Morgunblaðið - 24.06.1982, Síða 11

Morgunblaðið - 24.06.1982, Síða 11
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 24. JÚNÍ 1982 11 Sölumál kindakjöts: Ástandið verra en það hefur verið í mörg ár „ÁSTANDIÐ er nú lakara en það hefur verið í mörg ir,“ sagði Gunnar Guðbjartsson framkvæmdastjóri Framleiðsluráðs landbúnaðarins, þegar Morgunblaðið hafði samband við hann og spurði um útlitið á sölu dilkakjöts, en til voru í landinu nú 1. maí 5.563 lestir af dilkakjöti, á móti 3.862 á sama tíma í fyrra. Þannig að birgðirnar eru nú tæplega 2.000 tonnum meiri. Það er fyrst og fremst markað- urinn í Noregi sem hefur sett strik í reikninginn, en þangað hafa ver- ið seld 3.000 tonn árlega undanfar- in ár, en í ár seljum við þangað ekki nema 600 tonn, sem er það magn sem Norðmenn voru skuld- bundnir til að taka samkvæmt EFTA samkomulagi. Ástæðurnar fyrir því að markaðurinn hefur brugðist með þessum hætti í Nor- egi, er að Norðmenn hafa aukið heimaframleiðslu á kjöti mikið. Þá hefur kjötverð hækkað, sem hefur skilað sér í minnkandi neyslu. Mikið starf er nú unnið við að leita nýrra markaða í Bretlandi og víðar, en Gunnar kvaðst hóf- lega bjartsýnn á að það gengi vel, til þess gæti komið að þetta lægi í óseldum birgðum, en þeir gerðu allt sem þeir gætu til að selja það Iðntæknistofnun íslands: Ýmsum efnum ber að gefa gaum með orkufrekan iðnað í huga MEÐAL þeirra efna, sem talin er ástæða til að gefa nánari gaum með það í huga að nýta raforku í orkufreku iðnferli, eru kísilkarbíð, kalsíumsílisíð, mangan, króm, zink og kopar, segir í frétt frá Iðntæknistofnun íslands. Þá er talið, að framleiðsla á kísilmálmi, klórati og magnesíum sé hagstæð í þessu sambandi auk þess orku- freka iðnaðar, sem fyrir er í land- inu, þ.e. framleiðsla áls og kísil- járns. Einnig er lagt til, að könnuð verði títan- og zirkonium-fram- leiðsla í tengslum við magnesí- umframleiðslu. Þetta eru niðurstöður áfanga- skýrslu Iðntæknistofnunar Is- lands um orkufrek iðnferli, en á vegum stofnunarinnar fer nú fram könnun á notkun raforku í þessu skyni. Er þá miðað við, að orkufrek iðnferli séu fram- leiðsla, sem þarf meiri raforku en 2 kWst á hvert kg afurðar. Fyrsta skref könnunarinnar og tilgangur áfangskýrslunnar er að reyna að meta hvaða iðn- ferli gefa tilefni til frekari at- hugunar með það í huga, hve raforkuverð, flutningskostnað- ur, hráefnisverð og fleira er mikill hluti af markaðsverðinu. Könnunin beinist bæði að hrá- efnum og framleiðslutækjum, en þau helstu eru viðnámsofnar, spanofnar, ljósbogaofnar, plasmaofnar og rafgreiningarb- únaður. Jafnframt eru könnuð hugsanleg önnur not hráefna og afurða slíkra iðnferla við að byggja upp tengdan iðnað, sem þá er ekki endilega orkufrekur sjálfur. og finna markaði fyrir kjötið. Þá setti það einnig strik í, reikning- inn, að óvenju mikið af þessum birgðum væri ærkjöt eða 600—800 tonn, en erfiðara væri að losna við það. Tónleikar Samkór Trésmíöafélags Reykjavíkur heldur vortón- leika sína í Gamla bíói, laugardaginn 26. júní kl. 14.00. Aögöngumiöar viö innganginn. Tónleikarnir veröa ekki endurteknir. I lúsnæöisslol'inin rikisins Ábending til launagreiðenda Skv. lögum nr. 51/1980 um Húsnæðisstofnun ríkisins er öllum einstaklingum á aldrinum 16—25 ára skylt að leggja til hliöar 15% af launum sínum, enda hafi þeir ekki formlega undanþágu. Atvinnurekendum og öðrum launagreiðendum er skylt aö halda þessum skyldusparnaöi eftir af launum starfsmanna sinna. Skv. 76. gr. þessara laga getur skattyfirvald ákveð- iö sérstakt gjald á hendur þeim atvinnurekanda, sem vanrækir skyldu sína í þessu efni. Húsnæðisstofnun ríkisins beinir þeirri áskorun til atvinnurekenda og annarra launagreiöenda aö gæta þessara lagaákvæöa. Húsnæðisstofnun ríkisins. fer frá Keflavík á föstudögum í allt sumar! Breska bílalestin er nafn á sérstöku ferðatil- boði breska ferðamálaráðsins BTA og Flug- leiða. Flogið er til Glasgow eða London og síðan ferðast hver og einn um Bretland eins og hann lystir með bílaleigubíl eða lest og gistir á góóum hótelum víðsvegar um landið, sem eru þátttakendur í samstarfinu. Breska bílalestin er ferðamáti sem allir geta notfærtséren þóekkisíst fjölskyldur, þvíbörn og unglingar fá verulegan afslátt í flestum tilfellum. Það verður flogið frá Keflavík á föstudögum í allt sumar og stefna tekin á Glasgow eða London. Flug, bílaleigubílar, lestarferðir og gisting eru á frábæru verði. T.d. kostar flug- far, vikugisting í tveggja manna herbergi og morgunverður aðeins frá 5.133 krónum sé flogið til London og flugfar, vikugisting í tveggja manna herbergi og morgunverður aðeins frá 4.659 krónum sé flogið til Glasgow. Austin Mini er hægt að leigja fyrir minna en 60£ á viku með ótakmörkuðum akstri og ýmsa stærri bíla fyrir álíka hlægilegt verð. Ef þér hentar ekki að hefja feröina á föstu- degi, getur þú tengt tilboðsverðið á bílaleigu- bílunum, lestarferðunum og gistingunni þeim sérfargjöldum, sem í boði eru jjriÉ) hverju sinni. Leitið upplýsinga og fáið bækl- ing hjá söluskrifstofum Flug- leiða, næsta umboðs- manni eða ferðaskrif- stofunum. FLUGLEIDIR Gott fólk hjá traustu félagi

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.