Morgunblaðið - 23.09.1982, Page 23

Morgunblaðið - 23.09.1982, Page 23
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 23. SEPTEMBER 1982 23 og mun væntanlega verða svo enn um sinn og vitna um þessa kynslóð safnmanna á íslandi. Enn tala útlendingar, sem hér koma um það, hve safnið sé gott og vel fyrir komið. Kristján Eldjárn sameinaði vel tvo meg- inkosti safnmannsins, að gera safn sitt að- gengilegt almenningi til skoðunar og að færa út akurinn með nýjum rannsóknum. Hann var fornleifafræðingur að ástríðu og hafði hann valið sér sem lokaprófsverkefni við Háskóla íslands graffundi og grafsiði úr heiðni á íslandi. Var því eðlilegt, að hann vildi kanna það svið enn nánar og hann gerðist brátt afkastamikill rannsak- andi. Einkum átti fornöldin, landnámsöld- in og söguöldin, huga hans, og niðurstöður kumlarannsóknanna birtust síðar í dokt- orsriti hans, Kuml og haugfé úr heiðnum sið á íslandi. En rannsóknir hans og ritsmíðar um menningarsöguleg efni spönnuðu von bráðar yfir öll tímabil og velflest efni ís- lenzkrar menningarsögu. Rit hans, stór og smá, urðu með ólíkindum mörg og fjöl- breytt. Ná þau jfir rannsóknir allt frá fyrsta landnámi Islands til myntsláttu síð- ari tíma. Áhugi hans á menningarsögu var svo víðfeðmur, að honum voru öll svið hennar innan seilingar. Sama var, hvort hann ritaði um örnefni og örnefnasöfnun, hús og híbýli landsmanna í fornöld eða á síðari tímum, grafir fornmanna eða bisk- þekkingu er ævinlega erfiðast að glíma við. Þrátt fyrir sitt mikla starf í víngarði íslenzkrar menningarsögu var Kristján Eldjárn lífsgleðimaður, sem alltaf reyndi að gefa sér tíma til að taka þátt í vina- fagnaði þegar við átti. Vinahópur hans innan lands og utan var gríðarstór og hann naut þess að eiga samskipti við fólk. Þar var hann jafnan bæði veitandi og þiggjandi, gleðigjafi með sinni léttu kímni og sinni miklu þekkingu á fólki og atburð- um úr sögu lands og þjóðar. Framan af voru aðstæður á Þjóðminja- safninu aðrar en síðar varð, starfslið fá- mennara og enn minni fjárhagsleg úrræði og því sjaldan hægt að ráða aukafólk til ígripaverka. Þess vegna hlóðust hvers kon- ar dagleg störf og dagleg fyrirgreiðsla auk rannsóknanna á hið fámenna starfslið. Framan af var Kristján eini bílstjóri safnsins og því kom mjög á hann að fara eftirlits- og skoðunarferðir um landið, hyggja að ástandi gömlu bygginganna og sjá um viðgerðir, athuga um friðlýstar minjar og hvaðeina, sem markvert mátti telja, líta á eitt og annað, sem boð bárust um og ástæða var til að athuga og yfirleitt að bregða við þegar kallað var. Á ferðum sínum um landið kynntist hann þess vegna fjölda fólks og batt við það traust vináttu- bönd, sem hann bjó síðan að alla tíð. Mátti ég glöggt um það vita, því að óvíða kom ég arjafnvægi sínu. Og þó var hann fastur fyrir og ákveðinn í skoðunum. Honum gat sárnað ef honum fannst að ósekju vegið að góðum málstað eða mann hafðan fyrir rangri sök. Átti hann þá til að gera at- hugasemd við þann, sem orð hafði látið falla, en allt var það með hógværum ábendingum. Stóryrði vissi ég aldrei frá honum fara og hann var mjög varfærinn með að fella dóma um menn eða málefni, sem hann þekkti ekki sæmilega vel til. Flestum betur skildi hann mannlegar til- finningar, mannlegan breyskleika og mannlegt líf. Kristján var einstaklega þægilegur og skemmtilegur samstarfsmaður. Olli því glöggskyggni hans, mikil þekking, gam- ansemi og glatt viðmót. Það var sannkall- að ævintýri að ferðast með honum út um landið. Hann var hverjum manni fróðari um sögu lands og lýðs, athurði hvers hér- aðs og einstakra staða þekkti hann