Morgunblaðið - 25.06.1982, Side 22

Morgunblaðið - 25.06.1982, Side 22
54 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 25. JÚNÍ 1982 áster... \^4-o ... að fara fljúg- andi í fangið á honum. TM Reo U.S Pat Ott — all rxjhts reserved ®1982 Los Angeies Times Syndtcate Ertu búinn art bíða lengi? Með morgunkaffinu Rannsóknarlögreglumaður spyr um yður, herra minn. — A ég að sækja tannburstann og rakáhöld- in? Bhm.ifotið i f'hfirisey. oJúní 1982 8 M 1» M ¥ rjP L 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 11 12 13 14 15 16 17 18 19 20 21 22 23 24 25 26 27 28 29 30 Varið ykkur á ís- lensku almanökunum Tölusetning á vikum er nú- orðið talsvert notuð í viðskipt- um manna á meðal, og þá einn- ig í gagnavinnslu, til að ákvarða tímabil. Þar sem vika (sjö dagar) gengur ekki upp í dagafjölda í einu ári, þarf að gilda um það ótvíræð regla, hvenær fyrsta vika árs byrjar hverju sinni. Alþjóðlegur staðall (ISO 2015 — Numbering of weeks) kveð- ur á um þetta. Staðall þessi er ekki nógu vel þekktur hér á landi, og íslenskur staðall um þetta efni hefur ekki ennþá verið gefinn út — því miður. í alþjóðlega staðlinum eru tvö undirstöðuatriði: a) Vika hefst á mánudegi og endar á sunnudegi. b) Þegar nýjársdag ber ekki upp á mánudag, gildir sú regla um vikuna sem spannar ára- mótin, að hún telst til þess árs- ins, sem fjórir eða fleiri dagar hennar heyra til, eða með öðr- um einfaldari orðum: Fyrsta vika árs er sú vika, sem hefur fyrsta fimmtudag ársins. Á nýbyrjuðu ári (1982) er 4. janúar mánudagur. Fyrsta vika þessa árs hefst því 4. janúar, en 1,-3. janúar taldist til 53. viku ársins 1981. Á þessu atriði hafa flestir útgefendur almanaka hérlend- is flaskað nú í ár. Þeir hafa gert 1.—3. janúar að 1. viku ársins og byrjað síðan 2. viku 4. janúar. Fyrir bragðið eru nú flest íslensk almanök, þar sem tölusetning á vikum er viðhöfð, í ósamræmi við erlend alman- ök að þessu leyti. í viðskiptum, svo sem landa á milli, getur ruglingur af þessu tagi auð- veldlega valdið slæmum mis- skilningi og jafnvel tjóni. Þetta er afleitur fingur- brjótur, sem þegar hefur vald- ið góðum mönnum hugarangri. I viðskiptum og gagnavinnslu er afar áríðandi að atriðum sem þessum sé ekki klúðrað. Það er því ærin ástæða til að birta aðvörun til gagna- vinnslumanna: VariA ykkur á íslensku aiman- ökunum 1982, hvað tölusetningu á vikum varðar. Skylt er þó að taka það fram, að í Almanaki Háskól- ans 1982, sem Þorsteinn Sæ- mundsson stjörnufræðingur reiknaði og bjó til prentunar, er rétt farið með þetta atriði. Einhvern veginn þarf að ýta við þeim mönnum, sem gera svona vitleysu, og leitast við að tfyggja að þessi saga endur- taki sig ekki. Ef til vill er einnig meira en tímabært, að skora á Iðn- tæknistofnun Islands, að láta nú verða af því að gefa út ís- lenskan staðal um tölusetn- ingu á vikum. Það ætti ekki að vera margbrotið mál og því varla ástæða til að draga það deginum lengur. Óttar Kjartansson (deildarstjóri, SKÝRR). 