Morgunblaðið - 24.06.1982, Side 16

Morgunblaðið - 24.06.1982, Side 16
16 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 24. JÚNÍ1982 Jákvæð og öflug stjórnarandstaða Eftir Birgi Isl. Gunnarsson Hlutverk stjórnarandstöðu í lýðræðisríki er mjög mikilvægt, en oft á tíðum æði erfitt. Stjórn- arandstöðu ber að halda uppi gagnrýni á gerðir stjórnar og veita henni aðhald. Jafnframt þarf stjórnarandstaða að geta bent á nýjar leiðir til lausnar hinum ýmsu vandamálum. Að- staða stjórnarandstöðu er mjög mismunandi. Sú ríkisstjórn, sem nú situr, hefur gert sér sérstakt far um að halda stjórnarand- stöðu utan við undirbúning mála. Hefur það reynst mjög óviturlegt, því að gagnrýni stjórnarandstöðu í þinginu hefur oft leitt til þess, að málum ráð- herra hefur verið gerbreytt svo að ekki hefur staðið steinn yfir steini. Þingflokkur sjálfstæðismanna hefur rækt stjórnarandstöðu- skyldur sínar með gagnrýni á þær gerðir stjórnarinnar, sem ekki samrýmast stefnu flokks- ins, en jafnframt flutt mikið af frumvörpum um margvísleg mál, svo og margar þingsálykt- unartillögur. Hér á eftir verður gerð grein fyrir helstu málum, sem þingmenn Sjálfstæðis- flokksins fluttu á þingi. Ein- stakra flutningsmanna er ekki sérstaklega getið. Orkumál Á sviði orkumála fluttu sjálfstæðismenn mörg þingmál. Flutt var frv. til orkulaga, en það felur í sér tillögur um skipu- lag orkumálanna í landinu. í frv. eru ýmis nýmæli, sem greina má í þrjá meginþætti, þ.e. nýmæli, sem varða rannsóknir á orku- lindum landsins, eðli þeirra og skilyrðum til hagnýtingar þeirra, nýmæli í skipulagi orku- vinnslu og orkudreifingu og nýmæli er varða hlutverk og skipuiag Orkustofnunar og Orkuráðs. í tengslum við þetta frv. er flutt sérstakt frv. um Jarðboranir ríkisins. Þá var flutt sérstakt frv. um jöfnun hita- kostnaðar. Flutt var ítarlegt frv. um skip- an olíuleitarmála og hagnýtra hafsbotnsrannsókna á íslensku yfirráðasvæði, en megintilgang- ur þess frv. er að fella olíuleit og hagnýtar hafsbotnsrannsóknir að ákveðnu skipulagi, efla rann- sóknir á þessu sviði og undirbúa hugsanlega olíuvinnslu á ís- lensku yfirráðasvæði. Þá var flutt þingsályktunartillaga um almennar reglur, er fylgja skuli við verðlagningu á orku frá orkufyrirtækjum í landinu. Iðnaður og stóriðja Allir þingmenn Sjálfstæðis- flokksins nema ráðherrarnir stóðu að tillögu til þingsályktun- ar um hagnýtingu orkulinda landsins til stóriðju. í þeirri til- lögu er mótuð ákveðin stefna um uppbyggingu orkufreks iðnaðar, hvernig að undirbúningi skuli staðið og skýrt kveðið á um það, að hagnýta skuli orkulindir landsins til stóriðju svo að auka megi atvinnu um land allt og bæta lífskjör þjóðarinnar. Allir sömu þingmenn Sjálf- stæðisflokksins fluttu ítarlega tillögu um iðnaðarstefnu, þar sem skilgreind voru megin- markmið, leiðir til að ná þeim svo og hvernig framkvæma ætti þau fjölþættu verkefni, sem til- lagan gerði ráð fyrir. Iðnaðar- ráðherra flutti aðra tillögu af sama toga, og náðist samkomu- lag um að steypa þeim saman og samþykkt var ályktun um iðnað- arstefnu frá Alþingi. Flutt var tillaga um aðgerðir til að efla innlendan iðnað og auka markaðshlutdeild inn- lendrar framleiðslu. Tillaga þessi miðaði að því að gripið yrði til skjótra aðgerða vegna sér- staklega erfiðrar stöðu iðnaðar um þessar mundir. Þá voru flutt- ar tillögur um atvinnumál á sér- stökum stöðum í landinu og má Birgir ísl. Gunnarsson „Þingflokkur sjálf- stæðismanna hefur rækt stjórnarandstöðu- skyldur sínar með gagnrýni á þær gerðir stjórnarinnar, sem ekki samrýmast stefnu flokksins, en jafnframt flutt mikið af frum- vörpum um margvísleg mál, svo og margar þingsályktunartillög- ur.