Morgunblaðið - 24.06.1982, Blaðsíða 13
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 24. JÚNÍ 1982
13
Prestastefnan
hefst á mánudag
PRESTASTEFNAN 1982 verður sett
á Hólum í Hjaltadal næslkomandi
mánudag kl. 13:30. Setur hana hr.
Pétur Sigurgeirsson biskup, í fyrsta
sinn sem biskup landsins. Flytur
hann yfirlitsskýrslu sína í Hóla-
dómkirkju og Friðjón Þórðarson
kirkjumálaráðherra llytur þar einnig
ávarp.
Fundir prestastefnunnar munu
að öðru leyti fara fram í fundarsal
Bændaskólans. Aðalefni er: Friður
á jörðu. Framsöguerindi flytja dr.
Þórir Kr. Þórðarson, sr. Sváfnir
Sveinbjarnarson prófastur og dr.
Gunnar Kristjánsson. Presta-
stefnunni verður slitið í Sauðár-
krókskirkju að kvöldi 30. júní og ef
veður leyfir ráðgera margir prest-
anna Drangeyjarför daginn eftir.
Sumargleðin
á fulla ferð
TÓLFTA hringferð Sumargleðinnar
hefst á föstudaginn í Stapa. Á laug-
ardeginum verður gleðinni síðan
haldið áfram á Akranesi og helgina
2.—4. júli verður sumargleðin stödd
á Austfjörðum. Síðan verður haldið
áfram uns hringnum hefur verið lok-
að og tekur gleðin enda í Reykjavík
með haustinu, að sögn talsmanna
Sumargleðinnar, en að henni standa
Ragnar Bjarnason og hljómsveit og
auk þess verða með í förinni þeir
Magnús Ólafsson, Þorgeir Ast-
valdsson, Bessi Bjarnason og Ómar
Ragnarsson.
Að sögn þeirra Þorgeirs og
Magnúsar mun flokkurinn bjóða
upp á splúnkunýtt tveggja tíma
prógram þar sem lögð verður
áhersla á kabarett, sem saman-
stendur af leikþáttum, söngleikj-
um og óperu og sögðu þeir að þetta
slagaði hátt upp í að vera orðið að
revíu. Þorgeir tjáði okkur, að þar
sem engin kona skipaði flokkinn
„myndu þeir bregða sér í kvenna-
gervi ef á þyrfti að halda til að
viðhalda jafnréttinu". Einnig yrði
á dagskránni bingó, þar sem spil-
að væri um fjöldann allan af vinn-
ingum, aðalvinningurinn, bifreið,
verður dreginn út á lokagleðinni í
haust. Á eftir skemmtiatriðunum
verður síðan stiginn dans með
„botnlausu stuði fram eftir nóttu“,
að sögn Þorgeirs.
Þorgeir sagði, að engar manna-
breytingar hefðu orðið í flokknum
utan að búið væri að ráða nýjan
framkvæmdastjóra, Jón Ragn-
arsson, rallökumann, sem einnig
verður bílstjóri flokksins.
Þess má geta að til að alls öryggls sé gætt á ferðum Sumargleðinnar í sumar
mun hinn landsþekkti Jónas ásamt fjölskyldu vera með í ferðum. Á mynd-
inni eru þeir Ómar, Magnús og Bessi.
EFÞAÐERFRÉTT-
NÆMTÞÁERÞAÐÍ
MORGUNBLAÐINU
Al'GLYSINGA-
SÍMINN ER:
22480
Þórscabarett um landið
Þórskabarett og hljóm-
sveitin Geimsteinn leggja af
stað í hringferð um landið á
föstudaginn, 25. júní nk. í
förinni, sem stendur fram í
miðjan ágúst, verða 25 staðir
heimsóttir. Að sögn Jörundar
Guðmundssonar verður í
sumar boðið upp á nýja og
betri dagskrá en í fyrra
sumar.
Fyrsti áfangastaður verður Nes-
kaupstaður, en hópurinn ráðgerir
að leggja til atlögu við Austfirði
fyrst en fara síðan um Norður-
land. Skemmt verður allar helgar
og stundum verða skemmtanir
einnig í miðri viku með aðstoð
Þóris Baldurssonar. Þórskabarett-
inn mun alla jafna skemmta frá
níu að kvöldi til klukkan að verða
ellefu, en þá mun Geimsteinn taka
við og skemmta landsmönnum til
þrjú.
I Þórskabarettinum eru: Jör-
undur Guðmundsson, Júlíus
Brjánsson, Þórhallur Sigurðsson,
Ingibjörg Pálsdóttir, Kara Hall-
grímsdóttir, Guðrún Pálsdóttir og
Þórir Baldursson. En hljóm-
sveitina Geimstein skipa: Rúnar
Júlíusson, María Baldursdóttir,
Finnbogi Kjartansson, Vignir
Bergmann og Hrólfur Gunnars-
son.
Á meðfylgjandi mynd eru
Þórskabarett og Geimsteinn. Efst
frá vinstri: Vignir, Rúnar, Þórir
og Hrólfur. Miðröð: Júlíus, Jör-
undur, Þórhallur og Finhbogi.
Fremst: Ingibjörg, María, Kara og
Guðrún.
Bjóðið í garðveizlu
á Jónsmessu
og ekki væsir um mannskap-
inn þegar garöhúsgögnin eru
frá Bláskógum.
Ný sending komin af okkar
geysivinsæiu garðhúsgögnum.
Sumarið er
komið í
Bláskóga
ILJI
Bláskógar
ÁRMÚLI 8
SÍMi: 86080