Tíminn - 27.07.1965, Blaðsíða 7

Tíminn - 27.07.1965, Blaðsíða 7
ÞRIÐJUDAGUR 27. júlí 1965 7 Markús Hailgrímsson frá Túngarð! AGLEGAR FERÐIR GLASGOW í dag er til grafar borinn einn af þeim mörgu meira en miðaldra mönnum, sem flutt hafa úr Breiða fjarðardölum til Reykjavíkur, Markús Hallgrímsson frá Tún- garði. Hann var 65 ára gamall þeg ar hann andaðist, fæddur að Tún garði á Fellsströnd 31. júlí áriS 1900. Foreldrar hans voru hjón in, Hallgrímur Jónsson frá Tún garði og Oktoína Hannesdóttir frá Svínaskógi í somu sveit. Þau hófu búskap í Svínaskógi árið eftir að Markús fæddist. En eftir fárra ára sambúð missti Hallgrímur konu sína frá þrem kornungum sonum hinn 10. ágúst 1903. Heímili, hans leystist þá upp, þörnin voru 'tekin í fóstur á góðum stöðum, en fað- irinn lagði leið sína „út í heiminn“. Sá, er þetta ritar þekkti Hall- grím föður Markúsar vel. Hann var gæddur viðkvæmri lund og átti hlýjar tilfinningar. Ævibraut hans var ekki alltaf blómum stráð og alloft syrti í álinn. Erfiðustu þáttaskil ævi sinnar mun hann samt hafa talið, þegar hann stóð víð dánarbeð ungu konunnar með litlu drengina sína við hlið sér og horfði út í óvissu framtíðarinnar, þar sem hjálp guðs og sjálfboða liðastarf góðra manna var eina ,,al þýðutrygging" þeirra tíma. En þakkátssemi Hallgríms til þess fólks, sem mískunnaði sig yfir drengina hans, var slík, að eingum, sem kynntist honum gat dulizt hversu háan sess hún skipaði i vitund háns. Markúsi var fyrst komið fyrir hjá hjónunum, Guðna Jónassyni og Petrínu Kristjánsdóttur á Val- þúfu. Þar var hann í tvö ár. Þá fluttist hann að Köldukinn í sömu sveit, en þar bjuggu þá, Jón as Magnúss. frá ArnarbaJli og Mar ía Ólafsdóttir frá Stóra-Galtardal Hjá þeim ólst Markús upp fram yfir fermingaraldur. Árið 1915 fluttist hann með fósturforeldrum sínum að. Túngarði ásamt Magn- úsi syni þeirra. sem þá hóf Þar búskap. Túngarður er fjallajörð. Býlið stendur hátt í mynni Flekku dals og býður upp á fagurt útsýni í sólarátt Að baki skýlir hátt fjall og í norðvestúr liggur grösugur dalur Býlið er nokkuð fjarri þjóð leið. og söguþættir þögulir, en um leið fjölbreyttir með litríkum lín um. Þarna dvaldi Markús blóma skeið æskuára sinna. í 12 ár, hjá merkishjónunum. Magnúsi Jónas- syni og Björgu Magnúsdóttur frá Staðarfelli. Hann gekk ekki í neinn annan skóla en þann, sem daglegt líf æskuheimilisins hafði að bjóða. En það heimill var víð- kunnugt að reglu- og atorkusemi og alhliða snyrtimennsku. Auk myndarlegs búreksturs var þar, á þessum árum, gert átak við uppbyggingu staðarins. Húsakostur jarðarinnar var endurbyggður og túnið sléttað. Upprennandi æsku maður gerðist vaxandi þátttakandi í gróskuriku starfi, óx að þreki og þroska og ávann sér traust og órofa vináttu húsbænda sinna og barna þeirra, er hann reyndist sem góður ,,eldri bróðir.