með ólíkindum vei og kunni að miðla fróðleik sínum þannig, að allir hlutu að tendrast af frásögninni. Margt bar á góma á ferðum okkar, sem urðu þó allt of fáar. Kannske var það hnittin vísa eftir bónda á þessum bæ, fornkuml sem fundizt hafði við veginn, góðir gripir í safninu úr þessari kirkjunni eða hinni, sérkennnilegt örnefni hér, og þarna sagði sagan, að fornhetjur hefðu barizt. Landið fékk líf við slíkar frásagnir. Árið 1968 hvarf Kristján Eldjárn frá títt, bjó í tjöldum eða í þrengslum á sveita- bæjum, og ekki setti hann fyrir sig, er hann kom í vikutíma sumarið 1966 austur í Hvítárholt og tók þátt í fornleifarann- sóknunum þar, þótt við svæfum ofan á heystabbanum í fjárhúsahlöðunni. Hafði enda okkur þekktara fólk í sögunni þurft að gista í gripahúsi. Kristján hefur sennilega búizt við, að á Bessastöðum fengi hann gott næði til að sinna hugðarefnum sínum, rannsóknum og skrifum um íslenzka menningarsögu, emb- ættisstörfin tækju vart þann tíma, að drjúgur hluti dagsins gæfist ekki til að koma því áleiðis, sem stopull tími á safn- _ inu hafði hindrað. En líklegast hefur sú raunin ekki orðið á svo sem hann vonaði. Forsetaembættið var oft á tíðum erilsamt og gerði miklar kröfur. Samt hélt Kristján mikilli tryggð við sinn gamla fræðaheim, sína gömlu kunningja utan lands og innan, fylgdist vel með því sem gerðist á sviði menningarsögunnar, las mikið og skrifaði greinar, langar og stuttar. Allan tímann var hann ritstjóri Árbókar fornleifafélags- ins, sem hann hafði sjálfur endurvakið eft- ir nokkurra ára dásvefn árið 1948, og skrifaði í hana fjöldann allan af greinum, sem sumar byggðu á víðtækum og erfiðum rannsóknum hans sjálfs. Á forsetaárum sínum gat hann þó enn sinnt fornleifa- rannsóknum að nokkru, fór nokkrum sinn- um austur í Papey til að rannsaka þær , Gengið frá Dómkirkju til Alþingishúss vid setningu Alþingis. upa miðalda, hagleiksverk útskurðar- manna eða málara, heildargildi fornra frásagna, gamla atvinnuhætti eða verk- menningu liðinna kynslóða, rústir og jarðfastar minjar, bókmenntir, skáldverk og kveðskap. Þekkingin var ótrúlega yfir- gripsmikil og djúpstæð, enda var hann víð- lesinn og minnið traust, skarpleikinn næmur til að skilja á milli hismis og kjarna og greina aðalatriði hvers máls frá aukaatriðum. Smekkvísi hans á mál og stíl var alkunn, yndi af skáldskap og meðfædd skáldgáfa gerðu hann enn næmari fyrir málauðgi og fegurð tungunnar, enda voru öll skrif hans felld í hagleiksumgerð ís- lenzkrar tungu. í skrifum sínum og rannsóknum var Kristján gagnrýninn, bæði á eigin hug- myndir og kenningar annarra. Sumt það, sem hann hafði sjálfur sett fram fyrr á tíð til skýringar ýmsum þáttum í íslenzkri menningu, efaðist hann síðar um, og þá var hann sjálfur oft fyrstur manna til að vekja athygli á því. Hann skýrði öðrum frá áliti sínu á hugmyndum þeirra skýrt og skorinort. Hann var mjög á verði gagnvart furðukenningum ýmiss konar, sem alls staðar skjóta upp kollinum og eru oft grundvallaðar á vanþekkingu eða dóm- greindarskorti, en oftast kaus hann að hliðra sér hjá að leggja opinberlega dóm á slíkar kenningar, vissi sem var, að það sem jaðrar við trúarbrögð frekar en byggt sé á svo á bæi eða heimili úti um land, að ekki væri spurt eftir Kristjáni, högum hans og viðfangsefnum. Fólk saknaði hans af safn- inu en fannst þó um leið, að ekki myndi annar betur skipa húsbóndasætið á Bessa- stöðum. Starfsdagur Kristjáns var oft langur. Ævinlega fór drjúgur hluti dagsins í störf, sem vinna þurfti á stofnuninni, bréfa- skriftir, afgreiðslu ýmislegra mála og hvaðeina, sem uppá kom. Ævinlega gafst þó