Morgunblaðið - 24.06.1982, Side 2

Morgunblaðið - 24.06.1982, Side 2
2 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 24. JÚNÍ1982 Líflegt var við Norræna húsið í gærkvöld er dansað var fram eftir Jónsmessunótt. Samtök vinabæjarfélaga á Norðurlöndum efndu þar til hátíðar og var m.a. dansað kringum þessa skreyttu stöng er reist hafði verið að sænskum sið í tilefni hátíðarinnar. Allmargt var um manninn, enda blíðuveður. Ljósm.: Kristján. Ólafur Haraldsson, flugumferðarstjóri: Starfa að hluta við flug- umferðarstjórn og sinni ýmsum verkefnum ÓLAFUR Haraldsson flugumferðarstjóri, sem fyrir skömmu var rekinn úr Félagi flugumferðarstjóra, vinnur nú að ýmsum verkefnum á vegum flugvallarstjóra á KeflavíkurflugveJli. Ólafur hefur gegnt störfum varðstjóra þjálfunar, haft umsjón með þjálfun flugumferðarstjóra og auk þess hefur hann verið staðgengill yfirflugumferðarstjóra, en leyst af í flugturni yfir sumarmánuðina. „Ég vinn ekki við almenn flug- umferðarstjórastörf eins og málin standa, en starfa að hluta við flug- umferðarstjórn og sinni ýmsum öðrum verkefnum fyrir flugmála- stjórn, svo sem samskiptum við varnarliðið, áætlanagerð og fleira," sagði Ólafur Haraldsson flugumferðarstjóri í gær. Ólafur var spurður um brottrekstur hans úr Félagi flugumferðarstjóra. Hann svaraði: „Málið er nú í hönd- um stjórnvalda og ég vona að það fái farsæla lausn, sem allir geta sætt sig við.“ Hann vildi að öðru leyti ekki tjá sig um mál þetta. í gær ræddi Mbl. við flugum- ferðarstjóra í flugturninum á Keflavíkurflugvelli, en þeir vildu ekki ræða brottrekstur Ólafs Har- aldssonar við fjölmiðla, og vísuðu á stjórn félagsins í því sambandi. Hins vegar létu þeir þess getið að ekki væru enn öll kurl komin til grafar í máli þessu og sögðu margt það missagt sem fram hefði komið. valin til sýninga á 6. norrænu barna- og unglingahátíðinni í Hanaholmen í Finnlandi, á 12. al- þjóðlegu barna- og unglinga- konar hátíð í Kanada. Myndin verður sýnd í Regnboganum um næstu helgi. Auglýsendur athugið! Auglýsingar sem eiga að birtast í sunnudagsblaði, þurfa framvegis að berast auglýsingadeild fyrir kl. 16.00 á föstudögum. Samið var um 5% verð- lækkun á saltfískinum „Jón Oddur og Jón Bjarni“ KVIKMYNDIN Jón Oddur og Jón Bjarni hefur verið valin ein af ellefu myndum sem sýndar verða á kvikmyndahátíð barnamynda í Evrópu, sem haldin verður i Frankfurt í september nk. Þá segir í frétt frá Norðan 8 hf., að danska sjónvarpið hafi keypt sýningarrétt og sé ráðgert að sýna hana 6. ágúst, en rúmlega 60 þúsund manns hafa séð myndina hérlendis. Kvikmyndin hefur einnig verið myndahátíðinni á Ítalíu og sams SÖLUSAMBAND ísl. fiskframleið- enda hefur nú náð samkomulagi við Portúgali vegna flokkunargalla og annarra mistaka við saltfiskfarminn, sem var í skipinu Glaciar Verde. Samkomulagið felur í sér, að hluti farmsins er felldur um einn gæða- flokk og nemur heildarverðlækkun liðlega 5% af verðmæti farmsins. í fréttatilkynningu frá SÍF seg- ir, að undanfarna daga hafi eftir- litsmenn SÍF og starfsmenn Framleiðslueftirlits sjávarafurða unnið að skoðun saltfisks í Portú- gal vegna alvarlegrar kröfu sem barst vegna farmsins í Glaciar Verde. Síðdegis í gær náðist síðan samkomulag um farminn. Auk farmsins úr Glaciar Verde hafa álíka gallar komið í ljós við skoðun á farmi úr Eldvík sem enn er að losa í Portúgal. Unnið er að skoðun fisksins úr Eldvík og liggja niðurstöður væntanlega fyrir um helgina, en ljóst virðist að þar sé um minna mál að ræða. Þá segir að aðalástæða þessarar kvörtunar, sem viðurkennt er að á við rök að styðjast virðist vera, að fiskinum hafi verið pakkað svo illa stöðnum að hann þoli ekki hið minnsta hnjask. Ennfremur hafi átt sér stað önnur augljós og slæm mistök í mati í einstaka tilfellum. Einnig segir í fréttatilkynningu SÍF, að ljóst sé að leggja verði ríka áherzlu á að slík mistök sem þessi endurtaki sig ekki. Við lausn þessa máls hefur þess verið vandlega gætt að kaupand- inn ríkisfyrirtækið Reguladora skaðist ekki vegna þessa máls og hin góðu viðskiptasambönd land- anna verði áfram í fullu gildi. Brezkir þingmenn hér í boði Alþingis HÉRLENDIS er stödd þessa dagana í boði Alþingis brezk þingmannasendinefnd. Heimsókn þessi er endurgjald fyrir heimsókn íslenzkra þingmanna til Bretlands fyrir skömmu. I hópnum eru átta manns. Heimsókninni lýkur á föstudag, en hún hófst sl. laugardag. í hópi Bretanna eru eftirtaldir, samkvæmt upplýsingum frá skrifstöfu Alþingis: Nigel Forman, Tel að æðri máttarvöld hafi gert gæfumuninn segir Birgir Árnason, sem