Morgunblaðið - 23.09.1982, Side 20

Morgunblaðið - 23.09.1982, Side 20
20 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 23. SEPTEMBER 1982 Kristján Eldjárn og frú Halldóra taka á móti Kekkonen fyrrverandi forseta Finn- lands. undravert, hvað hann gat gefið sér mikinn tíma til að sinna sjúkum og sorgmæddum. Hjá honum fóru saman sannir mannkost- ir, miklir hæfileikar og listrænt orðfæri í ræðu og riti. Allri framkomu hans og við- móti fylgdi torgætur þokki, sem erfitt er að lýsa með orðum, en fór ekki framhjá nein- um í návist hans. Okkur vinum hans er það lítt bærileg tilhugsun að finna aldrei framar hlýtt og þétt handtak hans né heyra hljómþýðan raddblæ hans. Náðar- gáfur hans og persónutöfrar unnu honum sívaxandi vinsældir, sem einnig leiddu til þess, að honum var falið hvert trúnaðar- starfið öðru meira. Því meiri kynni sem menn höfðu af Kristjáni, því meira traust báru þeir til hans, enda brást það ekki, að hann innti af hendi hvert það starf, sem honum var falið, með sérstökum glæsi- brag. Hann var handgenginn forsögu og sögu íslendinga á öllum öldum og þekkti kjör og hagi þjóðarinnar frá yztu strönd til innstu dala. Hann tók ótrauður að sér margháttuð störf, sem hann taldi horfa til heilla þjóð sinni, fræðum hennar og menn- ingu. Eins og títt er um mikilhæfa menn, óx hann með hverju því verkefni, sem hann tókst á hendur. Kristján Eldjárn var fæddur á Tjörn í Svarfaðardal hinn 6. desember 1916, næst- elzta barn foreldra sinna, Þórarins Krist- jánssonar Eldjárns og Sigrúnar Sigur- hjartardóttur, sem þann garð sátu frá 1913 til 1959. Áður en þau hófu þar búskap, var Þórarinn kennari í sveit sinni og hélt því starfi áfram til 1955. Jafnframt gegndi hann fjölmörgum trúnaðarstörfum fyrir sveit sína og hérað. Þórarinn var sonur séra Kristjáns Eldjárns Þórarinssonar, sem var síðastur prestur á Tjörn í Svarf- aðardal, og konu hans Petrínu Soffíu Hjörleifsdóttur prests á Skinnastað og Tjörn Guttormssonar, en Sigrún var dóttir Sigurhjartar bónda á Urðum í Svarfaðar- dal, fornu höfuðbóli og höfðingjasetri, Jó- hannessonar og konu hans Soffíu Jóns- dóttur. í ættum Kristjáns er margt mik- ilhæfra manna, bænda, klerka, fræði- manna og skálda. Systkini Kristjáns eru Þorbjörg, húsfreyja í Reykjavík, Hjörtur bóndi á Tjörn og Petrína, húsfreyja á Ak- ureyri. Kristján ólst upp á Tjörn, rómuðu myndarheimili, við mikið ástríki foreldra og frændliðs, en gekk snemma að ýmsum störfum, sem títt er um unglinga í sveit og við sjó. Fjórtán ára að aldri tók hann próf upp í 2. bekk Menntaskólans á Akureyri, vorið 1931. Sigurður Guðmundsson skóla- meistari veitti því snemma athygli og lá ekki á því, að óvenjumargt góðra náms- manna og vænlegra ungmenna kom í skól- ann úr Svarfaðardal. Ekki setti dalurinn ofan í augum skólameistara við komu Kristjáns í skólann, enda varð brátt ljóst, að Kristján var ágætum hæfileikum og al- hliða námsgáfum gæddur, en mest bar þó frá, hversu hagur hann var á íslenzkt mál og næmur á erlendar tungur. Þegar fram í sótti, mátti vart á milli sjá, hvort honum lét betur að nema íslenzku, Islandssögu, latínu eða ensku. Á skólanámi hans voru örugg tök, þó án allra erfiðsmuna, enda fór saman trútt minni, hugkvæmni og glöggur skilningur. Allt frá upphafi naut hann sérlega mikillar hylli félaga sinna og bekkjarsystkina. Hann var manna prúð- astur í háttum, glaður í vinahópi á