Morgunblaðið - 25.06.1982, Page 9

Morgunblaðið - 25.06.1982, Page 9
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 25. JÚNÍ 1982 41 Lexía úr Miðfirði efnileg til útgáfu Hljómsveitin Lexía, sem starfar sem danshljómsveit í Miðfirði í Vestur-Húnavatnssýslu, hefur sent frá sér samnefnda hljómplötu með lögum eftir einn af hljómsveitar- mönnum Lexíu, Marinó Björns- son, en flestir textanna eru eftir Arnór Benónýsson. Lexía er létt leikandi hljómsveit og býður af sér góóan þokka. Það er skemmtilegt að danshljómsveit utan af landi skuli drífa í þvi að gefa út slíka hljómplötu, því margt er gott um Hljóm- plotur Árni Johnsen hana að segja, en það verður hins vegar ekki sagt um íslenzka hljómplötuútgáfu í dag, að allt sé hey í harðindum og sumt hefði mátt missa sig af plötunni. Það sem mér finnst mesti ókostur plöt- unnar eru dapurlegir textar sem mér finnast vart eiga heima með ágætri danshljómsveit, en á hinn bóginn eru góðir sprettir á plöt- unni og betur var af stað farið en heima setið. Hljómsveitin Lexía er skipuð þeim Axel Sigurgeirssyni trommara, Björgvin Guð- mundssyni gítarleikara, Guð- mundi Þór Ásmundssyni hljómborðsleikara og söngvara, Marinó Björnssyni bassa- og gít- arleikara og Ragnari Jörunds- syni söngvara, sem jafnframt sér um áslátt. Á plötunni eru tólf lög eftir Marinó við texta fyrrgreinds Arnórs, Ragnars Inga Aðalsteinssonr og Lexíu. Útgefandi er Tónaútgáfan á Ak- ureyri, en hljóðritun fór fram í Hljóðrita. Verðbólguvögguvísa er gott lag, góður söngur og gott undir- spil með nettum bakröddum. Textinn fjallar um nýbygginga- líf og verðbólguhraða og er hnyttin ádeila á það nútíma líf sem íslendingar keppast við að gíma við þótt líklegast sé það að mestu ein allsherjar öfugmæla- visa. Síðasta halið á að vera sjóara- lag, en það vantar allt brim í það og saltbragð og fyrir utan það að söngurinn er langt í fjarska er textinn tiltölulega slappur. Frostrósir er gott lag með jafnvægi í söng og spili, ágætis kvöldstemmning á þungu nótun- um, en þær verða víst líka að fá að njóta sín. Seg það fuglunum vinur er fallegt lag með sérstæð- um texta, einlægum og hlýjum. Þá kemur Ríma Ragnars Inga Aðalsteinssonar, sem er gullgóð- ur skáldskapur eins og hans var von og vísa, hnyttinn og vel smíðaður bragur sem Lexía flyt- ur hressilega. Takið eftir mér, Gulldansinn og Hver er sinn gæfusmiður flokkast undir vandamálatexta sem ég gat uin áður og hef ekki smekk fyrir, enda lítið fyrir að velta mér upp úr vandamálum. Ágústína, lag Marinós og sam- eiginlegur texti Lexíu er hins vegar dúndur gott innlegg á plötuna og það ásamt Verð- bólguvögguvísu er háreistasta efnið á plötunni auk Rímunnar. Ágústína yrði vinsældalegt lag ef það fengi tækifæri í kerfi út- varpsins, gott spil, söngur og nikkan rúllar undir. Ekki nefni ég önnur lög, en flest lögin eru ljómandi vel spiluð. Þetta er vonandi ekki síðasta lexían frá Lexíu, en skemmtilegt væri að heyra meira frá þeim á jákvæð- ari stigum mannlífsins þar sem meira býr af sól og sumaryl í stað þess að sækja efni textanna í froðusnakk mannlífsins, því það fer ekkert á milli mála að Lexía er skemmtileg hljómsveit. Trimmdagurinn á sunnudag: TBR verður Ennþá sigra Volvoamir í sínum flokkum! í sparaksturskeppni Orkusparnaðarnefndar og Bifreiðaíþróttaklúbbs Reykjavíkur, sem fram fór í júní, urðu Volvobílarnir öruggir sigurvegarar í sínum flokkum. Úrslit slíkra keppna undanfarin ár sýna að hér er ekki um neina tilviljun að ræða, Volvo er einfaldlega með sparneytnustu bílum. með sérstaka dagskrá í til- efni dagsins Flokkur Röd Kmá5l Eyösla Meöalhraöi 1301- 1600 m3 1. Volvo 343 71,18 7,02 41,87 2101- 3000 m3 1. Volvo 244 62,58 7,99 42,67 2. Volvo Turbo 59,82 8,36 38,59 Trimmdagur ÍSÍ er nk. sunnudag. í tilefni af deginum verður TBR með sérstaka dagskrá, sem nú skal greint frá. f Tennis- og badmintonfélagi Rvíkur eru nú u.þ.b. 2000 félagar, og stunda þeir flestir badminton, ekki sem keppnisíþrótt, heldur einungis sér til heilsubótar og ánægju. TBR er sennilega því stærsta trimmfélag- ið á landinu. TBR-húsið verður opið nk. sunnu- dag kl. 9—21 og er öllum velkomið að koma og spila badminton meðan húsrúm leyfir. Ef fólk á ekki bad- mintonspaða, er hægt að fá það að láni á staðnum, en fólki er bent á að haf meðferðis bol, stuttbuxur og innistrigaskó. Reynt verður að að- stoða þá sem ekki hafa leikið bad- minton áður og kynna þeim helstu grundvallaratriði íþróttarinnar. TBR-húsið er í útjaðri Laugar- dalsins. Þeir sem vilja njóta útiveru í dalnum og nágrenni hans er boðið í gönguferð, en einnig er hægt að hjóla eða skokka á svæðinu. Eftir 30—45 mínútna hreyfingu fer fólk svo í sturtu og jafnvel í gufu- bað, en slíkt er að sjálfsögðu fyrir hendi í TBR-húsinu. Við hvetjum sem flesta að taka þátt í trimminu á sunnudaginn kem- ur, og bjóðum alla velkomna í bad- mintonhúsið við Glæsibæ. F.h. T.B.R. Sigfús Ægir Árnason frkvstj. % Það er þess vegna ekkert undarlegt þótt Volvoeigendur sjáist sjaldan á bensínstöðvum - nema helst á þvottaplönunum! VELTIR HF Suðurlandsbraut 16 • Simi 35200 VOLVO

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.