Morgunblaðið - 24.06.1982, Blaðsíða 25
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 24. JUNI 1982
25
iveður
hinni kveður forseti íslands, Vigdís
Finnbogadóttir gest sinn, Ingiríði
drottningu og óskar henni góðrar heim-
ferðar.
'fiðleikum
liður á grassprettunni og eru
réttaritara Mbl. út um land, en
Að lokum má geta þess, að nú
standa yfir miklar vegafram-
kvæmdir í Miklaholtshreppi, en
verið er að byggja brú yfir Kleifá.
Samfara brúargerðinni eru miklar
breytingar á veginum og ættu þær
að verða til mikilla bóta, þó sér-
staklega í snjó.“
Dauft yfir fólki
í Djúpi
„Heyskaparhorfur eru með því
allra dekksta, sem við höfum séð, en
hér hafa verið hörku harðindi þang-
að til fyrir hálfum mánuði," sagði
Jens Guðmundsson, Lónseyri,
Norður-ísafjarðarsýslu. Bæði nýtt og
gamalt kal er í túnunum, sem
skemmir þau, einnig hafa verið
miklir þurrkar og allt er orðið
skrælnað. Nýlokið er að bera áburð
á túnin, en það er ekki nema á ein-
stöku bæjum, sem farið er að láta
kýrnar út.
Það er því afskaplega dauft yfir
mönnum hér og ekki bætir það
ástandið, að nú er verið að draga
úr kindakjötsframleiðslu. Hér eru
bú yfirleitt ekki stór og má ekkert
úr framleiðslunni draga, ef menn
eiga að hafa nóg sér til lífsbjarg-
ar. En ef til vill neyðast bændur
til að farga fénu hvort sem er, ef
ekki rætist úr með grassprett-
una,“ sagði Jens Guðmundsson á
Lónseyri.
sins æfir hér hljómsveit sem fara
laðar. Einnig eru einsöngvarar og
nandi þriðjudagskvöld í Háskóla-
íándel. Ljósm. Kristján.
Asmundur Stefánsson, forseti ASI:
Sjálfvirkt kauplækkunarkerfi af
þessu tagi kemur aldrei til greina
„Vinnuveitendasambandið hefur
sett það sem skilyröi fyrir áframhald-
andi viðræðum, að við semjum við þá
um sérstaka skerðingu vegna afla-
minnkunar. Auk þess sem þeir eru
með kröfur um að auka þá almennu
skerðingu, sem er í þeim vísi-
töluákvæðum, sem nú eru í gildi.
Þetta getum við að sjálfsögðu ekki
fallizt á,“ sagði Ásmundur Stefáns-
son, forseti ASÍ, í samtali við Mbl. er
hann var inntur eftir stöðu mála í
deilu ASÍ og VSÍ. „Með því að gera
þessar kröfur að skilyrði fyrir áfram-
haldandi samningaviðræðum verður
að lita svo á að Vinnuveitendasam-
bandið hafni frekari viðræðum.“
„Ef farið hefði verið eftir þeirri
kröfu, sem fyrst kom fram frá VSÍ,
þá hefði kaupmáttur á samning-
stímabilinu orðið lakari, en að
óbreyttum samningum. Annars
stefnir reyndar einnig í það farið
með þeim tillögum, sem nú eru
uppi. Kaupmátturinn batnar lítið
eitt til að byrja með, en versnar
síðan hröðum skrefum," sagði Ás-
mundur Stefánsson.
Aðspurður sagði Ásmundur, að
það sem fyrst og fremst strandaði á
væri þetta umrædda fyrirvara-
ákvæði vinnuveitenda. „Það eru
hins vegar mörg önnur atriði, sem
ekki hafa verið reiknuð til enda, en
það er krafan um þessa sérstöku
vísitöluskerðingu sem er stóra mál-
ið.“
Ásmundur sagði, að hefði þessum
ágreiningi um vísitölumálin verið
rutt úr vegi, þá hefðu verið góðar
líkur á samkomulagi. „Þessar
skerðingakröfur vinnuveitenda eru
greinilega settar til þess að tor-
velda samninga. Þessum hugmynd-
um er varpað fram á síðasta stigi
samningaviðræðnanna og það gert
án nokkurs efnislegs undirbúnings.
Sem dæmi um hversu lítið þeir hafa
greinilega ígrundað málið, er að
þeir hafa nær helmingað frádrátt-
inn í dag frá því, sem tillögurnar
gerðu ráð fyrir í gær. Þegar
viðræðunefnd ASÍ samþykkti að-
faranótt 16. júní að verða við þeirri
ósk sáttanefndar að fresta boðuðum
verkföllum var það gert með þeim
skilningi að stefnt væri að samn-
ingi sem tryggði kaupmátt ársins
1981. Með þessum tilíögum sínum
nú gengur Vinnuveitendasamband-
ið þvert á þær hugmyndir sem áður
hafa verið uppi.
