Morgunblaðið - 24.06.1982, Síða 39

Morgunblaðið - 24.06.1982, Síða 39
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 24. JÚNÍ 1982 39 byggði sér hús við Stekka á Pat- reksfirði nr. 17. Er húsið byggt í nokkuð brattri brekku með stórri lóð ofan við. Pálína og Guðmundur komu sér þarna upp fallegum garði, þótt lóðin hafi verið frá- munalega erfið. Þar í liggja mörg handtök og voru þau þar öllum stundum vor og sumar að hlúa að margs konar gróðri, enda Pálína alveg einstök „blómakona" eins og sagt er. Síðustu árin var Guð- mundur vélgæslumaður hjá hrað- frystihúsinu Skildi á Patreksfirði og rækti það starf vel og allt ann- að sem honum var trúað fyrir. Nokkuð langt var frá heimili Guðmundar á vinnustað og fór hann einatt hjólandi til og frá vinnu. Setti hann svip á bæjarfé- lagið með persónuleika sínum. Oft var stoppað á leiðinni og rætt við samborgarana, gjarna var þá tek- in upp pontan og tekið í nefið. Guðmundur var sérlega minnugur og sagði vel frá. Gat maður gleymt sér tímunum saman í viðræðum við hann. Hann var eftirtektar- samur og íhugull og tók eftir ýmsu í náttúrunni, sem fer fram hjá flestum. Lítinn trillubát átti hann og hafði yndi af að nostra við hann á ýmsa lund. Lagði hann jafnan hrognkelsanet á vorin sér til ánægju. Hann hafði yndi af að safna fágætum hlutum. Atti hann ágætt frímerkjasafn og myntsafn og eitt safn sá ég hjá honum, sem ég held að eigi hvergi sinn líka, en það er safn af öskupokum, listi- lega vel útsaumuðum eða máluð- um í silki. Guðmundur var traustur maður og heiðursmaður í orðsins fyllstu merkingu. Vinmargur var hann, því hitti maður Patreksfirðinga búsetta syðra, var hann jafnan einn af þeim sem um var spurt er innt var eftir fréttum að heiman. Guðmundur hafði ekki ýtt trillu sinni á flot síðustu 2 til 3 ár vegna skemmda sem urðu á henni, en nú í vor var viðgerð lokið og var hann nýbúinn að sjósetja hana. Mánu- daginn 14. þ.m. tók hann net sín um borð og ætlaði fyrir fjörð á skel sinni til að leggja netin, en fyrir áeggjan konu sinnar fór hann styttra, enda hafði hann kennt nokkurs lasleika undanfar- ið. Hann hafði nýgengið frá bát sínum að sjóferð lokinni og kom- inn heim til sín er hann lést skyndilega. Ég og kona mín og synir þökk- um Guðmundi samfylgdina og biðjum honum Guðs blessunar um alla eilífð. Pálínu, konu hans, dætrunum tveimur, tengdasyni og barnabörnum, sendum við okkar innilegustu samúðarkveðjur. Páll Ágústsson Jarþrúður Jónasdóttir — síðbúin kveðja „Af eilífdar Ijó.si bjarma ber sem brautina þungu greióir vort líf sem svo stutt og stopult er það stefnir á æðri leiðir og upphiminn fegri en augað sér mót rillum oss faðminn breiðir/* (Kinar Ben.) Mig langar til að minnast hér með nokkrum orðum móður minn- ar, Jarþrúðar Jónasdóttur, en hún hefði orðið 75 ára hinn 23. júní. Hún fæddist á Hellissandi á Snæ- fellsnesi 23. júní 1907 og voru for- eldrar hennar hjónin Ingveldur Gísladóttir og Jónas Þorvarðarson