Morgunblaðið - 23.09.1982, Qupperneq 24

Morgunblaðið - 23.09.1982, Qupperneq 24
24 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 23. SEPTEMBER 1982 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 23. SEPTEMBER 1982 25 pínruiu Útgefandi hf. Árvakur, Reykjavík. Framkvæmdastjóri Haraldur Sveinsson. Ritstjórar Matthías Johannessen, Styrmir Gunnarsson. Fulltrúar ritstjóra Þorbjörn Guömundsson, Björn Jóhannsson. Fréttastjórar Freysteinn Jóhannsson, Magnús Finnsson, Sigtryggur Sigtryggsson. Auglýsingastjóri Baldvin Jónsson. Ritstjórn og skrifstofur: Aöalstræti 6, sími 10100. Auglýsingar: Aö- alstræti 6, sími 22480. Afgreiösla: Skeifunni 19, sími 83033. Áskrift- argjald 130 kr. á mánuöi innanlands. i lausasölu 10 kr. eintakið. Kristján Eldjárn Hluttekninjíin sem þjóðin öll sýndi þegar fréttin barst um andlát Kristjáns Eldjárns, fyrrum forseta íslands, staðfesti það sem hann ávann sér í lifanda lífi: að vera ástsæll þjóðhöfðingi. Hann sinnti fornleifafræðum af mikilli kunnáttu og áhuga, var afkastamikill rithöfundur í fræðigrein sinni og skáld gott. Krist- ján Eldjárn var með stuttum aðdraganda kjörinn til æðsta emb- ættis þjóðarinnar. Hugur hans sjálfs stóð til annars. Hann sóttist hvorki eftir völdum né frama, heldur varð við óskum annarra þegar til hans var leitað. Kristján Eldjárn lét og af störfum forseta til að helga sig fjölskyldu sinni og hugðarefnum óbundinn af opinberum skyldustörfum áður en elli eða sjúkdómar sviptu hann lífsþrótti. En enginn má sköpum renna. Nú er Kristján Eldjárn allur, langt um aldur fram. Kristján Eldjárn var kjörinn forseti íslands á umbrota- og erfiðleikatímum. Vorið 1968 var einkennilegt ástand í lýðræðis- ríkjum Norðurálfu, innviðir Frakklands skulfu, háskólastúdentar settu fram gagnrýn sjónarmið um stjórn eigin þjóðfélaga. Menn vildu ekki sætta sig við óbreytt ástand og kröfðust endurmats á mörgu því sem áður þótti sjálfsagt og eðlilegt. Glæsilegur meiri- hluti Kristjáns Eldjárns í forsetakosningunum hefur af ýmsum verið skýrður með vísan til þessa ástands. Sú skýring er ekki einhlít. Kristján Eldjárn var síður en svo byltingamaður. Hann stóð föstum fótum í fortíðinni og sótti afl sitt í íslenska sögu og menningu. Var á sinn hátt dæmigerður oddviti þeirrar kynslóðar á þessari öld sem sameinar fortíð og nútíð, tengir tæknivætt velferð- arþjóðfélag nútímans við fábreytta erfiðistíma fyrri alda. Honum var einstaklega vel lagið að nota áhrifamesta miðil samtímans til að kynna rótgróna bændamenningu og fornan arf. Fyrir tilstilli sjónvarpsins hreif hann sem þjóðminjavörður hug og hjörtu landsmanna, af honum stafaði í senn vinsemd og virðuleiki. Eðlis- kostir sem auðvelduðu honum að takast á við gjörbreytt við- fangsefni á forsetastóli. Þegar Kristján Eldjárn varð forseti hafði ríkt óvenjuleg festa í íslenskum stjórnmálum síðan viðreisnarstjórnin var mynduð 1959. Sumarið 1970 urðu þáttaskil við fráfall Bjarna Benediktssonar, forsætisráðherra, í hinum sviplega eldsvoða á Þingvöllum. 