Morgunblaðið - 24.06.1982, Blaðsíða 18
18
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 24. JÚNÍ1982
Islenzkar
uppfyndingar
TVÖ háþróuð rafeindatæki, sem bæði eru íslenskar uppfynd-
ingar, verða innan skamms sett í fjöldaframleiðslu. I>að eru
bræðurnir Davíð og Níls Gíslasynir á Akureyri sem hafa fundið
upp þessi tæki, en þeir hafa báðir getið sér orð sem hugvits-
menn á sviði rafeindatækni.
l'm er að ræða tölvustýrða handfærarúllu, mjög fullkomna að
allri gerð, og telja kunnugir að hún taki fram þeim handfæra-
rúllum sem nú eru framleiddar. I rúllunni er ný tegund af
rafmótor sem hlýtur að teljast merkileg uppfynding útaf fyrir
sig. Hann er tölvustýrður og gengur fyrir jafnstraumi sem gerð-
ur hefur verið þriggja fasa með hugvitsamlegum hætti. Þessi
mótor nýtir rafmagn betur en aðrar gerðir mótora og við hann
þarf hvorki gír né kúplingu, þar sem aflstýring hans byggist á
rafeindahúnaði. I ráði er að hefja raðframleiðslu á þessari
handfærarúllu, sem bera mun heitið ('atcher, og hefur fjármagn
þegar verið tryggt til að hefja þessa framleiðslu. Nokkur ágrein-
ingur er milli þeirra bræðra og fyrirtækisins Style Ltd., þar sem
fyrirtækið telur sig eiga stóran hlut í hönnun rúllunnar, en
bræðurnir líta svo á að á vegum Style Ltd. hafi aöeins verið um
smíðavinnu að ræða.
Þá hafa bræðurnir Davíð og
Níls fundið upp og hannað raf-
eindaaflstýringu sem gerir fyrir-
tækjum kleift að nýta betur raf-
orku er þau kaupa. Hér er raunar
um tækjasamstæðu að ræða, þar
sem í fyrsta lagi er móðurtæki
sem sett er í eða hjá rafmagns-
töflu fyrirtækisins og tengt er sér-
stökum rofum („Triacs") á stofn-
leiðslum hinna ýmsu raftækja hjá
fyrirtækinu. Tækið er stillt á það
afl sem samningur fyrirtækisins
við rafveitu hljóðar uppá og stýrir
notkuninni ávallt innan þeirra
marka. Með þessum hætti er kom-
ið í veg fyrir álagstoppa og
raforkuskammtur fyrirtækisins
nýttur mun betur en áður. Stór-
fyrirtæki á Akureyri hafa þegar
sýnt málinu áhuga og farið framá
að gert verði tilboð í uppsetningu
þess hjá þeim. Þá hafa þræðurnir
hannað hliðstætt tæki, en einfald-
ara, fyrir bændur og lítil fyrirtæki
sem nota raforku við framleiðslu
sína. Raðframleiðsla mun hefjast
á þessu tæki innan tveggja mán-
aða og hafa einkaaðilar þegar
"annig lítur stjórnborð rúllunnar út — enginn takki. Plastmerki hafa
verið límd á stjórnborðið til að sýna hvar bera skal segulpennann að því
en endanlegri útlitshönnun þess er ekki lokið. Ljóstölurnar á stjórn-
borði rúllunnar sjást ekki á myndinni vegna birtunnar.
ar og telur Ragnar Magnússon,
framkvæmdastjóri fyrirtækisins,
að fyrirtækið eigi hönnun þessara
hluta, það er mótors, mótorshúss
og kassa utanum rafeindabúnað
o.fl. hluta. Hefur Ragnar lagt
fram umtalsvert fé til þessa verk-
efnis sem Grímur Sigurðsson
rennismiður hefur annast. Þá
hafa fleiri lagt hönd á plóginn.
Snorri Hansson var fyrir skömmu
ráðinn til starfa hjá fyrirtækinu
DNG á Akureyri og mun hann sjá
um rekstur þess í samvinnu við þá
bræður.
Blaðamaður Morgunblaðsins
gerði sér ferð norður til Akureyr-
ar fyrir skömmu til að skoða tæk-
in og hafa tal af þeim bræðrum.
Því verður ekki neitað að mér kom
nokkuö á óvart að sjá þarna svo
háþróuð rafeindatæki sem byggja
á íslensku hugviti og eru alfarið
íslensk smíð. Fyrirtækið starfar í
litlu iðnaðarhúsnæði og er óneit-
anlega fremur fátæklega búið
tækjum og áhöldum miðað við há-
þróaða iðnframleiðslu af þessu
tagi. Þeir bræður hafa hins vegar
ekki dáið ráðalausir þegar tækja-
skorturinn hefur háð þeim heldur
notað sínar eigin hönnunarleiðir
og siglt þannig framhjá mörgum
vandamálum. Því er ekki að neita
að sú hugsun flýgur að manni þeg-
ar maður skoðar þær aðstæður
sem tækin hafa verið smíðuð við,
að íslenzkir hugvitsmenn eigi ekki
uppá pallborðið hjá eigin þjóð.
Þeir bræður hafa nefnilega ekki
notið opinberrar aðstoðar af neinu
tagi meðan á hönnun tækjanna
hefur staðið. Ýmsir einkaaðilar og
fyrirtæki, s.s. Sameind hf. í
Reykjavík, hafa hins vegar veitt
aðstoð sem þeir bræður telja
ómetanlega.
