Morgunblaðið - 06.10.1982, Blaðsíða 23

Morgunblaðið - 06.10.1982, Blaðsíða 23
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 6. OKTÓBER 1982 55 Fræðingur þetta og tæknir hitt Erla Bjarnadóttir hringdi og hafði eftirfarandi að segja: — A föstudaginn rakst ég á alveg nýtt orð í dagblaði, a.m.k. er það nýtt fyrir mér: áfengistæknir. Er nú ekki kominn tími til að athuga sinn gang í öllu þessu titlatogi, áð- ur en í óefni verður komið; fræð- ingur þetta og tæknir hitt, mér finnst einhver fánýtisbragur yfir þessu skrauti. Sjúkranuddstofan Hverfisgötu 39 auglýsir: Leirbakstrar — hitalampi — partanudd — heilnudd. Stakir tímar eöa 10 tíma afsláttarkúrar. Sólarhiminn. Uppl. í síma 13680 kl. 14—18. Hilke Hubert félagi í Sjúkranuddarafélagi islands. LEIRKERASMIÐIR TAKIÐ EFTIR I. Guðmundsson & Co hf heldur í samvinnu við Podmore & Sons Ltd, námskeið í leirkeragerö að Þverholti 18, Reykjavík, dagana 23. og 24. október nk. Andrew Holden leirkerasmiður sýnir notkun „Alsager" rennibekks, mótar og skreytir krukkur og skálar úr Podmore leir og svarar fyrirspurnum um leirgeragerð. D.W.PIant flytur fyrirlestur um Podmore og svarar fyrirspurnum. Við hvetjum alla leirkerasmiði til að taka þátt í þessu námskeiði. Þátttökugjaldið er mjög í hóf stillt. Vinsamlegast tilkynnið þátttöku hið allra fyrsta í síma 24020. Lítið heyrst frá Samtök- um aldraðra 1 Reykjavík Ellilífeyrisþegi hringdi og hafði eftirfarandi að segja: — Eins og frá hefur verið skýrt í útvarpi og sjónvarpi voru í síðustu viku stofnuð samtök aldraðra á Akur- eyri og var það gert með mynd- arskap, eins og Akureyringa var von og vísa. Hins vegar var það ekki rétt sem fram kom hjá einum af forsvarsmönnum þessara akur- eyrsku samtaka, að þetta væri í fyrsta sinn sem stofnað væri til slíks félagsskapar hér á landi. Fyrir nokkrum árum voru stofnuð sambærileg samtök hér í Reykja- vik og var Súlnasalur Hótels Sögu troðfullur á stofnfundinum. Hins vegar hefur ósköp lítið heyrst frá þessum samtökum. Þó kom fram í útvarpsviðtali við formanninn fyrir ekki löngu síðan, að samtök- in hefðu hlotið styrk frá Alþingi. Nú langar mig að frétta eitthvað af félagsstarfinu: Hvað hefur ver- ið gert í þágu aldraðra almennt? Hvað líður byggingu aldraðra í Fossvogi og fyrir hverja er verið að byggja þar? Hvernig hefur rík- isstyrknum verið varið? Hver á myndir frá Vind- heimamelum og Hólum? Anna Sæmundsdóttir hringdi og hafði eftirfarandi að segja: — Ég var að gera mér vonir um að þú gætir hjálpað mér við að greiða úr smávanda. Svoleiðis var að ég fékk sendar rangar myndir frá Gíró- myndum, en filman, sem ég sendi í framköllun og var aðallega af börnum og e.t.v. fleirum hér heima á Siglufirði, finnst hins vegar hvergi. Myndirnar sem ég fékk eru úr Skagafirði, frá Vind- heimamelum og sennilega frá prestastefnu á Hólum. Ef einhver kannast við að eiga þessar myndir getur hann hringt til mín í síma 96-71754. Einnig væri vel þegið, ef einhver vissi hvað orðið hefur af mínum myndum, að sá hinn sami léti mig vinsamlegast vita. Þessi brjálæðislegi akstur hefur ekkert jákvætt í för með sér I. GUÐMUNDSSON & C0. HF Þverholti 18, Reykjavík. Sími 24020 F. skrifar: Heill og sæll Velvakandi. í þáttum þínum þann 29. sept- ember skrifar Jón Guðmundsson á Selfossi ágæta grein um ógæti- legan akstur í umferð, ógnvald er hefur oft með sér slys og dauða. Þetta voru sannarlega orð í tíma skrifuð, en því miður virðist lítið