Morgunblaðið - 24.06.1982, Blaðsíða 32
32
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 24. JÚNÍ 1982
91 styrkur veittur úr
Vísindasjóði - samtals
að upphæð 5,2 millj. kr.
Skipting styrkja eftir vísindagreinum:
Raunvísindadeild
Grein fjöldi beildarfjárhæð
Eðlisfræði 1 25.000
Efnafræði, lífefnafræði Erfðafræði, grasafræði, dýrafræði 7 443.000
lífeðlisfr., örverufr. og sameindalíffr. 14 1.035.000
Jarð-, jarðeðlis- og jarðefnafræði 17 942.000
Læknisfræði og tannlæknisfræði 12 801.000
Stærðfræði 2 111.000
Verkfræði 1 170.000
samtals 54 3.527.000
Hugvísindadeild
Grein fjöldi heildarfjárhæð
Sagnfræði (atvinnus. o.fl.) 12 430.000
Fornleifafræði 1 60.000
Listasaga 3 170.000
Sagnfræði alls 16 660.000
Bókmenntafræði 5 255.000
Málfræði 5 320.000
Lögfræði 1 50.000
Hagfræði 1 40.000
Félagsfræði 6 295.000
Sálfræði 3 90.000
Samtals 37 1.710.000
LOKIÐ er úthlutun úr Vísindasjóúi
fyrir árió 1982 og er þetta í 25.
skipti, sem úthlutað er úr sjóónum.
Alls veitti sjóóurinn aó þessu sinni
91 styrk að fjárhæó krónur 5.237.
000, en á síðasta ári veitti sjóóurinn
93 styrki að upphæð 3.113.000 krón-
ur.
Vísindasjóður skiptist í raunvís-
inda- og hugvísindadeild. Eyþór
Einarsson er formaður raunvís-
indadeildar, en Jóhannes Nordal,
seðlabankastjóri, formaður hug-
vísindadeildar. Hugvísindadeild
veitti 37 styrki að upphæð 1.710.
000 krónur, en árið á undan 46
styrki. Raunvísindadeild veitti nú
54 styrki ■ að fjárhæð samtals
3.527.000 krónur, en 1981 veitti
deildin 47 styrki. í frétt frá Vís-
indasjóði segir, að heildarfjárhæð
umsókna hafi að venju verið miklu
hærri en það fé sem unnt var að
veita. Varð því að synja mörgum
umsækjendum og veita öðrum
lægri fjárhæðir, en æskilegt hefði
verið, segir í fréttinni.
Hér fer á eftir skrá um veitta
styrki Vísindasjóðs og viðfangs-
efni árið 1982:
Raunvísindadeild:
Ágúst H. Bjarnason, grasafræð-
ingur. Flóra og gróður í sögulegum
hraunum. 70.000.
Efnafræðistofa RHÍ. Ábyrgðar-
maður Ágúst H. Kvaran. Litrófs-
greining orkuríkra sameinda.
Tækjakaup. 32.000.
Barnadeild Landakotsspítala.
Yöxtur og þroski íslenskra barna.
Ábyrgðarmaður Árni V. Þórsson.
29.000.
Efnafræðistofa RHÍ. Áhrif somat-
ostatins á virkni calmodulins.
Ábyrgðarmaður Bjarni Ásgeirsson.
90.000.
Reiknifræðistofa RHÍ. Vaxtar-
hraðabreytingar hjá nytjafiskum í
N-Atlantshafi undanfarna áratugi.
Ábyrgðarmaður Björn Ævarr Stein-
arsson. 40.000.
Blóðbankinn við Barónsstíg.
Erfðaþættir heilablæðinga. Ábyrgð-
armaður Ólafur Jensson. 80.000.
Tilraunastöð Háskólans í meina-
fræði að Keldum. PMSG-hormón í
blóði íslenskra hryssa. Ábyrgðar-
maður Eggert Gunnarsson. 50.000.
Eggert Lárusson landfræðingur.
Sjávarstöðubreytingar í V-Barða-
strandarsýslu. 22.000.