bjargaði tveimur drengjum úr sjávarháska við Skagaströnd „ÞAÐ er ekki hægt aö neita því, að í þessu tilfelli hafa máttarvöldin ráðiö miklu með þvi sem virtist röð tilviljana. Án þeirra hefði ég aldrei verið til staðar til að bjarga þessum drengjum. Vegna aflandskaldans hefði þá ábyggilega rekið á haf út og hvolft þar,“ sagði Birgir Árnason, hafnar stjóri og formaður björgunarsveitar Slysavarnafélagsins á Skagaströnd, í samtali við Morgunblaðið, en hinn 16. júní síðastliðinn bjargaði hann tveimur drengjum úr sjávarháska. „Eg er hafnarstjóri og ég var að vinna við mín störf inni í húsi, sem höfnin á,“ hélt Birgir áfram. „Það var gott veður og mér datt allt í einu í hug, og það héldu mér engin bönd, að ég mætti til að fara í grásleppunet- in. Ég átti nokkur net úti og þau voru búin að vera nokkuð lengi í sjó, þar sem alls engin veiði var. Þegar klukkan var um hálf fimm datt mér í hug að það væri bara bezt að fara, ég nennti þessu dútli ekki meira. Ég fór heim og sótti gallann minn, fór ofan í bát og ætlaði að fara út, en þá kom ég ekki vélinni í gang vegna þess að hún var rafmagnslaus. Éin- hver hefði nú sett geyminn í hleðslu og bara sagzt fara á morgun, en ég lét mig ekki við svo búið, mér var ómögulegt annað en að halda áfram og ég tók geyminn úr jeppanum mín- um, en það hef ég aldrei gert áður. Með það komst ég á sjóinn og dró tvær trossur inn í bátinn og skildi eina eftir. Þá var kom- inn aflandskaldi og er ég hélt áleiðis heim, sá ég að gamall maður, sem fór á sjó um svipað leyti og ég, var í vandræðum vegna vélarbilunar. Ég fór að huga að honum, þurfti að keyra rúman stundarfjórðung til þess að ná honum, tók hann síðan í tog og hélt af stað heim. Þá var kominn svo mikill kaldi að farið var að gefa á bátinn hjá mér og ég varð að fara í galla til þess að blotna ekki. Þegar ég átti eftir svo, þrjá kílómetra að Skagaströnd sá ég hvar lítil gúmmítuðra kom út frá fjörunni og í henni tveir guttar. Þeir voru að berjast við að reyna að róa að landi, en það gekk ekkert og þá rak stöðugt frá landi og voru komnir það langt frá, að þeir hefði aldrei náð landi aftur, því þetta var lít- il gúmmítuðra og þó ekki væri mikið að veðri hefði það dugað. Þetta voru tveir 10 ára guttar og höfðu ætlað að fara að huga að silunganetum og tóku tuðruna í heimildarleysi, þannig að enginn hefði vitað neitt um þá fyrr en tuðrunnar hefði verið saknað. Vegna þess að þá rák á tals- verðri ferð í áttina til mín, var ég í vandræðum með það hvernig bezt væri að ná þeim. Ég tók svo það ráð að stöðva hjá mér bát- inn, þannig að tuðruna ræki beint á hann. Ég þorði ekki að kalla í þá svo þeim yrði ekki bilt við, annar var farinn að gráta og orðinn anzi aumur og hinn rennvotur. Þegar tuðruna rak á bátinn hjá mér greip ég í þann sem var utar og tuðruna, en lét þann, sem innar var, stökkva sjálfan upp í bátinn. Þannig að þetta endaði með ágætum og ég er ánægður með að hafa getað bjargað guttunum, því þó ekki væri mikið að veðri hefðu þeir aldrei ráðið við tuðr- una og rekið á haf út. Það er þó alveg ljóst að allar þessar tilvilj- anir hafa bjargað mestu og þar hljóta æðri máttarvöld að hafa komið til skjalanna. Ég álít það alveg öruggt að einhver hafi ýtt mér af stað,“ sagði Birgir. sem er formaður sendinefndarinn- ar en hann er þingmaður Sutton, Carshalton, barónessa David og barónessa Gardner of Parkes, þá Richard Alexander þingmaður Newark, Andrew Bennett þing- maður Stockport North, Michael Bortherton þingmaður Louth, Dale Campbell-Savours þingmað- ur Workington og Stephen Ross þingmaður Isle of Wight. Gestirnir hafa ferðazt um land- ið og hitt ráðamenn að máli. í gær fóru þeir m.a. í Skaftafell, til Hafnar í Hornafirði og Vest- mannaeyja. í dag sækja þeir Bessastaði heim og ræða við for- seta íslands, einnig heimsækja þeir nokkur atvinnufyrirtæki og opinber fyrirtæki og stofnanir. Ellefu hval- ir á land ELLEFU hvalir eru nú komnir á land í hvalstöðinni í Hvalfirði, en þetta er 35. sumarið sem hvalveiðar eru stundaðar á vegum Hvals hf., samkvæmt upplýs- ingum sera Mbl. fékk hjá Kristjáni Loftssyni forstjóra. Fjögur skip eru að veiðum eins og endranær. Hvalirnir sem veiðst hafa eru langreyðar. Kristján kvað útlitið í sumar gott og sagði hann að mikið væri um átu á hvalaslóð, bæði rauð- átu og ljósátu, en hvalirnir hafa veiðst suðvestur af Garðskaga. Það sem helst háir veiðum hval- bátanna þessa dagana er slæmt skyggni, en þokusamt er nú á miðun- um suður og vestur af landinu.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.