Morgunblaðið - 23.09.1982, Síða 45

Morgunblaðið - 23.09.1982, Síða 45
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 23. SEPTEMBER 1982 45 VÉl^akandi SVARAR í SÍMA 10100 KL. 10—12 FRÁ MÁNUDEGI Þessir hringdu ... 7 *»* m? Eigum í þessum erfiðleikum á hverjum degi Inga Einarsdóttir hringdi og hafði eftirfarandi að segja: „Ég hef nú áður látið í mér heyra um strætisvagnaferðirnar héðan úr Breiðholti niður á Kleppsveg og í Elliðavog. Ég vinn á Kleppsspít- ala, er sjúkraliði þar, og ég er þrjú korter að komast í vinnuna. Bíl- arnir fara í ótal króka, m.a. undir brúna við Neðra-Nesti. Strákurinn minn vinnur í Súðarvogi, og það er ekki einu sinni að það sé hægt að stoppa þar nærri, heldur krækir vagninn upp á Miklubraut. Ég verð að fara með þessum vagni alla leið niður á Grensásstöð og bíða þar eftir leið 9. Hún er kannski farin og þá þarf ég að bíða í korter eða tuttugu mínútur, og er þar með orðin of sein í vinn- una. Þetta er erfitt fyrir mann. Ég er margbúin að skrifa um þetta og hef fengið það svar hjá SVR að þetta standi til bóta, en það er nú orðið upp undir ár síðan það svar fékkst, og ekki bólar á efndum. Jæja, nú kemur leið 9 loksins og með henni kemst ég niður á Lang- holtsveg, en ekki lengra. Og það er nú svolítill spotti frá Langholts- vegi og inn að Kleppsspítala, sem maður þarf að ganga í hvernig veðri sem er. Þarna eru tvö sjúkrahús og Hrafnista á þessari leið og verksmiðjur alla leið frá Efra-Nesti og niður að Skúlagötu. Það stendur ekkert á því að maður sé rukkaður um skatta og skyldur, en mér finnst þetta slæleg þjón- usta við stærsta byggðakjarnann í Reykjavík að geta ekki séð okkur fyrir viðunandi samgöngum í vinnuna. Er það til of mikils mælst? Það eru margar hjúkrun- arkonur og annað starfsfólk sem með mér vinnur sem á í þessum erfiðleikum á hverjum einasta degi. Það hefur verið lofað öllu fögru, en eins og ég sagði áðan hefur farið minna fyrir efndunum. Hvad líöur leikskóla við Boðagranda? 9681—6340 hringdi og hafði eft- irfarandi að segja: „Snemma í sl. viku birtist í dálkum þínum pistill eftir „Baldur" og fjallaði hann um aðstöðuleysi unglinga í Vestur- bænum. Um leið og ég tek undir það sem í pistli þessum stendur þá læt ég í ljós von um að einhver viðbrögð fáist af opinberri hálfu. Ég hef ekki séð nein merki þess enn, en fylgist grannt með því sem kann að gerast í þeim efnum. Jafnframt langar mig til að fá vitneskju um hvað líður leikskóla þeim sem fyrirhugað er að rísi við Boðagranda. Það er mikilvægt fyrir okkur sem búum hér vestur frá í ört vaxandi byggð að fá svar við þessu, svo og að sjá svör borg- ryfirvalda við fyrirspurn „Bald- urs“ í fyrrnefndum pistli. Góðu mennirnir Tjaldur skrifar: „Velvakandi. Þegar ég var stráklingur, las ég í einhverju tímariti smásögu sem hét „Góði maðurinn" og var eftir Carl Ewald. Þar segir frá manni sem var svo góður að hann stein- hætti að borða kjöt og fisk, þar sem neysla þeirrar fæðu byggðist á drápi lífvera. Hann gerðist því grænmetisæta. En ekki leið á löngu þangað til honum varð ljóst, að grænmeti og korn höfðu líka verið lífverur sem þurfti að drepa til þess að gera þær að fæðu. Og út fyrir húsdyrnar mátti hann að lokum ekki fara, því þá gat hann stigið ofan á lífverur og meitt þær H.F. eða G.T.: Hver er munurinn? Gráni skrifar: „Heyra má og sjá í