Tilraunastöð Háskólans í meina-
fræði. Örgerð vefjaskemmda í visnu
og riðu. Tækjakaup. Ábyrgðarmaður
Guðmundur Georgsson. 10.000.
Norræna eldfjallastöðin. Set-
myndun í Þingvallavatni. Aldurs-
ákvarðanir með gjóskulögum.
Ábyrgðarmaður Guðrún Þ. Larsen.
42.000.
Norræna eldfjallastöðin. Basisk
gjóskugos á Tungnaáröræfum.
Ábyrgðarmaður Guðrún Þ. Larsen.
129.000.
Gunnar Steinn Jónsson líffræð-
ingur. Frumframleiðni botnþörunga
í Þingvallavatni. 88.000.
Krabbameinsfélag íslands. For-
stigsbreytingar leghálskrabbameins.
Ábyrgðarmaður Gunnlaugur Geirs-
son. 200.000.
Hafrannsóknastofnun. Setmynd-
un í Þingvallavatni. Lagskipting og
innri gerð. Ábyrgðarmaður Hafliði
Hafliðason. 88.000.
Hermann Þórisson stærðfræðing-
ur. Líkindafræði; endurnjunarferli
og dreifingartenging. 80.000.
Hrefna Sigurjónsdóttir líffræð-
ingur. Æxlunaratferli gulu mykju-
flugunnar. 15.000.
Jarðfræðistofa RHÍ. Jarðlaga-
fræði síðasta jökulskeiðs á Arnar-
nesi við Eyjafjörð. Ábyrgðarmaður
Hreggviður Nordahl. 30.000.
Jarðeðlisfræðistofa RHÍ. Jarðseg-
ulsviðsmælingar, tækjakaup.
Ábyrgðarmaður Leó Kristjánsson og
Þorsteinn Sæmundsson. 60.000.
Efnafræðistofa RHÍ. Efnasmíði og
oxun enamina, tækjakaup. Ábyrgð-
armaður Jón Geirsson. 60.000.
Jón Jónsson jarðfræðingur.
C-14-aldursákvarðanir. 15.000.
Rannsóknastofa HÍ í lífeðlisfræði.
Áhrif hitastigs á samdráttarhæfni
sléttra vöðva in vitro. Ábyrgðarmað-
ur Kristín Einarsdóttir. 72.000.
Jarðfræðistofa RHl. K/Ar-
aldursákvarðanir á íslensku bergi.
Ábyrgðarmaður Kristinn J. Al-
bertsson. 25.000.
Borgarspítalinn, rannsóknadeild.
D-vítamínbúskapur skólabarna og
aldraðra í Reykjavík. Ábyrgðarmað-
ur Laufey Steingrímsdóttir. 37.000.
Líffræðistofnun HÍ. Hitakærar
örverur í íslenskum hverum og laug-
um. Ábyrgðarmenn Guðni Alfreðs-
son og Jakob Kristjánsson. 95.000.
Líffræðistofnun HÍ. Rafskrán-
ingar úr efnaskynfærum fiska,
tækjakaup. Ábyrgðarmaður Logi
Jónsson. 110.000.
Jarðfræðistofa RHÍ. Tilraunir í
bergfræði, stöðugleikasvið steina í
basalti. Ábyrgðarmaður Magnús
Ólafsson. 150.000.
Náttúrugripasafnið í Neskaup-
stað. Smádýralíf á Brúaröræfum.
33.000.
Norræna eldfjallastöðin. Dyngju-
fjöll og Askja. Jarðskorpuhreyf-
ingar, jarðfræði og bergfræði.
Ábyrgðarmaður Guðmundur E. Sig-
valdason. 50.000.
Tilraunastöð Háskólans í meina-
fræði. Tækjakaup til sameindalíf-'
fræðirannsókna. Ábyrgðarmaður
Ólafur Andrésson. 60.000.
Ólafur Grímur Björnsson læknir.
Stjórn galls- og brisvökvaútskilnað-
ar í mönnum. 85.000.
Rannsóknarstofnanir fiskiðnaðar-
ins og landbúnaðarins. Geymsluþol
fóðurblandna úr innlendum hráefn-
um. Ábyrgðarmenn Ólafur Guð-
mundsson og Sigurjón Arason.