góðum stundum og hafði þá oft á hraðbergi létt gamanmál, en tillögugóður og ráðhollur í öllum vanda. Stúdentsprófi lauk hann með mjög hárri fyrstu einkunn, næstyngstur 19 bekkjarsystkina, og var hið yngsta þó að- eins níu dögum yngra en hann, en miseldri var þá meira með menntaskólanemum, a.m.k, á Akureyri, en nú tíðkast, enda sundurleitur undirbúningur manna undir skóla í þá daga. Haustið 1936 sigldi Kristján til Kaup- mannahafnar og lagði fyrst í stað stund á ensku og latínu við Hafnarháskóla. Brátt hvarf hann þó frá því námi, en sneri sér þess í stað að fornleifafræði. Sumarið 1937 dvaldist hann í Grænlandi og vann með dönskum fornleifafræðingum að uppgrefti rústa í hinum fornu íslendingabyggðum þar. Enn betur bar þó í veiði árið 1939, þegar norrænir fornleifafræðingar í sam- vinnu við Þjóðminjasafn íslands gerðu út sameiginlegan leiðangur til rannsókna og uppgraftar fornra minja í Þjórsárdal, sem legið hafði orpinn vikri og foksandi frá því um 1100. Það féll í hlut Kristjáns að vinna um sumarið að uppgrefti hinna frægu rústa í Stöng undir yfirstjorn danska forn- leifafræðingsins Age Roussels. Heimsstyrjöldin batt svo enda á frekara nám Kristjáns í Kaupmannahöfn. Hafði hann þó lokið þar fyrrihlutaprófi í forn- leifafræði. Haustið 1939 gerðist hann kennari við Menntaskólann á Akureyri. Gegndi hann því starfi tvo vetur, en hóf síðan nám í íslenskum fræðum í Reykjavík og lauk þar meistaraprófi vorið 1944. Kom nú í góðar þarfir nám hans í fornleifa- fræði, því að kjörgrein hans var íslands- saga, og fjallaði meistaraprófsritgerð hans um minjar úr heiðnum sið á Islandi. Dokt- orsritgerð hans, Kuml og haugfé úr heiðn- um sið á íslandi, sem hann varði 1957, er aukið og fullkomnað framhald meistara- prófsritgerðarinnar. Skemmtilegt er að minnast þess, að það skuli einmitt hafa verið á stofnári lýð- veldisins sem Kristján gekk alvæddur fram á völl þjóðlífsins. Varð nú skjótur frami hans. Hann gerðist starfsmaður Þjóðminjasafns íslands 1945 og var skipaður þjóðminjavörður 1. desember 1947. í öndverða embættistíð hans voru Þjóðminjasafninu búin stórlega bætt skil- yrði í nýjum húsakynnum. Aðrir mér fær- ari verða að sjálfsögðu til þess að minnast hins heillaríka starfs hans á þeim vett- vangi. Sama er að segja um störf hans sem forseta Islands, enda munu allir vera sam- dóma um þau. Það féll í minn hlut að rita um hann kynningargrein fyrir kosning- arnar 1968. Eg bar þá á hann mikið lof, þó án alls samanburðar og metings við mót- frambjóðandann. Mér finnst nú, að Krist- ján hafi staðið undir öllu því, sem þar var sagt, og þó dýpra hefði verið í árinni tekið. Það er fornt mál, að allt oflof sé háð, og það vjssi ég að engum var ljósara en Kristjáni sjálfum. Mér þykir leitt, að hér gefst ekki tóm til að minnast ritstarfa hans og ræðu- mennsku að verðleikum og nokkru gagni. Þurr upptalning ritverka mundi líka lítið bæta um mál mitt og hefði ekki verið í anda Kristjáns. Það er ærið verk venju- legum fræðimanni að draga saman efni í ritgerð eða bók með viðeigandi elju, gaumgæfa efnið, skipa því síðan niður á haganlegan hátt og varpa á það ljósi frá ýmsum hliðum. Allt eru þetta undirstöðu- atriði, sem ekki má má vanrækja. Þetta skildi Kristján einnig mætavel og gat látið við það sitja, ef hann skrifaði fyrir fræði- menn eina. En yfirleitt lét hann ekki stað- ar numið við þessi vinnubrögð ein, heldur