Morgunblaðið - 25.06.1982, Blaðsíða 3

Morgunblaðið - 25.06.1982, Blaðsíða 3
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 25. JÚNÍ1982 35 ■ ■Engar rannsóknir hafa ^verið gerðar hér á landi enn sem komiö er, en ef tölur erlendis frá eru heimfæröar yfir á okkur íslendinga má búast viö aö 200—500 fóstur veröi fyrir marktækum áhrifum alkóhóls árlega. Þar af má búast viö aö 4—10 börn séu meö sjúkdómseinkennin FAS aö fullu leyti. iá til veriö takmarkaðar viö þær kon- ur sem neyta mikils áfengis, en mikil áfengisdrykkja hefur veriö skilgreind sem annaðhvort tveir drykkir eöa meira á dag, eöa 5 drykkir eða meira stöku sinnum og a.m.k. 45 drykkir á mánuöi. (Einn drykkur er 15 ml af hreinu áfengi.) Erfitt hefur reynst aö fá glöggar heimildir um tíöni mikillar drykkju á meögöngutímanum. Þetta stafar fyrst og fremst af því aö styðjast verður viö sögu veröandi mæöra, en þær hafa tilhneigingu til aö leyna drykkjusiöum sínum enda þótt þeim sé ekki beinlínis Ijós hættan sem af drykkju þeirra staf- ar. Rannsóknir í nágrannalöndun- um hafa leitt í Ijós aö tíöni FAS er t.d. ein fæöing af hverjum 600 í Svíþjóö, í Bandaríkjunum ein af hverjum 750 fæöingum og í Frakklandi ein af hverjum 1000. Enn hafa engar rannsóknir veriö geröar á tíöni FAS hér á landi en ef viö heimfærum þessar tölur yfir á okkur íslendinga má búast viö aö 200—500 fóstur veröi fyrir mark- tækum áhrifum alkóhóls hér á landi árlega. Viö getum einnig bú- ist viö því að 4—10 börn fæöist hér á landi árlega meö FAS. Þessar staðreyndir eru ef til vill þeim mun alvarlegri þegar tekiö er tillit til aukinnar drykkju kvenna á síöastliönum árum. Fyrir u.þ.b. 10 árum var taliö að drykkjusýki væri tíu sinnum algengari meöal karl- manna en kvenna. Nýjar tölur frá hinum ýmsu stofnunum á Noröur- löndunum sýna þó, aö konum sem neyta áfengis í óhófi hefur fjölgaö, þannig aö í dag viröist hlutfalliö milli kvenna og karla vera 4 á móti 10, og gert er ráö fyrir aö þetta hlutfall aukist enn frekar. Staöa kvenfólks hefur, eins og öllum er kunnugt, breyst töluvert á undan- förnum árum, talaö hefur veriö um tvöfalt vinnuálag, konur eru komn- ar í auknum mæli út í atvinnulífiö og hugsanlegt er aö þær bregðist viö auknu álagi meö aukinni drykkju. En hver er aöalástæöan fyrir þessum eitrunaráhrifum sem áfengisnotkun hefur í för meö sér á meðgöngutímanum? Áfengiö sem móöirin neytir fer auöveldlega í gegnum fylgju móö- urinnar, fóstriö getur ekki unnið úr áfenginu á sama hátt og hún, þar sem lifrin er ekki fullþroskuö og þær frumur, sem eru aö myndast, jafnt heilafrumur sem aörar, deyja. Þar sem áfengiö fer auðveldlega í gegnum fylgjuna yfir i fóstriö, geta áfengisáhrif fóstursins oröiö mun meiri en móðurinnar. Meöal yngri kynslóöarinnar viröist áfengis- neyslan aukast ef marka má tölur úr nýlegri sænskri könnun, en þar kemur fram aö um 7% stúlkna og um 12% drengja eru miklir áfeng- isneytendur, þ.e. neyta meira en 10 iítra af 100% áfengi árlega, og er enginn sjáanlegur munur á þétt- býli og dreifbýli í þessu sambandi. Ýmsar greinar hafa veriö birtar um þessar fósturskemmdir af völdum alkóhóls í læknatímaritum á undanförnum árum. Benda sumar rannsóknirnar til þess aö ýmsir námsöröugleikar og hegö- unarvandkvæði, sem börn eiga viö aö stríða, geti átt rætur aö rekja til áfengisneyslu móöur á meðgöngu- tímanum. Sama er aö segja um talörðugleika sumra barna. Benda rannsóknamenn á aö skaöi á fóstri vegna notkunar áfengis á meö- göngutíma sé nú á tímum talinn stærsti heilsuspillandi þáttur af völdum efna, sem vitaö er um og hægt er aö fyrirbyggja. Stýrisvélar Wagner-stýrisvólar og sjálfstýringar fyrir smábáta. Hagstætt verö. Atlashf I ÁRMÚLA 7, SÍMI 26755 AUGLYSINÍÍASIMINN ER: 22480 JMtrttmbhtik Lokað vegna sumarleyfa Skrifstofa Þórshafnar hf Brautarholti 20 veröur lokuö vegna sumarleyfa frá 1. júlí til 15. ágúst Frá Laugarvatni Komiö aö Laugarvatni Dveljiö á Laugarvatni Bjóöum meðal annars: Hótel Edda Menntaskólanum: 1 og 2 manna her- bergi, allar almennar veitingar, svefnpokapláss. Góö aöstaöa fyrir ráöstefnur o.fl. sími 99-6118. Hótel Edda Húsmæöraskólanum: Öll herbergi meö baði, allar veitingar í góöum húsakynnum. Aöstaöa fyrir fundi og ráðstefnur. sími 99-6154. Kaupfélag Árnesinga: Allar algengar vörur á hag- stæöu verði í endurbættum húsakynnum. Bensín, olíur o.fl. Tjaldmiöstööin: Tjaldstæöi, steypiböö, þvottaaö- staöa, verslun meö fjölbreyttar feröamannavörur. Sími 99-6155. Gufubaðiö: Hiö þekkta hvera-gufubaö viö vatnið. Sundlaugin: Sundlaugin er opin hluta úr degi og eftir pöntunum. Bátaleigan: Bátar eru til leigu. Gróörarstööin: Hefur á boöstólum fjölbreytt vöruúr- val af grænmeti. Sérleyfishafi Ólafur Ketilsson hf.: Daglega ferðir til og frá Reykjavík — Laugarvatn, meö afgreiöslu hjá BSI. Verið velkomin að Laugarvatni. Sumar í sveit Hvað segir þú um það? ViÖ nefnum aöeins aðalatriðin: 1. Sterkur undirvagn (fjaörir, demparar) Stór dekk, 13“ felga. 2. Vel búin, 2 svefntjöld, yfirbreiösla, for- tjald, eldhús meö eldavél og gasvél. 3. Gott verö, meö öllum ofantöldum útbún- aöi Kr. 36.000 Gísli Jónsson og co. hf. Sundaborg 41, sími 86644

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.