ríkis- fjölmiðlunum og í blöðunum augl. frá tryggingafélagi Sam- bands íslenskra samvinnufé- laga, að félagið kennir sig ekki lengur við SÍS og starfsemi þess, heldur hefur fyrirtækið tekið upp aðra skammstöfun Samvinnutryggingar G.T. Nú langar mig að spyrja ríkisfyrirtækið, sem sett var á laggirnar á sínum tíma til að hafa eftirlit með trygginga- starfsemi. Hvað táknar G.T.? Og hvaða munur er á því fyrir þann sem þarf að tryggja, hvort hann tryggir hjá vá- tryggingafélagi H.F. eða hjá samvinnutryggingafélagi G.T.?“ eða drepið, bæði grös og skorkvik- indi. Hvernig þessum þrengingum góða mannsins lauk man ég ekki, en sennilega hefur hann soltið til bana ef ekki hefur borið að garði einhvern heilvita mann sem hefur fengið hann ofan af þessari vit- leysu. Þessi saga rifjaðist upp fyrir mér í síðastliðinni viku þegar við mér blöstu feitletraðar fyrirsagnir í einu dagblaðanna, þar sem nátt- úruverndarmenn og líffræðingar lýstu hneykslun sinni yfir því að menn væru með athöfnum sínum að eyðileggja hótel farfugla á leir- um og í fjörum og sérlega verði fuglar og smádýr flæmd burtu með fyrirhuguðum framkvæmd- um í Grafarvogi. Nú skal ég taka það fram að fuglar hafa ævinlega verið mér til mikils yndis og vil ég síst af öllu styggja þá að óþörfu. Smápöddur og ormar hafa hinsvegar aldrei snortið hjarta mitt að neinu ráði, þótt ég vilji ekki heldur angra þessi litlu sköpunarverk Guðs ef hjá því verður komist. En að menn megi ekki athafna sig í fjörum og ekki byggja þar né búa, af því að þá verði fuglar fyrir ónæði, það er mínu heilabúi alveg ofvaxið. Telja menn í raun og veru, að ef hagsmunir manna og fugla rekist á, þá sé mönnunum skylt að láta í minni pokann? Og í annan stað, ég hef hingað til hald- ið að hin langa strandlengja ís- lands geti varla verið svo þéttsetin þessum kærkomnu sumargestum að þeir, sem annars mundu leita sér hvíldar og ætis í nágrenni Reykjavíkur, fyndu sér engan án- ingarstað ef þess væri farið á leit við þá að þeir flyttu sig um set úr Grafarvogi. Allt getur farið út í öfgar eins og dæmin sanna, en þetta við- kvæmniskast náttúruverndar- manna út af því að menn séu að flæma burtu fugla og marflær úr sinni eigin fjöru, finnst mér það kyndugasta sem hér hefur skeð síðan kvenskörungar fengu því framgengt um árið að bændum væri bannað með lögum að aug- lýsa eftir ráðskonu." 53= SlGeA V/öGÁ £ A/LVE&4U . Mlfc A „ mw, 6mioZí W'* —s/Xte ÓLtiMQl n SFtiA) y !_ \UMmN VF/ff UOZy > ^ ÍJ'KyRÓNA Ú6. TOLVUNAMSKEIÐ FYRIR RÖRN 9—16 ÁRA Námskeiðið er hvort tveggja í senn nám og leikur. Á daginn læra börnin grundvallaratriöi forritunar- málsins BASIC og geta aö loknu námskeiöi skrifaö einföld forrit. Meö aöstoö litskyggna er þeim kynnt bygging og eiginleikar tölva og tölvukerfa. Á kvöldin eru leik- og æfingatímar. Börnin fá viöurkenningarskjal aö loknu námskeiöi. Námskeiöiö stendur yfir í 2 vikur, annan hvern dag, 2 tíma í senn, auk frjálsra tíma aö kvöldinu. Viö kennsluna eru notaöar vandaðar einkatölvur frá ATARI meö lit og hljóöi. TÖLVUSKDLINN SMpholti l Simi 2 5400 Alltaf á fóstud.ögum OFRJOSEMI KARLMANNA — helstu orsakir og lækningaaöferöir. LJÓSMYNDUN rætt viö áhugaljósmyndara. ABOKAMARKAÐI — tveir nýir íslenskir barnabókahöfundar. Föstudagsblaðid ergott forskot á helgina

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.