Morgunblaðið - 23.09.1982, Blaðsíða 13

Morgunblaðið - 23.09.1982, Blaðsíða 13
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 23. SEPTEMBER 1982 13 ráð fyrir í frumvarpinu, og voru að sjálfsögðu bornar fram breyt- ingartillögur til leiðréttingar, enda enginn ágreiningur þar um. Fjárhagsáætlun ársins er raunhæf, og þar er tekið á þeim vanda sem leiðir af miklum fram- kvæmdum síðstu ára. Meirihluti núverandi bæjar- stjórnar fæst ekki til að skoða fjárhagsstöðu bæjarfélagsins á grundvelli samþykktar áætlunar. Meirihlutinn neitar alfarið að endurskoða áætlun ársins miðað við núverandi stöðu mála. Margítrekað hefur fulltrúi sjálfstæðismanna bent á að nauð- synlegt væri að endurskoðun áætl- unarinnar færi fram þannig að sú áætlun sem unnið væri eftir bæri með sér stefnur og markmið nú- verandi meirihluta. Þetta hefur meirihlutinn ekki viljað hlusta á, heldur er því útvarpað yfir alþjóð að engar framkvæmdir verði á vegum bæjarsjóðs næstu ár. Meirihlutinn hefur enga skoðun framkvæmt á fjárhagsstöðu bæj- arsjóðs sem réttlætir slíkar yfir- lýsingar. Þeir hafa ekki einu sinni viljað framkvæma eðlilega skoðun á gildandi fjárhagsáætlun, þannig að bæjarfulltrúum gefist kostur á að fjalla um þennan vanda. Yfirlýsingar meirihluta bæjar- stjórnar er því ekki hægt að túlka á annan hátt en sem algjöra upp- gjöf og ráðþrot, enda er það í fullu samræmi við það sem búast mátti við af þessum sundurleita hópi fjögurra ólíkra stjórnmálahópa. En hvað um það, ég get tekist á við ranga stefnu þessara manna hér heimafyrir. Mér er meira í mun að koma á framfæri sýnis- horni af rangri túlkun þeirra á fjárhagsstöðu bæjarsjóðs, og mun ég því nefna hér nokkur dæmi. 1. Teknaáætlun bæjarsjóðs ísa- fjarðar . fyrir árið 1982 stenst fyllilega, og vel það, þar sem út- svör og aðstöðugjöld gefa um 2,3 m/kr. meiri tekjur en gert var ráð fyrir. 2. Fastur rekstrarkostnaður verð- ur eigi meiri en áætlunin segir til um, þó tilfærsla milli ein- stakra liða sé nauðsynleg. Hins vegar er ljóst að útgjöld vegna gjaldfærðrar fjárfestingar verða allt að 4 m/kr. lægri en áætlunin segir til um. 3. Samkv. úttekt endurskoðun- arskrifstofunnar pr. 1. júlí þarf 10,8 m/kr. til að greiða afborg- anir og vexti ársins. I fjárhags- áætluninni er þessi upphæð 9,2 m/kr. Nauðsynleg tilfærsla inná þennan lið er því 1,6 m/kr. 4. Það er fullljóst nú, þegar þessi árstími er kominn, að ýmsir framkvæmdaliðir sem ráðgert var að vinna á þessu ári koma ekki til framkvæmda. Tilsvar- andi fjármagn sem þar er ónot- að er því hægt að nota til að mæta enn frekari lækkun skulda, umfram það sem fjár- hagsáætlun gerir ráð fyrir. 5. Innheimta bæjargjalda og ann- arra tekna bæjarsjóðs má vera betri. ísfirðingar eru þó þekktir fyrir annað en vanskil, og tíma- bundnir erfiðleikar í innheimtu bæjargjalda á fyrrihluta þessa árs, sem m.a. stöfuðu af verk- falli og verkbanni útgerðar, eiga eftir að jafna sig síðar á árinu. Ef atvinnuástand í útgerð og fiskvinnslu helst óbreytt þá er engin ástæða til að kvíða í þess- um efnum. 6. Á sl. árum höfum við byggt 57 íbúðir fyrir láglaunafólk, og í þessum framkvæmdalið höfum við orðið að binda mun meira fjármagn en ráð var fyrir gert. Þessum framkvæmdum lýkur nú á þessu ári, og koma þá inn fjárhæðir sem bæjarsjóður hef- ur orðið að lána væntanlegum kaupendum til skamms tíma. í þessum efnum er þörf vissra að- gerða og miklum mun nánari samvinnu húsnæðisstofnunar ríkisins og bæjaryfirvalda en nú er. Að framansögðu er ljóst að vandi okkar Isfirðinga vegpia fjár- hagsstöðu bæjarsjóðs er ekki meiri en svo að skynsamlegt að- hald í framkvæmdum og rekstri er nægjanlegt tii að við getum staðið við allar okkar skuldbindingar. Hér er ekkert vandamál á ferðinni sem við getum ekki ráðið við sjálf, ef okkur brestur ekki kjark eins og virðist vera með núverandi meiri- hluta. Ráðandi menn bæjarstjórn- ar verða að vera