Morgunblaðið - 08.04.1982, Page 40
40
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 8. APRÍL 1982
t
Bróöir okkar,
HELGI HELGASON,
Veaturbsrgi 30,
sem lézt 1. apríl, veröur jarösunginn frá Fossvogskirkju miöviku-
daginn 14. apríl kl. 10.30 árdegis.
Jónas Helgason,
Hrafnkell Helgason,
Sigurður Helgason.
t
ÞORBERGUR GUÐMUNDSSON,
Egílsgötu 12,
Reykjavík,
verður jarösettur frá Fossvogskirkju, miövikudaginn 14. apríl kl.
15.00.
Börn, tengdabörn, systir og aðrir aöstandendur.
t
Eiginmaöur minn, faöir okkar, tengdafaöir og afi,
INGÓLFUR NÍELSSON,
Hrafnistu,
veröur jarösunginn frá Fossvogskirkju þriöjudaginn 13. apríl, kl.
10.30 f.h.
Haflína Björnsdóttir,
Regina Ingólfsdóttir, Egill Jónsson,
Níels Ingólfsson, Svanhvít Hafsteinsdóttir,
Björn Ingólfsson, Rósa Jónasdóttir,
Ásgrímur Ingólfsson, Unnur Sigtryggsdóttir,
og barnabörn.
t
Þökkum innilega allan þann hlýhug og samúö sem okkur var sýnd
viö andlát og útför foreldra okkar og tengdaforeldra,
SIGURBJARGAR BJÖRNSDÓTTUR
°g
HARALDAR AÐALSTEINSSONAR,
Miðtúni 4, Seyöisfiröi.
Sérstakar þakkir til lækna og starfsfólks Borgarspítalans i Reykja-
vik og læknis og starfsfólks Sjúkrahúss Seyöisfjaröar.
Aðalsteinn Haraldsson, Guöný Ragnarsdóttir,
Leifur Haraldsson, Steinunn Olafsdóttir.
Aðalsteinn Magnús-
son — Minningarorð
Fæddur 14. nóvember 1932
Dáinn 1. apríl 1982
A fögrum morgni hinn 1. apríl
sl. dró skyndilega ský á loft er sú
sorgarfrétt barst út meðal fjöl-
skyldunnar að Alli væri dáinn.
Þessi frétt kom öllum í opna
skjöldu. Hann hafði verið um
nokkurra daga skeið á sjúkrahúsi,
en kom heim af því daginn áður og
þá hress og bjartsýnn með margar
áætlanir um framtíðina. En einn
er sá sem öllu ræður og honum var
það þóknanlegt að þessu sinni að
klippa á lífsstrenginn, því nokkr-
um klst. eftir heimkomuna var
Alli allur.
Það má með sanni segja að vegir
Guðs eru órannsakanlegir eða
hvernig getum við óbreyttir
leikmenn skýrt það og skilið að
maður á góðum aldri með heimili
og fjölskyldu sé á brott kvaddur, á
sama tíma sem stórum hópi ein-
staklinga væri það líkn í þraut að
vera til kallaðir. En hvort maður
þreytir hugann lengur eða skemur
yfir leyndardómum lífsins þá fær
maður ekki ráðningu á gátunni
miklu, og lífið heldur áfram á
braut tímans.
Aðalsteinn Magnússon, en svo
hét hann fullu nafni, en að jafnaði
kallaður Alli meðal fjölskyldunn-
ar, var fæddur 14. nóvember 1932
og því tæpra fimmtíu ára.
Foreldrar hans voru Magnús
Magnússon og Jóhanna Árnadótt-
ir, er bjuggu lengst af sinn búskap
á Bergstaðastræti 31 í Reykjavík.
Föðurafi Aðalsteins, Magnús S.
Magnússon prentari og sýningar-
stjóri í Gamla Bíói í fjölda ára,
var vel þekktur góðborgari hér í
bæ. Þá var og móðurafi hans, Árni
Árnason, vel kynntur sem Dóm-
kirkjuvörður í 40 eða 50 ár. Föður-
amma Alla var Jóhanna Zoéga,
hún átti og rak Litlu blómabúðina
hér í bæ um árabil.
Formóðir Alla í móðurætt var
Ingibjörg Gestsdóttir, ein af
fyrstu ljósmæðrum hérlendis sem
fengu embættisbréf samkv. ljós-
mæoralögum frá 1875.
Af þessari stuttu tilvísan um
ættir Aðalsteins má sjá að hann
var af traustum og góðum stofni
kominn, og þar var hann enginn
eftirbátur eða ættleri.
Hann ólst upp í foreldrahúsum
og að loknu almennu námi fór
hann á vinnumarkaðinn eða útí
lifsbaráttuna sem kallað er. Fyrst
hjá Reykjavíkurborg, þá mörg ár
á þungavinnuvéium en síðustu sex
~\s~ D )'
n D)
w
SÉRRIT UM FJÖLSKYLDUNA OG HEIMILIÐ
Stærra blað
HÚS&
NR. 15 1.TBL. 1982 VERO KR. 47
LITAVAL
BLÚM
MATUR
HEIM-
SÚKNIR
GLUGGATJÖLD
FERMINGAVEIZLUR
KÚREKASTÍLLINN
LAURA ASHLEY
ARINELDAR
stóraukið efni
H&H er mest selda tímarit landsins í dag. Það er
lesiö af þriðjungi landsmanna og fyrir bragðið hef-
ur verið hægt að bæta blaðið á alla lund. Stærra
og glæsilegra tímarit en nýjasta tölublað H&H hef-
ur ekki verið gefið út hérlendis til þessa dags.