“ þar nefna tillögu um staðarval stóriðnaðar á Norðurlandi. Landbúnaður Allmargar tillögur voru flutt- ar, sem tengdust landbúnaði. Ber þar fyrst að nefna ítarlega tillögu um stefnumörkun í land- búnaði. Þar voru sett fram ákveðin grundvallaratriði, sem stefnumörkun í málefnum land- búnaðarins skyldi byggjast á og síðan bent á leiðir til að ná þeim markmiðum. Hér er um að ræða ítarlega stefnuskrá í öllum greinum landbúnaðar. Flutt var frv. um breytingu á lögum um framleiðsluráð landbúnaðarins, þar sem lagt var til að einokun- arákvæði um sölu á matjurta- og gróðurhúsaframleiðslu yrðu numin úr lögum. Flutt var tiliaga til þings- ályktunar um skipulegt átak í fiskræktar- og veiðimálum, sér- stök tillaga um votheysverkun og önnur um skipun nefndar vegna söluerfiðleika búvara. Þá má enn nefna frv. til laga um niðurfellingu tolla af ýmsum vélum og tækjum, sem notuð eru í landbúnaði og tillögu um tölvu- kerfi yfir bújarðir í landinu, sem gerði töivuvinnslu margskonar þátta landbúnaðarins og upplýs- ingamiðiun á því sviði fljótvirk- ari og öruggari. Vegamál Á undanförnum þingum hafa sjálfstæðismenn haft frumkvæði um langtímaáætlun um fram- kvæmdir í vegagerð og fjáröflun í því skyni. Þetta frumkvæði hef- ur orðið til þess að náðst hefur samkomulag um slíka áætlun. Til að auðvelda framkvæmd vegaáætlunar, fluttu þingmenn Sjálfstæðisflokksins tillögu um að ákveðinn hluti söluskatts af innheimtu bensíns gengi til framkvæmda í vegamálum. Hér hefur verið gerð grein fyrir tillögum sjálfstæðismanna á Alþingi í allmörgum mála- flokkum. Verður frekar fjallað um aðra málaflokka í annarri grein. Pólitískara en allt annað Eftir Björgu Einarsdóttur Landssamtökin Líf og land héldu ráðstefnu um Mann og stjórnmála í síðustu viku og var það sjöunda ráðstefnan frá stofnun samtakanna 30. nóvember 1978. Sú venja hefur skapast þegar ræðumenn, sem oftast eru sérfræðingar hver í sinni grein, hafa lokið málflutningi er fenginn leikmaður til að flytja stutta hugleið- ingu um ráðstefnuefnið. Að þessu sinni kom það í hlut Bjargar Ein- arsdóttur. Ekki margt ósagt Eftir að hafa daglangt hlýtt á 36 valinkunna sérfræðinga flytja jafnmörg erindi um efnið „Maður og stjórnmál" frá öllum hugsan- legum hliðum, en varla margt ósagt. Fátt er raunar eftir annað en vera barnalegur. í því efni get ég raunar státað af að vera í góðum félagsskap. í er- indi, sem dr. Curt Nicolin, stjórn- arformaður sænska vinnuveit- endasambandsins, hélt á aðal- fundi Verzlunarráðs Islands í febr. sl. ræddi hann um úrbætur í þeim ógöngum, sem hann taldi velferðarríkið komið í og komst meðal annars svo að orði: „Og hver sá, sem — eins og ég — gerir slík- ar tillögur, er talinn barnalegur." Stjórnmál mannskcmmandi Fyrsta erindið hér á ráðstefn- unni flutti Arnór Hannibalsson um ríkið og einstaklinginn. Ræddi hann meðal annars um hamingj- una og ástina í því samhengi og bar, eins og fleiri, Aristóteles fyrir sig. Almannarómur segir, að stjórn- mál séu mannskemmandi og er þar ef til vill komin skýringin á áhugaleysi fólks fyrir stjórnmál- um, því hamingja og ást eru já- kvæðir þættir og þá væntanlega mannbætandi. Er ekki algjör þversögn fólgin í því, að þetta tvennt eigi samleið með stjórn- málum? Mismunandi skilgreining Skilgreining á því hvað séu stjórnmál er afar mismunandi. Allt frá því að vera skipulegur, en þröngur rammi um nauðsynlegar stjórnarathafnir — til að viðhalda reglufestu í samfélagi manna — og til þess að vera hváð eina sem manninn áhrærir. Þegar rætt er um stjórnmál al- mennt eða í víðasta samhengi er oftar notað orðið pólitík og algeng er sú staðhæfing, að allt sé pólitík — eða spurningin, hvað sé ekki pólitískt. Stofn orðsins er kominn úr grísku af „poleis" og merkir borg- ríki. Með öðrum orðum eitthvað sem er fjölþætt og margbreytilegt, en borgríkin voru sannarlega deiglur mannlífs. Ef allt mannlegt atferli er póli- tík, eru það í flestum tilvikum ómeðvituð stjórnmál. Skilsmunur er mikill á því og meðvituðu stjórnmálastarfi, það er þáttöku í starfi pólitískra flokka og stefnu- mótun innan þeirra. Tilgangur Spyrja verður um hvað stjórn- mál snúist. Því er fljótsvarað. Þau hljóta að snúast um manninn og Björg Einarsdóttir aðstæður hans eða gagnspurt, um hvað annað geta þau snúist? Sjónarhorn þeirra, sem gefa sig að stjórmálastarfi verður því að vera út frá manninum sem mið- depli og er stigsmunur en ekki eðl- is, hvort rætt er um einn mann eða alla menn. Tilgangur