Tíminn - 27.07.1965, Page 7
ÞRIÐJUDAGUR 27. júlí 1965
7
Markús Hailgrímsson
frá Túngarð!
AGLEGAR
FERÐIR
GLASGOW
í dag er til grafar borinn einn
af þeim mörgu meira en miðaldra
mönnum, sem flutt hafa úr Breiða
fjarðardölum til Reykjavíkur,
Markús Hallgrímsson frá Tún-
garði. Hann var 65 ára gamall þeg
ar hann andaðist, fæddur að Tún
garði á Fellsströnd 31. júlí áriS
1900. Foreldrar hans voru hjón
in, Hallgrímur Jónsson frá Tún
garði og Oktoína Hannesdóttir frá
Svínaskógi í somu sveit. Þau hófu
búskap í Svínaskógi árið eftir að
Markús fæddist. En eftir fárra ára
sambúð missti Hallgrímur konu
sína frá þrem kornungum sonum
hinn 10. ágúst 1903. Heímili, hans
leystist þá upp, þörnin voru 'tekin
í fóstur á góðum stöðum, en fað-
irinn lagði leið sína „út í heiminn“.
Sá, er þetta ritar þekkti Hall-
grím föður Markúsar vel. Hann
var gæddur viðkvæmri lund og
átti hlýjar tilfinningar. Ævibraut
hans var ekki alltaf blómum stráð
og alloft syrti í álinn. Erfiðustu
þáttaskil ævi sinnar mun hann
samt hafa talið, þegar hann stóð
víð dánarbeð ungu konunnar með
litlu drengina sína við hlið sér og
horfði út í óvissu framtíðarinnar,
þar sem hjálp guðs og sjálfboða
liðastarf góðra manna var eina ,,al
þýðutrygging" þeirra tíma. En
þakkátssemi Hallgríms til þess
fólks, sem mískunnaði sig yfir
drengina hans, var slík, að eingum,
sem kynntist honum gat dulizt
hversu háan sess hún skipaði i
vitund háns.
Markúsi var fyrst komið fyrir
hjá hjónunum, Guðna Jónassyni
og Petrínu Kristjánsdóttur á Val-
þúfu. Þar var hann í tvö ár. Þá
fluttist hann að Köldukinn í
sömu sveit, en þar bjuggu þá, Jón
as Magnúss. frá ArnarbaJli og Mar
ía Ólafsdóttir frá Stóra-Galtardal
Hjá þeim ólst Markús upp fram
yfir fermingaraldur. Árið 1915
fluttist hann með fósturforeldrum
sínum að. Túngarði ásamt Magn-
úsi syni þeirra. sem þá hóf Þar
búskap. Túngarður er fjallajörð.
Býlið stendur hátt í mynni Flekku
dals og býður upp á fagurt útsýni
í sólarátt Að baki skýlir hátt fjall
og í norðvestúr liggur grösugur
dalur Býlið er nokkuð fjarri þjóð
leið. og söguþættir þögulir, en um
leið fjölbreyttir með litríkum lín
um. Þarna dvaldi Markús blóma
skeið æskuára sinna. í 12 ár, hjá
merkishjónunum. Magnúsi Jónas-
syni og Björgu Magnúsdóttur frá
Staðarfelli. Hann gekk ekki í
neinn annan skóla en þann, sem
daglegt líf æskuheimilisins hafði
að bjóða. En það heimill var víð-
kunnugt að reglu- og atorkusemi
og alhliða snyrtimennsku. Auk
myndarlegs búreksturs var þar,
á þessum árum, gert átak við
uppbyggingu staðarins. Húsakostur
jarðarinnar var endurbyggður og
túnið sléttað. Upprennandi æsku
maður gerðist vaxandi þátttakandi
í gróskuriku starfi, óx að þreki
og þroska og ávann sér traust og
órofa vináttu húsbænda sinna og
barna þeirra, er hann reyndist sem
góður ,,eldri bróðir.“
Markús hneigðist snemma að alls
konar smíðum og notaði frístundir
sínar í því skyni. Sáu húsbændur
hans fljótt hvað þar í honum bjó
og hvöttu hann til náms á því
sviði, sem ekki varð þó af, að
öðru leyti en því, sem lífið og
starfið lét síðar farsælum hæfileik
um í té.