gæddir þeim eig- inleikum að vilja og þora að takast á við yfirstandandi vanda hverju sinni, og sigrast á honum. Heigulsháttur og pólitískt níð um andstæðinga sína og samstarfs- aðila er ekki affarasæl leið til lausnar vanda. Lokaorð Á Isafirði býr þróttmikið og at- hafnasamt fólk, fólk sem vill upp- byggingu bæjarfélagsins sem mesta. Allt þetta fólk var þátttak- endur í þeim miklu framkvæmd- um sem bæjarfélagið hefur staðið fyrir á liðnum árum. Með yfirlýsingum núverandi valdhafa ísafjarðar um niðurfell- ingu allra framkvæmda næstu ár, og yfirþyrmandi vanskil bæjar- sjóðs er beinlinis vegið að sam- stilltu átaki íbúanna. Á fyrsta fundi bæjarstjórnar, þar sem nýi meirihlutinn var kynntur, buðum við fjórir bæjar- fulltrúar Sjálfstæöisflokksins, sem erum í minnihluta, nýja meirihlutanum samstarf um úr- lausn þýðingarmestu mála. Marg- ítrekað hefur fulltrúi okkar í bæj- arráði óskað nánari samvinnu milli meiri- og minnihluta, en jafn oft hefur meirihlutinn sýnt í verki að hann vill ekki starfa með minnihluta um lausn bæjarmála. Við erum þó ekki úrkula vonar um að okkur takist að sveigja vinnubrögð meirihlutans inná hefðbundnari og æskilegri leiðir, að fenginni reynslu er það ljóst að það verður barátta að fá þetta fólk til að vinna eðliiega og drengilega að stjórn bæjarmála. Sú barátta verður háð, og ég vil vona að niðurstaða hennar verði sú að upp verði tekin jákvæðari vinnubrögð sem verði til þess fall- in að uppbygging tsafjarðar haldi áfram með jákvæðri afstöðu bæj- arbúa. Til þess höfum við öll skilyrði okkur hliðholl, ef stjórnendur vilja og þora. Óhapp við NATOæfingar: Tvær konur týna lífi eftir árekstur Wertheim, 21. september. Al*. TVÆR óbreyttar vestur-þýzkar konur biðu bana þegar ökumaður flutninga- vagns bandaríska herliðsins i V- ■>ýzkalandi missti stjórn á bifreið sinni og ók á tvær aðrar bifreiðir við æfingar herja Atlantshafsbandalags- ins í smáborginni Kembach i dag. Að sögn lögreglu er forsaga málsins sú, að tvær flutningabif- reiðir rákust saman í Kembach. Voru hermenn að Ijúka við að girða árekstrarstaðinn af þegar þriðja flutningabifreiðin kom þar að. Náði ökumaðurinn ekki að stöðva bifreið sína, og hafnaði á tveimur kyrrstæðum bifreiðum handan vagnanna tveggja. önnur bifreið- anna, sem flutningabifreiðin ók á, kastaðist inn á næstu lóð og urðu tvær konur, sem stóðu utandyra, undir henni og létust samstundis. Þær voru 46 og 69 ára. Eiginmaður yngri konunnar varð einnig fyrir bifreiðinni og slasaðist alvarlega. Loks hafnaði flutningabifreiðin á nærliggjandi byggingu og sluppu ökumennirnir með litla áverka. Talið er að tjónið, sem varð í óhappinu, nemi jafnvirði 1,2 millj- óna króna. Slysið er hið fjórða, sem tengist þeim æfingum NATO, sem nú standa yfir á svæði, sem nær frá Noregi til Miðjarðarhafs. Á föstu- daginn var biðu tvö v-þýzk ung- menni bana er áhöfn vestur-þýzks skriðdreka skaut á „óvinaflugvél" og drengina af misgáningi. Fyrr í síðustu viku fórust a.m.k. fimm bandarískir hermenn þegar þyrla þeirra nauðlenti undan strönd Danmerkur, og í næstsíð- astliðinni viku fórust tveir banda- rískir hermenn þegar flutninga- bifreið ók á jeppabifreið þeirra á hraðbraut nálægt Mannheim. ER HÖFUÐPRÝÐI HÚSSINS PLEGEL PLEGEL PLEGEL PLEGEL þakstáliö fæst í 5 mismunandi plötulengdum: 1.10 — 2.15 ___ 2.50 — 3.20 — 4.25. er heitgalvaniserað stál, lakkað með PVF 2 lökkun, sem er fyrsta flokks. Litir: Rautt og svart. neglist beint á pappaklætt þak og þarf ekki lektur. fæst í 2 grófleikum (stærð á bárum) og er yfirleitt til á lager. ,í-u/uJL>± iiHi íirnmmr pii.v ***** Einnig opnanlegir þakgluggar með tvöföldu gleri. r? Vinsamlega sendiö myndalista af Plegel -n I Nafn PARDUS Box 98 — Keflavík — Sími 92-3380. Ath.: Höfum opnað nýja söluskrif- stofu aö Smiðjuvegi 28, Kópavogi, sími 79011. Heimili L______— il

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.