stjórnmála getur þá varla verið annar, en að hámarka æskilegar mannlegar aðstæður, ytri sem innri og til hægðarauka getum við nefnt slíkar aðstæður hamingju manna. En hamingja er afstætt hugtak og hamingja eins verður ekki ákvörðuð af öðrum. Stjórnmálamenn geta þar af leiðandi ekki sett sig í sæti dóm- ara og úrskurðað í hverju ham- ingja manns sé fólgin. I stjórn- málaathöfnum sínum geta þeir í hæsta lagi reynt að stuðla að skil- yrðum, er veiti sem flestum svig- rúm til eigin gæfusmíði. Að sem allra flestir nái að finna sér lífs- fyllingu er þeim hæfi. Markmiöið er eitt Fái það sem hér hefur verið sagt um tilgang stjórnmála staðist, Iúta allar stjórnmálastefnur og stjórnmálaflokkar sama mark- miði. Ágreiningur er hins vegar um leiðir að því marki. I fáum orðum mætti segja að skoðanir skiptist um, hvort hafa skuli forsjá um hamingjuleit manna eða tryggja hverjum og einum frelsi til að móta sjálfur þær æskilegu aðstæður, sem við- komandi vill og honum henta. Ef trénunar verður vart Lýðræðisskipulag er það stjórn- arform, sem menn hafa valið sér hér á landi. Lýðræðishugsun er samgróin þjóðarvitundinni og þrátt fyrir ýmsa ókosti þessa skipuiags, þekkja menn enn sem komið er ekki annað betra. Undir- staða lýðræðislegra stjórnarhátta í nútímasamféiagi er flokkakerfið og flokkarnir eru valdastofnanir þjóðfélagsins. Núverandi flokkakerfi er að riðlast — heyrist iðulega fullyrt og því bætt við, að flokkarnir byggi á úreltri hugmyndafræði. Starfsemi stjórnmálaflokks verð- ur að endurnýjast og umskapast, eins og allt annað og það verður hver flokkur að þekkja sinn vitj- unartíma. En ef þær hugmyndir, sem stefna stjónmálaflokks er byggð á, snerta kjarna mannlífs svara þær ævinlega ktöfum tímans. Verði hins vegar trénunar vart innan frá í stjónmálaflokki, mætti huga að atriðum eins og því — hvort leiðtogarnir leggi meira upp úr eigin pólitísku langlífi en endur- nýjun forystuliðs — hvort stjórn- málamennirnir séu reiðubúnir að leggja sjálfa sig að veði fyrir málstaðinn — hvort sannfæring og hugsjón hafi orðið að þoka fyrir stundarhagsmunum — hvort stjórnmálamennirnir beiti því valdi sem þeir hafa þegið frá fólk- inu gegn því o.s.frv. Þeir spöku hafa sagt Ævaforn speki hermir, að sú stjórn ein sé góð sem enginn verði var við og það að stjórna stóru ríki sé eins og að sjóða litla fiska. Þetta verður hver og einn að út- leggja að vild. Einn af svipmestu stjórnmála- mönnum í Evrópu á 19. öld hefur líkt stjórnmálum við list og sagt þau vera list hins mögulega. Is- lenskur stjórnmálaforingi á þess- ari öld lét svo um mælt, að þegar á ætti að herða í stjórnmálum, skiptu þróttmiklir einstaklingar mestu, gáfur þeirra og hæfileikar og hugrekki á úrslitastundum. Nýlega hefur maður, sem skipar eina af ábyrgðarmestu stöðum Sameinuðu þjóðanna sagt, að ekk- ert væri voldugra en rétt hug- mynd, borin fram af réttu fólki á réttu augnabiiki. Ekki fokið í öll skjól Á fréttamannafundi, sem hald- inn var til undirbúnings ráð- stefnunni um manninn og stjórn- málin tókust líflegar umræður. Þar var því varpað fram, að ástin væri hið eina ópólitíska í mannlíf- inu. Virtust viðstaddir fegnir þessari niðurstöðu og því, að ekki væri fokið í öll skjól. Á sama fundi var því einnig haldið fram, að á Islandi væri gildi manna metið eftir ætt þeirra, búsetu og stjórnmálaskoðun og í þessari röð, síðan kæmi til álita hæfni fólks og kunnátta sem eins konar aukaatriði. Af kveikjunni ræðst framhaldið Ef þetta er staðreynd i íslensku þjóðlífi á ofanverðri 20. öld, er ljóst að ekkert er hér pólitískara en einmitt ástin, því af kveikju milli karls og konu ræðst oft til- koma nýs einstaklings og þar með hvar mönnum er i ætt skotið. Verður því ekki annað séð, en að hugleiðingar þeirra höfðingjanna Arnórs og Aristótelesar um ham- ingjuna og ástina, sem orðaðar voru í upphafi þessa máls, eigi heima í tengslum við mann og stjórnmál og jafnframt að skil- greiningin á stjórnmálum í víð- asta samhengi, sé ekki með öllu fjarri lagi.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.