“ Markús hneigðist snemma að alls konar smíðum og notaði frístundir sínar í því skyni. Sáu húsbændur hans fljótt hvað þar í honum bjó og hvöttu hann til náms á því sviði, sem ekki varð þó af, að öðru leyti en því, sem lífið og starfið lét síðar farsælum hæfileik um í té. Xuttugu og sjö ára gamall hleypti Markús heimadraganum og flutti burtu úr sveit sinni. Dvaldi hann fyrst um skeið vestur á Skarðsströnd og var þá, meðal ann ars, eitthvað við bókband hjá Guðmundi Gunnarssyni bókbind- ara og hagyrðingi á Tindum. En skömmu síðar flutti hann til Reykjavíkur og gerðist iðnaðarmað ur. Lengst af var hann í þjón- ustu Landssímans, eða óslitið frá árinu 1946. Hvar sem Markús fór ávann hann sér traust og vináttu samstarfsmanna sinna, hvort sem hlutverkið var þjónusta undir um sjá yfirmanna hans, stjórn ákveð íns verks eða hið létta persónu- samband við samferðafólkið. Það eru samhljóma raddir, sem gera vart við sig í dag: Bjartar minning ar, virðing, söknuður. Þeir, sem kynntust Markúsi Hall • grímssyni hlutu fljótt að finna, að þar var stórbrotínn og sérstæð ur persónuleiki. í fljótu bragði virtist yfirborðið nokkuð hrjúft. Maðurinn var mikill og sterkur að vallarsýn, röddin þróttmikil og framgangan engín hálfvelgja. Eigi duldist Þó lengi, að undir þessu yf- irborði bjó ylþrungin, andleg auð legð. Hann átti ríka kýmnigáfu og gat sent frá sér bitur skeyti, sem særðu engan. Hann var vel hagorður og notaði ferskeytluna sem skemmtilegt leikvopn með á- líka fímleika og hann handlék hamarinn og sögina. Munu samvist ir hans við Guðmund Gunnarsson hafa verið honum einkar hollar á þessu sviði. Við nána kynningu kom skýrt í Ijós, að greiðvikni og hjálpsemi við náungann var hans líf og yndi. Þar voru jafnan réttar fram fórnfúsar hendur af innri þörf. Samstaða og samhjálp mann anna var hans áhugamál. Skoðanir voru róttækar og tjáning þeirra jafnan djarfleg, Hann bar i fari sínu og háttum öllum þau sterku einkenni, er hefðu getað lagt hon um í munn, sem kjörorð. þessar ljóðlínur séra Matthíasar: Græðum saman meín og mein. Metumst ei við grannan. Fellum saman stein við stein. Styðjum hverjir annan. Það má segja að Markús Hall- grímsson bæri með sér svip sinna víðfeðmu átthagabyggða, þar sem tigin fjöll og gróðursælir dalir tengja órofa samband og mynda samræmda heild. Hann var vel hlut gengur þátttakandí í hópi þess I marga dreifbýlisfólks, sem á und ! anförnum áratugum hefur hjálpað til að byggja upp, í þéttbýlinu, menningarkerfi þjóðfélagsins. • og hann kom Þar fram átthögum sín um til sóma Eftirlifandi eiginkona Markúsar er Valgerður Lárusdóttír frá Berja g, FJLUGFÉLiLÆG MONTHtY Nr. 23 m. 23 myndum Nr. 24 m. 26 myndum Krónur 15.00 stykkið. Sendum burðargjaldsfrítt, ef greiðsla fylgir. FRÍMERKJASALAN, Lækjargötu 6A. TVEGGJA ÍBÚÐA HÚS Höfum til sölu húseign í Lambastaðatúni. í