Morgunblaðið - 24.06.1982, Blaðsíða 26
26
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 24. JUNI 1982
Guðmundur Benediktsson.
Anna Margrét Sigurðardóttir.
Hulda Fétursdóttir.
Listi frjálslyndra kjósenda í
Kjalarneshreppi kominn fram
Listi frjálslyndra kjósenda er
kominn fram i Kjalarneshreppi
vegna sveitarstjórnarkosninganna
sem fram fara í landinu 26. júní nk.
Segir í frétt frá aðstandendum list-
ans að hann sé ekki flokkspólitísk-
ur, stefnan sé frjálst framtak og
frelsi einstaklingsins til athafna.
Listann skipa: Guðmundur
Benediktsson Esjugrund 39, Anna
Margrét Sigurðardóttir Saurbæ,
Hulda Pétursdóttir Útkoti, Guð-
bjartur H. Guðbjartsson Króki,
Andrea Tryggvadóttir Arnarhóli,
Guðjón Guðbjartsson Króki, Val-
gerður Guðjónsdóttir Kollafirði,
Alfreð Björnsson Útkoti, Guð-
mundur Sigfússon Harðarkoti og
Sigríður Böðvarsdóttir Saurbæ.
Til sýslunefndar Anna M. Sigurð-
ardóttir og Guðmundur Bene-
diktsson.
Hitaveita
HITAVEITA Seyðisfjarðar var form-
lega tekin í notkun við hátíðlega at-
höfn 20. júní sl. Bygging dreyfikerf-
isins hófst í júlí á sl. ári og var fyrsti
hluti þess tekin í notkun í október
sama ár. Ráðgert er að hitaveitan
verði um 2 megavött en kostnaður
var áætlaður 7,3 milljónir króna við
síðustu áramót.
Rafmagnsveitur ríkisins hafa
byggt upp og reka nú kyndistöð á
Seyðisfirði, sem hitar vatn með
Erindi um
kennslu og
þjálfun van-
gefinna
Sálfræðingurinn Willy Tore
Mörck flytur erindi um kennslu og
þjálfun vangefinna, einhverfra og at-
ferlistruflaðra í kvöld, fimmtudag-
inn 24. júní, í Æfingaskóla KHÍ við
Háteigsveg. Einnig sýnir hann kvik-
myndir um atferlismótun og mál-
þjálfun frá Emma Hjort-skólanum i
Noregi.
Foreldrar, sérfræðingar og ann-
að starfslið stofnana er hvatt til
að notfæra sér þetta tækifæri til
að kynnast nýjungum á þessu
sviði.
Vinningar í vor-
happdrætti Krabba-
meinsfélagsins
DREGIÐ hefur verið i vorhapp-
drætti Krabbameinsfélagsins. Vinn-
ingarnir sem voru tólf talsins komu
á eftirfarandi númer:
8.027: BMW 520, árgerð 1982,
77.435: Ford Escort 1300 GL, ár-
gerð 1982, 19.118: Mazda 323 Sa-
loon, árgerð 1982, 11.615, 17.637,
29.323, 63.472, 105.790, 106.456,
121.761, 122.208, og 148.848: Vinn-
ingur heimilistæki að eigin vali
fyrir 20.000 krónur hver vinning-
ur.
(Fréttatilkynning.)
INNLENT
Seydisfjarðar vígð
rafskautskatli upp í 80 gráður áð-
ur en það er selt kaupstaðnum við
stöðvarvegg á 50% af húshitun-
artaxta, eins og hann er á hverjum
tíma. Kostnaður Rafmagnsveit-
unnar vegna kyndistöðvarinnar
nemur rösklega 9 milljónum
króna.
Jónas Hallgrímsson, bæjar-
stjóri á Seyðisfirði, sagði að þess-
ar framkvæmdir væru liður í
opinberum aðgerðum sem miða að
því að útrýma erlendum orkugjöf-
um, en þar eystra reiknuðu menn
með hráolía til húshitunar hyrfi
algjörlega á þessu ári. Nú þegar er
búið að tengja 168 tengingar af
þeim 220 sem upphaflega áætlun-
in gerði ráð fyrir að myndi tengj-
ast dreifikerfinu. Sagði Jónas að
með tilkomu Hitaveitu Seyðis-
fjarðar væri stefnt að því að verð
til neytenda verði 10% lægra en
verð beins rafhitunarkostnaðar.
Ennfremur lækkuðu brunabóta-
gjöld með minnkandi eldhættu.
„V eiðimaðurinn“
nr. 1—6 Ijósprentaður
STANGAVEIÐIFÉLAG Reykjavíkur hefur látið Ijósprenta 1.—6. tölu-
blað Veiðimannsins, málgagn SVFR, en þessi hefti, eins og raunar
fleiri, eru löngu uppseld hjá félaginu, að því er fram kemur í fréttatil-
kynningu frá SVFR.
I fréttatilkynningunni segir,
að vitað sé um marga sem vant-
ar aðeins eitt eða fleiri af fimm
fyrstu eintökunum og því sé
gripið til þess ráðs að ljósprenta
þessi eintök. Undirtektir við sölu
þessarar ljósprentunar segja
fyrir um framhald ljósprentunar
Veiðimannsins. í Veiðimannin-
um eru fjölmargar greinar um
veiðimál og margar ljósmyndir,
og hefur Rafn Hafnfjörð ljós-
'myndari tekið þær flestar. Rit-
stjórar Veiðimannsins eru þeir
Víglundur Möller, en hann hefur
ritstýrt Veiðimanninum í fjölda
ára. Einnig er ritstjóri Magnús
Olafsson læknir.
