Morgunblaðið - 06.10.1982, Page 4

Morgunblaðið - 06.10.1982, Page 4
36 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 6. OKTÓBER 1982 Mjúkar plötur undir þreytta tætur Tm _Hamtowrg- T*g Stoartim!)gwF<J)<SOT©æ<§){fi) & ©<s> Þrýstimælar Allar stáerðir og gerðr^ SílyiíflaiýigjMir <& ©@:: Vesturgötu 16, sími 13280 SPURÐU NÁNAR ÚT í - 18354 gata tromluna 50% vatnssparnaðinn 40% sápuspamaðinn 25% tímaspamaðinn efnisgæðin byggingarlagið lósíuleysið lúgustaðsetninguna lúguþéttinguna ytra lokið denparana þýóa ganginn stöðugieikann öryggisbúnaðinn hitastillinguna sparnaðarstillingar taumeðferðina hægu vatnskælinguna lotuvindinguna þvottagæðin ....... /FOnix HÁTÚNI 6A • SÍMI 24420 Geta Græitlendingar sagt sig úr lögum við Dani? Að þeirri niðurstöðu komst Guðmundur S. Alfreðsson í fyrir- lestri sínum um réttarstöðu Grænlands í samfélagi þjóðanna l*ann 14. september síðastliðinn flutti dr. Guðmundur S. Alfreðsson fyrirlestur um réttarstöðu Græn- lendinga i samfélagi þjóðanna á fundi, sem lagadeild Háskóla fs- lands, Lögmannafélag íslands og Dómarafélag íslands boðuðu til í Lögbergi, húsi lagadeildar. Fundar- stjórar voru Stefán IVfár Stefánsson, forseti lagadeildar, og Steingrímur Gautur Kristjánsson, héraðsdómari. í fyrirlestrinum komst dr. Guð- mundur að þeirri niðurstöðu, að Grænlendingar hefðu sjálfs- ákvörðunarrétt, sem og aðrar nýlenduþjóðir samkvæmt þjóðar- rétti, og þeir gætu notfært sér hann þar sem þeir hefðu ekki gert það til þessa. Samkvæmt sjálfs- ákvörðunarréttinum geta Græn- lendingar því annaðhvort sagt sig úr lögum við Dani eða þá ákveðið að vera í einhverju stjórnskipu- legu sambandi við Danaveldi. Dr. Guðmundur skipti fyrir- lestri sínum í þrjá hluta. Fyrst varpaði hann fram tveimur spurn- ingum: 1) Hvað er að gerast á Græn- landi sem veldur því að skyld mál eru að gerast þar? a) Stjórnmálaflokkar stofnaðir á síðustu 5—8 árum. b) Heima- stjórnarlögin samþykkt 1978, en gengu í gildi 1. maí 1979. c) Þjóð- aratkvæðagreiðsla um úrgöngu úr EBE. d) Útfærsla fiskveiðilögsög- unnar og æ nákvæmari kortlagn- ing á náttúruauðæfum. e) Sam- vinna frumbyggja, sem lýsir sér í stofnun svæðabundinna samtaka á mörgum sviðum. 2) Hvaða þjóðréttarreglur koma helst til greina? a) Sjálfsákvörðunarréttur þjóð- anna. Guðmundur skýrgreindi hugtakið og útlistaði hverjir gætu notið góðs af því og lýsti síðan hefðbundnum réttarheimildum í sambandi við rétt nýlenduþjóða. Þá lýsti hann einnig örðum rétt- arheimildum sem við gætu átt, t.d. um verndun minnihlutahópa og sérréttindi frumbyggja. Guð- mundur vildi jafnframt meina að á þessar síðastnefndu reglur myndi ekki reyna nema Græn- lendingar héldu áfram stjórn- skipulegu sambandi við Dani. Þá kom Guðmundur að því álitamáli hvort reglur um sjálfs- ákvörðunarréttinn út á við eigi við um Grænland. Hann byrjaði á að rekja sögu Grænlands frá 18. öld, frá því landinu hafði verið stjórn- að sem dæmigerðri nýlendu frá Kaupmannahöfn, lengi vel með konunglegum tilskipunum en síð- ar með lagaboði, án þess að Græn- lendingar hefðu sjálfir átt þar nokkurn hlut að máli. Danir hefðu síðan staðfest að þarna hefði verið um nýlendustjórn að ræða með því að skrá Grænland samkvæmt 11. kafla sáttmála Sameinuðu þjóð- anna um lendur sem ekki ráða sér sjálfar. Á þriðja áratugnum byrjaði Noregur landnám á Austur- Grænlandi, sem varð til þess að miklar deilur urðu milli Noregs og Danmerkur. Árið 1933 kvað Fasti milliríkjadómstóllinn upp dóm í þessu ágreiningsefni, Austur- Grænlandsmálinu svokallaða, og féll hann Dönum í vil, en hann hefur oft verið talinn vísbending um fullveldi Dana yfir öllu Græn- landi. Guðmundur taldi að þessum dómi hafi tvímælalaust verið hnekkt með úrskurðum Alþjóða- dómstólsins í svonefndum Nam- ibíu- og Vestur-Saharamálum, þar sem sjálfsákvörðunarréttur nýlenduþjóða var látinn sitja i fyrirrúmi, en auk þess gat hann þess að í Austur-Grænlandsmál- inu hafi ekki verið spurt um vilja Grænlendinga og dómurinn hafi ekki tekið tillit til óska þeirra. Hann sagði að söguleg smáatriði skiptu ekki máli heldur réttar- heimildirnar sem blasi við, þ.e. að Grænland hafi allan þennan tíma orðið að þola útlenda stjórn. Síðan vék Guðmundur að stjórnskipu- legri innlimun Grænlands í Danmörku 1953, sem hann taldi að hefði aðallega verið til þess að komast framhjá eftirliti