtar á bls. 33.
Dagskrá
útvarps og sjónvarps eru birtar á
bls. 4 og 5.
Bilanir
Hitaveitu- og vatnsveitubilanir skal
tilkynna til Vélamiöstöövar Reykja-
víkur í síma 27311. Símabilanir eru
í 05.
Verslun
Söluturnar veröa opnir eins og
venjulega á skírdag, laugardag og
annan páskadag, en lokaöar aöra
daga. Verslanir eru sumar opnar
laugardaginn kl. 9—12.
Bensínsala
fer fram sem hér segir á Reykjavík-
ursvæöinu: Á skírdag og annan
páskadag kl. 9.30—11.30 og
13—16. Lokað á föstudaginn
langa og páskadag, en laugardag-
inn á milli er opiö kl. 7.30—21.15.
Viö Umferöarmiöstöðina er opiö á
skírdag kl. 20—23.30 og á sama
tíma annan páskadag, á laugardag
er opiö kl. 21—23.30, en lokaö
aöra daga.
Strætis-
vagna-
ferðir
Reykjavík
Á skírdag og annan í páskum er
ekiö eins og á venjulegum sunnu-
degi. Á föstudaginn langa og
páskadag er einnig ekiö eins og á
sunnudegi, en akstur hefst ekki
fyrr en um kl. 13. Laugardaginn
þar á milli gildir venjuleg laugar-
dagsáætlun.
Kópavogur
Um akstur Strætisvagna Kópa-
vogs gildir þaö sama og sagt var
hér aö ofan um SVR, nema aö
akstur á skírdag og annan í pásk-
um hefst um kl. 14.
Hafnarfjöröur
Akstur á skírdag og annan
páskadag hefst kl. 9.42 og gildir
venjuleg sunnudagsáætlun, þ.e.
ekiö er til 00.30. Á föstudagínn
langa og páskadag hefst akstur kl.
13.42. Laugardaginn gildir venju-
leg laugardagsáætlun.
MESSÍAS
Tónlist
Jón Ásgeirsson
Sú var tíðin að uppfærsla á
Messíasi eftir Hándel skipti
sköpum í tónlistarmálum okkar
íslendinga.
Nú er verkið að verða fast
viðfangsefni kóra og um síðustu
helgi flutti Kór Langholtskirkju
það undir stjórn Jóns Stefáns-
sonar í annað sinn á stuttum
tíma. Verkið er óumdeilanlegt
listaverk og því ávallt viðburður
ef það er vel flutt. Kór Lang-
holtskirkju, undir stjórn Jóns
Stefánssonar, söng verkið frá-
bærlega vel. Jón er snilldar-
stjórnandi en hættir til að gæta
ekki að „tempói", því tónlistin
undir stjórn hans líður viðstöðu-
laus, án hrynrænnar spennu,
sem skapast við aðhald í hljóð-
fallsstreyminu. Að halda í hér og
þar eða reka á eftir, sem fer eftir
að hverju er stefnt, er kallað að
hafa spennutak á tímanum, sem
er einn af leyndardómum hljóð-
fallsins. Þetta viðstöðuleysi var
nokkuð áberandi í einsöngsþátt-
unum. Því miður var Garðar
Cortes svo slæmur til heilsunnar
að hann gat ekki sungið, þó hann
reyndi, þar sem mikið lá við. Sól-
veig Björling, Ólöf K. Harðar-
dóttir og Halldór Vilhelmsson
sungu vel enda reyndir tónlist-
armenn og það var ekki þeim að
kenna þó flutningurinn væri ein-
um of „mertónómískur". Ásgeir
Bragason söng með há-tenór-
rödd og fórst það vel, þó arían
væri of lág fyrir hann. Ragn-
heiður Fjeldsted söng með sinni
fallegu röddu og greinilegt er að
Signý Sæmundsdóttir er að
þroskast sem söngkona.
Hljómsveitin, var góð og sömu-
leiðis trompettsóló Lárusar
Sveinssonar. Greina mátti
nokkra þreytu hjá hljómsveit og
kór undir það síðasta, enda er
þriggja tíma konsert ekkert til
að spauga með. í heild voru tón-
leikarnir glæsilegir en ekki get-
ur undirritaður annað en fundið
að því, að halda tónleika í því
húsi sorgarinnar sem Fossvogs-
kirkja er, fyrir utan að vera
ónotaleg til langrar setu. Bráð-
um kemur betri tíð og kórinn
mun þá geta haldið sína glæsi-
legu tónleika í eigin kirkju, sem
vonandi er ekki langt undan.