Xuttugu og sjö ára gamall
hleypti Markús heimadraganum og
flutti burtu úr sveit sinni. Dvaldi
hann fyrst um skeið vestur á
Skarðsströnd og var þá, meðal ann
ars, eitthvað við bókband hjá
Guðmundi Gunnarssyni bókbind-
ara og hagyrðingi á Tindum. En
skömmu síðar flutti hann til
Reykjavíkur og gerðist iðnaðarmað
ur. Lengst af var hann í þjón-
ustu Landssímans, eða óslitið frá
árinu 1946. Hvar sem Markús fór
ávann hann sér traust og vináttu
samstarfsmanna sinna, hvort sem
hlutverkið var þjónusta undir um
sjá yfirmanna hans, stjórn ákveð
íns verks eða hið létta persónu-
samband við samferðafólkið. Það
eru samhljóma raddir, sem gera
vart við sig í dag: Bjartar minning
ar, virðing, söknuður.
Þeir, sem kynntust Markúsi Hall •
grímssyni hlutu fljótt að finna,
að þar var stórbrotínn og sérstæð
ur persónuleiki. í fljótu bragði
virtist yfirborðið nokkuð hrjúft.
Maðurinn var mikill og sterkur að
vallarsýn, röddin þróttmikil og
framgangan engín hálfvelgja. Eigi
duldist Þó lengi, að undir þessu yf-
irborði bjó ylþrungin, andleg auð
legð. Hann átti ríka kýmnigáfu
og gat sent frá sér bitur skeyti,
sem særðu engan. Hann var vel
hagorður og notaði ferskeytluna
sem skemmtilegt leikvopn með á-
líka fímleika og hann handlék
hamarinn og sögina. Munu samvist
ir hans við Guðmund Gunnarsson
hafa verið honum einkar hollar á
þessu sviði. Við nána kynningu
kom skýrt í Ijós, að greiðvikni og
hjálpsemi við náungann var hans
líf og yndi. Þar voru jafnan réttar
fram fórnfúsar hendur af innri
þörf. Samstaða og samhjálp mann
anna var hans áhugamál. Skoðanir
voru róttækar og tjáning þeirra
jafnan djarfleg, Hann bar i fari
sínu og háttum öllum þau sterku
einkenni, er hefðu getað lagt hon
um í munn, sem kjörorð. þessar
ljóðlínur séra Matthíasar:
Græðum saman meín og mein.
Metumst ei við grannan.
Fellum saman stein við stein.
Styðjum hverjir annan.
Það má segja að Markús Hall-
grímsson bæri með sér svip sinna
víðfeðmu átthagabyggða, þar sem
tigin fjöll og gróðursælir dalir
tengja órofa samband og mynda
samræmda heild. Hann var vel hlut
gengur þátttakandí í hópi þess I
marga dreifbýlisfólks, sem á und !
anförnum áratugum hefur hjálpað
til að byggja upp, í þéttbýlinu,
menningarkerfi þjóðfélagsins. • og
hann kom Þar fram átthögum sín
um til sóma
Eftirlifandi eiginkona Markúsar
er Valgerður Lárusdóttír frá Berja
g, FJLUGFÉLiLÆG
MONTHtY
Nr. 23 m. 23 myndum
Nr. 24 m. 26 myndum
Krónur 15.00 stykkið.
Sendum burðargjaldsfrítt,
ef greiðsla fylgir.
FRÍMERKJASALAN,
Lækjargötu 6A.
TVEGGJA ÍBÚÐA HÚS
Höfum til sölu húseign í
Lambastaðatúni. í húsinu er 3
og_ 5 herbergja íbúð Húsið
sténdur á 1000 ferm. eignan-
‘Iðð. Hagstætt verð. Stærri
^ íbúðin er aðeins 2 ára gömul.