111 meðferð á dýrum varðar við lög Eg gat varla orða bundist er ég las orð konu í Velvakanda þann 20. júní. Þar segir Anna María Einarsdóttir að hún hafi í hyggju að skvetta sýru á þá ketti er nálgist heimili hennar. Það virðingarleysi fyrir mál- leysingjum sem lesa má út úr þessum orðum Önnu Maríu er í einu orði sagt hryllingur. Enn- fremur lýsir það að nokkru sál- arástandi þeirrar manneskju er lætur slíkt frá sér fara. Mér er spurn, er engin leið til önnur en sú, að elta dýrin um garðinn eða inn í búð, með fötu af sýru til að skvetta á þau. Ég get skilið eft- irsjá Önnu Maríu í páfagaukn- um hennar, það fer ekki á milli mála að slysið sem varð, þegar hann var drepinn af ketti, er hörmulegt. En við skulum gá að því að eðli kattarins er það að veiða, það er því að sjálfsögðu skylda þeirra sem hafa ketti að reyna að gæta þeirra þegar varptími fugla fer í hönd, og undantekningarlaust verða kettir að vera með bjöllur. Það var þó ekki ætlun mín að gefa kattaeigendum ráð með þessu bréfi, heldur var það, að mér ofbauð þær aðfarir sem Anna María hefur upphugsað. Ég hélt að slíkt væri aflagt og tilheyrði sögunni. Ég sé þó nú að ofsókn- aræði og dýrahatur er enn í há- vegum haft hjá sumu fólki. Slíkt ofstæki þurfum við að varast, því ofstæki leiðir alltaf til ills. Ég vil að endingu skora á alla þá sem eiga dýr, að sitja ekki auðum höndum verði dýrin þeirra fyrir grimmdaræði þeirra aðila sem þjáðir eru af dýra- hatri. Verði fólk vart við illa meðferð á dýrum ber því skylda til að kæra slíkt til rannsóknar- lögreglunnar. Hafa ber í huga að ill meðferð á dýrum varðar við lög. Með vinsemd og virðingu, Eðvald Marvelsson, Hafnarfirði. Regina Thorarensen á Selfossi skrifar: Mikil ánægja meðal aldraðra Mikið er gert fyrir aldraða borgara á Selfossi. Styrktarfé- lag aldraðra þar hefur sl. fjögur ár byrjað fyrsta fimmtudag í október með opnu húsi og helst það allan veturinn þangað til sumardaginn fyrsta. í lokahóf- inu kemur Lúðrasveit Selfoss og síðan eru ýmis skemmtiatriði. I vor komu fram: Tónlistarskól- inn, undir stjórn Björgvins Vaidimarssonar, Inga Bjarna- dóttir las ljóð eftir Þorkel Boga- son, Þorkell er 92ja ára og kom sjálfur á skemmtunina. Éinnig las Marta Jónasdóttir frumort kvæði. Las hún sérlega vel og áheyrilega í sínum íslenska bún- ingi. Inga Bjarnadóttir er ein þeirra sem hefur haft með hönd- um framkvæmd þessara skemmtana. I þetta sinn setti hún upp þáttinn Baðstofugrín. Þar kváðu við raust María frá Kirkjulæk og Guðmundur Jóns- son. Einnig spilaði Hafsteinn Þorvaldsson á harmoniku. Um hundrað manns sóttu skemmtunina, sem haldin var í hinu gamla húsi Tryggvaskála. Eldri borgarar sakna þessara fimmtudagsskemmtana yfir sumarið, en það er nokkur sára- bót að nú hefjast ferðalög þeirra, bæði utanla.nds og inn- an-. Stór hópur fer til írlands 17. júní. Fimmtíu manna hópur er á förum til Dalvíkur og ætlar hann að dvelja þar í nokkra daga og skoða nágrennið. Mikil ánægja ríkir á Selfossi meðal aldraðra með hvað bæjar- félagið og unga fólkið er hugs- unarsamt. Ingu Bjarnadóttur og allri stjórn Styrktarfélags aldr- aðra er mjög vel borin sagan. Formaður Styrktarfélagsins er Einar Sigurjónsson. —

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.