Morgunblaðið - 08.04.1982, Page 44
44
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 8. APRÍL 1982
Nýtt bliw
Bliw er hentug sápa, sem vegna umbúöanna er mjög
hentug í notkun.
Hún er drjúg, þar sem hún liggur ekki á vaskinum og
leysist upp. . _ . _
Heildsölubirgðir: KaiipSel Sf.
Sími 27770.
Smiðjuvegi 30 Kópavogi. S. 76444.
Trésmíðavélar
Sambyggö Samco C-26, lítiö notuö.
Sambyggöur afréttari og hefill OBM, 22 cm breidd,
nýr.
Sambyggö sög og fræsari, 7,5+5,5 hp.
Sambyggöar Record/Stenberg/Susemihl.
Þykktarhefill SCM S50N, nýr.
Fræsari Steton m/sleöa, 7,5 hp, lítiö notaöur.
Dýlaborvél SCM-FM29S, ný.
Bandslípivél 6.500 kr.
Límpressa m/2 spindlum.
Loftpressur, nýjar/notaöar.
FISHER
toppurinnídag
Minning:
Þorvaldur Guðmunds-
son Bíldsfelli
Fsddur 3. september 1907
I)áinn 3. apríl 1982
Þegar ég man fyrst eftir Þor-
valdi, vorum við báðir ungir menn.
Það var síðsumars að ég kom að
Bíldsfelli, til laxveiða, með tveim
félögum mínum, að áliðnum degi.
Venjulegum bílum var ekki fært
að komast þangað, sem ferðinni
var heitið að Soginu, en stutt í
myrkur.
Bauðst Þorvaldur þá til að
skjóta okkur þangað á jeppabíl, og
var það vel þegið. Hann beið okkar
þarna fram í myrkur og höfðum
við þá allir fengið stórlaxa. Vorum
við honum mjög þakklátir og
blessuðum hann fyrir hjálpina.
Nú er Þorvaldur mágur minn og
vinur látinn. Það kom að vísu
hvorki mér né öðrum í fjölskyldu
hans á óvart, þar eð ólæknandi
sjúkdómur hefur hrjáð hann um
alllangt skeið. Hann lést í sjúkra-
húsinu á Selfossi, eftir langa og
stranga legu. Að honum er mikill
sjónarsviptir.
Þorvaldur fæddist í Geitadal í
Skriðdal. Foreldrar hans voru
hjónin Guðmundur Þorvaldsson,
bóndi þar, og kona hans Guðríður
Finnbogadóttir frá Víðilæk í
Skriðdal.
Tæpra þriggja ára gamall, árið
1910, fluttist hann ásamt foreldr-
um sínum að Bíldsfelli í Grafn-
ingi, sem þau höfðu þá keypt.
Þorvaldur var elstur átta systk-
ina, sem öll eru á lífi, en þau eru:
Svanhvít, ekkja Geirs Gígja,
skordýrafræðings, Ingibjörg, gift
Grími Ögmundssyni, bónda á
Syðri Reykjum, Sigurður,
garðyrkjumaður, kvæntur Marie
Kristensen, búsettur í Danmörku,
Blísabet, gift Tage Andersen,
veitingamanni, einnig búsett í
Danmörku, Þóra, gift Ólafi Tóm-
assyni, viðskiptafræðingi, Guðríð-
ur Hulda, gift Sigurði Jónssyni,
forstjóra, og Þórdís, gift Erlingi
Þorsteinssyni, lækni.
Þorvaldur hefur, að kalla má,
alið allan sinn aldur á Bfldsfelli,
og unni hann þeim stað mjög.
Hann var tvíkvæntur. Hann bjó
með fyrri konu sinni, Þrúði Briem,
kennara, hjá foreldrum sínum og
eignuðust þau tvö börn, sem bæði
eru á lífi, Rannveigu og Örn, raf-
virkjameistara.
Nokkru eftir lát föður hans og
eftir að móðir hans hafði brugðið
búi tók hann alfarið við búskapn-
um á jörðinni.
Skömmu síðar kvæntist Þor-
valdur seinni konu sinni, Frið-
meyju Guðmundsdóttur, sem hef-
ur reynst honum hinn tryggasti
förunautur og dugandi búkona.
Þau eignuðust átta mannvænleg
börn, sem öll eru á lífi. Þau eru:
Guðríður, Guðmundur, Sigurður,
Pétur, Árni, Rósa, Þorsteinn og
Guðmundur Öfjörð. Auk þess ólu
þau upp tvö börn, Ágústu og Svav-
ar, sem Friðmey átti áður en hún
giftist Þorvaldi.
Barnabörn Þorvaldar eru nú
orðin tíu og afkomendur því tutt-
ugu alls.
Þorvaldur var mjög fjölhæfur
maður og framkvæmdasamur.
Hann var eins og Guðmundur fað-
ir hans mjög hagur í höndum og
var stoð hans og stytta við hús-
byggingar og aðrar framkvæmdir
á jörðinni. Síðan hann tók við bú-
inu hefur hann lagt mikið kapp á
að slétta og rækta upp landið með
aðstoð barna sinna, svo Bíldsfell
Skrifborösstólar
margar gerðir
Lampar
hentugir
skólafólki
Myndlistarvörur
í miklu úrvali
Skóla-
og skíða
pokar
Skjalatöskur
Skrif-
möppur
umiu
Bækur
Jarölíkön
Gjafavöruúrval
Nú, sem endranær býður Penninn upp á mikið úrval af gjafavörum: Pennasett,
jarðlíkön, töfl og töskur — og í verslun okkar í Hallarmúla fást skrifborðsstólar,
lampar, myndlistarvörur auk úrvals íslenskra og erlendra bóka.
Gjafavöruúrvalið er í Pennanum
Hallarmúla 2 Hafnarstræti 18 Laugavegi 84