1971 náðu vinstri flokkarnir því langþráða marki að loknum kosningum að geta myndað ríkisstjórn án samvinnu við Sjálfstæðisflokk og Alþýðuflokk, viðreisnarflokkanna. Þar með hófst rótleysisskeið í stjórnmálalífinu sem varir enn. Á forsetaferli Kristjáns Eldjárns sátu 35 menn í ríkisstjórn og þar af voru 6 forsætisráðherrar, frá 1971 sat aðeins ein ríkisstjórn allt kjörtímabilið, ríkisstjórn Geirs Hallgrímssonar, 1974—’78. Við stjórnarmyndanir reyndi mikið á Kristján Eldjárn, ekki síst sumarið 1978, haustið 1979 og um áramótin 1979/80. Hann fylgdi þeirri meginreglu að gera hvorki upp á milli flokka né manna, auk þess sem hann lagði á það höfuðkapp að myndaðar væru ríkisstjórnir er nytu stuðnings meirihluta á Alþingi. Hlutleysi, hógværð og virðing fyrir þingræðisreglunni réðu gjörðum hans á þessum úrslitastundum. Er unnt að krefjast annars af þeim manni sem skipar embætti forseta íslands? Sjálfur vék Kristján Eldjárn að því, er hann kvaddi alþingismenn vorið 1980, að menn ræddu hversu til hefði tekist um aðdraganda og framvindu þeirra tiltölulega mörgu stjórnarmyndunarvið- ræðna, sem orðið hefðu í hans tíð og sagði síðan: „Vafasöm hátt- vísi væri það af minni hálfu að fara mörgum orðum um slíkt. Vel fer á að forseti sé opinskátt þakklátur fyrir viðurkenningarorð, ef eitthvað þykir hafa vel tekist, en hins vegar hafi hann sem fæst orð um ef á kreik kemst einhver slæðingur sem til gagnrýni mætti meta.“ Og síðar í þingslitaræðunni bætti hann við: „Eg er forsjón- inni þakklátur fyrir að geta skilist við embætti forseta íslands í friði við samvisku míns sjálfs.“ Kristján Eldjárn treysti tiltrú þjóðarinnar til forsetaembættis- ins. Störf þeirra Kristjáns og Halldóru Eldjárns nutu virðingar þjóðarinnar. Þau féllu ekki í þá freistni að láta stjórnast af siða- reglunum sem svo háum embættum fylgja, höfðinglegt látleysi einkenndi 12 ára dvöl þeirra á Bessastöðum og fylgdi þeim á ferðum jafnt innan lands sem utan. Einlægni Kristjáns Eldjárns og hlýja braut af sér allar formlegar viðjar, hann var sannur þjóðhöfðingi. Á stórum stundum í þjóðlífinu jafnt í sorg og gleði lét Kristján Eldjárn til sín taka með sæmd. Þannig er hans minnst á hinstu stundu. Morgunblaðið flytur fjölskyldu hins látna forseta samúðarkveðju. Blessuð sé minning hans. Frá opinberri heimsókn Karls Gúsíafs Svíakonungs hingað til lands. gengið þreyttur til hvílu eftir langan og strangan vinnudag, þar sem þurfti að sinna embættisskyldum dagsins, undirbúa verkefni morgundagsins og þar á ofan finna smástundir inn á milli fyrir hugðar- efnin. Margir glöddust því er hann ákvað að taka sér hvíld frá opinberum störfum er þriðja kjörtímabil hans sem forseti rann út. Nú vonuðum við, að hann gæti átt i vændum nokkur góð ár, unnið áhyggju- laust að því að ganga frá og koma á prent ýmsum þeim merku rannsóknum, sem hann hafði verið að vinna að og átti hálf- karaðar. Má þar nefna Skálholtsrannsókn- irnar, rannsóknirnar í Papey, bókina um Arngrím málara og fjöldamargt annað, sem tíminn