Morgunblaðið - 24.06.1982, Side 46
46
Þorvaldur
sigraði
í Bonn
WíRVALDUR t>órs8on frjáls-
íþróttamaður úr ÍR sigraði í
110 motra grindahlaupi á frjáls-
íþróttamóti i Bonn fyrir
skömmu, hljóp á 14,4 sekúnd-
um í örlítilli mótgolu. Gísli Sig-
urðsson IJMSS hljóp á 15,0
sekúndum i hlaupinu, sem er
hans bezti árangur. Gisli keppir
i tugþraut i V-I>ýzkalandi um
næstu helgi, en l*orvaldur, sem
hlaupið hefur mjög vel i vor, er
væntanlegur til landsins á
fostudag, og verður hann með-
al keppenda á afmælismóti ÍR í
Laugardalnum á laugardag.
Guðmundur
stökk 2,03
GUDMIJNDIJR Rúnar Guð-
mundsson hástökkvari úr KH
stóð sig með ágætum á frjáls-
íþróttamóti í Kskilstuna í Sví-
þjóð í fyrri viku, stökk 2,03
metra og sigraði. Guðmundur
sýndi mikið öryggi og fór allar
hæðirnar í fyrstu tilraun. Lét
hann hækka í 2,07, en felldi þá
hæð naumlega. Keppendur
voru 15 að tölu, og frammi-
staða Guðmundar þvi góð.
Fyrir skömmu sigraði Guð-
mundur á móti í Norrköping,
stökk þá 2,01 en varð fyrir því
óláni að krækja hæl í rána er
hann var kominn yfir 2,05
metra. Kn Guðmundur er á
uppleið, og til alls liklegur, og
keppnistímabilið rétt að byrja
hjá honum.
Heimsmet
í sjöþraut
RKNATA Neubert Austur-I’ýzka-
landi bætti eigið heimsmet í
sjöþraut kvenna á frjálsíþrótta-
móti í llalle í heimalandi sínu
um helgina, hlaut 6.772 stig og
bætti metið um 56 stig, en það
var 6.716 stig, sett í Kænugarði
fyrir réttu ári.
Arangur Neubert í einstökum
greinum var sá, að hún hljóp 100
m grind á 13,59 sekúndum, varp-
aði kúlu 15,10 metra, stökk 1,83 í
hástökki, hljóp 200 metra á 23,14
sekúndum, stökk 6,84 í lang-
stökki, kastaði spjóti 42,54 metra
og hljóp loks 800 metra á 2:06,2
mínútum.
Margrét bætir
sig í
kringlukastinu
MARGRÍ7T Óskarsdóttir
frjálsíþróttakona úr ÍR bætti
ennþá einu sinni árangur sinn í
kringlukasti, kastaði 42,30
metra á innanfélagsmóti ÍR-
inga í Laugardalnum. Margrét
kastaði fyrr í vor 41,92 metra.
I kringlukasti karla sigraði
Oskar Jakobsson örugglega,
kastaði lengst 59,54 metra, var
óheppinn að því leyti að rúm-
lega 60 metra kast reyndist
ógilt.
Helgi l>ór Helgason USAH
sigraði í kúluvarpi, varpaði
14,51 metra. Olafur Unn-
steinsson náð sínu bezta í tæp-
an áratug, varpaði 12,64 metra.
Sigurður Kinarsson Ármanni
varpaði 12,39 metra.
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 24. JÚNÍ 1982
Kevin Keagan:
„Brasilíumenn einir
geta sigraó okkur"
„Áður en keppnin hófst var talið
að við myndum hafa staðið okkur
vonum framar ef við kæmumst í
undanúrslitin. Kn eftir að hafa fylgst
með keppninni er það mín einlæga
skoðun, að aðeins eitt lið í keppninni
er hugsanlega betra en okkar lið, lið
Brasilíu og því gæti ég vel trúað því
að til úrslita myndum við leika gegn
þeim.“ I>etta sagði enginn annar en
Kevin Keegan, enski landsliðsmað-
urinn kunni, i samtali við AP í gær.
Keegan hefur átt við meiðsli að
stríða að undanförnu og ekki getað
leikið með enska liðinu frekar en
annar lykilmaður þess, Trevor
Brooking. Það hefur engu breytt,
menn hafa komið í þeirra stað og
enska liðið hefur sigrað Frakkland
og Tékkóslóvakíu mjög auðveldlega.
