Morgunblaðið - 08.04.1982, Side 42
42
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 8. APRÍL 1982
+
Útför eiginmanns míns,
AÐALSTEINS MAGNÚSSONAR,
bankaatarfsmanns,
Ferjubakka 4,
fer fram frá Fossvogskirkju þriöjudaginn 13. apríl kl. 3 e.h.
Fyrir hönd aðstandenda,
Erla Lárusdóttir.
Maöurinn minn og faöir okkar,
JULÍUS JÓHANNESSON,
Ægisiöu 127,
veröur jarösunginn frá Fossvogskirkju þriöjudaginn 13. apríl kl.
1.30.
Helga Guöjónsdóttir og börn.
+
Hjartans þakkir fyrir auösýnda vináttu og samúö, vegna fráfalls
SIGURVEIGAR BJÖRNSDÓTTUR
frá Grjótnesi.
Fyrir hönd systkina og annarra vandamanna,
Stefán Björnsson, Svanhvít Friðriksdóttir.
+
Hjartans þakkir fyrir hlýhug og samúö viö andlát og útför eigin
konu minnar,
INGIBJARGAR GUDBJARNARDÓTTUR,
Lindargötu 29, R.
Siguróur Bjarnason.
Ragnhildur Kr.
Björnsson — Minning
Fædd 7. júlí 1913
Dáin 13. marz 1982
Vinir koma og vinir fara.
Það er ekki oft að maður kynn-
ist fólki á lífsleiðinni eins og
Ragnhildi Kr. Björnsson og því
sárara er að sjá á bak svo góðri
konu og vini.
Það var snemma vors í leiðinda
veðri og kulda, er hjónin Björn G.
Björnsson og frú hans, Ragnhild-
ur, komu í garðyrkjustöð mína í
Hveragerði fyrir 24 árum að líta á
tré og runnaplöntur sem ég hafði
mikið af þá, og fengu þau ýmsa
runna hjá mér sem þau ætluðu að
planta í garðinn sinn á Freyjugötu
í Reykjavík. Okkur hjónunum leist
mjög vel á þessi myndarlegu og
vinalegu hjón og buðum þeim í
kaffisopa og þáðu þau það til að
hlýja sér og tala meira og fræðast
um blóm sem þau höfðu mikinn
áhuga. Upp úr þessu spratt vin-
átta milli þessara tveggja heimila
sem hefur haldist alla tíð. Ragn-
hildur hafði mikinn áhuga á blóm-
um og átti mjög fallegan garð sem
hún vann í þegar hún hafði tíma,
enda var mörgum starsýnt á garð-
inn og margar viðurkenningar
fékk hún fyrir smekkvísi í garð-
ræktinni og var hún og mikilvirk í
stjórn Garðyrkjufélags íslands. I
félagsmálum var hún afar liðtæk
fyrir dugnað og útsjónarsemi.
Annað áhugamál Ragnhildar
var Oddfellow-reglan og vann hún
mikið innan sinnar reglu.
Ragnhildur var stórglæsileg
kona og stórbrotin, skapmikil en
hjartahlý og vinur vina sinna. Þau
hjón, Björn og Ragna, voru óvenju
samhent í öllu, góð heim að sækja
og afar gjöful, bæði á gjafir og
góða vináttu, enda voru samgöng-
ur miklar á milli okkar heimila.
Gaman og gott var að koma á
þeirra óvenju fallega heimili og
rabba við þau í rólegheitum, alltaf
sama hlýjan og gleðin.
En svo kom ógæfan og Ragn-
hildur veiktist, sem lyfti henni
upp til æðri heima að lokum eftir
miklar þjáningar, en ég er þess
fullviss að vel hafi verið tekið á
móti Ragnhildi.
Við vitum að Guð er góður og
hann sér vel fyrir sínum. Við
hjónin þökkum Rögnu fyrir að
hafa fengið að kynnast henni og
söknum hennar, en öll sár gróa að
lokum og við biðjum algóðan Guð
að milda sárin hjá eftirlifandi
manni hennar og börnum.