% HÚSEIGN í VESTUR
BORGINNI
Höfum til sölu 4 og 2 her-
bergja íbúðir í steinhúsi i Vest-
urborginni. íbúðirnai se'.’ast
saman eða sitt í hvoru íagi.
2 HERBERGJA ÍBÚÐIR
Til sölu er ný 2 herbergja í-
búð í Vesturborginni. Giæsi-
legt hús. Ennfremur 2 her-
bergja kjallaraíbúð við Karla-
götu.
ÓDÝRAR ÍBÚÐIR
Höfum til sölu í borgariand-
inu i miklu úrvali 2, 3 og 4
herbergja íbúðir. Kaupfestmg
ca. 75.000,00 kr. íbúðimar
afhendast tilbúnar undir tré-
verk og málningu með full-
gerðri sameign. Beðið eftir
húsnæðismálalánum fyrir þá,
sem þau hyggjast nota til í-
búðakaupa.
4 HERBERGJA RISÍBÚÐ
Til sölu 4 herbergja risíbúð
i Hliðahverfi. íbúðin er vel
byggð, múrhúðuð í hólf og
gólf. Útborgun kr. 400 þús.
HÚS og SKIP
FASTEIGNASTOFA,
LAUGAVEGI 11
Sími 2-15-15, — kvöldsími
23608 — 13637.
dalsá á Snæfjallaströnd. Vinir og
samstarfsmenn eiginmanns hennar
senda henni, börnum þeirra þrem
og öðrum vandamönnum innilegar
samúðarkveðjur, en geyma í hug-
um sér kæra minningu um góðan
dreng.
Geir Sigurðsson
frá Skerðingsstöðum.
MÓTIÐ Í HÚSAFELLSSKÓGI
UM VERZLUNARMANNAHELGINA
Bindindismannamótið 1965 verSur halclið 31. júlí
—2. ágúst í Húsafellsskógi.
FJÖLBREYTT DAGSKRÁRATRIÐI.
GuSsþjónusta: séra Björn Jónsson, Keflavík.
SKEMMTIATRIÐl:
Varðeldur — Leikir —Flugeldasýning
DANS.
TEMPÓ — unglingahljómsveitin góðkunna, leik-
ur fyrir dansi bæði kvöldin.
Þáttöku- og farmiðapantanir og sala verður í
Góðtemplarahúsinu í Reykjavík i kvöld og annað
kvöld kl. 8—10, sími 13355. Ennfremur í Bóka-
búð Æskunnar, Kirkjuhvoli, sími 14235.
Mótsnefnd.
Deildarhjúkrunarkonustöður
Stöður þriggja deildarhjúkmnarkvenna í Barna-
spítala Hringsins í Landsspítalanum eru lausar
til umsóknar frá 1. september 1965. Laun sam-
kvæmt samningum opinberra starfsmanna. Um-
sóknir um aldur. nám og fyrri störf sendist til
Skrifstofu ríkisspítalanna, Klapparstíg 29, fyrir
20. ágúst n.k.
Reykjavík, 26. júlí 1965,
Skrifstofa ríkisspítalanna.
Rafvirkjar -
Pípulagningarmenn
Óskum eftir að ráða nú þegar rafvirkja og pípu-
lagningamann eða mann vanan pípulögnum.
KAUPFÉLAG ÁRNESINGA,
Selfossi.
Tilboð óskast 1
VOLKSWAGEN 1963
í því ástandi sem bifreiðin nú ereftir veltu. Bif-
reiðin verður til sýnis við Bílasprautun h.f., Bú-
staðabletti 12, Reykjavík, þriðjudaginn 27. júlí
milli 9—18. — Tilboð merkt Volkswagen 1963
óskast send skrifstofu Samvinnutrygginga, Tjóna-
deild, herbergi 307, fyrir kl. 17 miðvikudaginn
28. júlí n.k.
Girðinganet
Túngirðinganet 5 og 6 strengja — Garðanet.
BYGGINGAVÖRUVERZLUN KÓPAVOGS,
Kársnesbraut 2.
Hey til sölu
að HjarSarbóli í Ölfusi. Þeir sem hafa áhuga á
að kaupa geta fengið nánari upplýsingar í síma
um Hveragerði.