„Það er í rauninni ógnvekjandi
hversu léttilega við höfum sigrað í
tveimur fyrstu leikjunum, vörnin
hefur verið eins og múr, miðvall-
arlínan hefur verið traust og full
af skemmtilegum hugmyndum og
„Munum ekki leika
upp á jafntefli“
„VID MUNUM ekki leika upp á
jafntefli þó svo að það nægi okkur
til að komast í milliriðílinn,** sagði
Michel Hidalgo, þjálfari Frakk-
lands, í samtali við AP í gær, en í
dag leika Frakkar gegn Tékkum í
4. riðli og úrslit í þeim leik skera
úr um hvort liðið fylgir Knglandi í
milliriðil. Frökkum nægir jafntefli,
en Tékkar verða að sigra. Jafntefli
kann þó ekki aö nægja Frökkum,
það fer allt eftir því hvernig leikur
Knglands og Kuwait fer.
Jozef Venglos, þjálfari Tékka,
var ekki eins opinskár um hvern-
ig Tékkar myndu leika, „ég veit
hreinlega ekki einu sinni enn þá
hvemig ég mun stilla liði mínu
upp, en það er meðal annars
vegna þess að þrír af lykil-
mönnum mínum eiga við meiðsl
að stríða, þeir Seman, Berger og
Stromsik," sagði Venglos. Seman
reif liðband í fingri gegn Eng-
lendingum og Berger meiddist
þá í hné. Einhver padda beit
hins vegar Stromsik í fótinn með
þeim afleiðingum að hann blés
upp eins og blaðra.
Ólafur Lárusson
til Stjörnunnar
Garðabæjarliðið Stjarnan hel'ur
enn fengið góðan liðsauka fyrir
komandi handknattleiksvertíð. Olaf-
ur Lárusson, skytta úr KR, hefur
gengið frá félagskiptum sínum og
mun leika með liðinu næsta vetur.
Olafur er fjórði sterki handknatt-
leiksmaðurinn sem gengið hefur til
liðs við Stjörnuna að undanförnu, en
liðið leikur í 1. deild í fyrsta skipti
næsta vetur. Hinir þrir voru Brynjar
Kvaran úr KR, Heimir Karlsson úr
Víkingi og Guðmundur Þórðarson úr
ÍR.
Heimavallarmál Stjörnunar
standa þannig þessa stundina, að
heimaleikir liðsins munu sennilega
fara fram í íþróttahúsinu í Hafnar-
firði, en það mun skýrast nánar í
vikunni. — gg-
Karl Ómar vann tvöfalt
Golfklúbbur Reykjavíkur gekkst
fyrir opnu unglingamóti í golfi fyrir
skömmu og urðu úrslit í mótinu
þessi.
Vinningshafar án forgjafar:
1. Karl Ómar Jónsson GR 78 högg
2. ívar Hauksson GR 81 högg
3. Sigurbjörn Sigfússon GK 84 högg
Vinningshafar með forgjöf:
1. Karl Ómar Jónsson GR 72 högg
2. Jóhannes Sveinsson GG 72 högg
(Golfklúbbur Grindavíkur)
3. Guðmundur Bragason GG 73 högg
(Golfklúbbur Grindavíkur)
Keppendur voru 17 ára og yngri.
Hvar skyldi nú hvíta kúlan lenda? Golfmenn um allt land eru komnir á fulla
ferð. Og mörg stórmót eru framundan. Ljósm. Sigurg. Jónasson.
• Kevin Keegan og Trevor Francis syngja (breima?) lagið „This tima we’ll get it
right” skömmu lyrir brotttörina til Spénar. Lag þetta á samnefndri plötu enska
landsliösins náöi umtalsveröum vinsasldum í Englandi, en athygli vakti þó aö
baráttusöngur skoska landsliösins, „We have got a dream" náöi þó enn meiri
hylli. Nú er Keegan meiddur, en Francia hefur tekið stööu hans og leikið svo vel
að óvíst er hvort að Keegan nær aftur stööu sinni.
framlínumennirnir hafa skorað úr
færum sínum. Meira er varla hægt
að fara fram á,“ sagði Keegan.