hafði ekki leyft að lokið yrði. Þá bauðst honum persónuleg prófessors- staða við Háskólann, sem heimilaði honum að halda fyrirlestra um menningarsögu. Til þess hugsuðu margir gott, því að Kristján var snjall kennari og mikill fræð- ari, og sjálfur mun hann hafa hugsað sér að sinna þessu verkefni nokkuð eftir því sem tíminn gæfist. Hann vildi losa sig sem mest við önnur verkefni en hin fræðilegu, þannig svipaðist hann um eftir nýjum rit- stjóra Árbókar fornleifafélagsins, sem gæti tekið þann launþunga bagga af sér. Heimilið, sem þau Halldóra höfðu búið sér á Sóleyjargötunni, var fallegt, smekk- legt og nú ríkti ró yfir tindum. Þar var gott og friðsælt fræðaafdrep, hið mikla og góða bókasafn var við höndina og stutt að fara upp í Þjóðminjasafn eða hin söfnin til að kanna aðrar bækur og heimildir. En skyndilega var ævi Kristjáns öll. Is- lenzkir safnmenn misstu í þeirri skjótu svipan ekki aðeins einstæðan samstarfs- mann heldur og góðan vin, hver og einn. Þjóðminjasafn íslands sér á bak einum sinna beztu forvígismanna alla tíð, þeim manni, sem ég veit að hvað lengst verði minnzt hér á safninu þá stundir líða fram. íslenzka þjóðin missti einn sinn bezta son, sem ævinlega kom fram af virðingu, festu og drengskap og var fyrirmynd að mann- legum eiginleikum. En mestur er þó harm- ur hinna nánustu skyldmenna, Halldóru konu hans og barna þeirra, og margur hef- ur hugsað til dótturinnar, Ólafar, sem fór með föður sínum vestur um haf og var hjá honum er yfir lauk. Daginn eftir að lát Kristjáns spurðist var komið til mín með gamla rúmfjöl með versi, „tréskáldskap", eins og Kristján kallaði stundum slíkar útskurðarvísur, sem frekar voru ortar af vilja en mætti. Má vera, að þetta vers sé þekkt annars staðar, en mér fannst það koma eins og kveðja frá gengnu kynslóðunum í landinu til þess manns, sem náði kannske betur sambandi við þær en flestir menn aðrir: Veittu mér Drottinn vernd og ró, vek mig í réttan tíma þó, líkaminn sofi sæll sem hér, sálin í náðum vaki í þér. Þór Magnússon Hér skal þess minnzt, hvert lið dr. Kristján Eldjárn lagði einum þætti ís- lenzkra þjóðfræða: örnefnasöfnun og ör- nefnarannsóknum. Eftir að dr. Kristján tók við embætti þjóðminjavarðar 1947, hélt hann áfram því örnefnasöfnunarstarfi, sem fyrirrenn- ari hans, Matthías Þórðarson, hafði hafið á vegum Hins íslenzka fornleifafélags. Á hverju sumri voru menn styrktir til að skrá örnefni á tilteknum svæðum, og með því starfi var lagður grundvöllur að því íslenzka örnefnasafni, sem nú er til. Þó að umsjón með örnefnasöfnun væri að sjálfsögðu lítill hluti hins víða verk- sviðs þjóðminjavarðar, gaf dr. Kristján Eldjárn sér sjálfur tíma til að leggja hönd á plóginn. Hann samdi og gaf út Nokkrar leiðbeiningar um örnefnasöfnun, skráði sjálfur örnefni í átthögum sínum í Svarf- aðardal og víðar og endurskoðaði margar eldri örnefnaskrár. Meðan hann gegndi embætti forseta Islands, samdi hann m.a. ritgerðina Örnefni og minjar í landi Bessastaða á Álftanesi, sem birtist í Ár- bók