Morgunblaðið - 06.10.1982, Blaðsíða 19

Morgunblaðið - 06.10.1982, Blaðsíða 19
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 6. OKTÓBER 1982 51 fclk í fréttum Ruth Dayan segir frá + Ruth Dayan, eiginkona israelska utanríkis- og varnarmálaráöherrans Moshe Dayan, segir aö hinn látni eig- inmaður hennar hafi oft á tíðum verið ruddalegur við fólk, en hún hafi fyrir- gefið honum allt. í viðtali við blaðiö Daily Maariv, sem áöur haföi birt gömul ástarbréf frá Moshe til Ruth, segir hún að hh áliti aö ást hans á landi og þjóð hafi bætt upp fyrir ruddaleg samskipti við fólk. Hins vegar hafi gegnt sama máli um hana: „Hann kom hræöilega fram við mig. Ég gerði mistök. . . Ég hefði átt aö yfirgefa hann löngu áöur en ég loksins kom því i verk. Hann var harð- ur i mannlegum samskiptum, en hann elskaöi israel, sem var eins og hluti af honum... og ég fyrirgaf honum all . . . Moshe Dayan og Ruth skildu áriö 1971 eftir þrjátiu og þriggja ára hjónaband. Hann kvæntist að nýju tveimur árum síðar, en Ruth hefur ekki gifst að nýju, heldur helgaö lif sitt bættum samskiptum milli Gyöinga og Araba. Moshe Dayan lést af hjartaslagi 66 ára að aldri i október á siöastliönu ári, og haföi þá háö langa baráttu viö krabbamein. Moshe Dayan tyrrum varnarmála- og utanríkisráðherra ísrael. Anna og Mark vekja umtal + Birtar hafa veriö opinberar myndir af Önnu prinsessu og eig- inmanni hennar Mark Philips í til- efni þrjátíu og fjögurra ára af- mælis hans. Miklar sögusagnir hafa verið á kreiki þess eðlis aö samband þeirra hjóna væri í einhverju ábótavant og hefur mörgum þótt áberandi hversu Mark hefur eytt miklum hluta tíma síns meö öðru kvenfólki en eiginkonunni og aðrir hafa bent á aö einkennilegt megi þykja hversu sjaldan Mark fylgir konu sinni á opinberum ferðum hennar um heiminn. Einnig hefur veriö til þess tekið hversu prinsessan þykir stutt í spuna varðandi sig og sína. Þessar myndatökur nú veröa áreiöanlega ekki til að þagga niður í þeim er spá hjónabandi þessu skammlifi og þykir aug- Ijóst að með þeim sé veriö aö reyna að kveöa kjaftæðiö í kút- inn, en Buckinghamhöll hefur þvertekiö fyrir að ekki sé allt meö felldu hjá þeim hjónum. . . En sem sagt opinber mynd at Önnu prinsessu og Mark Philips í tilefni afmælis hans þann 22. september síðastliðinn. Kannski allt sé bara í himnalagi? Emmy-verðlaun til Ingrid Bergman... + Þremur vikum eftir dauða henn- ar var tilkynnt að Ingrid Bergman heföi hlotiö Emmy-verðlaunin í ár fyrir leik sinn í sjónvarpsmyndinni um Goldu Meir, hinn látna forsæt- isráðherra ísrael. Dóttir hennar, Pia Lindström, tók við verölaununum, sem höfðu verið ákveöin átta dögum fyrir lát leikkonunnar og innsigluö af dóm- nefndinni. Hápunktur verölaunaafhend- ingar kvöldsins var ávarp Piu, sem eftir aö hafa getiö þess aö móöir hennar þjáöist af krabbameini á háu stigi er hún lék hlutverk Goldu Meir, sagöi: „Ég held aö hún hafi átt þessi verðlaun fyllilega skilið — ekki einungis fyrir störf sín fyrir framan kvikmyndavélina, heldur einnig fyrir störf sín þar fyrir utan. Ég held aö hún hafi sýnt sama hugrekki og einbeitni og Golda Meir á sínum tíma.“ Pia Lindström með verölaunin aö afhendingunni lokinni. COSPER — Svona, flýttu þér. Viö höfum nógan tíma til þess að njóta úLsýnisins á myndinni, þegar heim kemur. Janet Gaynor úr lífshættu + Leikkonan Janet Gaynor, sem lenti í bilslysi þann 5. september síðastliðinn, var i gær færö af gjörgæsludeild og er ekki taliö aö hún sé i lífshættu lengur. Janet Gaynor, sem er 75 ára aö aldri, hefur legiö mikiö slösuð frá því slysiö varð og mun veröa und- ir stööugu eftirliti aö minnsta kosti næstu tvær vikurnar. Hún var sú fyrsta til aö vinna til Óskarsverölauna sem besta leikkona áriö 1928. Er hún slasaö- ist var hún á ferö ásamt Broad- way-stjörnunni Mary Martin sem er 68 ára aö aldri, umboösmanni hennar, Ben Washer, og eigin- manni, Gaynor, framleiöandanum Paul Gregory, 62 ára aö aldri. Washer lét lífið í slysinu, og hin þrjú slösuöust öll mikiö. Hagsveifluspár Fræöslufundur um hagsveifluspár í fyrir- tækjum veröur haldinn fimmtudaginn 7. okt. kl. 10—12 f.h. aö Hótel Esju. Flytj- andi veröur Verner Puggaard frá danska lönrekendafélaginu og mun hann kynna helstu leiöir og aöferöir hagsveifluspáa og fara yfir raunhæf dæmi. Þátttaka tilkynnist til Stjórnunarfélagsins í síma 82930. ▲ SHÓRNUNARFÉIAG ISIANDS SlOUMUlA 23 105 RCYKJAVfK SÍMI 82930 FÉLAGS ÍSLENSKRA IÐNREKENDA Hverfisteinar Rafdrifnir hverfisteinar 220 volt. Steinninn snýst 120 snúninga á mín. í báöar áttir. Verö kr. 1.728 meö söluskatti. Sendum hvert á land sem er. r r hYiK VÉLAVERSLUN ___ 7 Ármúli 8 — 105 Reykjavík — Sími 85840. ^Bauknecht Frystiskápar og kistur Fljót og örugg frysting. Örugg og ódýr í rekstri. Sérstakt hraðfrystihólf. Einangrað að innan með áli. Eru með inniljósi og læsingu. 3 öryggisljós sem sýna ástand tækisins. Greiðsluskilmálar eða staðgreiðsluafsláttur. ötsölustaóir DOMUS og kaupfélögin um land allt Véladeild Sambandsins Ármúta 3 Reykjavik Simi 38900

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.