kostaði hann einnig kapps um að gæða mál sitt, hvort sem var í ræðum eða ritum, lífi og litum með því fimlega orðfæri, sem virtist vera runnið honum í merg og bein, því að hann forðaðist einnig óþarfa skrúðmælgi. Vitaskuld átti hann mikið að þakka ásköpuðum hæfileikum, en enginn skyldi þó ætla, að Kristján hafi náð þeim tökum á máli og stíl, sem raun varð á, án strangrar tamningar og sjálfsögunar. Sú er einmitt skýringin á því, hversu mikinn hljómgrunn hann fékk hjá þjóð sinni með bókum sínum, tímaritsgreinum og þáttum í útvarpi og sjónvarpi. Ég get ekki látið hjá líða að minnast þess, hversu mikið verk hann vann af óeig- ingirni og fórnfýsi með því að sjá um út- gáfu Árbókar Hins íslenzka fornleifafé- lags áratugum saman í hjáverkum með annasömum störfum. Einnig bar það átt- hagaást hans fagran vott, að hann gaf sér tíma til að koma á prent ritinu Svarfdæl- ingar í tveimur þykkum bindum eftir Stef- án Aðalsteinsson, sem þá var fallinn frá. íslenzka þjóðin hefur átt því láni að fagna, að margir beztu lærdómsmanna hennar í þjóðlegum fræðum hafa gert sé far um að tjá sig þannig um vísindi sín, að leikmenn í fræðunum og áhugasamur almenningur geti haft af þeim not og and- lega nautn og orðið þannig að nokkru marki þátttakendur í íslenzkri vísinda- og fræðistarfsemi. Kristján skipaði sér ungur í flokk þeirra vísindamanna, sem héldu þessu merki hæst á loft. Þessi afstaða Kristjáns var ákaflega mikilvæg, því að fátt er betur til þess fallið að stuðía að því, að íslenzku þjóðinni í heild, fólkinu í borg og byggð, megi auðnast að varðveita sam- hengið í íslenzkri menningu, tungutak og þjóðerni, þó að ytri menningar- og samfé- lagshættir séu breytingum háðir og þeim allhröðum, eins og dæmi síðustu áratuga sanna bezt. Ritstörfin veittu Kristjáni unað og gleði, voru honum lífsnautnin frjóa. Hann hafði þó aðeins stopular tómstundir frá miklu annríki til að sinna þeim. Hvíldartíma skammtaði hann sér naumt og þekkti sumarleyfi meira af orðspori en eigin reynslu. Vera má, að kyrrsetustörf hans hafi verið meiri en heilsu hans var hollt, þó að engan grunaði, að svo færi sem fór. Að maklegleikum var Kristjáni marg- víslegur sómi sýndur innanlands og utan um dagana, þó að hér sé of langt upp að telja, bæði meðan hann var þjóðminja- vörður og vitaskuld enn meiri í forsetatíð hans. Voru það einkum háskólar og vís- indafélög, sem þótti heiður að því að hafa hann innan vébanda sinna. í einkalífi sínu var Kristján gæfumaður. Árið 1947 kvæntist hann Halldóru Ing- ólfsdóttur frá ísafirði. Foreldrar hennar voru Ingólfur framkvæmdastjóri þar Árnason og Ólöf Jónasdóttir. Frú Halldóra Eldjárn er mikilhæf kona að gerð og gáf- um, enda var hún styrk stoð eiginmanni sínum í vandasömum störfum. Eftir for- setatíðina að Bessastöðum bjuggu þau sér vistlegt heimili í veglegum húsakynnum að Sóleyjargötu 1 hér í borg. Vinir þeirra vonuðu, að þau fengju notið þar samvista og góðra daga um langt árabil. En nú hef- ur skjótt skipazt á annan veg, og er nú þess eins að biðja, að máttarvöldin leggi líkn með þraut. Börn Kristjáns og Halldóru eru fjögur, öll uppkomin. Þau eru: Ólöf cand. mag., Þórarinn bókmenntafræðingur og skáld, Sigrún myndlistarmaður og Ingólfur stúd- ent. Við bekkjarsystkini Kristjáns og fjöl- skyldur okkar vottum frú Halldóru Éld- járn, börnum hennar og fjölskyldum þeirra sem og systkinum Kristjáns og