Hins íslenzka fornleifafélags 1981, síð- asta árgangi Árbókarinnar, sem hann rit- stýrði. Auk þess samdi dr. Kristján Eld- járn nokkrar merkar ritgerðir um örnefni og staðfræði, sem birtar voru í Árbók Hins íslenzka fornleifafélags og fleiri ritum. Dr. Kristján Eldjárn var formaður ör- nefnanefndar 1959—68, en sú nefnd er ráðgjafarnefnd stjórnvalda um örnefna- mál, m.a. nýnefni. Árið 1962 tók dr. Kristján Eldjárn sæti í Alþjóðlegu nafnfræðinefndinni (ICOS) og var kjörinn heiðursmeðlimur nefndarinn- ar árið 1969. Engan islenzkan fræðimann, sem ég hef kynnzt, vissi ég hugleiða íslenzk örnefni jafnopnum huga né skilja eðli þessa sér- stæða þáttar íslenzks menningararfs jafn- glöggum skilningi. Að því stuðlaði óvenju- víðfeðm þekking hans á landi, tungu og sögu þjóðarinnar, ekki sízt menningar- sögu, ásamt víðsýni og hleypidómaleysi, sem var aðalsmerki fræðimannsins dr. Kristjáns Eldjárn. Þórhallur Vilmundarson, forstöðumaður Örnefnastofnunar Þjóðminjasafns. Kveðja frá Félagi íslenskra fræða I dag kveðjum við einn okkar virtasta og virkasta félaga. Fyrir okkur var hann ekki aðeins ástsæll forseti og dyggur embættis- maður heldur miklu fremur framúrskar; andi fræðimaður og skemmtilegur félagi. í félagi okkar eru margar kynslóðir og Kristján Eldjárn var þeim öllum mikils virði hverri á sinn hátt. Þeim eldri var hann skólafélagi og starfsbróðir, hrókur alls fagnaðar á góðri stund, úrræðagóður og glöggur fræðimaður sem gott var að leita til. Hinum yngri var hann leiðarljós í fræðimennsku og uppspretta fróðleiks og skemmtunar hvenær sem hann tók til máls á fundum. Það vakti í raun furðu margra hve oft honum tókst frá önnum embættis forseta Islands að sækja sam- komur félagsins okkar og þegar Kristján var mættur til leiks þá var víst að ekki skorti hnyttnar athugasemdir og fjörugar umræður. Dr. Kristján Eldjárn lauk magisters- prófi í íslenskum fræðum frá Háskóla ís- lands 1944, var einn af stofnendum Félags íslenskra fræða árið 1946 og fulltrúi þess í Vísindasjóði í mörg ár. Hann bar hag fé- lagsins ávallt fyrir brjósti og sýndi það eftirminnilega í verki á 25 ára afmæli fé- lagsins sem félagsmönnum er í fersku minni. Störf hans í þágu íslenskra fræða voru umfangsmikil og hugur hans stóð til að helga sig þeim enn meir þegar erilsöm- um embættisstörfum var lokið. Um leið og við kveðjum mætan félaga og góðan dreng vottum við frú Halldóru og öðrum aðstandendum innilega samúð okkar. Þeirra er söknuðurinn mestur. Við þökkum hins vegar marga góða stund á liðnum árum. Það var ekki laust við, að tilfinningar safnfólksins væru nokkuð á reiki, þegar Kristján Eldjárn var kjörinn forseti og hvarf úr embætti þjóðminjavarðar. Að sjálfsögðu samfögnuðum við þjóðinni að hafa eignast höfðingja, sem við vissum af reynslu, að vart gat betri fundist. Á hinn bóginn þótti okkur skarð fyrir skildi að sjá á bak yfirmanni, sem með þekkingu sinni, árvekni, áhuga, lipurð og þægilegu viðmóti kom öllum samstarfsmönnum sín- um til nokkurs þroska. Því fór fjarri, að