Morgunblaðið - 24.06.1982, Page 30
30
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 24. JÚNÍ 1982
VIÐSKIPTI
VIÐSKIPTI - EFNAHAGSMÁL - ATHAFNALÍF
— umsjón Sighvatur Blöndahl
Cargolux semur
um pílagrímaflug
FYRIR milligöngu Flugleiða
standa nú yfir samningar milli
Kabo Travel og ('argolux um að
síðarnefnda félagið taki að sér
pílagrímaflutninga frá Nígeríu til
Jedda, en eins og kunnugt er eiga
Flugleiðir 25% hlutafjár í Cargo-
lux, sem er staðsett í Luxemborg.
Cargolux mun taka á leigu
Boeing 747-breiðþotu frá
Boeing-verksmiðjunum til
þessa verkefnis, ef semst með
aðilum.
Þess má geta, að Flugleiðir
hafa um langan tíma átt mikið
og gott samstarf við Kabo Air
og eiganda þess, Alhadji Kabo
Adamu, og um eins og hálfs árs
skeið hefur Boeing 727-100-
þota frá Flugleiðum, sem er á
kaupleigusamningi til Kabo
Air, flogið innanlandsflug í Níg-
eríu með íslenzkum áhöfnum.
Beita sér fyrir sam-
vinnu lítilla og með-
alstórra fyrirtækja
DAGANA 10.—12. júní sl. héldu
iðnrekendafélögin á Norðurlönd-
um fund í Reykjavík um málefni
lítilla og meðalstórra fyrirtækja.
Fundir þessir hafa frá árinu 1979
verið haldnir tvisvar á ári til skipt-
is á Norðurlöndunum, en fundur-
inn var nú haldinn i fyrsta sinn í
Reykjavík.
I tengslum við þetta samstarf
iðnrekendafélaganna hefur litl-
um og meðalstórum fyrirtækj-
um verið boðin aðstoð við að
komast í samband við önnur
fyrirtæki á hinum Norðurlönd-
unum með samvinnu í huga.
Bretland:
Verðbólgan
í 7—7,5%
fyrir árslok
VERÐBÓLGAN er stöðugt á
niðurleið í Bretlandi, eftir að
hún komst upp undir 20% fyrir
tveimur árum. Samkvæmt upp-
lýsingum frá brezku hagstof-
unni er verðbólgan um þessar
mundir rétt undir 9% og sér-
fræðingar spá því, að undir lok
ársins verði verðbólgan komin
niður í 7,0—7,5%. Þess má geta,
að við upphaf ársins var verð-
bólgan í Bretlandi 11,7%.
Hafa iðnrekendafélögin gefið út
kynningarbækling um þessa
starfsemi. Óhætt er að fullyrða
að þetta samstarf er mikilvægt
fyrir íslendinga í ljósi þess, að
hér á landi teljast flest iðnfyr-
irtæki til lítilla eða meðalstórra
fyrirtækja.
Gjarnan er bent á að styrkur
lítils fyrirtækis sé smæð þess.
Það er lipurt og fljótt að laga
sig að nýjum aðstæðum. Veik-
leiki hins litla fyrirtækis er líka
smæð þess. Það hefur takmark-
að bolmagn til að sinna sölu-
starfsemi, fjármögnun, yöru-
þróun og svo framvegis. Sam-
vinna við fyrirtæki á hinum
Norðurlöndunum getur því orð-
ið til þess að yfirvinna veiku
hliðar smáfyrirtækjanna, en
jafnframt viðhaldið sterku hlið-
unum.
Þessir samvinnumöguleikar
felast einkum á sviði mark-
aðsmála, framleiðslu, ásamt
rannsóknar- og þróunarsviði.
Reyndar er þetta samstarf ekki
eingöngu bundið við Norður-
löndin, heldur munu iðnrek-
endafélögin einnig aðstoða
fyrirtækin við að leita að hugs-
anlegum samstarfsaðilum inn-
an Evrópu.
Loks má geta þess, að þeir
menn hjá Félagi íslenzkra iðn-
rekenda, sem gefa nánari upp-
lýsingar um þessa starfsemi,
eru Ingjaldur Hannibalsson og
Þórarinn Gunnarsson.
Breytingar á verði gjaldmiðla frá mánaðamótum:
hefur
4,52%
Dollaraverð
hækkað um
— Pundið hefur hækkað um 0,13%
— Dönsk króna hefur lækkað um 3,19%
— Vestur-þýzkt mark hefur lækkað um 1,58%
DOLLARAVERÐ hefur hækkað um
1,34% í liðinni viku, en sölugengi
dollars var skráð 11.192 krónur 16.
júní sl., en var skráð 11.342 krónur í
gærdag. Á sama tíma hefur verð á
hverju pundi lækkað um 0,73%, eða
úr 19.681 krónu í 19.537 krónur.
