Morgunblaðið - 08.04.1982, Blaðsíða 43
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 8. APRÍL 1982
43
eins og við kölluðum alltaf Hall-
grímskirkju. Eftir messu fórum
við alltaf í mat til afa og ömmu.
Þetta var alltaf besti dagur vik-
unnar fyrir okkur öll, og mikið
lagði amma alltaf á sig til þess að
ungarnir hennar fengju eitthvað
gott að borða þegar þeir komu
svangir úr kirkjuferðinni.
Okkur þótti ætíð svo innilega
vænt um ömmu, og við söknum
hennar svo sárt. En það er enginn
spurður um vilja þegar kallið
kemur. Við biðjum þess aðeins að
henni líði nú vel, og biðjum Guð að
blessa minningu hennar og biðjum
hann einnig að blessa afa sem er
okkur öllum svo kær.
„Far þú í friði,
fridur (iuAs þig blessi,
hafðu þökk fyrir alll og allt.
(>ekkst þú með Gudi,
(>uð þér nú fylgi,
hans dýrðarhnoss þú hljóU skalt."
Ragnhildur og Birna
Oskarsdætur.
Ragna, eins og hún var ávallt
kölluð meðal ættingja og vina, var
fædd á Bíldudal, dóttir hjónanna
Jóhönnu Benónýsdóttur og Krist-
jáns Jónssonar. Kristján er nú lát-
inn fyrir allmörgum árum, en Jó-
hanna dvelur í hárri elli á Hrafn-
istu í Reykjavík.
Ragna var tvígift. Með fyrri
manni sínum eignaðist hún þrjú
börn, Erlu, búsetta í Bandaríkjun-
um, og tvíburana Óskar og Ág-
ústu. Ágústa er gift Úlfari Sig-
urðssyni og Óskar er giftur undir-
ritaðri. Seinni manni sínum, Birni
G. Björnssyni, forstjóra, giftist
Ragna 17. nóvember 1950, og ólust
börn hennar af fyrra hjónahandi
upp hjá þeim hjónum.
Björn veitti Sænsk-íslenska
frystihúsinu forstöðu í mörg ár og
þar vann Ragna þar til þau stofn-
uðu, ásamt syni Rögnu, innflutn-
ingsfyrirtækið Björn G. Björnsson
heildv. sf.
Ég átti því láni að fagna að
kynnast Rögnu er ég var sautján
ára gömul og þeim góðu móttökum
sem ég hlaut á hennar heimildi
mun ég aldrei gleyma, enda var
mér strax tekið sem einni af fjöl-
skyldunni og kom okkur Rögnu al-
veg sérstaklega vel saman.
Það var henni mikið áhugamál
að börnin hennar lærðu eitthvað,
og eins lét hún sér annt um mig,
og kappkostaöi að ég kæmist í
Hússtjórnarskóla Reykjavíkur. En
þó skólinn hafi verið mjög gagn-
legur, þá held ég að ég hafi lært
meira á hennar myndarlega heim-
ili heldur en þar. Eg held að það sé
ekki ofsagt að Ragna hafi verið
stórbrotin kona, það var sama
hvað hún tók sér fyrir hendur.
Hún var mikil félagsmanneskja,
og var hún í stjórn Garðyrkjufé-
lags íslands og í Fegrunarnefnd
Reykjavíkurborgar meðan hún
starfaði. Ragna unni öllu sem fag-
urt var, enda bar garðurinn henn-
ar að Freyjugötu 43 þess merki að
þar bjó kona sem elskaði öll hin
fögru blóm sem hún ræktaði í
garðinum sínum. Eldsnemma á
morgnana, þegar aðrir sváfu, var
Ragna komin út til að hreinsa
garðinn, enda var hann talinn
meðal fallegustu garða í Reykja-
vík.
Þann 16. janúar 1960 var Reb.st.
nr. 4, Sigríður, stofnuð innan
Oddfellow-reglunnar og var
Ragna frumkvöðull að stofnun
hennar, og í fyrstu stjórn. Þar var
henni, sem og allsstaðar annars
staðar, mikið áhugamál að allt
gengi sem best.
Það er mikið áfall fyrir alla þeg-
ar maður missir náinn og kæran
ástvin. Ragna var að mestu búin
að ná sér eftir mikil og ströng
veikindi, og framtíðin lofaði góðu,
en þá kom kallið.
Ég veit að Rögnu líður nú vel.
Eg bið algóðan Guð að blessa sálu
hennar og gefa henni frið.
„Margs er aú minnast,
margt er aú þakka.
(•uúi né lof fyrir liðna tíú.
Margs er aA minnast
margs er art sakna.
(iuA þerri tregatárin stríA.“
Sóley Sigurjónsdóttir.
Oskar Björnsson
Húsavík — Minning
Fæddur 18. október 1955
Dáinn 2. apríl 1982
Þegar óvæntir og hörmulegir
atburðir gerast verður manni
hugsað til þess hversu fallvölt til-
veran er og skammt er á milli lífs
og dauða.
Óskar Björnsson, svili minn,
lést aðeins 26 ára að aldri eftir
áverka af völdum umferðarslyss
er hann varð fyrir 25. marz sl.
Ungur maður er tekinn frá konu
og lítilli dóttur og eftir stendur
minningin um sérlega góðan
heimilisföður og mikinn pabba því
milli föður og dóttur var mjög
kært.
Það er ekki ætlun mín með þess-
um fátæklegu orðum að rekja
æviferil Óskars, aðeins að þakka
honum samfylgdina sem varð allt-
of stutt. Við Oskar kynntumst er
hann gekk að eiga Ásdísi mágkonu
mína. Fyrst bjuggu þau í Hafnar-
firði, heimabæ Óskars, en fluttust
síðan hingað til Húsavíkur og hóf
Óskar þá störf hjá Rafveitunni og
vann þar til dauðadags.
Nú í dag, þegar ég hugsa til
baka, þá voru þetta aðeins fimm
ár og sú hugsun kemur upp hversu
margt við áttum ógert saman því
alltaf halda menn að nægur tími
sé framundan. Á slíkri stund eru
orð innihalds- og umkomulaus.
Hver er tilgangur þess að góður
drengur er kvaddur burt í blóma
lífsins, hann sem okkur fannst
vera rétt að byrja lífið? Svo grá-
kaldur veruleiki slær úr höndum
manns öll vopn og orða verður
vant.
En það er huggun harmi gegn
að minningin um góðan dreng lif-
ir.
Bjarni Bogason
ERT WJAÐ
HUGSAUM
SUMARHÚS?
Sýning laugardag kl. 1—6.
Nú getum við boðið úrval glæsilegra sumarhúsa í öllum stærðum,
sem þér getið fengið á ýmsum byggingarstigum. Smíðum húsin allt
árið, þannig að húsið þitt getur verið tilbúið í vor eða fyrr. Komið og
kynnið ykkur verð og gæði húsanna að Kársnesbraut 2.
STÆRÐIR 22 m2 — 31 m2 — 37 m2 — 43 m2 — 49 m2
Enfremur kynnum við 14 fm veiðihús.
LAND UNDIR SUMARHÚS
Félög og fyrirtxki ættu að athuga að við getum boðið stórt
land undir sumarhús á fallegum stað við Laugarvatn og í Grímsnesi
Sumarhúsasmíði Jóns h/f.
Kársnesbraut 2. Sími 45810.