Morgunblaðið - 08.04.1982, Page 46
46
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 8. APRÍL 1982
Fulltrúar þeir sem sátu sambandsstjórnarfund ÍSÍ sem fram fór í Hafnarfirði 27. mars síðastliðinn.
Heims- og Ol-meistari
keppir í Bláfjöllum
FK/EGIR erlendir skíðakappar
vcrða meðal keppenda í undirbún-
int'Sf'öngunni fyrir „Hraungöng-
una“ svokölluðu sem fram fer á
næsia ári. Undirbúningsgangan fer
fram í Bláfjöllum á annan í pásk-
um. Frægasti keppandinn er
sænski göngugarpurinn Sven Age
Lundbark, en afrekaferill hans er
umtalsverður. Má þar nefna, að
hann varð Ólympíumeistari í 15
km skíðagöngu í Japan 1972.
HeimsmeLstari varð hann í 50 km
göngu í Lathi í Finnlandi 1978 og í
boðgöngu á sama móti. í fyrra sigr-
aði hann síðan i hinu fræga „Vasa-
löppet" í Svíþjóð, móti sem allir
sterkustu göngumennirnir í heim-
inum missa ekki af.
Norðmaðurinn Bjarne Risby
og þær Lena Carlson Lundback
og Marie Johanson frá Svíþjóð
verða einnig meðal keppenda i
göngunni auk þess sem hugsan-
legt er að þau keppi sem gestir á
íslandsmótinu á páskadag. Einn
erlendur skíðamaður keppir sem
gestur í stórsvigi íslandsmóts-
ins, Svein Bye frá Noregi, fær
skíðamaður og norskur lands-
liðsþjálfari.
Fjölmennur sambandsstjórnar-
fundur íþróttasambandsins
Sambandsstjórnarfundur íþrótta-
sambands íslands var haldinn laug-
ardaginn 27. mars í veitingahúsinu
Gafl-lnn, Hafnarfirði.
A fundinum flutti Sveinn Bjöms-
son, forseti ÍSÍ, skýrslu fram-
kvæmdastjórnar ÍSÍ. Skipt var út-
breiðslustyrk ÍSÍ milli sérsamband-
Ungmennafélagið Kormákur á
Hvammstanga hefur ákveðið að
gangast fyrir víðavangshlaupum á
Hvammstanga laugardaginn 17. apr-
íl næstkomandi i samvinnu við
Ungmennasamband Vestur-Húna-
vatnssýslu. Keppt verður i sömu ald-
ursflokkum og í Víðavangshlaupi ís-
lands og vegalengdin svipuð. Keppt
verður á Hvammstanga. Veittir
verða verðlaunapeningar fyrir þrjú
efstu sætin, en öll verðlaun til
anna og samþykktar voru nýjar regl-
ur um þá skiptingu.
Lagt var fram álit nefndar um
könnun á skipulagi og framkvæmd
landsmóta.
Þá var samþykkt að Iþróttaþing
ÍSÍ verði haldið í Reykjavík laug-
ardag og sunnudag 4.-5. sept. nk.
hlaupsins gefur verzlun Sigurðar
Uálmasonar. Líklega verður farin
sérstök rútuferð frá Reykjavik til
Hvammstanga á laugardagsmorgun
og til baka um kvöldið. Væntanlegir
þátttakendur eru beðnir að skrá sig
hjá þeim l’áli Sigurðssyni í síma
1310 eða 1341, eða hjá Flemming
Jessen í símum 1347 eða 1440. I'átt-
tökugjöld eru engin, og að hlaupi
loknu verður þátttakendum boðið
upp á kaffi og önnur huggulegheit.
Kosin var 5 manna nefnd til at-
hugunar á nýju formi á kennslu-
skýrslu sambandsaðila ÍSÍ og
staðfestar lagabreytingar 5 sér-
sambanda.
A sambandsstjórnarfundinum
mættu formenn héraðssambanda
og sérsambanda ÍSÍ svo og fram-
kvæmdastjórn ÍSÍ. Gestir fundar-
ins voru Gísli Halldórsson, heið-
ursforseti ÍSÍ, Reynir Karlsson,
íþróttafulltrúi, og Gunnlaugur J.
Briem, formaður íslenskra get-
rauna.
Bæjarstjórn Hafnarfjarðar
bauð fundarmönnum til hádegis-
verðar og Stefán Jónsson forseti
bæjarstjórnar Hafnarfjarðar var
við það tækifæri sæmdur gull-
merki ÍSÍ, en Stefán Jónsson hef-
ur setið 44 ár í bæjarstjórn Hafn-
arfjarðar og haft mikil áhrif á
framgang íþróttamála í Hafnar-
firði.
Hvammstangahlaup
IDÉ-HURÐIN
Massívar furuhurðir
Ljósar og dökkar
— íslensk staöalmál
60, 70, 80 cm.