Kristján gleymdi okkur, þótt hann héldi hefðar upp á tind. Honum virtist jafnvel hollt að hafa þar ból, andstætt orðum skáldsins. Bæði vegna vísindastarfa sinna og ritstjórnar á Árbók fornleifaféiagsins, en ekki síst sakir sívak- andi áhuga á málefnum Þjóðminja- safnsins, var hann tíður aufúsugestur á sínum gamla vinnustað. Gerði hann sér þá jafnan far um að kynnast því, hvernig hverjum og einum vegnaði á sínu sérsviði og hvatti menn og örvaði á ýmsa lund. Átti það jafnt við um nýliða sem gamalgróna starfsmenn. Einnig tyllti hann sér oft og drakk kaffisopann með okkur og spjallaði um dægurmálin ellegar heilsaði upp á gæslukonurnar til að fylgjast með hag þeirra og líðan. Hinn 8. september sendi hann okkur póstkort frá sjúkrahúsinu vestra. Hann vonaðist þá til að ná fullri heilsu og bjóst við að hverfa heim eftir hálfan mánuð. Sex dögum síðar var hann allur. Með söknuði kveðjum við Kristján Eldjárn, ágætan mann og vin. Aðstandendum hans öllum færum við innilegar samúðarkveðiur. Starfsfólk Þjóöminjasafns Islands Árið 1948 gekk Kristján Eldjárn, sem þá var nýorðinn þjóðminjavörður, í það af sínum alkunna dugnaði að endurvekja Árbók hins íslenzka fornleifafélags, sem þá hafði ekki komið út síðan 1942. Verð- bólga stríðsáranna og hvers kyns erfiðleik- ar, sem af henni spruttu, höfðu valdið því, að menn gáfust upp á útgáfu Árbókar. Kristján sá, að ekki mætti við annað una en að Árbókin kæmi út á ný, minjafræðin yrði að eiga sér málgagn, ef safnstörf og rannsóknir ættu að bera einhvern árangur og þeir, sem að menningarsögulegum rannsóknum ynnu, þyrftu vettvang fyrir ritsmíðar sínar á því sérsviði. Árið 1949 kom svo Árbók út að nýju fyrir sex ára tímabil. Var Kristján þá rit- stjóri hennar og var það alla tíð síðan. Skrifaði hann sjálfur mest í ritið upp frá þessu, birti þar rannsóknarskýrslur sínar, greinar um athuganir á forngripum og minjum, fróðleiksgreinar af ýmsu tagi svo og skrár og skýrslur. Hvatti hann aðra til að skrifa í Árbók og varð mjög vel ágengt um greinar til hennar. Varð hún skjótt undir ritstjórn hans merkilegt rit, sem átti erindi til innlendra og erlendra fræði- manna, en þó ekki sízt til almennings hér á landi, enda var Kristjáni sjálfum létt um að skrifa þannig, að ljóst væri lærðum og leikum. Kristján Eldjárn var skrifari fornleifa- félagsins frá 1945 og allt til þess að hann var kjörinn formaður þess árið 1979. Má segja, að á honum hvíldi tilvera félagsins og útgáfa Árbókar, en einnig flutti hann oft erindi á aðalfundum félagsins um rannsóknir sínar og athuganir. Að leiðarlokum vill stjórn Hins íslenzka fornleifafélags færa dr. Kristjáni Eldjárn þakkir fyrir störf hans í þágu félagsins og Árbókar þess. Hann hóf merkið á loft er aðrir höfðu gengið frá, ótrauður að leggja á sig erfiðleika og fyrirhöfn, sem engin laun komu þó fyrir nema þau, sem fræði- manninum verða þó oft drýgst, ánægjan yfir vel unnu verki og vitundin um að hafa orðið íslenzkum fræðum að liði. Stjórn Hins íslenzka fornleifafélags. AF