Morgunblaðið - 24.06.1982, Síða 12

Morgunblaðið - 24.06.1982, Síða 12
12 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 24. JÚNÍ1982 Tundurdufl gert óvirkt í Þvottáreyjum: Ingvar og Gylfi mæta á staAinn meA sprengiefnið. Sprengingin heyrðist í 25 kílómetra fjarlægð MIKIL sprenging kvað við í Þvott- áreyjum í Hamarsfirði á þriðjudag í síðustu viku og myndaðist stór og mikill gigur. Starfsmenn Land- helgisgæzlunnar voru þar á ferð við að gera tundurdufl óvirkt. Tvö tundurdufl frá stríðsárunum fund- ust í eyjunum og var annað þeirra virkt. Það var af Mark-20-gerð, og i því voru 225 kg af sprengiefni. Menn frá Djúpavogi vísuðu Landhelgisgæzlumönnum á dufl- in og fannst það virka á suður- hluta Þvottáreyja með leitar- tæki á um 50 sentimetra dýpi. Gylfi Geirsson gerði tundurdufl- ið óvirkt, en ásamt honum fóru Benedikt Guðmundsson og Ingv- ar Kristjánsson austur. Tvær sprengingar þurfti til; hin fyrri reif duflið sjálft en í síðari sprengingunni fór sprengju- hleðslan sjálf, gífurleg spreng- ing kvað við þegar 225 kíló af sprengiefni leystust úr læðingi og mikill gígur myndaðist; um fjögurra metra djúpur og 12 metrar að þvermáli. Svo mikill var krafturinn, að sprengingin heyrðist greinilega í Hlöðu í Breiðdalsvík, í um 25 kílómetra fjarlægð. En sjón er sögu ríkari; mynd- irnar tóku þeir Gylfi og Bene- dikt. Tundurduflið rifnaði í sundur í fyrri tilrauninni, en sprengjuhleðslan sprakk ekki. Myndir: Gylfi (>eiretmn og Benedikt (iuðmundsNon. í næstu tilraun gekk betur; þá myndaðist 4 metra djúpur gigur og sprengingin heyrðist í 25 kílómetra fjarlægð. Fyrirlestur um landa- fræði, vísindi og tækni Dýpkunarskipið Putte Pan dælir upp steypuefni í Norðfjarðarhöfn. Ljównynd J.t;.K. Dælir upp steypuefni og dýpkar hafnir víða um land Alice Saunier-Seite, prófessor í landafræði og fyrrverandi há- skóla , vísinda- og fjölskyldumála- ráðherra Frakka í stjórn Giscards d’Estaings, er hér á landi í boði menntamálaráðuneytisins. En hún kom til íslands ótal sinnum á ár- unum 1957—71 og hefur flutt í Frakklandi fjölda fyrirlestra um ísland. En áherzlu leggur hún á hagræna landafræði. Gerði það jafnvel meðan hún var ráðherra. Einnig var AJice Saunier-Seite okkur íslendingum góður stuðn- ingur á alþjóðavettvangi, þegar okkur mest á reið, í landhelgis- deilunni. Landfræðingurinn Alice Saunier- Seits, fyrrv. háskólamálaráðherra Frakka. Fyrsta sagan um Lassiter Út er komin hjá Flateyjarútgáf- unni sf. fyrsta bókin í bóka- flokknum um Lassiter eftir Jack Slate, í þýðingu Baldurs Hólm- geirssonar. Sagan heitir Gull og græðgi. Frú Seite mun í dag, fimmtu- dag, fiytja fyrirlestur á vegum Háskóla Islands og Vísindafé- lags Islendinga í Norræna hús- inu kl. 4 e.h. Fyrirlesturinn ber heitið „Landafræði, vísindi og tækni" og er fluttur á frönsku, en íslenzkri þýðingu verður dreift meðal fundarmanna. Er öllum heimill aðgangur. Frú Saunier-Seite er sem fyrr er sagt landfræðingur, hét Alice Pickard er hún kom fyrst til ís- lands fyrir 25 árum. Hún hefur mikið kynnt sér norðurslóðir, t.d. verið á Spitzbergen og í Al- aska, auk íslands. Hún hefur undanfarna daga verið önnum kafin við að skoða landið, farið til Vestmannaeyja, var í Borg- arfirði í gær og flytur í dag fyrirlesturinn í Háskólanum. DJÚPVERK sf. tók nýlega dýpkun- arskipið Putte Pan á kaupleigu- samning til 8 mánaða og eru mögu- leikar á framlengingu þess samn- ings til þriggja ára til viðbótar og þá á kaupum