Morgunblaðið - 24.06.1982, Síða 23
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 24. JÚNÍ 1982
23
OECD löndin:
Mesta atvinnuleysi
frá stríðslokum
Washinglon, 2J. júní. AP.
BÚIST er vid aö innan skamms nái tala atvinnulausra í OECD-löndunum því
aö veröa sú hæsta frá stríöslokum, aö því er segir í skýrslu frá alþjóðlegu
rannsóknarstofnuninni Worldwatch.
Þar segir að tala atvinnulausra
verði á þessu ári 28,5 milljónir í
hinum 24 iðnvæddu löndum sem
mynda OECD, Efnahags- og fram-
kvæmdastofnunina. Það þýðir að 8
prósent vinnufærra manna munu
vera atvinnulausir og er það met
frá lokum seinni heimsstyrjaldar-
innar. I skýrslunni var tekið fram
að þessi vandamál væru að sjálf-
sögðu á mun hærra stigi í þróun-
arlöndum þriðja heimsins, en
einnig væri erfiðara að gera sér
fulla grein fyrir umfangi þeirra
þar. „En í mörgum löndum, bæði
ríkum og fátækum," segir í skýrsl-
unni „er þörfin fyrir aukningu at-
vinnutækifæra jafn knýjandi og
þörfin fyrir orkusparnað."
Afleiðingin af hinni miklu
fólksfjölgun, sem varð í iðnvæddu
löndunum eftir stíð, er sú að fjölg-
að hefur verulega í verkalýðs-
stéttunum og konur halda áfram
að sækja út á vinnumarkaðinn, en
þátttaka þeirra þar er enn mun
minni en karla. Eftirlaunaaldur
mun færast ofar í framtíðinni, í
kjölfar bættrar heilbrigðisþjón-
ustu og aukins langlífis.
I skýrslunni segir einnig að
framboð á vinnuafli muni ekki
aukast jafn mikið á þessum ára-
tug og það gerði á þeim síðasta.
Aukin framleiðslugeta í kjölfar
örtölvubyltingarinnar dregur
mjög úr eftirspurn eftir vissum
hópum vinnuafls. Nýjar rann-
sóknir, sem gerðar voru á við-
skiptasviðum þýska útflutnings-
iðnaðarins spá því að atvinnuleysi
aukist um 10 prósent í þessum
greinum á næstu átta árum. Það
þýðir að störfum fækkar um
310.000.
I Frakklandi mun störfum við
banka og í tryggingastofnunum
fækka um 180.000 og gætu 30 pró-
sent af núverandi starfsmönnum í
þessum greinum því verið orðnir
atvinnulausir árið 1990. Mörg
verkalýðsfélög í OECD-löndunum
hafa sett baráttuna fyrir stytt-
ingu vinnuvikunnar, lengri fríum
og lægri eftirlaunaaldri á oddinn
til að reyna að sporna við þessari
þróun,“ segir skýrslan. Eru talin
upp dæmi um slíkt. M.a. berjast
árströlsk verkalýðssambönd fyrir
35 stunda vinnuviku, en mæta
andstöðu ríkisstjórnarinnar og
vinnuveitenda.
Þegar þjóðarframleiðsla er ann-
ars vegar standa Bandaríkin enn-
þá best að vígi, en hafa þó dregist
mikið aftur úr miðað við það sem
áður var. Þjóðarframleiðsla er
ennþá mest í Bandaríkjunum, en
árleg aukning hennar er mun
minni þar en í Japan og flestum
Evrópulöndum. í skýrslu World-
watch segir að ekki sé hægt að spá
fyrir um það með vissu hver fram-
tíð hagvaxtar og framleiðslu í
heiminum kunni að verða.
Þeir þættir, sem munu stuðla að
aukinni framleiðslu eru hægari
fjölgun vinnandi fólks og innleið-
ing nýrrar tækni. En á sama tíma
Teknir fyrir
tölvunjósnir
San Francisco, 23. júní. AP.
NÍTJÁN einstaklingar, flestir þeirra starfsmenn tveggja japanskra tölv-
ufyrirtækja, MiLsubishi og Hitachi, voru ákæröir fyrir stela tölvuleynd-
armálum frá IBM, og voru sex þeirra settir á bak við lás og slá. Tólf
þessara manna eru í Japan.
Að sögn bandaríska dóms-
málaráðuneytisins eru nítján-
menningarnir m.a. ákærðir fyrir
að múta starfsmönnum alríkis-
lögreglunnar, FBI, með 698 þús-
und dollurum í þeirri von að fá
þá til að útvega leynilegar upp-
lýsingar um tölvubúnað.