ERLENDUM VETTVANGI eftir SVEIN SIGURÐSSON Þáttaskil í vestur-þýskum stjórnmálum: Frjálsir demókratar veðja á nýjan hest Mikil umskipti eru að verða í vestur-þýskum stjórnmálum. Stjórnars- amstarfi jafnaðarmanna og frjálsra demókrata, sem staðið hefur í 13 ár, er lokið og eins og nú horfir er allt útlit fyrir að kristilegir demókratar og frjálsir demókratar nái höndum saman um myndun nýrrar stjórnar. Þessi tíðindi koma að vísu ekki alveg á óvart. f heilt ár hefur verið mikill ágrciningur innan stjórnarinnar og auk þess hefur Helmut Nchmidt kanslari átt fullt í fangi með að hafa hemil á óánægju og sundurlyndi innan síns eigin flokks. Það var þó í kjölfar róttækra niðurskurðartil- lagna frá Otto Lambsdorff, efnahagsmálaráðherra stjórnarinnar úr flokki frjálsra demókrata, sem stjórnin sprakk enda mun það einmitt hafa verið tilgangurinn með þeim. Ikosningum í október 1980 unnu stjórnarflokkarnir góð- an sigur og höfðu að þeim lokn- um 45 sæta meirihluta á þingi. Schmidt gerði það strax lýðum ljóst, að hann vonaðist til, að aukin áhrif frjálsra demókrata í stjórninni gætu orðið mótvægi við ókyrrð vinstrisinna í hans eigin flokki, Jafnaðarmanna- flokknum, en í því efni reyndist hann ekki sannspár. Ókyrrðin innan flokks kansl- arans fór stöðugt vaxandi og einkum andstaðan við eindreg- inn stuðning hans við Nato, markaðshyggjuna og, síðast en ekki síst, þá stefnu kanslarans og flokksins að fylgja eftir ákvörðun Nato um að koma fyrir nýjum bandarískum flugskeyt- um í Vestur-Evrópu árið 1983 sem andsvar við SS-20-flug- skeytum Sovétmanna. Friðarhreyfingin vestur- þýska, sem aðallega hefur beint spjótum sínum að bandarísku flugskeytunum, hefur einnig valdið mikilli sundrungu meðal jafnaðarmanna. í apríl sl. hótaði Schmidt því t.d. að segja af sér ef flokkurinn hætti stuðningi sínum við ákvarðanir Nato en þá var komist að þeirri málamiðlun að bíða með endanlegar sam- þykktir þar til ljóst væri hvernig afvopnunarviðræðum Banda- ríkjamanna og Rússa í Genf reiddi af. Þessi ágreiningur innan Jafn- aðarmannaflokksins hefur dreg- ið mjög úr tiltrú Þjóðverja á flokknum og ríkisstjórninni en fall stjórnarinnar nú verður þó ekki rakið beint til hans. Þar er fyrst og fremst um að kenna samdrættinum í efnahagslífinu, sem hefur skerpt mjög hug- myndafræðilegar andstæður milli samstarfsflokkanna. Þegar Willy Brandt, fyrrum kanslari, og Walter Scheel, þá- verandi leiðtogi frjálsra demó- krata, héldu um stjórnartaum- ana snemma á síðasta áratug, bar ekki mikið á sögulegum skoðanamun milli flokkanna. Þá nutu Vestur-Þjóðverjar ennþá ávaxtanna af „efnahagsundrinu" frá sjötta áratugnum og nægt fé var til í ríkiskassanum til að fjármagna aukna velferð og áætla fyrirtækjunum nokkurn arð líka. Þegar Bandaríkjamenn neyddust til að draga úr fram- lögum sínum til hermála, þá juku Vestur-Þjóðverjar sín og þeir öxluðu einnig þyngstu byrð- arnar af útgjöldum Þeir komu fram með „austurstefnuna", um bætt samskipti austurs og vest- urs, og ruddu brautina fyrir fulla