Morgunblaðið - 08.04.1982, Side 48
_ Síminn é afgreiðslunni er
83033
Sími á ritstjórn og skrifstofu:
10100
Jflótjjimblní>i&
FIMMTUDAGUR 8. APRÍL 1982
„Léleg vertíð ef ufs-
inn hefði ekki komið“
— segir Sigurjón á Þórunni VE
Tveir slösuðust í bílveltu í Hveragerði
Hveragerói, 7. apríl.
UMFERÐARÓHAPP varð hér í
Hveragerði milli klukkan 7 og 8 í
morgun. Þrir ungir utanhéraðs-
menn voru hér á ferð og missti
ökumaðurinn stjórn á bifreiðinni í
brekkunni fyrir ofan hótelið með
þeim afleiðingum, að bifreiðin fór
út af veginum, valt og hafnaði á
hvolfi. Bílstjórinn slapp ómeiddur,
en báðir farþegarnir voru fluttir á
slysadeild Borgarspítalans í
Reykjavik. Þeir voru töluvert slas-
aðir, en ekki taldir í lífshættu.
Grunur leikur á að um ölvun hafi
verið að ræða. Bifreiðin er mikið
skemmd.
— Sigrún
Ríkisverksmiðjurnar:
Starfefólk boðar
verkfall 19. apríl
„ÞAO ER mun meiri ufsi í afl-
anum núna en í fyrra, og það er
Ijóst að þetta væri léleg vertíð ef
að ufsinn hefði ekki komið til,“
sagði Sigurjón Óskarsson skip-
stjóri á Þórunni Sveinsdóttur frá
Yestmannaeyjum en Þórunn er
nú aflahæstur vertíðarbáta með
983 tonn fyrir netabann. í sam-
tali Morgunblaðsins við Sigur-
jón taldi hann að ekki yrði eins
mikill þorskafli og á vertíðinni í
fyrra.
„Þorskurinn sem hefur verið á
ferðinni nú er nálægt hrygningu
og ég tel að það þurfi ný ganga að
koma til ef von er í aflahrotu á
þorski. Þetta er stór fiskur sem
hefur verið að veiðast að undan-
förnu og ekki eins göngulegur og
maður vildi hafa hann,“ sagði Sig-
urjón.
Framhaldið leggst sæmilega í
mig en þetta verður ekki eins góð
þorskvertíð og í fyrra og ég get
ekkert spáð í vertíðaraflann að
sjálfsögðu en þeir dengdu á mig
Akureyri:
Kona lést í
umferðarslysi
Akureyri, 7. apríl.
78 ÁRA gömul kona lézt af völdum
umferðarslysN á Akureyri í gær. Slys-
ið varð á Þingvallastræti skammt
vestan Mýrarvegar um klukkan
16.30. Konan gekk út á götuna og
ætlaði norður yfir, rétt í sama mund
og fólksbíl var ekið austur götuna.
Konan hlaut mikið högg og var flutt
í sjúkrahús þar sem hún lézt
skömmu síðar.
— Sv.P.
ströngum kröfum í upphafi vertíð-
ar í spjallinu og heimtuðu 1800
tonn. En það er nú eins og gengur,
stofnar standast ekki alltaf."
Ákvedinn í
aö kvikmynda
á íslandi
„ÉG STKFNI hiklaust að því að
koma til íslands aftur og gera
drauminn um að kvikmynda þar
að veruleika," sagði Jean Jacques
Annoud, franski kvikmyndaleik-
stjórinn, sem gerði kvikmyndina
„Leitin að eldinum", í samtali við
Morgunblaðið. Hann var þá
staddur í London, en fyrstu frum-
sýningar myndarinnar i Evrópu
eru samtímis þar og í Reykjavík.
Upphaflega var ætlunin að
hlutar þessarar kvikmyndar,
sem hlaut margföld Oscars-
verðlaun bandarísku kvik-
myndaakademíunnar nú ný-
lega, yrðu teknir hérlendis.
Annoud sagði: „Ekkert land
hefur haft önnur eins áhrif á
mig og ísiand og ég vonast til að
geta komið þangað sem fyrst og
gert mynd. Það voru mér mikil
vonbrigði, hvernig fór síðast,
enda reyndum við allt, sem í
okkar valdi stóð til að koma í
veg fyrir það.“
Áætlanir eru nú uppi um að
gera framhald kvikmyndarinn-
ar „Leitin að eldinum". Annoud
kvaðst ekki búinn að gera upp
hug sinn um það, hvort hann
tæki það verk að sér og þá ef til
vill á íslandi. „En ef ekki hana,
þá aðra,“ sagði Annoud, „ég er
heillaður af Islandi og berg-
numinn af landslaginu, sem ég
sá á sínum tíma, þegar ég ferð-
aðist um landið í leit að upp-
tökustöðum."
STARFSFÓLK í ríkisverksmiðjunum
boðaði í gær til verkfalls frá og með
19. apríl næstkomandi takist samn-
ingar ekki áður. Starfsmenn i verk-
smiðjunum, þ.e. Áburðarverksmiðj-
unni í Gufunesi, Sementsverksmiðj-
unni á Akranesi og Kísiliðjunni við
Mývatn, eru í ýmsum verkalýðsfélög-
um, en stærst eru félög verkafólks,
iðnaðarmanna og verzlunarfólks.
Síðustu daga hafa fulltrúar
verkalýðsfélaganna og vinnumála-
nefnd rikisins haldið nokkra fundi
undir stjórn sáttasemjara ríkisins.