á skipinu. Skipið hefur að undanförnu unnið að því að dæla upp steypu- efni víða um land. Frá miðjum maí var Putte Pan í Norðfirði í rúman mánuð, síðan 4 daga á Patreksfirði, er nú á ísafirði og heldur síðan til Hríseyjar. Að sögn Kristjáns Guðmundssonar hjá Djúpverki hefur vinnan geng- ið vel að fráskildum lítilsháttar byrjunarörðugleikum, sem nú hefðu verið yfirstignir og væru viðskiptavinir ánægðir með þjón- ustuna. A Putte Pan er danskur skipstjóri og 6 íslenzkir menn að auki. Þórarinn Sveinsson, sérfræðingur í krabbameinslækningum: Uppgötvun bandarísku vísindamannanna leysir ekki meðferöarvanda á næstunni „ÞETTA er að mínu mati aðeins eitt skref í átt til lækninga á krabbameini, og ég held að þessi uppgötvun hafi ekki hagnýtt nota- gildi næstu árin. Þegar eitthvað nýtt kemur fram varðandi rann- sóknir á krabbameini eru ætíð miklar vonir við það bundnar í byrjun, en síðan hjaðna þessar vonir oft,“ sagði Þórarinn Sveins- son, sérfræðingur í krabbameins- lækningum á Landspítalanum, er Morgunblaðið innti hann álits á því hvort hvatinn, sem stjórnar krabbameini, sé fundinn. „Þetta efni, sem bandarísku vísindamennirnar hafa fengið fram, virðast þeir fá fram í þvagi og hafa síðan aftur getað gefið þetta efni frumum, sem þá líkjast krabbameinsfrumum. Taki þeir síðan þetta efni frá frumunura aftur virðast þær verða að venjulegum frumum á ný. Ég held að það sé langt frá því að þessi uppgötvun leysi nokkurn meðferðarvanda á næstu árum, það þarf mun meira til en þetta. Það eru að gerast ákveðnir hlutir í krabba- meinsrannsóknum, menn eru að feta sig áfram, en oft er það þannig að menn feta sig til hlið- ar, taka sporin bæði fram og aft- ur. En það getur vel verið að þarna sé um marktækan árang- ur til ráðningar gátunnar að ræða, en mun ekki hafa nein áhrif á meðferð krabbameins á næstunni," sagði Þórarinn. fEr hvatinn, sem stjórnar krabbameininu, fundinn? 4 riun um h'ernif hnllnó •'* *«* •* *•'**•■*• <>fW» h'*l» r*« bormóiln i mann-hkam ■n«m. m-m m.a. ýlir undn óróli h-fn nilmuoil TnM r>, né þrmu upp*..l*un (rti >*MiA h.llmíu , l lí'i inm*u lutbbnmrinii i rrum»liKi k i In-liningu þrm. Irl, *A I þrmi hrnli uljórni i raun hrabba I mnn.lrumunm ug raldi rrili brnn rfir dr. I.iorgr J Tndaro. 1-inrlamannanna >ló Handa Hvalar vrrða til | hrlalu kirtl- um likamani þaðan arm þrir hrr "• •* Mvra rða hala áhnf « nmt, þæin mannlrgrar hrgðun Srm ilærni um þ.A ma nrfna. bvalinn traliwtrronr vrldur Þvi að fontur vrrAur drrnnur rn rkki atulka uk itrfur karlmonnum Nu rinkrnni. Krnn. þi fri k»"um | hnlhriKAum likam. bafa hv.tarnir rn|(ln ihr.f i þ*r frumur. »rm framlriAa þa. rn þmnu rr þu ofuat f,r.A mrA hval- ann. arm Tndaro hrfur rinangraA Hann hrfur ihrif i ajilfar móA- urfrumurnar þannin aA þ»r lifa i raun i fjilfum arr .Af þrnaum aokum rru krahha mrinafrumurnar miklu ajilf- nUrAari i>k þurfa litla narrinK» fri oArum hlutum likamana." nrKÍr dr Twlaro llann aaKÓi, að hvatinn fyndiat i þva|(i krabba- mrinaajúklinKa i>k að avo virtial *rm »mu áatarAur yllu æxliavrnti i ollum trKundum krabhamrins l>r Todani -aybi kuiniA hrfði i Ijos við tilraunir. að iNvar illkynja frumur voru sviptar hvalanum hrfAu þær fariA aA huKa »T srm hrilhrÍKðar væru „k l»'Kar hrilhriKðum frumum var Krfinn hvatinn hrfAu þa-r Krrst illkynja .ÞóKar við ha-ttum hms irKar aA K>'fa þmm hvatann sloAvaðist æxlisnnturmn, sukAi dr Tislaro

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.