þátttöku Vestur-Þjóðverja í Sameinuðu þjóðunum. Helmut Schmidt tók við af Brandt 1974, í miðri olíukrepp- unni, og þótt hún tæki sinn toll af auðlegðinni tókst Schmidt að stýra hjá stærstu skerjunum með bættum samskiptum við Arabaþjóðirnar og með því að renna fleiri stoðum undir orkuöflunina. Sú kreppa, sem nú herjar, er hins vegar miklu al- varlegri. Tölur, sem birtar voru í sl. viku, sýna, að í Vestur- Þýskalandi hefur enginn hag- vöxtur verið síðan á síðari helm- ingi ársins 1980. Á síðasta ári jókst atvinnu- leysið í Vestur-Þýskalandi um Helmut Schmidt kanslari Vestur- Þýskalands síðustu átta ár. 49% er nú 7,5% eða 1,8 milljónir manna. Þetta er að vísu minna en í Bretlandi en Þjóðverjar, sem enn minnast verðbólgunnar á dögum Weimar-lýðveldisins og erfiðleika eftirstríðsáranna, líta þróunina mjög alvarlegum aug- um. Af þessum sökum hefur sam- búðin milli stjórnarflokkanna gerst æ erfiðari og í fyrra sló í mikla brýnu með þeim út af fjár- lagagerðinni fyrir þetta ár. Frjálsir demókratar hafa líka þurft að hafa áhyggjur af fleiru en efnahagsmálunum. í kosning- unum 1980 nutu þeir vinsælda kanslarans og fengu 10,6% at- kvæða en samkvæmt síðustu skoðanakönnunum eru þeir nú alveg við 5%-markið, sem þarf til að fá fulltrúa á þing. Kristi- legir demókratar og bræðra- flokkur þeirra í Bæjaralandi eiga hins vegar vaxandi vinsæld- um að fagna og það er á þessari hægrisveiflu, sem frjálsir demó- kratar vilja halda sér á floti í næstu kosningum. I síðustu viku lagði Otto Lambsdorff, efnahagsmálaráð- herra, fram tillögur frjálsra demókrata til lausnar efna- hagsvandanum þar sem kveðið var á um verulegan niðurskurð á útgjöldum til félagsmála. Á þær tillögur gátu jafnaðarmenn ekki fallist og Schmidt sá að frekari tilraunir til málamiðlunar voru til einskis. Stjórnarsamstarfinu var lokið og ráðherrar Frjálsa demókrataflokksins sögðu sig úr stjórninni sl. föstudag. Frjálsir demókratar hafa nú tekið höndum saman við stjórn- arandstöðu um myndun nýrrar stjórnar og stefna að kosningum á vori komanda. Fátt virðist geta komið í veg fyrir að Kristilegi demókrataflokkurinn og flokkur Strauss, Kristilega sósíalsam- bandið, myndi nýja stjórn að þeim loknum, jafnvel einir sér Helmut Kohl kanslaraefni kristi- legra demókrata. en allavega með stuðning hins nýja bandamanns þeirra, frjálsra demókrata. Almennt er búist við veru- legum breytingum á stjórnar- stefnunni í kjölfar stjórnar- skiptanna, jafnt i utanríkismál- um sem innanríkismálum. Stuðningur stjórnarinnar við Nato og Bandaríkin mun aukast en margir óttast, að afstaða Helmut Kohl, kanslaraefnis kristilegra demókrata, muni ekki verða sú hreinskilna gagn- rýni, sem Helmut Schmidt hefur getið sér orð fyrir. í annan stað verða útgjöld til félagsmála skorin niður. Um þetta ber flest- um saman en hitt er líka Ijóst, að í glímunni við raunveruleg vandamál eru úrræðin hver öðr- um lík hvað sem hugsjónunum líður. (Heimildir: AP, Time, Newsweek.)

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.