Afhending oftast sam-
dægurs, gullfalleg
smíöi. Lægsta veröiö.
Ýmsar fulningahuröir
ásamt úrvali af sléttum
hurðum.
Vönduð vara við
vægu verði
Bústofn
Aðalstræti 8.
Sími 17215.
lönbúð 6, Garöabæ.
Sími 45670.
Foreeti ÍSf, Sveinn Björnsson, sæm-
ir Stefán Jónsson gullmerki ÍSÍ.
ÍSÍ heiðrar
Sigurð og Einar
f TILEFNI 75 ára afmælis íþróttafé-
lags Reykjavíkur, voru tveir menn
heiðraðir í afmælishófi er ÍK hélt
föstudaginn 26. mars sl. með því að
framkvæmdæstjórn fsf sæmdi þá
gullmerki ÍSÍ
l'eir sem þessi sómi var sýndur
eru:
Sigurður Gunnar Sigurðsson fv.
varaslökkviliðsstjóri, er var í 7 ár
formaður ÍR, eða árin 1967 til I972.
Einar Olafsson, kennari, sem telja
má brautryðjanda í unglingaþjálfun
i körfuknattleik, landsliðsmaður i
körfuknattleik og landsliðsþjálfari
og þjálfari hjá ÍR um árabil.
íslandsmótið
f borötennis
um páskana
íslandsmótið í borðtennis 1982
verður haldið í Laugardalshöll 8. og
10. apríl. Keppendur í mótinu eru 98,
frá 9 félögum og héraðssamböndum.
Keppt verður í 8 flokkum einliða- og
tviliðaleikjum.
Sú nýbreytni verður tekin upp á
mótinu að veitt verður sérstök
prúðmennskuviðurkenning,
„Swaythling Club Universal
Prize", og mun þessi viðurkenning
verða veitt einstaklingi eða pari
fyrir prúðmennsku á Islandsmót-
um í framtíðinni.
Verðlaunaafhending fyrir ís-
landsmótið verður í Félagsheimili
starfsmanna Rafmagnsveitu
Reykjavíkur 17. apríl kl. 14.00.
Allir sterkustu borðtennismenn
og konur eru skráð í keppnina og
þar á meðal eru allir sigurvegarar á
síðasta íslandsmóti.
Keppnin hefst á skírdag þann 8.
kl. 10 og lýkur um kl. 18.30. Á
laugardag þann 10. hefst keppni í
tvenndarleik kl. 10 og verður úr-
slitaleikurinn um kl. 13. Úrslita-
leikurinn í tvíliðaleik karla verður
kl. 14.45, í 2. flokki kl. 13.30, i 1. fl.
og meistaraflokkum karla og
kvenna kl. 16.30.
Páskadagskrá SRA á Akureyri:
Mikið um að vera
á Akureyri
Taisvert mikið verður um að vera
á vegum Skíðaráðs Akureyrar um
páskana. Páskadagskráin hefst á
skírdag en þá verður Flugleiðamót í
svigi fyrir 12 ára og yngri, bæði í
drengja- og stúlknaflokkum. Keppni
hefst klukkan II og er þátttaka «11-
um heimil. Á föstudaginn langa
verður parakeppni í flokki 12 ára og
yngri, drengja og stúlkna og hefst
keppni klukkan eitt. Á laugardegin-
um verður siðan Flugleiðamót í svig
í flokkum drengja og stúlkna 13—16
ára.
Sú keppni hefst klukkan 11.
Klukkan 5 sama dag verður SRA
með fjölskylduskemmtun í
Iþróttaskemmunni. Þar verður
spilað glæsilegt kjörbingó, sýndar
verða skíðamyndir, fimleikar og
ýmislegt fleira verður til skemmt-
unar. Á páskadag verður síðan
Flugleiðamót í göngu sem hefst
kiukkan 13.30. Skráning í þetta
mót fer fram við Skíðastaði og á
skráningu að vera lokið fyrir kl. 12
sama dag. Mót þetta er ansi sér-
stakt. Öllum er heimil þátttaka í
því og er fólki boðið upp á að velja
um tvær vegalengdir til að ganga,
annars vegar 5 km braut og hins
vegar 10 km braut. Síðan verður
dregið um vinninga úr nöfnum
þeirra þátttakenda sem ljúka
göngunni og vinningar þeir eru
svo sannarlega ekki af lakara tag-
in. Er þar um að ræða tvær helg-
arferðir til Reykjavíkur og eina
millilandaferð. Þessari páska-
dagskrá SRA lýkur síðan á annan
í páskum með brunmóti í flokkum
12 ára og yngri og hefst það klukk-
an eitt. Flest framangreind mót
eru Flugleiðamót, en Flugleiðir
gefa alla vinninga á þessum mót-
um. — SH.