Morgunblaðið - 25.06.1982, Blaðsíða 11
HVflÐ ER AÐ SEBAST UM HELfilNfl?
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 25. JÚNÍ 1982 4 3
Á midvikudag söng kórinn m.a. fyrír aldraða á Hrafnistu.
Norskur stúlknakór
meö tvenna tónleika
hér á landi
Norskur stúlknakór frá bænum Gloppen
í Noregi er staddur hér á landi. Kórinn mun
halda tvenna tónleika hér á landi. Fyrri
tónleikarnir eru þann 26. júní næstkomandi
kl. 14.00 í Bustaðakirkju. Þeir tónleikar eru
á vegum kórsins sjálfs en með kórnum í
Bústaöakirkju leikur Reipó-barnaskóla-
hljómsveit. Þann 27. júní heldur kórinn síð-
ari tónleika sína kl. 16.00 í kirkjunni á Sel-
fossi í samvinnu viö Samkór Selfoss.
Vélhjólakeppni
Sunnudaginn 27. júní kl. 13 veröur hald-
in vélhjólakeppni á svæöi nokkru sunnan
viö Grindavíkurveginn, rétt viö Reykjanes-
brautina. Veröur keppt í svonefndu moto-
cross og veröa nokkrir flokkar sem keppa.
Myndin er frá vélhjólakeppni.
Yfirlitssýningu
Kristins Péturssonar
í Listasafni alþýðu
lýkur um helgina
Sunnudaginn 27. júní lýkur yfirlitssýn-
ingu á verkum Kristins Péturssonar í List-
asafni alþýðu, Grensásvegi 16. Sýningin
ber yfirskriftina Vötn á himni. í kaffistofu
Listasafns alþýöu eru sýndar litskyggnur af
listaverkum Kristins og einnig er upplestur
meö vangaveltum yfir hans eigin list. Sýn-
ingin er opin daglega frá kl. 14.00—22.00.
Sveinbjörn opnar
málverkasýningu
í Eden
Sveinbjörn Þór Einarsson opnar mál-
verkasýningu í Eden, Hverageröi laugar-
daginn 26. júní nk. Á þessari sýningu sýnir
Sveinbjörn 50 smámyndir, bæöi olíuverk
og blandaöa tækni. Sýningin er opin dag-
lega frá kl. 14.00—22.00. Sýningunni lýkur
4. júlí.
Hjólreiðarall
Junior Chamber
JC-Hafnarfjöröur stendur fyrir hjólreiöa-
ralli fyrir bæjarbúa Hafnarfjaröar laugar-
daginn 26. júní. Þetta hjólreiðarall veröur
haldiö í samvinnu við Æskulýösráð Hafnar-
fjaröar og veröur Álftaneshringurinn
hjólaöur. Hjólreiöaralliö hefst klukkan tvö
og byrjar Engidalsmegin á Álftanesinu.
Leikári Þjóöleikhúss-
ins lýkur um helgina
Nú um þessa helgi lýkur leikári Þjóö-
leikhússins meö tveimur sýningum á söng-
leiknum Meyjaskemmunni eftir Schubert
og Berté. Eru síöustu sýningar verksins
föstudaginn 25. júní og laugardaginn 26.
júní.
Mikill fjöldi söngvara og leikara kemur
fram í sýningunni. Siguröur Björnsson fer
meö hlutverk Schuberts, Júlíus Vífill Ingv-
arsson fer meö hlutverk Schober vinar
hans og Katrín Siguröardóttir fer meö hlut-
verk Hönnu. Þá koma fram í sýningunni:
Kristín Sædal Sigtryggsdóttir, Elísabet F.
Eiríksdóttir, Guðmundur Jónsson, Þuríöur
Pálsdóttir, Kristinn Hallsson, Halldór Vil-
helmsson, Bergþór Pálsson og Anna Júlí-
ana Sveinsdóttir. Með stærstu leikhlut-
verkin fara: Jón S. Gunnarsson, Kristján
Viggósson, Árni Tryggvason, Erlingur
Gíslason og Herdís Þorvaldsdóttir. — Leik-
stjóri er Wilfried Steiner og hljómsveitar-
stjóri er Páll P. Pálsson.
Tekiö skal fram aö Meyjaskemman verö-
ur ekki á dagskrá Þjóöleikhússins í haust
og er þetta því síöasta tækifæriö til þess aö
sjá sýninguna.
60 ára afmæli
Flateyrarhrepps
minnst um helgina
60 ára afmælis Flateyrarhrepps veröur
minnst nú um helgina. Afmælishátíöin hefst
kl. 20.30 meö því aö opnuð veröur mál-
verkasýning frá Listasafni Alþýöusam-
bands islands í samkomusal Hjálms. Kl.
21.00 á sama staö munu Sigríöur Ella
Magnúsdóttir og Jónas Ingimundarson
halda tónleika.
Á laugardag hefst hátíöin meö víöa-
vangshlaupi kl. 13.30 og kl. 16.00 hefst
fjölskylduskemmtun meö blönduöum
skemmtiatriðum á útivistarsvæöi Barna-
skólans. Kl. 20.00—02.00 veröur utidans-
leikur og leikur hljómsveitin Atlantis fyrir
dansi.