Sömuleiðis hefur verð á danskri
krónu lækkað um 1,14% í liðinni
viku, úr 1,3370 krónum í 1,3217
krónur. Þá hefur vestur-þýzkt mark
lækkað um 1,23% í verði síðan 16.
júní sl.
Síðan um mánaðamót hefur
dollaraverð hækkað um 4,52%, eða
úr 10.852 krónum í 11.342 krónur.
Á sama tíma hefur verð á hverju
pundi hækkað um 0,13%, úr 19.512
krónum í 19.537 krónur. Verð á
danskri krónu hefur hins vegar
lækkað um 3,19%, úr 1,3652 krón-
um í 1,3217 krónur. Verð á vest-
ur-þýzku marki hefur ennfremur
lækkað um 1,58% síðan um mán-
aðamót, úr 4,6386 krónum í 4,5651
krónu.
Ef tímabilið frá áramótum er
skoðað kemur í ljós að dollaraverð
hefur hækkað um 38,57%, úr 8.185
krónum í 11.342, en til samanburð-
ar má geta þess, að dollaraverð
hækkaði allt árið í fyrra um 31 %.
Síðan um áramót hefur verð á
hverju pundi hækkað um 24,82%,
úr 15.652 krónum í 19.537 krónur.
Þá hefur verð á hverri danskri
krónu hækkað um 18,24%, úr
1,1189 krónum í 1,3217 krónur.
Loks má geta þess, að verð á
hverju vestur-þýzku marki hefur
hækkað um 25,36% frá áramótum
,úr 3,6418 krónum í 4,5651 krónu.
Þá má skjóta því inn, að frá því
að núverandi ríkisstjórn tók við
völdum í febrúar 1980 hefur doll-
araverð hækkað um 182,35%.
Frá mótttökunni á dögunum, f.v. Magnús E. Finnsson, framkvæmdstjóri Kaupmannasamtakanna, Kristinn Björns-
son, Ingvar Kjartansson og Gunnar Snorrason, formaður Kaupmannasamtakanna.
Tvær kempur úr röðum
kaupmanna heiðraðar
TVÆR kempur úr röðum kaup-
manna voru sæmdar gullmerki
Kaupmannasamtaka íslands ásamt
heiðursskjali fyrir skömmu, en það
eru þeir Ingvar Kjartansson, eigandi
og framkvæindastjóri verzlunarinn-
ar Vald. I'oulsen hf., og Kristinn
Einarsson, sem er eigandi og fram-
kvæmdastjóri K. Einarsson og
Bjömsson hf.
Gunnar Snorrason, formaður
Kaupmannasamtaka Islands, af-
henti þeim félögum merkin við
móttöku að Marargötu 2 á dögun-
um.
Þeir Ingvar og Kristinn eru báð-
ir félagar í Félagi búsáhalda- og
járnvörukaupmanna og hefur
Ingvar m.a. gegnt stöðu formanns
sl. 10 ár, en Kristinn sat í stjórn
um árabil.
Janúar — marz:
1.700 milljóna króna
hagnaður hjá Chrysler
VERULEGUR hagnaður varð af
rekstri Chrysler-fyrirtækisins banda-
ríska á fyrsta ársfjórðungi þessa árs
og er það i fyrsta skipti i langan
tima, sem fyrirtækið hefur verið rétt-
um raegin við strikið.
Hagnaðurinn af rekstri Chrysl-
er fyrstu þrjá mánuðina var 149,9
milljónir dollara, eða sem næst
1.700 milljónum íslenzkra króna
en til samanburðar var tap fyrir-
tækisins á sama tíma í fyrra um
289,3 milljónir dollara, eða sem
næst 3.270 millónum íslenzkra
króna. Talsmaður Chrysler sagði á
fundi með blaðamönnum, að ár-
angur af miklu uppbyggingar-
starfi innan fyrirtækisins síðustu
misseri og ár væri að koma í ljós.
Staða fyrirtækisins var orðin gíf-
urlega slæm fyrir nokkrum árum,
þegar ráðinn var nýr forstjóri og
skipt var um flesta yfirmenn þess.
A fyrstu þremur mánuðum árs-
ins markaðssetti Chrysler ýmsar
nýjungar, sem mælst hafa vel
fyrir. Má þar nefna endurhannað-
an Chrysler LeBaron, lúxusbíl, og
nýjan Dodge 400.
Þá gerðust þau tímamót í sögu
fyrirtækisins 1. febrúar sl., að það
losaði sig við síðasta vanskilalánið
í bandarískum bönkum, en á síð-
ustu árum hefur margoft legið við
gjaldþroti og því verið leitað á
náðir banka. Að sögn talsmanns
fyrirtækisins hefur staða fyrir-
tæksins ekki verið betri um
margra ára skeið. „Við sjáum því
ekki annað en framtíðin sé björt,"
sagði talsmaðurinn enr.fremur.