SÞ, en samkvæmt ákvæðum 73. gr. sátt- mála SÞ skyldu nýlenduveldi gefa skýrslu um og sjá til þess að ýms- Hinn 12. febrúar síðastliðinn varði Guðmundur S. Alfreðsson þjóðréttarfræðingur doktorsritgerð um réttarstöðu Grænlands við laga- deild Harvard-háskóla i Bandarikj- unum. Ritið kallast Grænland og rétturinn til sjálfsákvörðunar út á við (Greenland and the Right to Ex- ternal Self-Determination). Guð- mundur lauk kandidatsprófi frá Há- skóla íslands vorið 1975 og meist- araprófi í samanburðarlögfræði og þjóðarrétti frá lagadeild New York- háskóla vorið 1976. Guðmundur hef- ur auk þess stundað framhaldsnám í þjóðarrétti við Max Planck Institut i Heidelberg i þýskalandi og við laga- dcild Kaupmannahafnarháskóla. ar skyldur í nýlendunni í sam- bandi við framþróun ákveðinna málaflokka, yrðu inntar af hendi. Þessi innlimun var innleidd samkvæmt stjórnarskrárbreyt- ingu í Danmörku sjálfri og þá far- ið eftir reglunum um kosningar og endurteknar þingsamþykktir. Á Grænlandi fór hins vegar engin lundi en núverandi húsnæði er orðið of lítið fyrir sívaxandi starfsemi. í þessum áfanga er fyrirhugað að reisa 1.680m' hús- næði og að byggingarframkvæmd- ir geti hafist vorið 1983. Áformað er, að það húsnæði, sem rýmist á Reykjalundi með til- komu nýrrar sjúkraþjálfunar- stöðvar, verði nýtt til vistunar fyrir aldraða skjólstæðinga SÍBS og aldraða, hjúkrunarþurfandi Svipmvndir frá 23. þingi BSRB, sem haldið var í Domus Medica. Morgunbladid/Emilía. Reykjalundur: Ákveðið að hefja byggingu nýrrar sjúkraþjálfunarstöðvar íbúa Mosfellslæknisumdæmis. Vegna þeirra verkefna, sem SÍBS hefur tekist á hendur og horfa til úrbóta í hjúkrunar- og endurhæfingarmálum aldraðra, með aðstöðu á Reykjalundi og að- ild að rekstri dagvistunar aldr- aðra í Ármúla, hefur Soroptim- istasamband íslands ákveðið, nú á ári aldraðra, að veita SIBS fjár- hagslegan stuðning við byggingu hinnar nýju sjúkraþjálfunardeild- ar. Önnur frjáls félagasamtök og sveitarfélög í Mosfellslæknisum- dæmi hafa og lýst vilja til að styðja þessi framkvæmdaáform sambandsins. Þingið samþykkti ýmsar álykt- anir, sem í flestum tilvikum er beint til stjórnar SÍBS til frekari úrvinnslu og framkvæmda. Fjalla þær m.a. um erindrekstur stjórnar sambandsins út um land með heimsóknum til félagsdeilda, ályktunum um reykingavarnir á vinnustöðum, ályktun um sam- starf við önnur félög fatlaðra, ályktun um sumarbúðamál, um að athuguð verði stofnun stöðu tæknilegs atvinnuráðgjafa (ind- ustrial hygienist) og ályktun um að leita eftir styrkveitingu Trygg- ingastofnunar ríkisins til handa lungna- og ofnæmissjúklingum vegna utanlandsferða til heilsu- bótar. Þrír sambandsstjórnarmenn skyldu ganga úr stjórninni en voru allir endurkjörnir. Formaður SÍBS er Kjartan Guðnason full- trúi. (Frétutilkjnnin*.) 23. þing SÍBS var haldið í Reykja- vík dagana 25. og 26. september. 61 fulltrúi sótti þingið, en félagar Sam- bands íslenskra berkla- og brjóst- holssjúklinga eru nú rétt um 2.000. Þingsetning fór fram á Reykja- lundi að viðstöddum gestum ásamt heiðursfélögum sambands- ins. Þinginu bárust blóm og heilla- óskir frá ýmsum vinum og velunn- urum samtakanna. Að þingsetningu lokinni flutti einn af læknum Reykjalundar, Björn Magnússon lungnasérfræð- ingur, erindi um öndunarvanda- mál aldraðra og vakti það óskipta athygli. Er fyrirlestur Björns að nokkru birtur í blaði samtakanna, „Reykjalundi", sem út kom sunnu- daginn 3. október, SÍBS-daginn. Síðar á þinginu flutti annar starf- andi læknir á Reykjalundi, Magn- ús B. Einarsson, erindi um þjálfun hjarta- og lungnasjúklinga, en hann veitir forstöðu nýopnaðri þjálfunardeild fyrir þessa sjúkl- inga á stofnuninni. Skammt er nú stórra högga á milli í starfsemi SÍBS því að á þessu sumri hefur nýr Múlalund- ur, öryrkjavinnustofa SÍBS, tekið til starfa í glæsilegum húsakynn- um við Hátún 10 C. Húseign SÍBS við Armúla 34, þar sem Múlalund- ur var áður, er nú verið að inn- rétta að hluta til, sem dagvistun- arheimili fyrir aldraða og stendur sambandið að þessu verki í sam- vinnu við Reykjavíkurdeild Rauða kross íslands og Samtök aldraðra í Reykjavík. Nú á þinginu var samþykkt ályktun stjórna SIBS og Reykjalúndar um að hefja fram- kvæmdir við byggingu nýrrar sjúkraþjálfunarstöðvar á Reykja-

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.