húsinu er 3 og_ 5 herbergja íbúð Húsið sténdur á 1000 ferm. eignan- ‘Iðð. Hagstætt verð. Stærri ^ íbúðin er aðeins 2 ára gömul. % HÚSEIGN í VESTUR BORGINNI Höfum til sölu 4 og 2 her- bergja íbúðir í steinhúsi i Vest- urborginni. íbúðirnai se'.’ast saman eða sitt í hvoru íagi. 2 HERBERGJA ÍBÚÐIR Til sölu er ný 2 herbergja í- búð í Vesturborginni. Giæsi- legt hús. Ennfremur 2 her- bergja kjallaraíbúð við Karla- götu. ÓDÝRAR ÍBÚÐIR Höfum til sölu í borgariand- inu i miklu úrvali 2, 3 og 4 herbergja íbúðir. Kaupfestmg ca. 75.000,00 kr. íbúðimar afhendast tilbúnar undir tré- verk og málningu með full- gerðri sameign. Beðið eftir húsnæðismálalánum fyrir þá, sem þau hyggjast nota til í- búðakaupa. 4 HERBERGJA RISÍBÚÐ Til sölu 4 herbergja risíbúð i Hliðahverfi. íbúðin er vel byggð, múrhúðuð í hólf og gólf. Útborgun kr. 400 þús. HÚS og SKIP FASTEIGNASTOFA, LAUGAVEGI 11 Sími 2-15-15, — kvöldsími 23608 — 13637. dalsá á Snæfjallaströnd. Vinir og samstarfsmenn eiginmanns hennar senda henni, börnum þeirra þrem og öðrum vandamönnum innilegar samúðarkveðjur, en geyma í hug- um sér kæra minningu um góðan dreng. Geir Sigurðsson frá Skerðingsstöðum. MÓTIÐ Í HÚSAFELLSSKÓGI UM VERZLUNARMANNAHELGINA Bindindismannamótið 1965 verSur halclið 31. júlí —2. ágúst í Húsafellsskógi. FJÖLBREYTT DAGSKRÁRATRIÐI. GuSsþjónusta: séra Björn Jónsson, Keflavík. SKEMMTIATRIÐl: Varðeldur — Leikir —Flugeldasýning DANS. TEMPÓ — unglingahljómsveitin góðkunna, leik- ur fyrir dansi bæði kvöldin. Þáttöku- og farmiðapantanir og sala verður í Góðtemplarahúsinu í Reykjavík i kvöld og annað kvöld kl. 8—10, sími 13355. Ennfremur í Bóka- búð Æskunnar, Kirkjuhvoli, sími 14235. Mótsnefnd. Deildarhjúkrunarkonustöður Stöður þriggja deildarhjúkmnarkvenna í Barna- spítala Hringsins í Landsspítalanum eru lausar til umsóknar frá 1. september 1965. Laun sam- kvæmt samningum opinberra starfsmanna. Um- sóknir um aldur. nám og fyrri störf sendist til Skrifstofu ríkisspítalanna, Klapparstíg 29, fyrir 20. ágúst n.k. Reykjavík, 26. júlí 1965, Skrifstofa ríkisspítalanna. Rafvirkjar - Pípulagningarmenn Óskum eftir að ráða nú þegar rafvirkja og pípu- lagningamann eða mann vanan pípulögnum. KAUPFÉLAG ÁRNESINGA, Selfossi. Tilboð óskast 1 VOLKSWAGEN 1963 í því ástandi sem bifreiðin nú ereftir veltu. Bif- reiðin verður til sýnis við Bílasprautun h.f., Bú- staðabletti 12, Reykjavík, þriðjudaginn 27. júlí milli 9—18. — Tilboð merkt Volkswagen 1963 óskast send skrifstofu Samvinnutrygginga, Tjóna- deild, herbergi 307, fyrir kl. 17 miðvikudaginn 28. júlí n.k. Girðinganet Túngirðinganet 5 og 6 strengja — Garðanet. BYGGINGAVÖRUVERZLUN KÓPAVOGS, Kársnesbraut 2. Hey til sölu að HjarSarbóli í Ölfusi. Þeir sem hafa áhuga á að kaupa geta fengið nánari upplýsingar í síma um Hveragerði.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.