Heftin sem ljósprentuð hafa
verið verða seld saman.
Veiðimaðurinn hefur komið út
óslitið frá árinu 1940.
Hörku árekstur á Kópavogsbrú
KLUKKAN 18.13 varð hörku
árekstur bifreiða, á vesturenda
Kópavogsbrúar, á mótum Hamra-
borgar og „gamla Hafnarfjarðar-
vegar". Lada-bifreið frá Loftorku
var ekið vestur Hamraborgina og
virtist sem ökumaður hafi ætlað
að sveigja til vinstri og var hann
kominn yfir á vinstri akrein.
BMW-bifreið var ekið austur
Hamraborgina og virtist sem öku-
maður hafi ætlað áfram austur yf-
ir gatnamótin. Bifreiðirnar skullu
hvor framan á annarri þannig að
taka varð þær með kranabifreið af
slysstað. Tveir menn, ökumaður
og farþegi Lada-bifreiðarinnar,
voru fluttir á Borgarspítalann.
Ókunnugt er hversu mikið þeir
slösuðust. Ökumaður BMW-bif-
reiðarinnar slapp ómeiddur.
Allir út að trimma á
Trimmdaginn 27. júní
ÞAÐ SEM af er þessu sumri hefur þjóðin verið hvött meir til þáttöku i
almenningsíþróttum en gerst hefur áður. Göngudagur fjölskyldunnar nýlið-
inn, hjólað er um landið og nú er kallað til fjöldaþátttöku i TRIMMDEGI
ISI þar sem hvatt er til iðkunnar íþrótta og útivistar.
Nú virðist sem hið forna spak-
mæli: „Heilbrigð sál í hraustum
líkama" nái nú eyrum þjóða bæði í
austri og vestri. Milljónir manna
streyma dag hvern til íþrótta og
útivistar að sækja sér þangað þrek
og gleði.
Stór hópur landsmanna iðkar
nú þegar almenningsíþróttir sér
og þjóð sinni til heilla.
En til þeirra sem enn hafa ekki
iagt í að vera með, vill Trimm-
nefnd ISI hvetja alveg sérstaklega
að nota nú Trimmdaginn og slást í
hóp þeirra fjölmörgu er öðlast
andlega og líkamlega vellíðan,
aukið viðnám, þrótt og þrek af iðk-
un íþrótta og útivistar.
Stefnum að fjöldaþátttöku á
TRIMMDEGI ÍSI 27. júní á degi
íþrótta og útivistar, segir í frétt
frá ÍSÍ.
Norska skólalúðrahljómsveitin Berg skolemusikkorps.
Norsk skólalúðra-
sveit í heimsókn hér
Hér á landi er nú stödd skóla-
lúðrasveit frá Halden í Noregi.
Félagar lúðrasveitarinnar, sem
heitir Berg skolemusikkorps,
eru 44 á aldrinum 10 til 20 ára.
Með þessari heimsókn endur-
geldur lúðrasveitin heimsókn
Nkólakórs Seltjarnarness til
Halden á siðasta ári.
Á laugardaginn mun Berg
skolemusikkorps skoða Gullfoss
og Geysi og halda síðan heim á
sunnudaginn.
Týndi 1000 kr.
í Vesturbænum
Berg skolemusikkorps hefur að
undanförnu leikið víða, á Lækjar-
torgi, Hrafnistu, í Garðabæ og á
Laugardalsvellinum í gærkvöldi í
tengslum við landsleik Dana og ís-
lendinga.
í kvöld, fimmtudaginn 24. júní,
leikur lúðrasveitin á tónleikum í
Iþróttahúsinu á Seltjarnarnesi kl.
20.30. Þar koma einnig fram
Skólakór og Skólalúðrasveit Sel-
tjarnarness.
STÚLKA í Reykjavík sem ráðgerir
dvöl í sumarbúðum KFUK í Vind-
áshlíð á næstunni varð fyrir því
óhappi að týna 1.000 krónum er hún
var á leið til að greiða fyrir dvölina.
Varð hún fyrir þessu á þriðjudag og
telur hún sig hafa týnt peningunum
á Hagamel í nánd við verslanirnar
þar. Voru þetta 500 kr. seðill, tveir
50 kr. seðlar og fjórir 100 kr. seðlar,
alls kringum 1.000 kr. Finnandi er
beðinn að hringja í 21408.
Nýjar myndir
í Bíóhöllinni
BÍÓHÖLLIN hefur tekið til sýn-
inga kvikmyndina „The Earth-
ling“ eða Jarðbúann. Segir þar frá
heimshornaflakkara sem lendir í
því að styðja strákhnokka, dekur-
barn út stórborg, sem hefur villst
úr i auðnir og er þar hjálparlaus.
William Holden og Ricky
Schroder leika aðalhlutverkin og
segir í kynningu Bíóhallarinnar
á myndinni að harðger og
ósnortinn maður finni hvað ást
og umhyggja sé og drengurinn
læri að treysta á sjálfan sig.
Framleiðandi er Elliot Sharmat
og leikstjóri Peter Collinson.
Þá hefur Bíóhöllinn einnig
tekið til sýninga myndina Amer-
Bandarísku háskólapiltarnir f varúlfamyndinni.
Úr myndinni Jarðbúinn.
ískur varúlfur í London. Þar
greinir frá amerískum háskóla-
drengjum sem voru á ferð í
Englandi. Var ráðist á þá og
fjallar myndin síðan um eftir-
mála þess — og varúlfa. John
Landis er leikstjóri og skrifaði
einnig handritið.