einhver tími til rannsóknarstarfa. Þá voru kvöldin og helgarnar notuð vel og sagði hann mér eitt sinn, að laugardagarn- ir og sunnudagsmorgnarnir hefðu reynzt sér drýgstir til fræðistarfa. Hann notaði tíma sinn til hins ýtrasta og sat aldrei iðjulaus. Þar á ofan var hann einstaklega greið- vikinn og sinnti nær því hvers manns kvabbi. Állt var sjálfsagt, ef það var á annað borð unnt, hvort sem var að skrifa grein í rit eða inngang að bók, halda er- indi, hitta menn að máli eða taka þátt í umræðum. Og ekki linnti slíku þótt hann væri farinn að Bessastöðum. Þar sat enn hinn mannlegi þáttur í fyrirrúmi. Framantaldir eiginleikar eru meðal þeirra, sem gerðu manninn Kristján Eld- járn flestum öðrum fremri. En margt fleira kom til. Aldrei sá ég hann skipta skapi nema til glaðværðar. Aldrei vissi ég hann reiðast, hann var gætnari maður en svo, að hann léti stundleg atrik raska hug- Þjóðminjasafninu og tók við embætti for- seta íslands, kjörinn til þess af miklum meirihluta þjóðarinnar. Hann sóttist þó ekki eftir virðingarstöðum eða embættum að eigin frumkvæði. Er mér kunnugt um, að það var fyrir mikinn þrýsting hvar- vetna að sem hann lét til leiðast að fara í forsetaframboð. Um þetta leyti ræddum við oft saman og ýmsa hluti bar á góma, sem hann hefur kannske ekki sagt mörg- um öðrum. „Mig hefur í rauninni aldrei langað til að vera annað en bóndi norður í Svarfaðardal", sagði hann þá eitt sinn við mig. Tryggðinni við fæðingarsveitina var við brugðið. Henni hélt hann alla tíð og hina gömlu bændamenningu mat hann hvað mest. Hann kunni glögg skil á skepn- um, einkum sauðfé, og ég minnist þess, að einu sinni er við höfðum gist í Forna- hvammi á suðurleið beið hann þess, að Gunnar bóndi færi til gegninga til að geta farið með honum í húsin og skoðað sauð- féð. Kristján Eldjárn var lítill kröfugerðar- maður sjálfum sér til handa. Hann vildi helzt lifa einföldu hófsemdarlífi, eins og heiðarlegt sveitafólk var alið upp við, og sagt hefði hann getað eins og Hjálmar: „Hataði eg leti og óhóf allt“. Eðlilega urðu breytingar á lífsstíl hans er hann tók við embætti forseta íslands og fjölskyldan fluttist til Bessastaða. En fyrr á árum vann hann oft við frumstæð skilyrði við fornleifarannsóknir sínar eins og þá var fornar minjar, sem í eynni var að finna og von var til að gæfu einhverja vitneskju um tilvist Papanna hinna fornu. Hann skoðaði vandlega hvers kyns fornar minjar á Reykjanesskaga og skrifaði skýrslur um þær. Hingað í Þjóðminjasafnið kom hann all- oft til að leita sér fanga, skoða gripi sem tengdust rannsóknum hans í það og það skiptið, ræða um greinar í Árbókina, eða aðeins til að halda uppi kynnum við gamla samstarfsmenn og kynnast því nýja fólki, sem komið hafði á stofnunina eftir að hann fór. Hins vegar skipti hann sér í engu af daglegum rekstri safnsins eftir að hann fór þaðan, en fylgdist þó vel með öllu því, sem verið var að starfa hina og þessa stundina og var ævinlega reiðubúinn að veita ráð og liðsinni í hverju máli. Þurfti ég oft að leita til hans og fá ráð og leið- beiningar, einkum fyrst í stað eftir að ég settist í sæti hans hér, og ævinlega greiddi hann úr hverjum þeim vanda, sem til hans var leitað með. Alla þá hjálp og liðsemd, sem hann veitti mér, sem þá tók við emb- ætti hans og ýmsum hlutum þar lítt kunn- ugur, fæ ég seint fullþakkað. Þeir, sem bezt þekktu Kristján Eldjárn vissu, að hin síðari árin var hann ekki heilsusterkur, en hitt grunaði víst fæsta, að heilsubilun hans væri svo alvarleg, sem raun varð á. Mig grunar, að hann hafi oft

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.