110.000.
Jarðeðlisfræðistofa RHÍ. Jarð-
skjálftar og misgengishreyfingar á
Atiantshafshryggnum norðan við
20°N. Ábyrgðarmaður Páll Einars-
son. 29.000.
Pálmi Möller tannlæknir. Tann-
heilbrigði 6—14 ára íslenskra barna.
Framhaldsrannsókn. 50.000.
Rannsóknarstofnun byggingariðn-
aðarins. Þéttleiki íbúðarhúsa.
Tækjakaup. Ábyrgðarmaður Jón
Sigurjónsson. 170.000.
Rannsóknastofnun landbúnaðar-
ins. Sveppir í jarðvegi og gróðri og
hugsanleg áhrif þeirra á þrif sauð-
fjár. Ábyrgðarmenn Sigurgeir
Ólafsson og Ólafur Guðmundsson.
75.000.
Jarðfræðistofa RHÍ. Skaftárelda-
hraun, viðbótarstyrkur. Ábyrgðar-
menn Sigurður Þórarinsson og Þor-
leifur Einarsson. 17.000.
Jarðfræðistofa RHÍ. Nýtt kort af
Heimaeyjarhrauninu með tilliti til
breytinga á strönd og landhæð á níu
árum frá gosi. Ábyrgðarmaður Þor-
leifur Einarsson. 39.000.
Jarðfræðistofa RHÍ. Gas-efna-
hitamælar fyrir jarðhitarannsóknir.
Ábyrgðarmaður Stefán Arnórsson.
100.000.
Jarðfræðistofa RHÍ. Jarðefna-
fræði jarðhita, tækjakaup. Ábyrgð-
armenn Sigurður Steinþórsson og
Stefán Arnórsson. 100.000.
Efnafræðistofa RHÍ. Ensím í síld
og þættir þeirra í síldarverkun.
Ábyrgðarmaður Sigurður Magnús-
son. 61.000.
Sigurður Þórarinsson jarðfræð-
ingur. Könnun á gögnum varðandi
áhrif Skaftárelda. 11.000.
Sigurjón B. Stefánsson læknir.
Merkja- og kerfisfræðilegar athug-
anir á starfsemi sjálfvirka tauga-
kerfisins í mönnum. 70.000.
Skógrækt ríkisins. Skordýr í görð-
um og skóglendi og skemmdir af
völdum þeirra. Ábyrgðarmaður Jón
Gunnar Ottósson. 150.000.
Rannsóknastofa HÍ í lífeðlisfræði.
Áhrif ytri þátta á samband himnu-
spennu og samdráttar í sléttum
vöðvum í æðaveggjum. Ábyrgðar-
maður Stefán B. Sigurðsson. 39.000.
Rannsóknastofa HÍ í lífeðlisfræði.
Örskautatæki til skráninga himnu-
spennu í frumum. Ábyrgðarmaður
Stefán B. Sigurðsson. 88.000.
Unnsteinn Stefánsson og Björn
Jóhannesson. Efnabúskapur og
varmahagur Ólafsfjarðarvatns,
framhaldsrannsóknir. 40.000.
William Peter Holbrook tann-
læknir og Helga M. Ögmundsdóttir
læknir. Sveppasýkingar í munni.
45.000.
Hjartavernd. Úrvinnsla á gögnum
um lungnastarfsemi íslenskra
karlmanna. Ábyrgðarmaður Örn
Elíasson. 15.000.
Jarðfræðistofa RHÍ. Frjógrein-
ingar. Ábyrgðarmaður Margrét
Hallsdóttir. 35.000.
Björn Birnir stærðfræðingur.
Fallafræði Rieman-flata og Jacobi-
fylki þeirra. 31.000.
Göngudeild sykursjúkra. Orsakir
insulin-háðrar sykursýki. Ábyrgðar-
maður Þórir Helgason. 60.000.
Líffræðistofnun HÍ. Stökkbreyt-
andi og krabbameinsvaldandi efni í
umhverfinu. Ábyrgðarmaður Jórunn
Erla Eyfjörð. 100.000.