H&H lætur sér ekkert sem snertir heimilið og fjöl-
skylduna óviðkomandi. Húsbyggingar, garðrækt,
heimilistæki, matartilbúningur, fatnaður, innrétt-
ingar, húsgögn, tækninýjungar og annað þar fram
eftir götunum, allt er þetta til stöðugrar meðferðar
í ritinu. Kynntu þér efni H&H og þú munt komast
að raun um, að það er þér að skapi.
H&H er selt í áskrift og ekkert er auöveldara en að
gerast áskrifandi. Þú bara hringir í síma 83122 og
segir til þín. Og þú færö tvö af eldri blööunum
send í kaupbæti er þú gerist áskrifandi. Áskrift-
argjaldið er innheimt með gíróseðli. Hafir þú hug á
að eignast nýjasta tölublaðið er vissara að hafa
hraðann á, því það er víðast að veröa uppselt.
Askriftarsími
83122
árin var hann starfsmaður hjá
Landsbanka íslands að Laugavegi
77 í Reykjavík.
Hann naut trausts og virðingar
bæði hjá yfirmönnum sínum og
vinnuféiögum og voru falin ýmis
trúnaðarstörf á vegum stéttarfé-
lags síns. I fáum orðum sagt var
Alli trúr og tryggur og því skarð
fyrir skildi er góður drengur kveð-
ur svo skyndilega.
Hinn 14. nóv. 1953 kvæntist
hann eftirlifandi konu sinni, Erlu
Lárusdóttur, þau eignuðust þrjú
börn, sem eru þessi: Jóhanna
Margrét, gift Birni Júlíussyni loft-
skeytamanni, Anna Björk, gift
Helga S. Ingibergssyni húsasmið
og Lárus, sem enn er í föðurgarði,
barnabörnin eru þrjú.
Að vera formaður í húsfélagi
þar sem á milli 50 og 60 fjölskyld-
ur búa er að jafnaði erilsamt og
getur verið þreytandi á stundum
að vera í slikri forsjá, en þessu
starfi gegndi Alli í 8 ár við góðan
orðstír félaga sinna, og hann hafði
á orði meðan á sjúkrahúsvistinni
stóð að hann þyrfti að komast
heim sem fyrst svo hann gæti
haldið aðalfund húsfélagsins.
Þetta sýnir aðeins hve skyldu-
ræknin var rík í honum, með því
að hinn hefðbundni fundartími
var upprunninn.
Þá gegndi Alli formennsku í
Farstöðvarfélagi ísiands, deild 4,
og af hálfu aðstandenda Alla er
félögum hans þar, svo og öðrum,
þökkuð hluttekning við fráfall
hans.
Þegar skyldustörfum sleppir þá
hafði Alli ýmis áhugamál til að
hressa upp á fjölbreytnina og
auðga andann. Hann var mikill
náttúruunnandi og ferðaðist mikið
um landið og naut þess að kynnast
því bæði vetur og sumar. Þá hafði
hann yndi af allskyns veiðiskap og
gekk fagmannlega til verks í hon-
um sem öðru.
Hann hafði listræna hæfileika
og gerði nokkuð af því að teikna og
báru þær myndir með sér að þar
var meira en venjulegur leikmað-
ur á ferð og heimili þeirra hjóna
bar þess vitni að þar voru sam-
hentar manneskjur er gerðu um-
hverfið aðlaðandi og vinalegt,
enda var heimilið og fjölskyldan
honum allt. Hans er því nú sárt
saknað af konu og börnum og hon-
um færðar þakkir fyrir forsjá
heimilisins og samferðina.
Móðir Aðalsteins er nú stödd
hjá dóttur sinni í Ástralíu, það féll
því mikill skyggi á heimsóknina að
þurfa að færa henni þær sorgar-
fréttir að elsta barn hennar væri
dáið, og henni er því þungt um
hjarta að geta ekki verið við
kveðjustund hans, en í huga sínum
og bænum er hún og verður hjá
honum og svo langt sem orð ná þá
er hér með flutt móðurkveðja til
látins sonar.
Hans er og sárt saknað af systk-
inum sínum sem flytja góðum
bróður hinstu kveðju svo og aðrir
vinir og vandamenn.
Útför Aðalsteins fer fram
þriðjudaginn 13. apríl kl. 3. e.h. og
eru þessi kveðjuorð á ferð á næsta
óeðlilegum tíma en því veldur
blessuð páskahátíðin.
Það er ætíð huggun harmi gegn
að eiga ljúfar minningar um góð-
an vin. Ég sem þetta rita kynntist
Aðalsteini fyrir um sex árum er ég
tengdist fjölskyldu hans, fyrir
þessi kynni færi ég þakkir og bið
Guð að styrkja hann og leiða á
hinni ókunnu strönd um leið og ég
votta fjölskyldu hans samúð og
bið Guð einnig að vera með henni
á erfiðri stundu.
Guðmundur Jóhannsson
Leiðréttingar
Föðurnafn misritaðist í Mbl. í
gær í myndatexta með frétt um
tónleika Pólýfónkórsins og fleiri,
sem haldnir verða á morgun og
laugardag. Formaður Pólýfón-
kórsins heitir Friðrik Eiríksson.
Þá víxluðust myndir í frásögn af
æfingum Hamrahlíðarkórsins og
Kórs Óidutúnsskóla í Mbl. í gær
og er beðist velvirðingar á þessum
mistökum.