frá Hallsbæ. Eftirlifandi systir móður minnar er Guðrún Jónas- dóttir og var ætíð mikill kærleikur milli þeirra systra. Móðir mín giftist Sveinbirni Sighvatssyni og eignuðust þau fjögur börn, þrjár dætur og einn son. Heimili for- eldra minna stóð ávallt opið öllum þeim sem að garði bar. Móðir mín var einstaklega ljóðelsk kona og gat setið og hlýtt á ljóðalestur og annað andlegt efni svo tímum skipti. Allur lífsmáti hennar ein- kenndist af rósemi. Er hún stóð á fimmtugu varð hún ekkja og stóð þá uppi með yngsta barn sitt, son, 10 ára að aldri. Henni varð til láns að leigja íbúð af góðum og um- hyggjusömum manni sem Stein- þór heitir. Hann reyndist henni og börnum hennar einstaklega vel. Mörg undanfarin ár átti hún við vanheilsu að stríða, en það mót- læti bar hún æðrulaust og án þess að kvarta. Hún lagði uppí sína hinstu ferð í apríl 1981. Sátt við lífið og sátt við að deyja. Blessuð sé minning hennar. R.ELS. GRJOTGRINDUR Á FLESTAR TEGUNDIR BIFREIÐA KVORT KÝST ÞÚ GAT EÐA GRIND? Eigum á lager sérhannaðar grjót- grindur á yfir 50 tegundir BIFREIÐA SKEMMUVEGI 4 K0PAV0GI SIMI 7 7840 Kverkstæðið nastás bifreiða! Ásetning á staðnum í SUMARBÚSTAÐINN OG FERÐALAGIÐ Björgunarvesti BJÖRGUNARAXLABÖND. ÁRAR. — ÁRAKEFAR. BÁTADREKAR. KEDJUR. KOLANET. — SILUNGANET. ÖNGLAR. PILKAR. SÖKKUR. Handfæravindur m/stöng VIDLEGUBAUJUR. SÚÐHLÍFAR, MARGAR ST. VÆNGJADÆLUR. BÁTADÆLUR. íslenzk flögg Fl AGGST ANG ARHÚN AR. FLAGGLÍNUR. FESTLAR. Sólúr Vasaljós TJALDLJÓS. LJÓSK AST ARAR. VIDARKOL. GRILLVÖKVI. GASFERÐAT ÆKI. OLÍUPRÍMUSAR. STEINOLÍA, 2 TEG. PLASTBRÚSAR. • MÚSA- OG ROTTUGILDRUR. SLÖKKVITÆKI. BRUNATEPPI. DOLKAR — VASAHNÍFAR. dxtaddín. Olíulampar Olíuofnar Olíuhandlugtir Garðyrkjuáhöld SKÓFLUR ALLSKONAR. KANTSKERAR. GARPHRÍFUR. GARDSLÖNGUR. SLÖNGUGRINDUR VATNSÚÐARAR. HRÍFUR. ORF. BRÝNi. GARÐSLÁTTUVÉLAR Garöyrkjuhanskar KVENNA, ÍBORNIR. Handverkfæri ALLSKONAR. KÚBEIN. JÁRNKARLAR. JARDHAKAR. SLEGGJUR. MÚRARAVERKFÆRI. Málning og lökk FERNISOLÍA. VIÐAROLÍA. HRÁTJARA. CARBÓLÍN. BLAKKFERNIS. PLASTTJARA. PENSLAR. KÚSTAR. RÚLLUR. RYÐEYDIR — RYÐVÖRN. • REGNFATNAÐUR. KULDAFATNADUR. ULLARNÆRFATNAÐUR. TERMO-NÆRFÖT. ULLARSOKKAR. FERDASKYRTUR. GÚMMÍSTÍGVÉL. VEIÐISTÍGVÉL. FERÐASKÓR. Föstudaga opiö til kl. 7. Sími 28855 Sumarhús — Parhús á fögrum staö í Borgarfiröi er til leigu. Húsiö er ekki fullfrágengiö. Rafmagn er í húsinu og aðgangur aö silungsvatni getur fylgt. Allar nánari uppl. í síma 75397 á kvöldin. Borð og 4 stólar með sessum kr. 6.162.- Athugiö, að við eigum sjö aörar geröir af garðsettum, en myndirnar sýna — á mjög hagstæðu veröi. Einnig blómaker og garöbekki. Bæjarins besta verö Vörumarkaöurinn hf. Sími 86112 Sendum um land allt. mmmmmmmmm^^mm^^mmmmmm Kynntu þér Vörumarkaosverð á garðhúsgögnum Garöstólar kr. 621 — 213 — 175 — 475. Sófi, stólar m. sessum og afl. borö kr. 2.857.- Hringlaga borö og 4 stólar meö sessum kr. 3.206.-

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.