Þegar tímum okkar hér á jörðu
lýkur, munum við hittast aftur, en
við aðrar aðstæður. Hver og einn
okkar hefur sinn reynslutíma hér
á jörðu og almættið ræður hvenær
kallið kemur og allir verða að þola
sinn reynslutíma. Við hjónin vilj-
um ekki kveðja hinstu kveðu, því
við sjáumst aftur í von um annað
líf.
Friður sé með Rögnu og ég
þakka alla vináttu á heimili ykkar
hjóna.
Paul V. Michelsen.
„Kyrst sigur sá er fenginn,
fyrst surgar þraut er tjt ngin,
hvað getur grætt oss þá?
Oss þykir þungt að skilja,
en þad er (iuðs ad vilja
og gott er allt sem (>uði er frá.“
Við sendum elsku ömmu okkar
hinstu kveðju- og þakkarorð, fyrir
allt það sem hún hefur gert fyrir
okkur, og allar góðar stundir sem
við áttum saman.
Við trúum því tæpast enn, að
við munum aldrei fá að sjá ömmu
okkar framar, né heyra hana
hlæja svo dátt með okkur þegar
gleðileg atvik komu fyrir í lífi
okkar allra. En við munum ætíð
minnast hennar eins og hún var,
alltaf glöð og kát, hughreysti
okkur og taldi í okkur kjark þegar
eitthvað bjátaði á.
Margar góðar stundir áttum við
saman, stundir sem við erum
þakklátar fyrir að eiga minning-
una um. Sérstaklega áttum við
systurnar góðar stundir þegar við
fengum að vera hjá afa og ömmu
yfir nótt. Þá laumuðum við okkur
oft uppí rúm til þeirra og sofnuð-
um við það að afi las upphátt fyrir
okkur allar eins og hann gerði iðu-
lega fyrir ömmu á kvöldin.
Og alltaf hlökkuðum við til
sunnudaganna. Þá fórum við
snemma á morgnana með litlu
bræður okkar með okkur í bæinn
og fórum í kirkjuna henar ömmu,
PLEGEL
PLEGEL
þakstáliö meö skífuformi. Fæst í 5
plötustæröum. Rautt og svart. Stáliö
er heitgalvaniseraö og lakkaö meö
PVF 2 lökkun.
Plegel er fyrirliggjandi á lager
Plegel er höfuðprýði hússins
i Pardushf.,
I Box 98, 230 Keflavík,
II sími 92-3380.
^ Vinsamlegast sendið myndalista yfir Plegel.
| Nafn ....................................
I
I Heimilisfang ............................
Breidd 107,5
Lengdir 0,40 1,10 2,15 3,20 4,25
+
Þökkum innilega auösýnda samúó og vinarhug viö andlát og jarö-
arför
ARNGRÍMS JÓHANNESSONAR,
Smáravegi 1,
Dalvík.
Börn, tengdabörn, barnabörn og barnabarnabörn.
+
Eiginkona mín, móðir okkar og amma,
GUDRÚN GUÐNADÓTTIR,
Þverholti 21, Keflavík,
sem lést í Landspitalanum þann 2. apríl sl. veröur jarösungin frá
Keflavíkurkirkju laugardaginn 10. apríl kl. 2.
Birgir Axelsson,
Axel Birgisson, Guöní Bírgisson,
Elsa Skúladóttir, Sesselja Birgisdóttir,
Ólafur Birgisson,
og barnabörn.
+
Eiginmaöur minn, faöir okkar, tengdafaöir og afi,
BÁRÐUR SVEINSSON,
Nökkvavogi 39,
lést 29. mars 1982. Jarðarförin hefur fariö fram.
Vigdís Kristín Ebenezersdóttir,
börn, tengdabörn og barnabörn.
+
Eiginmaöur minn, sonur, tengdasonur, bróöir og mágur,
REIDAR G. ALBERTSSON,
kennari,
Álfheimum 56,
veröur jarösunginn frá Fossvogskirkju miövikudaginn 14. apríl kl.
13.30.
Blóm vinsamlegast afþökkuö, en þeim, sem vildu minnast hins
látna, er bent á Samband íslenskra kristniboösfélaga, Amtmanns-
stíg 2 B.
Oddrún Jónasdóttir Uri,
Borghild Albertsson, Halldis Uri,
Dagný G. Albertsson,
Birgir G. Albertsson, Evlalía K. Guömundsdóttir.