Eðlisfræðifélag íslands. Orðaskrá
um eðlisfræði og stjörnufræði.
Ábyrgðarmaður Þorsteinn Vil-
hjálmsson. 25.000.
Rannsóknastofa Háskólans við
Barónsstíg. Orkubúskapur fruma.
Tækjakaup. Ábyrgðarmaður Val-
garður Egilsson. 120.000.
Hugvísindadeild
Álfheiður Steinþórsdóttir og Guð-
finna Eydal sálfræðingar (sameig-
inlega). Þróun aðferða við fyrir-
byggjandi sálfræðilega ráðgjöf fyrir
íslenskar fjölskyldur. 55.000.
Auður Styrkársdóttir MA. Áhrif
kvenna i stjórnmálum á íslandi.
50.000.
Hið íslenska bókmenntafélag.
Samning skráa við Annála
1400-1800. 50.000.
Eiríkur Jónsson fyrrv. kennari.
Tilurð skáldsagnanna Sjálfstætt
fólk og Heimsljós eftir Halldór
Laxness. 50.000.
Fríður Ólafsdóttir Diplom design-
er. Rannsókn á íslenskum karl-
mannafatnaði 1780—1850. 35.000.
Garðar G. Víborg fil. kand. Þróun
félagsskynjunar hjá börnum (dokt-
orsverkefni við Lundarháskóla).
15.000.
Gísli Gunnarsson MA. Einokun-
arverslun Kaupmannahafnar og ís-
lenska samfélagið 1600—1800.
40.000.
Grunnvíkingafélagiö, ísafirði. Rit-
un sögu Grunnvíkinga og Grunna-
víkurhrepps. 40.000.
Dr. Gunnar Karlsson prófessor.
Samning ritaskrár um islenska sögu
(umsjón á vegum Sagnfræðistofnun-
ar). 75.000.
Dr. Gunnlaugur S.E. Briem. For-
skrift og skriftarkennsla á íslandi
frá miðri 19. öld. 10.000.
Sr. Hjalti Hugason. Menntun ís-
lenskra presta 1805—1846 (doktors-
verkefni við Uppsalaháskóla). 15.000.
Dr. Höskuldur Þráinsson prófess-
or og dr. Kristján Árnason lektor
(sameiginlega). Rannsókn á íslensku
nútímamáli, einkum framburði.
150.000.
Indriði Gíslason lektor og Jón
Gunnarsson lektor (sameiginlega).
Máltaka íslenskra barna á forskóla-
aldri. 30.000.
Inga Dóra Björnsdóttir MA. Söfn-
un á ritverkum og viðtölum við ís-
lenskar konur í Vesturheimi. 50.000.
Jón Viðar Jónsson fil. kand. Upp-
runi og þróun áhugamannaleiklistar
á íslandi (doktorsverkefni við há-
skólann í Stokkhólmi). 20.000.
Júgóslavarmr harð-
ir á opnu mótunum
Skák
Margeir Pétursson
Jafnframt stórmótinu i Torino á
Ítalíu, sem nú er nýlokió, fór fram
opið skákmót í mörgum flokkum,
þar sem þrír íslendingar voru á
meðal þátttakenda, auk undirrit-
aðs, þeir Sævar Bjarnason,
Keykjavíkurmeistari, og Þór Örn
Jónsson. Upphaflega höfðum við
aðeins komið til Torino til að fylgj-
ast með stórmeistaramótinu, en
eftir að þaö kom i Ijós að opna
mótið yrði sæmilega öflugt ákváð-
um við að slá til og vorum allir þrír
úrskurðaðir hæfir til þátttöku í
efsta flokki mótsins, meistara-
flokknum.
Úrslitin í meistaraflokki urðu
þessi:
1. Sahovic (Júgóslavíu) 7 vinn-
ingar af 8 mögulegum. 2. Mrdja
(Júgóslavíu) 6'/2 v. 3.-4. Margeir
Pétursson og Despotovic (Júgó-
slavíu) 5*/i v. 5.—6. Kliako (Júgó-
slavíu) og Andruet (Frakklandi).