vera farið eftir skynsamlegum ábendingum, þrátt fyrir endur- teknar hörmungar og sorgir sak- lauss fólks sem verður fyrir áföll- unum. Það er ekki ætlun manna að limlesta og drepa vegfarendur, en kæruleysið og hrottaskapurinn er fyrir neðan allar hellur í mörg- um tilvikum. Fyrir nokkru átti ég sem oftar leið yfir Lækjargötu á horninu við torgið, og beið að sjálfsögðu eftir grænu ljósi. Tveir bílar höfðu numið staðar, og stjórnendur þeirra voru ekkert nema kurteisin. Ég hraðaði ferð minni út á götuna og er komin út á hana miðja, þeg- ar bifreið kemur á langt yfir leyfi- legum hraða og geysist áfram þarna rétt við tærnar á mér, ég hafði aðeins tíma til þess að hopa örlitið til baka, það bjargaði lífi mínu og limum. Þetta er ekki rétt skýrt frá. Ég átti heldur að segja: Það var eins og mér væri kippt til baka. Líklega vernarengillinn minn. Því miður náði ég ekki núm- eri bílsins, mér varð svo mikið um, og var lengi að átta mig á þessum fruntaskap. Þarna munaði mjóu og mun svo oft vera. Því miður eru ekki allir gangandi vegfarendur gætnir í umferðinni, og grunur minn er sá, að mörgum bílstjóran- um sé kennt um það sem hann á enga sök á, þegar vegfarandinn gengur út á götuna á rauðu ljósi. Æðið og stressið yfirgengur öll lagaboð og bönn. Fyrstu árin sem ég dvaldi í höfðuborginni voru löggæslumenn á götuhornum við mestu umferðargöturnar. Nú sjást þeir varla, hvað sem veldur. Lík- lega útþensla borgarinnar. En er ekki lögreglumönnum fjölgað eftir því sem borgin stækkar? Það ætti að taka hart á öllum lögbrotum. Hvernig getur nokkurt þjóðfélag þrifist án lagalegs eftir- lits? Það vantar alla samvinnu í þessum efnum. Við ættum að vera eins og bræður og systur, en þar er mikill misbrestur á á fjölmörgum sviðum. Góð systkin vilja ekki verða hvert öðru til tjóns. Jón Guðmundsson segir í grein sinni: „Eitt er það fyrirbæri sem ég rek augun í og hefur á undan- förnum árum þróast hér á landi og náð geysimiklum undirtektum. Það er svonefndur rallakstur af ýmsu tagi, sem ég nánast kann ekki nöfn á. Þess konar akstur er einkum stundaður af ungu fólki og er ákaflega vel tekið af fjölmiðlum sem eytt hafa í þessa starfsemi verulegri umfjöllun. Þetta þarf ekki lengri skýringa við því ekki þarf annað en að líta í ferskar fregnir af hinum ýmsu afrekum Péturs eða Páls á þessu sviði." I seinni hluta greinar sinnar skýrir hann álit sitt á þessum rnálum og kemur það saman við mitt álit og ábyggilega margra annarra. Ég hefi minnt á þetta í þáttum Velvakanda fyrir nokkru og er ég Jóni Guðmundssyni þakklát fyrir skynsamlea túlkun hans á málinu. Mér finnst þetta vera brjálæðislegt hátterni. Eg er ekki á moti keppni í íþróttum. Fimleikar geta verið mannbæt- andi, en þessi brjálæðislegi bíla- akstur hefur ekkert jákvætt í för með sér. Mér þykir líklegt að margir ungir drengir teldu það sér til ávinnings að leika þetta eftir. „Það ungur nemur sér gamall temur." Satt að segja finnst mér fyrir neðan virðingu sjónvarpsins að gera þetta efni að skemmti- þætti fyrir almenning hvort sem fyrirbærið er innlent eða útlent.“ BRC6TU! Vikuskammtur af skellihlátri GÆTUM TUNGUNNAR Oft er sagt og ritað: að skrifa niður. Það þykir ýmsum útlenskulegt að þarflausu. Oftast nægir: að skrifa. (Stundum er jafnvel íslenskulegra: að skrifa upp.) LITGREINING MEÐ CROSFIELD 540 LASER LYKILLINN AÐ VANDAÐRI LITPRENTUN MYNDAMÓT HF.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.