Reyndar vil ég árétta vegna um-
mæla Þorsteins Pálssonar í útvarpi,
um að við værum að afsala okkur
samningsrétti með því að vilja ekki
taka þetta ákvæði inn í samninga,
að svo er að sjálfsögðu ekki. Þvert á
móti værum við að afsala okkur
samningsrétti með því, að taka
þetta ákvæði inn í samninginn. Með
því værum við að kalla yfir okkur
sjálfvirka kauplækkun og ákveða að
komi einhver vandi upp í þjóðfélag-
inu skuli fortakslaust brugðist við
honum með kauplækkun. En sam-
kvæmt tillögum Vinnuveitenda-
sambandsins yrði kauplækkunin
raunar miklu meiri en svarar til
þeirrar lækkunar þjóðartekna sem
af aflarýrnun leiddi. Þá má ekki
gleyma því að í tillögu Vinnuveit-
endasambandsins er gert ráð fyrir
aukinni vísitöluskerðingu ársfjórð-
ung fyrir ársfjórðung, frá því sem
nú er.
Það er ljóst, að ef eitthvað bjátar
á í þjóðfélaginu, þá eru ýmsir kostir
fyrir hendi, og því fráleitt fyrir
okkur að samþykkja þetta ákvæði.
Sjálfvirkt kauplækkunarkerfi af
þessu tagi getur aldrei komið til
greina, en við höfum hins vegar
ekki neitað viðræðum um að tillit sé
tekið til afkomu þjóðarbúsins. Við
teljum hins vegar ekki raunhæft, að
draga það inn í þessa samnings-
gerð,“ sagði Ásmundur Stefánsson
að lokum.
Þorsteinn Pálsson, framkvæmdastjóri VSÍ:
Óskiljanlegt að ASÍ skuli
hlaupa frá svona tilboði
„KJARNI málsins er sá, að Vinnu-
veitendasambandið var reiðubúið að
halda áfram viðræðum um alla þætti
málsins. Alþýðusambandið setti hins
vegar það skilyrði, að einn þáttur
málsins yrði ekki ræddur og sleit
viðræðunum þar með,“ sagði Þor-
steinn Pálsson, framkvæmdastjóri
VSÍ, í samtali við Mbl.
— í tilboði Vinnuveitendasam-
bandsins fólst 3% aukning kaup-
máttar 1. september nk., miðað við
kaupmátt ársins 1981. Það fól í sér
tryggingu svipaðs kaupmáttar út
samningstímabilið, til 1. septem-
ber 1983, og var á síðasta ári.
Vinnuveitendasambandið taldi
óhjákvæmilegt eftir að Þjóð-
hagsstofnun hafði birt upplýs-
ingar um stórkostlegan samdrátt í
þjóðartekjum sl. föstudag, að taka
tillit til þessara nýju viðhorfa og
setti fram hugmyndir um sérstak-
an frádrátt af þeim sökum inn í
vísitölukerfið. Þessi frádráttur
hefði alltaf verið minni en sem
nemur minnkun þjóðartekna á
mann, þannig að fyrirtækin hefðu
í öllum tilvikum tekið á sig stærri
hluta áfallanna en launþegarnir.
Miðað við 12% aflaminnkun hefði
þessi fyrirvari ekki leitt til meiri
skerðingar en svo, að 1. marz á
næsta ári hefði kaupmáttur orðið
sá sami og að óbreyttum samning-
um. Þetta er því miklu minni
skerðing en dæmi eru til um, þeg-
ar stjórnvöld hafa orðið að grípa
til vísitöluskerðingar, þegar efna-
hagslegar forsendur hafa brostið
undan samningum.
Að okkar mati er því alveg
óskiljanlegt hvernig Alþýðusam-
bandsforystan hleypur frá svona
tilboði. Hvernig hún getur komið
fram fyrir alþjóð og lýst því yfir,
að hún neiti að semja með tilliti til
efnahagslegra aðstæðna. Viður-
kennt berum orðum, að hún telji
eðlilegt að ræða slíkan frádrátt;
en bara ekki núna, heldur síðar. I
því felst fullkomin viðurkenning á
því, að það er eðlilegt að taka tillit
til þessara aðstæðna, en Alþýðu-
sambandsforystan sýnir hins veg-
ar ábyrgðarleysi með því að neita
að takast á við þann vanda í
kjarasamningunum sjálfum. Hún
er því i raun réttri að vísa þessu
til ríkisstjórnarinnar og óska eftir
vísitöluskerðingu af hennar hálfu
og er í raun að framselja samn-
ingsréttinn í hendur stjórnvalda.