Sævar hlaut fjóra vinninga og Þór
Örn tvo.
Svo sem sjá má af þessari upp-
talningu voru það ekki heima-
menn sem settu okkur stólinn
fyrir dyrnar, heldur öflugur
flokkur Júgóslava, en sterkir
skákmenn af því þjóðerni róa
gjarnan á mið í Sviss, Ítalíu og
Austurríki, því verðlaun á mót-
um þar eru miklum mun hærri
en í heimalandi þeirra. Stór-
meistarann Sahovic rámar lík-
lega marga lesendur í frá
Reykjavíkurskákmótinu í vetur,
en hann virðist sérhæfa sig í
opnum mótum og hefur jafnvel
sigrað á Lone Pine-mótinu, sem
er sterkast hinna opnu móta á
ári hverju.
Um árangur okkar íslend-
inganna er það að segja að hann
var fremur í lægri kantinum og
sérstaklega var Sævar langt frá
sínu bezta. Ég náði forystu í
mótinu eftir þrjár umferðir, en
þá fór í hönd einn af þessum
slæmu dögum; fyrst tapaði ég
jafnteflislegri biðskák fyrir
Mrdja og tefldi síðan með svörtu
gegn Sahovic. Ég lenti í einu af
uppáhaldsafbrigðum Slavans og
tókst aldrei að losa af mér tak
hans. Þar með var efsta sætið
auðvitað farið veg allrar verald-
ar, en í síðustu umferð tókst mér
að klóra í bakkann með því að
leggja alþjóðameistarann Des-
potovic að velli.
Sævar byrjaði á því að leggja
júgóslavneska meistarann KIi-
ako að velli í bráðskemmtilegri
skák, dæmigerð fyrir Sævar þeg-
ar hann nær sínu bezta. Én í
þessu móti var hann enn mis-
tækari en venjulega og í þriðju
umferð fékk hann hroðalega út-
reið í kóngsbragði gegn einum af
ítölsku þátttakendunum. Eftir
það náði hann sér ekki fyllilega
á strik aftur og endaði með 50%
vinninga, sem var alltof lítið.
Þór Örn Jónsson átti hér við
erfiðari mótstöðu að etja en
hann hefur áður reynt sig við.
Hann byrjaði samt mjög vel og
hafði hlotið tvo vinninga úr
þremur fyrstu skákunum. Fleiri
urðu vinningar hans ekki og má
um það kenna reynsluleysi og
skákþreytu þegar líða tók á mót-
ið.
Þessi staða kom upp í skák
þeirra Sævars og Kliako í fyrstu
umferð. Sævar, sem hafði hvítt,
hafði þegar hér var komið sögu
fórnað peði fyrir sóknarfæri og
nú fann hann geysiöfluga leið
sem reyndist leiða til þvingaðs
vinnings, eftir miklar sviptingar.
Svart: Kliako (Júgóslavíu)
Hvítt: Sævar Bjarnason
36. Bh3! — Bb3.
Eini leikurinn, því eftir 36. —
Bxh3, 37. Hxf7 vinnur hvítur.
37. Hb2!
Leppar riddarann og hótar 38.
De3. Nú grípur svartur til ör-
væntingarfullra aðgerða til að
losa sig úr leppuninni.
b6, 38. Rf5 — Df8, 39. De3 —
Dxc5.
Riddarinn á b3 virðist nú vald-
aður óbeint, en Sævar hefur séð
lengra.
40. Hxb3! — Dc2+, 41. Bg2 —
Rf4.
Ekki 41. - Hxb3, 42. Dh6 og
svartur er óverjandi mát.
42. gxf4 - Hxb3, 43. Del.
Hér fór skákin í bið, en Kliako
gafst upp morguninn eftir án
þess að tefla frekar. Biðleikur
hans var 43 — Dc4 sem tapar
eftir 44. Dh4 — De6, 45. Dg5+ —
Kf8, 46. Dd8+ - De8, 47. Dd6+ -
Kg8, 47. Df6 - Df8, 48. fxe5 og
svartur á ekkert svar við hótun-
inni 49. e6.