Talsmaður dómsmálaráðu-
neytisins sagði starfsmenn
Mitsubishi og Hitachi hafa sitt í
hvoru lagi unnið að útvegun
tölvuleyndarmála frá IBM.
Takmarkið hafi verið að auð-
velda tölvuframleiðslu fyrir-
tækjanna og skylda framleiðslu
þeirra. Þegar alríkislögreglan
komst á snoðir um fyrirætlan-
irnar, var sett upp gildra, sem
fulltrúar fyrirtækjanna gengu í.
Talsmenn Mitsubishi- og
Hitachi-samsteypanna í Banda-
ríkjunum sögðu í dag, að
starfsmenn fyrirtækjanna
stunduðu enga ólöglega starf-
semi af þessu tagi þar í landi.
Dómsmálaráðherrar Norðurlanda:
Ræða um varnir gegn
fíkniefnasmygli
Osló, 22. júní. Frá Jan Krik Lauré,
fréUarilara Mbl.
Dómsmálaráóherrar Noróurland-
anna sitja nú fund í Röros í Noregi
þar sem þeir ræða meó hvaöa hætti
stöóva megi innflutning fikniefna.
Fyrir íslands hönd situr Friðjón
Þóróarson dómsmálaráðherra fund-
inn.
Ákveðið hefur verið að reyna að
grafast fyrir um það, með sem
nákvæmustum hætti, eftir hvaða
leiðum fíkniefnin berast til Norð-
urlandanna. Gert er ráð fyrir að
nefnd lögregluþjóna og tollþjóna
ljúki „kortlagningu" aðflutnings-
leiðanna árið 1983. í þessu sam-
bandi verða norskir lögregluþjón-
ar sendir til Lundúna og Pakistan.
Yfirvöld í Finnlandi, Svíþjóð og
Danmörku hafa áætlanir af þessu
tagi á prjónunum, og eru vonir
bundnar við að í ársbyrjun 1983
hafi tekist að grafast fyrir um
það, hvernig fíkniefnasmygli sé
háttað.
fer orkuverð hækkandi, meiri fjár-
munum verður eytt til að sporna
við mengun af völdum iðnaðar og
fjármálastefnu, sem miðast við að
draga úr útgjöldum til að vinna
bug á verðbólgu, vinnur á. Allir
þessir þættir gætu orðið til þess
að draga úr framleiðslu.
Ólíklegt er að Japan eða vest-
rænu iðnaðarlöndin eigi eftir að
endurtaka efnahagsundrið frá því
á fimmta og sjötta áratugnum,
þegar framleiðsla í Japan jókst
t.d. um 9 prósent. árlega, árin
1963-1973.
I skýrslunni segir að fram-
leiðsluaukning hafi numið 1,9% í
Bandaríkjunum á áratugnum
1963—1973, en 0,2% árin
1973—1983. Sambærilegar tölur
voru fyrir Japan 8,7 og 3,8%, í
V-Þýzkalandi 4,6 og 2,9%, í
Frakklandi 4,6 og 2,6% og í Bret-
landi 3,1 og 1,1%.
Viðeyjarstofa
Viöeyingar munið messuna í Viöey laugardaginn 26.
júní. Feröir úr Sundahöfn frá kl. 13.00.
Fjölmennum. Viöeyingafélagiö.
Heimilislæknir
Hef opnaö stofu á Klapparstíg 27.
Mánudaga og miðvikudaga.:
Símatími 8.30—10.
Viötalstími 10—14.
Þriðjudaga og fimmtudaga:
Símatími 12—13.
Viðtalstími 14—17.
Föstudaga:
Símatími 8.30—10.
Viðtalstími 14—16.
Guðfinnur P. Sigurfinnsson læknir.
Sérgrein: Heimilislækningar.
Sími 11680.
Heimasími 31320.
/
f
/#i
Engin tónlistarstefna er í jafnmiklum uppgangi hér á landi og
þungarokkiö. Engin hljómsveit er í jafnmiklum uppgangi hér á
landi og -■
aaiiiiisiJHHfiiiiií
Flutningur Þrumuvagnsins á þeim 9 stórgóöu lögum, sem á
nýju plötunni þeirra er aö finna, endurspeglar vel þrumukraft
hljómsveitarinnar og á örugglega eftir aö bæta hinn stóra og
sívaxandi aðdáendahóp þungarokksins og Þrumuvagnsins.
stoinochf
símar 85055 og 85742.