Á sunnudag kl. 14.00 hefst dagskráin
meö hátíöarguösþjónustu í Flateyrarkirkju
og þjónar séra Lárus Þ. Guömundsson fyrir
altari. Kl. 16.00 hefst hátíöardagskrá með
ávarpi oddvita, síöan veröa flutt hátíöar-
Ijóö. Róbert Arnfinnsson syngur viö undir-
leik Skúla Halldórssonar. Því næst er upp-
lestur, þar sem saga Flateyrarhrepps verö-
ur rakin, og aö lokum söngur. Kynnir verö-
ur Emil R. Hjartarson.
Síðasta sýningarhelgin
í Listmunahúsinu
Nú um helgina er síöasta sýningarhelgin
í Listmunahúsinu Lækjargötu 2. Þar sýnir
leirlistafélagiö ýmiss konar verk. Sýningin
er opin laugardag og sunnudag frá kl.
14.00—18.00.
Ferðir Ferðafélags-
ins um helgina
Fariö veröur í tvær helgarferöir í kvöld
kl. 20.00, þ.e. Þórsmörk og að Hagavatni.
Þetta er eina helgarferöin aö Hagavatni á
sumrinu.
Dagsferöir eru þrjár á sunnudaginn.
Ferö á Njáluslóðir kl. 9 (dagsferö), og er
þaö eina feröin, sem farin er á sumrinu og
verður dr. Haraldur Matthíasson leiösögu-
maöur. Einnig er dagsferö á fjaliiö Baulu í
Borgarfiröi (934 m) á sunnudaginn kl. 9 og
kl. 13 veröur fariö í gönguferð austur á
Kambabrún.
Á sunnudaginn er Trimmdagur ÍSÍ og er
Feröafélagiö þátttakandi í trimminu meö
þeim.
Miövikudaginn 30. júní kl. 8.00 er fyrsta
miðvikudagsferöin í Þórsmörk á þessu
sumri. Um kvöldiö er ferö i Esjuhlíöar/-
steinaleit.
Kvikmyndin Jón
Oddur og Jón Bjarni
endursýnd um helgina
Nú um helgina eru fyrirhugaöar tvær
sýningar á kvikmyndinni Jón Oddur og Jón
Bjarni í Regnboganum. Fyrri sýningin er á
laugardag kl. 15.00 og síöari sýningin á
sunnudag kl. 17.00.
Kvartmíluklúbbur
inn með keppni
við Straumsvík
Laugardaginn 26. júní heldur Kvartmílu-
klúbburinn fyrstu kvartmílukeppni sumars-
ins sem gefur stig til íslandsmeistaratitils.
Veröur keppnin haldin á kvartmiiubrautinni
viö Straumsvík og hefst stundvíslega
klukkan tvö eftir hádegiö. Keppt veröur í
öllum flokkum.
Ferðir Útivistar
um helgina
í kvöld, föstudagskvöldiö 23. júní, eru
tvær helgarferðir á áætlun feröafélagsins
Útisvistar. Fariö veröur í Þórsmörk og gist
í nýja Útivistarskálanum i Básum. Farnar
verða gönguferðir um Mörkina og á laug-
ardagskvöldiö veröur kvöldvaka. Á heim-
leiö verður Steinsholtslón skoöaö og ekiö
um Fljótshlíð. Hin helgarferöin er á svæðiö
suðvestur af Heklu. Veröur gist í gróðurvin-
inni Skarfanesi sem er austan Þjórsár.
Veröur farið víöa um lítt kunnar slóöir, m.a.
gengið á Bjólfell. Dagsferðir Útisvistar á
sunnudaginn veröar þrjár. Kl. 8.00 veröur
dagsferö í Þórsmörk. Stansaö veröur um 4
stundir í Mörkinni. Kl. 10.30 er plöntuskoö-
unarferð í Selvog og Herdísarvík undir leiö-
sögn Harðar Kristinssonar grasafræöings.
Kl. 13.00 er gönguferö í Innstadal sem er
einn af Hengladölum. Brottför í feröirnar er
frá BSÍ, vestanverðu. í helgarferöir þarf aö
tilkynna þátttöku fyrirfram. Kl. 8.00 í fyrra-
máliö er ferö á Öræfajökul.
Samkór Trésmíöa-
félagsins meö tónleika
í Gamla Bíói
Samkór Trésmiöafélags Reykjavíkur
heldur tónleika i Gamla Bíói laugardaginn
26. júní kl. 14.00.
Á efnisskrá eru islensk lög og lög frá
Norðurlöndunum. Gestir á tónleikunum
veröa Álafosskórinn úr Mosiellssveit. Ein-
söng syngur Svanhildur Sveinbjörnsdóttir.
Undirleikari á tónleikunum veröur Lára
Rafnsdóttir.
Kórfélagar eru 55. Formaöur kórsins er
Örn Erlendsson og söngstjóri er Guöjón
Böövar Jónsson.