Keegan verður varla með gegn
Kuwait, en hann sagði: „Ég vil
ólmur fara að taka þátt í vel-
gengni enska liðsins, þessir bak-
verkir eru ekkert miðað við þau
vonbrigði að sitja á bekknum með
þá hugsun eina í kollinum, að ef
allt hefði gengið vel hefði ég verið
einn hinna ellefu ensku leik-
manna. Ég geri mér vonir um að
vera orðinn góður í bakinu tíman-
lega fyrir milliriðlakeppnina."
Spurningin er þá bara sú hvort að
það verður pláss fyrir kempuna,
en fyrir fáum árum hefði slík
hugsun þótt hlægileg, auðvitað
hefði verið pláss fyrir Keegan. En
nú eru breyttir tímar.
Gerets fékk heilahristing
BKLGÍSKI varnarmaðurinn sterki,
Kric Gerets, hlaut slæman heila-
hristing er hann rakst harkalega á
markvörð sinn, Jean Marie Pfaff, i
leiknum gegn Ungverjum í fyrra-
kvöld. Hann þarf nú að hvíla sig í
minnst 5 sólarhringa í myrkvuðu
herbergi og ólíklegt er að hann
geti leikið fyrsta leik Belgíu í milli-
riðli. Gerets rotaðist og komst ekki
til meðvitundar fyrr en eftir nokkr-
ar mínútur. Þegar hann vaknaði
var hann greinilega ruglaður, taldi
Belga hafa 2—1-forystu, en þeir
voru í raun 0—1 undir.
Hann hélt áfram um hríð, en
ljóst var að það þurfti að skipta
honum út af. Það var þó ekki
vandalaust, því kappinn lét sem
hann vissi ekki af því að það
væri verið að kalla í sig, hvort
sem það var óviljandi eða ekki!
Starfsmenn belgíska liðsins
náðu ekki í skottið á Gerets fyrr
en eftir rúmar 15 mínútur og var
honum þá ekið umsvifalaust á
sjúkrahús.
Trimmdagur ÍSÍ
er á sunnudaginn
Skokkbrautir hafa verið lagðar,
gönguleiðir merktar og hjólreiða-
vegir ákveðnir. Samið hefur verið
við sveitastjórnir og bæjarfélög
um afnot af sundlaugum, íþrótta-
húsum og íþróttavöllum. Þá hafa
einstök héraðssambönd komið á
keppni milli félaga á sínum sam-
bandssvæðum og heitið glæsi-
legum verðlaunum fyrir mesta
þátttöku.
Virðist mega dæma af þeim
fréttum, er borist hafa, að á
TRIMMDEGI ÍSÍ sunnudaginn 27.
júní, verði almenn þátttaka eldri
sem yngri.
Stjórnir héraössambanda, iþrótta-
og ungmennafélaga víðsvegar um
landið vinna nú ötullega að skipulagi
Trimmdags ÍSÍ, sunnudaginn 27.
júní nk.
Sveinn efstur í,
stigakeppni GSÍ
Helgina 26. og 27. júní nk. verður
Johnnie Walker-golfkeppnin haldin
og fer hún fram á Nesvelli.
Keppnin er annað stigamót GSÍ á
þessu ári og er eingöngu fyrir meist-
araflokk karla þ.e. forgjöf 5 og
lægra (landsforgjöf).
Leiknar verða 72 holur án forgjaf-
ar, 36 holur hvorn dag.
Fyrstu verðlaun verða ferð á Opna
breska meistaramótið sem fram fer
á Royal Troon í Skotlandi um miðj-
an júli.
Það er því mikið í húfi fyrir meist-
araflokksmenn að taka þátt í keppn-
inni og ekki sist til að næla sér í stig
til landsliðs GSÍ.
Heildverslunin Vangur hf. gefur
öll verðlaun til keppninnar og að
vanda verður fjöldi aukaverðlauna.
Staðan í stigakeppni GSÍ er nú
þannig:
stig
Sveinn Sigurbergsson, GK 28
Sigurður Hafsteinsson, GR 21
Sigurður Pétursson, GR 16
Sigurður Sigurðsson, GS 10,5
Hannes Eyvindsson, GR 10,5
Óskar Sæmundsson, GR6
Páll Ketilsson, GS 6
Einar L. Þórisson, GR 3
Úlfar Jónsson, GK 1,5
Gylfi Kristinsson, GS 1,5
Skráning í keppnina er hafin og
verður skráð til kl. 19.00 föstudag-
inn 25. júní. Rástímar verða til-
búnir kl. 20.00.