Viðræðunefnd Alþýðusambands íslands:
Vinnuveitendasambandið hef-
ur gengið á bak orða sinna
MORGUNBLAÐINU hefur borizt
eftirfarandi yfirlýsing frá viðræðu-
nefnd ASÍ:
Á sáttafundi aðfaranótt 16. júní
sl. samþykkti viðræðunefnd ASÍ
að verða við tilmælum sáttanefnd-
ar og fresta boðuðum vinnustöðv-
unum í Ijósi yfirlýsinga atvinnu-
rekenda um að þeir væru reiðu-
búnir til efnislegra viðræðna við
Alþýðusambandið og sérsambönd-
in, um einstök mál þeirra. Var það
þá skilningur viðræðunefndar
ASÍ, að stefnt væri að samningum
sem tryggðu kaupmátt ársins
1981.
Á sáttafundi 18. júní bauð VSÍ
tvo kosti. Var í báðum kostunum
af hálfu VSÍ við það miðað, að
kaupmáttur héldist óskertur mið-
að við meðaltal ársins 1981. Ný
krafa fylgdi þó með, um að taka
tillit til aflamagns við útreikning
viðskiptakjaraþáttar í vísitölu,
þannig að verði aflabrestur veru-
lega umfram fyrri spár komi inn
frádráttarliður.
Sunnudaginn 20. júní gerði við-
ræðunefnd ASÍ grein fyrir hug-
mynd að lausn til að vernda kaup-
mátt. Þvert ofan í fyrri yfirlýs-
ingar svaraði VSÍ þeim hugmynd-
um með tillögu um verulega kaup-
máttarskerðingu og gæti endanleg
niðurstaða miðað við tillögu VSI
orðið sýnu verri en óbreyttir
samningar þrátt fyrir núverandi
skerðingarákvæði vísitölunnar.
Vinnuveitendasambandið krefst
aukins almenns vísitölufrádráttar
auk sérstakrar skerðingar vegna
minnkandi fiskafla.
Vinnuveitendasambandið held-
ur fast við þessar tillögur og gerir
þær að skilyrði fyrir áframhald-
andi viðræðum. Með þeim hefur
Vinnuveitendasambandið gengið á
bak fyrri orða og þar með hafnað
samningaviðræðum við Alþýðu-
sambandið.
Vinnuveitendasamband íslands:
Kaupmáttur hefði orðið í sam-
ræmi við það, sem var árið 1981
MORGUNBLAÐINU hefur borizt eft-
irfarandi fréttatilkvnning frá Vinnu-
veitendasambandi Islands:
Vegna þeirrar stöðu, sem upp er
komin í yfirstandandi kjaradeilu,
eftir að Alþýðusambandið hefur
formlega slitið viðræðum við Vinnu-
veitendasambandið, vill VSÍ láta eft-
irfarandi koma fram:
í viðræðum aðila undanfarnar vik-
ur hefur verið leitað leiða til að við-
halda sem kostur er meðalkaup-
mætti ársins 1981.
Síðastliðinn sunnudag setti ASÍ
fram óformlega hugmynd um efni
samnings, er gilda skvidi til 1. sept.
1983.
Að kvöldi sama dags lagði Vinnu-
veitendasambandið fram formlega
tillögu um heildarlausn á yfirstand-
andi kjaradeilu. Byggði tilboðið á
því, að haldið yrði meðalkaupmætti
ársins 1981 miðað við svipaðar efna-
hagsforsendur. Hvað þennan megin-
þátt í tilboði VSÍ varðar, þá skilur
aðeins 1% í kaupmætti á milli til-
boðsins og hugmynda ASÍ. Útreikn-
ingar sýna, að tilboð þetta hefði 1.
sept. nk. leitt til 3% meiri kaupmátt-
ar en sem svarar meðaltali ársins
1981, en í heild hefði kaupmáttur
ársins 1982 orðið svipaður. Á öllu
samningstímabilinu hefði kaupmátt-
ur orðið mjög í samræmi við það,
sem var árið 1981.
Eins og áður segir, byggði tilboð
VSÍ á þeirri forsendu, að á samn-
ingstímanum yrði haldið meðal-
kaupmætti ársins 1981 miðað við
svipaðar efnahagslegar forsendur. í
samræmi við þessa meginforsendu,
gerði VSÍ tillögu um, að komi til
samdráttar í framleiðslu sjávaraf-
urða, þá hafi það áhrif til lækkunar
á verðbætur á laun. Ef til aukningar
kæmi aftur, þá leiddi hún að sama
skapi til hækkunar.
Alþýðusambandið setti það skil-
yrði fyrir áframhaldi viðræðna um
tilboð VSÍ, að Vinnuveitendasam-
bandið félli frá tillögu sinni um
þennan efnahagslega tyrirvara.
Af hálfu Vinnuveitendasambands-
ins var því hins vegar lýst yfir, að
sambandið væri áfram reiðubúið til
viðræðna um alla þætti þess heild-
artilboðs, er það lagði fram 21. júní
sl.