Morgunblaðið - 24.06.1982, Side 40

Morgunblaðið - 24.06.1982, Side 40
40 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 24. JÚNÍ 1982 icjö^nu- ípá HRÚTURINN 21. MARZ—19.APR1L Vandamál á heimilinu tefja fyrir þér. Á þetta einkum vid fyrri- part dags. Allt gengur vel í vinn- unni. Nú er rétti tíminn ad biðja aðra um greida. NAUTIÐ 20. APRlL-20. MAl í.óður dagur og þú ert bjartaýnn á framtíðina. Heppnin er líka með þér og maka þínum eða foreldrum. Þú hefur mikla sköp- unargáfu 8em þú skalt endilega notfæra þér. h TVÍBURARNIR 21. MAl—20. JÚNl (ierðu allt sem þú getur til að binda endi á deilur innan fjöl- skyldunnar. Reyndu að stilla eyðslunni í hóf svo þú eigir meira til afnota fyrir heimilið síðar. sœ KRABBINN 21. JÚNl—22. JÍILl Þér gengur illa að lynda við ein- hvern í fjölskyldunni og það hefur niðurdrepandi áhrif á þig. Mundu að þú getur ekki hjálpað neinum sem ekki vill láta hjálpa »:*JlLJÓNIÐ 23. JÚLl—22. ÁGÚST fflj Góður dagur. Allt gengur í hag inn í vinnunni. Samband þitt og maka þíns batnar til muna. Lík ur eru á óvæntu ferðalagi. Þú átt í engum erfiðleikum með að fá lánaða peninga ef þú þarft. MÆRIN 23. ÁGÚST-22. SEPT Mikilvægur dagur hvað varðar frama þinn. Sérstaklega eiga þeir sem stunda viðskipti góðan dag. Samstarfsfólk er sérstak- lega hjálplegt. VOGIN 23.SEPT.-22.OKT. Iní verður að bíða með allt sem krefst líklegs erfiðis vegna heilsunnar. Þú græðir ef þú stundar einhver viðskipti í dag. Ini lítur framtíðina bjartari aug DREKINN 23. OKT.-21. NÓV. Góður dagur þó að líkamlega heilsan sé kannski ekki upp á sitt besta. Yfirmenn og fólk í áhrifastöðum er mjög hjálplegt og sýnir mikinn áhuga á því sem þú ert að gera. ikf4 BOGMAÐURINN "SJi 22. NÓV.-21. DES. Ilaltu áfram á sömu braut og undanfarið. Það er mikilvægt að þú látir ekki smá vandamál koma þér úr jafnvægi. Því færri sem eru í kringum þig, því betra. m STEINGEITIN 22. DES.-19. JAN. (ióður dagur og allt er á réttri leið hjá þér. I*ú átt líklega í erf- iðleikum með að fá maka þinn eða foreldra til að samþykkja breytingu sem þig langar að gera heima. VATNSBERINN 20. JAN.-18. FEB. Heppnin er með þér þessa dag- ana svo reyndu að nota tækifær- ið. Þrýstu á og þú munt fá það sem þú vilt Ef þig vantar fjár- magn ætti það að vera auðfeng- ið í banka. 3 FISKARNIR 19. FEB.-20. MARZ Vertu ekki of bjartsýnn, þ.e. taktu ekki of mikla áhættu í fjármálum. Fyrir þá sem eru ástfangnir ganga ástarmálin eins og í sögu. Vertu rausnarleg- ur við þann sem þú elskar. mrrmrmrmmmrrrmmTmmm CONAN VILLIMAÐUR /\F£AM, Ki-AR. VIP EKUAA EINMITT A peiM SLÓPOM SEÍA Éð. OQ Sonm qeóFoM m5>imv zak fhaam/JJ LJÓSKA FERDINAND SMÁFÓLK Heyrðu Magga! Kennarinn var að lesa þig upp. RI6HT NOLd, l'P 5AY 5HE'5 THE MAYOR 0F “Z0NK CITY".' 5cMJcæ l I*essa stundina mundi ég telja hana til íbúa í Bauganesi. BRIDGE Nú á að breyta til. Næstu vik- una eða svo verður spurt „Hvað segirðu?“ en ekki „Hvernig spil- arðu?“ eins og venjulega. Því er stundum haldið fram að u.þ.b. 80% af árangri í bridge ráðist af sögnum. Þetta eru raiklar ýkjur þegar um byrjend- ur og óreyndari spilara er að ræða, en meðal sjóaðra keppn- isspilara er þetta hlutfall nokk- uð nærri lagi. Það er skýring á þessu. Þeg- ar menn eru að stíga fyrstu sporin í bridgeíþróttinni er það úrspilið sem öllu máli skiptir; sagnir og vörn eru ekki annað en óhjákvæmilegar hliðarverkanir sem menn verða að láta yfir sig ganga á meðan beðið er eftir sælu- stundinni að verða sagnhafi í 3 gröndum. Hjá byrjandanum felst vörnin ekki í öðru en því að taka á ásana sína og fylgja lit; og sagnir — já, það er nú bara spurning um að telja punkta! Þetta er eðlilegt, úrspilið er undirstaðan í spilinu. Og það er tiltölulega einfalt, þannig að menn eru oft fljótir að ná talsverðum árangri. Það er svo ekki fyrr en spilarar hafa náð sæmilegum tökum á úrspilinu að þeir geta snúið sér að vörn- inni. Og þegar spilarar eru einu sinni vaknaðir til vitund- ar um varnarspilið fer þeim oftast fljótt fram. En yfirleitt fer mönnum hægt fram í sögnum. Það eru margar ástæður sem valda því. Ein er sú að sagnir byggj- ast á samvinnu, og samvinna krefst samhæfingar — sem er erfið. Það sama gildir auðvitað um vörnina, enda er það fyrst og fremst þess vegna sem hún er vandasöm. En vörnin er þó meira klippt og skorin; í sögn- um eru fleiri lausir endar, fleiri vafaatriði og mikið um hrein matsatriði. Stundum verður ekki annað sagt um sögn en að hún sé góð eða vond, freistandi eða heppileg o.s.frv. — það er sjaldan hægt að dæma hana rétta eða ranga. Sagnir þarfnast m.ö.o. spilamats, sem er nokkuð sem spilarar öðlast ekki á skömm- um tíma. En það má stytta sér leið með því að glíma við sagn- vandamál. Á morgun verða birtar 5 sagnþrautir, sem síð- an verður svarað hverri fyrir sig á 5 dögum. Þessar þrautir eru teknar úr erlendum bridgetímaritum, en lesendum til skemmtunar hef ég látið tvo íslenska spilara svara þeim. Þeir eru Sigtryggur Sig- urðsson og Þorlákur Jónsson. SKÁK Umsjón: Margeir Pétursson í ungversku deildarkeppn- inni í vetur kom þessi staða upp í skák stórmeistarans Sax, sem hafði hvítt og átti leik, gegn Karolyi. Svartur hafði fórnað manni og bjóst nú við að endurheimta hann með góðri stöðu. En Sax fann sterkan mótleik: Hxg7+ - Kh8, 22. Hh7+! — (Leiðir til óverjandi máts í þremur leikjum) — Kxh7, 23. Rhg5+ — og svartur gafst upp.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.