„Þetta verkefni hófst eiginlega
með því að við hönnuðum
rafeindastýringu fyrir venjulega
rafmagnsrúllu og buðum hana
framleiðanda hér á landi," sagði
Níls Gíslason er hann hafði sýnt
mér rafeindastýrðu handfærarúll-
una. „Eftir að hafa skoðað þetta
verkefni í nokkurn tíma töldum
við auðsætt að hagkvæmast væri
að hanna rafmagnsrúlluna alveg
RAFEINDAHANDFÆRARÚLLA
OG RAFEINDAAFLSTÝRIR
Rætt við Níls
Gíslason
hugvitsmann
á Akureyri
tryggt fjármagn til þess að
raðframleiðsla geti hafist.
Bræðurnir Davíð
og Níls Gíslasynir
Bræðurnir Davíð og Níls Gísla-
synir hafa um langt skeið starfað
saman að margskonar hönnunar-
verkefnum á sviði rafeindatækni.
Níls er lærður flugvirki. Hann
stundaði nám í Bandaríkjunum og
sérhæfði sig í rafeindatækni
tækja sem notuð eru í flugvélum.
Þá stundaði Níls nám í tækniskóla
og lauk námi sem raftæknir með
hæstu einkúnn. Undanfarin ár
hefur hann starfað hjá Flugfélagi
Norðurlands en einnig sem kenn-
ari við Iðnskóla Akureyrar.
Það er líklega einfaldast að
segja að Davíð hafi verið í námi
hjá bróður sínum undanfarin 13
ár en jafnframt hefur hann verið í
sambandi við erlenda skóla sem
kynna það nýjasta í rafeinda-
tækni. Hann hefur starfað að
hönnun sérhæfðs rafeindabúnaðar
fyrir stórfyrirtæki á Akureyri,
m.a. Útgerðarfélag Akureyrar og
SÍS-verksmiðjurnar. Þá hafa raf-
eindatækin tvö, handfærarúllan
og aflstýririnn, tekið mikið af
tíma þeirra bræðra, sérstaklega
Davíðs.
Hönnun tækjanna hefur
tekið mörg ár
Aflstýririnn hefur verið í hönn-
un í rúmlega 6 ár og hafa þeir
bræður þurft að framkvæma
umfangsmikla tilraunastarfsemi í
sambandi við tækið. Hönnun á
tækinu sjálfu er nú að fullu lokið
og er verið að koma á fót fjölda-
framleiðslu á því sem áður segir.
Sjálfvirka færarúllan er miklu
stærra verkefni og hófst hönnun-
arvinna að ráði fyrir þremur ár-
um. Meiriparturinn af starfstíma
Davíðs þessi þrjú ár hefur farið í
að hanna rúlluna, betrumbæta
hana og komast yfir ýmis tækni-
leg vandamál. Fullnaðarhönnun
og smíði fyrsta tækis lauk fyrir
rúmlega þremur mánuðum og hef-
ur það síðan verið í reynslu. Svo til
allur kostnaður við hönnun og
smíði þessara tölvustýringa hefur
veri úr vasa þeirra bræðra í formi
vinnutaps og eigin fjárútláta. Þá
hefur samstarfsmaður þeirra, Sig-
urður Jónasson, sem nú hefur ver-
ið ráðinn til starfa hjá fyrirtæki
þeirra bræðra DNG, aðstoðað
Davíð kauplaust um nokkurt skeið
til þéss að unnt yrði að koma
handfærarúllunni á framleiðslust-
ig-
Fyrirtækið Style Ltd. í Garðabæ
hefur í samstarfi við þá bræður
séð um smíði málmhluta rúllunn-
frá grunni, því eins og rúllan var
úr garði gerð kom tölvustýring
ekki að verulegu gagni og reyndar
erfitt að koma henni við án þess
að breyta rúllunni. Framleiðand-
inn skoðaði þessar hugmyndir
okkar en lagði ekki í að gerbreyta
framleiðslunni, og varð því ekki af
frekara samstarfi."
Nýr rafmagnsmótor
„En þar sem við höfðum skoðað
verkefnið frá ýmsum hliðum og
vorum farnir að hafa áhuga á því,
héldum við áfram að velta því
fyrir okkur. Um þetta leyti datt
mér einmitt í hug að reyna að
smíða þriggja fasa rafmagnsmót-
or er gengi fyrir jafnstraumi frá
rafgeymi. Mér hugkvæmdist leið
til að framleiða þriggja fasa raf-
magn með sérstökum transistor-
um og eftir miklar vangaveltur og
tilraunastarfsemi kom fram þessi
þriggja fasa sínkron-rafmótor
sem við notum til að drífa rúlluna.
Það sem gerði okkur kleift að
smíða mótor af þessu tagi og láta
hann ganga fyrir jafnstraumi er
ný gerð transistora er fyrirtækið
Siemens setti á markað fyrir
rúmlega ári. Þessi nýi transistor
er önnur eins bylting og transist-
orinn sjálfur var á sínum tíma, og
skapar mikla möguleika í
rafeindatækni.
— Hvað hefur þessi mótor fram
yfir venjulega rafmótora?
„Hvað varðar þetta verkefni
hefur hann augljósa kosti. Hann
nýtir rafmagnið betur en venju-