Að loknum löngum fundi snemma í
gærmorgun var ákveðið að gera hlé
á viðræðum fram yfir páska. Næsti
fundur verður klukkan 16 á þriðju-
dag. Nákvæmlega hefur verið farið
yfir kröfugerð verkalýðsfélaganna
og eru umræður nú farnar að snú-
ast um kaupliði og gildistíma samn-
ingsins, sem væntanlega yrði 12
mánuðir.
Þó svo að aðilar hafi ræðst við
undanfarið töldu verkalýðsfélögin
orðið tímabært að knýja á um
samning með boðun verkfalls. Kröf-
ur sínar lögðu félögin fram í des-
ember.
Meintur fjár-
dráttur kæröur
STÓRFYRIRTÆKI í Reykja-
vík hefur lagt fram kæru á
hendur einum starfsmanni
sínum fyrir meintan fjár-
drátt.
Mbl. bar þetta undir Hallvarð
Einvarðsson, rannsóknarlög-
reglustjóra. Hann staðfesti að
kæra hefði borist frá stórfyrir-
tæki um meintan fjárdrátt
starfsmanns, en vildi ekkert tjá
sig um efni hennar.
Góðviðri
um páskana
AÐ SÖGN Gunnars H. Sigurðsson-
ar, veðurfræðings má gera ráð fyrir
hægviðri eða norðangolu og björtu
veðri mcstan hluta landsins nema
austanlands næstu daga. Þar er spáð
éljum.
PI®r01$S#IlthÍfo
MORGUNBLAÐIÐ kemur
næst út miðvikudag eftir
páska, 14. apríl.
Grein um Island í Prövdu:
Bandaríkjamenn breyta
landinu í sóknarstöð
SAMKVÆMT SKEYTI, sem Morgunblaðinu hefur borist frá fréttaritara
Associated Press í Moskvu, birtist grein um það í málgagni sovéska
kommúnistaflokksins Prövdu sunnudaginn 4. apríl, að rikisstjórn íslands
væri klofin i afstöðu sinni til aukinna hernaðarumsvifa Bandarikjamanna
í Keflavík.
„Enn á ný hefur komið til al-
varlegs ágreinings innan ís-
lensku ríkisstjórnarinnar vegna
bandarísku herstöðvarinnar í
Keflavík," segir Mikhail Kosti-
kov fréttaritari Prövdu á Norð-
urlöndunum í þessari grein. Og
hann bætir við: „Bandaríska
varnarmálaráðuneytið, sem
stendur fyrir framkvæmdum í
herstöðinni, hefur hraðan á
smíði nýrra flugskýla fyrir
orrustuvélar þar. Jafnframt hef-
ur verið tekin ákvörðun um að
smíða nýja flugstöð í Keflavík,
sem er nálægt höfuðborginni.
Bandaríkjamenn lofuðu að borga
allan kostnað við smíði stöðvar-
innar, ef til þess kæmi, að þeir
þyrftu að leggja allan flugvöllinn
undir sig á hættutímum."
Enn segir í málgagni sovéska
kommúnistaflokksins, Prövdu:
„Innan ríkisstjórnarinnar er
einnig um það deilt, hvort smíða
eigi nýja eldsneytisgeyma, sem
rúma 65 þúsund lestir við Helgu-
vík, sem ekki er langt frá Reykja-
vík.“ Og Mikhail Kostikov vísar
til íslenskra heimilda og segir:
„Samkvæmt því, sem segir í ís-
lenskum blöðum, eru áætlanir
bandaríska varnarmálaráðu
neytisins þær, að við flugherstöð-
ina í Keflavík skuli bætast
herskipahöfn, þar sem bandarísk
herskip geti athafnað sig í fram-
tíðinni. Með þessum hætti eru
ráðamenn í Washington að reyna
að auka hernaðarstyrk sinn á ís-
landi undir margvíslegu yfir-
skyni og þar með breyta eyjunni
í marghliða sóknarstöð til að
hrinda árásaráformum í fram-
kvæmd."
Samkvæmt upplýsingum, sem
Morgunblaðið hefur aflað sér, er
greinin í Prövdu hin harðorðasta
um ísland, sem lengi hefur birst í
sovéskum blöðum. Eins og venju-
lega byggja hinir sovésku „frétt-
amenn“ á einhliða heimildum frá
Islandi, og þá gjarnan Þjóðvilj-
anum eða Mr. 0. Grímssyni, eins
og Ólafur R. Grímsson, formaður
þingflokks Alþýðubandalagsins,
er jafnan nefndur í sovéskum
blöðum.
Þótt umrædd grein hafi birst í
Prövdu á sunnudaginn hefur
henni ekki enn verið dreift hér á
landi af hinni sovésku frétta-
stofnun í Reykjavík, APN-No-
vosti. En fyrrum forstöðumaður
þeirrar stofnunar, Alexander
Agarkov, hvarf héðan af landi í
ágúst 1981 um sama leyti og birt-
ist frétt eftir hann á forsíðu Prö-
vdu, sem Haukur Már Haralds-
son, formaður „Islensku friðar-
nefndarinnar", sagði að væri
ekki á rökum reist. Mikhail
Kostikov, sem nú er fréttaritari
Prövdu á Norðurlöndunum og
skrifaði þá grein, sem hér er sagt
frá, var á sínum tíma forstjóri
APN-Novosti í Reykjavík.