Morgunblaðið - 08.04.1982, Síða 45

Morgunblaðið - 08.04.1982, Síða 45
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 8. APRÍL 1982 45 er nú orðin ein stærsta og best ræktaða jörð í Árnessýslu. Frá ár- inu 1970 til 1976 rak Þorvaldur bú- ið í félagi við Guðmund son sinn, en þá yfirtók Árni hlut föður síns og hafa þeir bræður annast bú- reksturinn síðan. Guðmundur hefur byggt íbúð- arhús fyrir sig, nokkuð neðan við Bíldsfellsbæinn í námunda við stórt gripahús og hlöðu, er þeir feðgar höfðu þá nýlega reist. Er á því öllu hinn mesti myndarbragur, í anda Þorvaldar, því hann gekk ævinlega snyrtilega frá öllu og hafa börnin sjálfsagt lært mikið af því. Árið 1974 var honum veittur verðlaunagripur frá Búnaðarsam- bandi Suðurlands fyrir snyrtilega umgengni á Bíldsfelli. Þorvaldur var mikill búmaður og gekk m.a heyskapur oftast af- bragðs vel undir stjórn hans. Var útsjónarsemi hans viðbrugðið, enda talið að hann hefði einhverja dulargáfu, að geta séð veður, og ýmsa óorðna hluti fyrir. Oft hef ég orðið vitni að því að hann og hans fólk hafi lokið heyskap á undan flestum öðrum, ekki síst í óþurrkatíð. Mjög þótti hann draumspakur og heyrði ég hann oft segja frá draumum sínum, sem hann hafði ráðið og komið höfðu fram. Taldi hann að ósjaldan hefðu draumar hans verið viðvaranir og komið í veg fyrir slys og óhöpp. Þorvaldur var mjög hjálpfús. Hann rétti sveitungum sínum oft hjálparhönd, bæði með því að lána þeim vélar og verkfæri eða að fara sjálfur, jafnvel með liðsauka, til að bjarga heyi eða öðru. Einnig hafa hann og synir hans verið okkur mjög hjálplegir við sumarbústaðinn, sem við hjónin eigum í landi Bíldsfells. Þorvaldur hefur unnið mikið verk í sambandi við laxarækt í Soginu, bæði með því að afla hrogna til framleiðslu laxaseiða og vernda seiðin í ánni með því að fækka minki og fiskiöndun, sem eru verstu óvinir laxaungviðis, enda var hann frábær skytta. Hann hefur einnig bjargað mörg- um lömbum, þar eð hann fækkaði refnum mikið. Hann hafði mjög næmt auga fyrir náttúru landsins og dýralífi, þekkti flest örnefni á landareign- inni, jafnvel hverja þúfu og stein. Ég dáðist oft að því hve glöggur hann var á hinar ýmsu andateg- undir. Einkum fannst mér það mikilvægt þegar hann var að fækka fiskiöndunum. Þorvaldur hafði mikið yndi af gróðri jarðar og kunni góð skil á hinum ýmsu grasa- og blómategundum. Hann var mjög ljóðelskur og orkti mörg kvæði og tækifærisvís- ur, en flíkaði lítt skáldskap sínum. Að jafnaði var hann alvörugefinn og hugsaði margt, en gat verið kátur og léttur á gleðistundum. Ég tel að hann hafi verið trúaður maður og ræddum við alloft trú- mál og virtist mér hann hafa mik- inn áhuga á þeim. Þorvaldur var maður stór og þrekinn og bar með sér mikla persónu. Hann var mjög aðgætinn og fór sér í engu óðslega. Tvívegis var hann kjörinn til sveitarstjórn- ar. Ég veit að fjölmargir munu sakna hans sárt, ekki síst nánustu ættingjar hans og allir þeir, sem hann var vanur að rétta hjálpar- hönd. Að lokum vil ég senda honum mínar hinstu kveðjur og þakkir, og óska honum velfarnaðar á leið- um þeim er hann nú hefur lagt út á. Ég og fjölskylda mín sam- bryggjumst innilega ekkju hans, börnum og öðru venslafólki. Blessuð veri minning hans. Minningarathöfn fer fram þ. 10. þ.m. í Selfosskirkju, en jarðsett verður að Úlfljótsvatni. Erlingur Þorsteinsson + SIGRÚN ÓLAFSDÓTTIR frá Dalbrún, Borgarnosi, veröur jarðsungin frá Borgarneskirkju laugardaginn 10. apríl kl. 3.00. Þuríður Þórarinsdóttir, Þorgrímur Halldórsson, Ingi Þór Þorgrímsson, Sigrún Björg Þorgrímsdóttir. Þökkum innilega auösýnda samúö og hlýhug viö andlát og útför móöur okkar, GUDRÚNAR GUÐMUNDSDÓTTUR frá Söndum, Dýrafiröi. Sólveig Svavarsdóttir, Ásgeröur Svavarsdóttir Michaud, Jakob Svavarsson. + Eiginmaöur minn og faöir okkar. + GAUTI HANNESSON GUÐLAUG GUDJÓNSDÓTTIR, kennari, Faxabraut 37 B, Reynimel 90, lést 7. apríl. veröur jarösunginn frá Neskirkju, miövikudaginn 14. apríl kl. 3.00. Lilja Sigurjónsdóttir, Karlotta Sigurjónsdóttir, Anne Gitzler Kriatinsson, Guójón Gunnarsson, Nína Gautadóttir, Skúli Gautason. Gestur Rósinkarsson. Eftirfermingunaer stutt ífulloröinsárin. Þessvegnabendum viöykkurá Bosch rafmagnsborvélasett- iö sem góöa fermingargjöf. Petta borvélasettinni- heidur: Rafmagns- borvél, bora, mælistiku fyrir bordýpt og plasttappastærð, ví?5ústa, bónpúöa, sandpappírsskífur, stuðningshandfang semfesterframan á borvélina, stöng sem stöövar borun ífyrirfram ákveöinni dýpt, bortapparog tveggja metra langan tommustokk. Paöþarf auövitað ekki aö taka þaö fram aö mikill fjöldi aukahluta í þessar rafmagnsborvélareru fáanlegir hjá okkurt.d. stingsög, hjólsög, smergel, rennibekkur, borstanduro.fl. o,fl. Gunnar Ásgeirsson hf. BOSCH þjónustan er í sérflokki! Suduriandsbraui 16 simi 9135200 ________________Umboðsmenn um land allt! frá Bosch. fefur notaáildi!

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.