fjöl- skyldum þeirra dýpstu samúð okkar. Að skilnaði þökkum við Kristjáni óbrigðula vináttu og hinar mörgu og ánægjulegu samverustundir með þeim hjónum fyrr og síðar. Við erum þess fullviss, að þjóðin mun öldum saman geyma minninguna um dr. Kristán Eldjárn, hinn mikilhæfa og ástsæla forseta sinn. Bjarni Vilhjálmsson Laugardaginn 28. ágúst bankaði ég uppá á Sóleyjargötunni til að ræða við Kristján um það sem ég var að gera og kveðja áður en ég héldi utan. Við höfðum mælt okkur þetta mót á fornleifafræðingaráðstefnunni á Laugarvatni viku áður. Þá vissi hvorugt okkar, að hann væri á förum til Ameríku í uppskurð þennan sama dag. Hann gaf sér samt tíma til að taia við mig og fræðast um þær rannsóknir sem ég var að stunda, og það endaði með því að ég lofaði honum grein í næsta hefti af Árbók fornleifafé- lagsins. Hann var ákaflega hress og gerði lítið úr þessum uppskurði. Lítið grunaði mig þá, að þetta yrði í síðasta sinn, sem ég ætti eftir að hitta hann á lífi. Kristján hefur verið ákaflega góður heim að sækja varðandi mín fræðistörf undanfarin ár. Hann vildi alltaf fylgjast með því sem ég var að gera, var áhugasam- ur og uppörvandi. Þetta var mér ómetan- legt, ekki síst þar sem ég hef undanfarið reynt að vinna að íslenskum verkefnum á erlendri grund. Fráfall Kristjáns, svo ótímabært og óvænt, kom sem reiðarslag, og er erfitt að sætta sig við það. Fornleifa- fræði á íslandi á eftir að sakna starfs- krafta hans sem vonir voru bundnar við um ókomin ár. Fjölskyldu hans votta ég innilega samúð mína. Guðrún Sveinbjarnardóttir, fornleifafræðingur. Nú þegar dr. Kristján Eldjárn fer af þessum heimi, sjá íslendingar ekki aðeins á bak þriðja forseta lýðveldisins, heldur og andans höfðingja í fremstu röð. Ég tek mér nú blað og penna í hönd til þess eins að kveðja dr. Kristján fáeinum vinarorð- um. Ég kynntist honum á seinni æviárum hans, og vel að ég hygg. Það var sannkall- að iífslán. Tryggð hans og elskusemi við mig og mína er fjársjóður sem ég bý að meðan ævin endist. Ég held ég rjúfi engan trúnað þótt ég láti vitnast, að dr. Kristján sendi mér „til gamans" eða „til athugunar" (eins og hon- um var tamt að orða það) ýmsar bragsmíð- ar úr fórum sínum, frumkveðnar og þýdd- ar. Þau blöð og margt fleira frá hans hendi geymi ég sem dýra dóma. Eitt sinn bárust mér tvö erindi með eftirmálsorðum. Þar segir meðal annars: „Vísurnar þær arna orti ég 17. mars 1978 af sérstöku tilefni." Önnur þeirra hljóðar svo: Það hallar degi og húmar að, þó held ég að mestu áttum, ég veit um bæinn á vísum stað og vona ég komist þar í hlað: ég held að ég nái háttum. Fyrir því gríp ég upp þessar línur, að mjög fáum mönnum hef ég kynnzt sem betur „héldu áttum" en höfundur þeirra, né vissu sem hann hvar „bæjarins" skyldi leita. Af þeim sökum var ómetanlegt að eiga hann að málvini og förunaut um hug- arins heima. Margsinnis komu þjóðskáldin okkar í tal, en ekkert þeirra oftar en Jónas. Hann er líka nær óþrotlegt umhugsunarefni. Héðan frá Innnesjunum kynntist hann fyrst Snæfellsjökli, skólapiltur á Bessa- stöðum. Og því Ieyfi ég mér að kveðja dr. Kristján Eldjárn með vísu sem Jónas orti ungur — og hafði fyrir innri sjónum jökul- inn fagra: Fyrr man inn ljósi af landtöngum fjallafoldar fósturjarðar vörður víkja en ég, vinur, þér hjartafólgnum úr hug sleppi. Hannes Pétursson

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.