Morgunblaðið - 29.10.1982, Síða 3
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 29. OKTÓBER 1982
35
99% þeirra, sem spuröir voru voru,
30 ára og eldri og nota áreiöan-
lega aörar getnaöarvarnir. Eldri
konum stafar meiri hætta af notk-
un pillunnar en þeim sem yngri eru
og því líklegt aö eldri konur leiti
annarra úrræöa.
10. Ef þú ert kvenmaöur þreifar
þú þá reglulega á þér brjóstin
í sambandi viö hugsanlega
krabbameinsmyndun?
já 72% nei 28%
Ef karlmaöur.þreifar þú þá
reglulega á þér eistun?
já 36% nei 64%.
Æskilegast væri aö tölurnar hér
væru 100% hjá báöum kynjum, þar
sem batalíkurnar aukast verulega
eftir því hve fljótt krabbamein er
uppgötvað.
11. Borðar þú morgunverö?
já 78% nei 22%
Þetta gæti vakiö áhuga sumra.
Þaö er auðvitað ekki lífsnauösyn-
legt aö byrja daginn meö góöri
morgunmáltíð, en þaö er þó síst
verri undirbúningur undir störf
dagsins.
12. Ertu meira en 5 kílóum þyngri
en þú vildir vera?
já 29% nei 71%
Þó flestir séu ekki jafn grannir
og þeir vildu vera, er þaö þó í flest-
um tilfelium meira vegna útlits en
heilsunnar. Nokkur viöbótarkíló
gera engan heilsulausan.
13 Drekkuróu tvo áfenga drykki á
dag eöa meira?
já 7% nei 93%
Meira en tveir drykkir á dag
gætu veriö ástæöa fyrir viökom-
andi aö fara aö hugsa sinn gang,
en eins og sjá má eru fáir í þeim
hópi meöal læknanna.
14. Reynir þú að takmarka neyslu
þína á blóösteiktu kjöti,
Dagur frímerkisins
er 9. nóvember nk.
Frímerki
Jón Aöalsteinn Jónsson
í sögu íslenzkra frímerkja-
safnara hefur um rúm 20 ár sá
árvissi atburöur átti sér staó, aö
sérstakur dagur hefur veriö
helgaöur frímerkjasöfnun, vin-
sælustu tómstundaióju verald-
ar, svo sem og hefur verið venja
í mörgum löndum. Aó þessu
sinni veröur hann haldinn 9.
nóvember, en sú venja hefur
skapazt aó hafa hann annan
þriöjudag í nóvember, ef mig
misminnir ekki. Fer vel á því aö
festa þannig ákveöinn dag í
sessi í þessu skyni.
Sérstakur dagstimpill hefur
veriö notaöur allar götur frá 1961
á aöalpósthúsinu í Reykjavík. Nú
hafa þau ánægjulegu tíðindi
gerzt fyrir frímerkjasafnara, aö
Akureyri fær einnig sérstimpil af
þessu tilefni og veröur svo von-
andi framvegis á þessum degi.
Aö sjálfsögöu eru þessir tveir
stimplar eins aö öðru en staöar-
heiti.
Myndefni þessa sérstimpils er
hluti af tveimur gömlum klaustra-
innsiglum, sem eru á frímerkjum
þeim, sem út komu í Nordiu-örk-
inni 7. október sl. Fer vel á aö
tengja þetta hvort tveggja þannig
saman. Hér er um leiö kjöriö
tækifæri aö nota einmitt þessa
smáörk eöa blokk eöa þá merki
hennar stök til stimplunar á Degi
frímerkisins. Á þann hátt fá safn-
arar skemmtilegan hlut í hendur,
en um leiö — og þaö er ekki
síður mikilvægt — styrkja þeir
þá norrænu frímerkjasýningu,
sem hér veröur haldin sumariö
1984.
Aö venju mun Félag frímerkja-
safnara gefa út sérstök umslög til
nota þennan dag, og verða þau
til sölu í herbergi félagsins aö
Amtmannsstíg og svo í frímerkja-
verzlunum. Vitaskuld má nota öll
gild frímerki til buröargjalds á
Degi frímerkisins og fá þau
stimpluö meö sérstimpli dagsins.
Menn veröa einungis aö gæta
þess aö nota lágmarksburöar-
gjald, svo sem minnt er á í til-
kynningu póststjórnarinnar. Eru
þaö 300 aurar fyrir prentaö mál
og 350 aurar undir einfalt bréf.
Ábyrgöargjald er 750 aurar til
viöbótar, svo sem flestir munu
kunna skil á.
Hér fyrr á árum voru glugga-
sýningar almennar á Degi frí-
merkisins, þar sem félagsmenn
F.F. sýndu ýmis frímerki í römm-
um. Var þetta gert til aö kynna
mönnum margvíslegt frímerkja-
efni og hvernig mætti haga söfn-
un sinni. Því miöur hefur mjög
dregiö úr þessum sýningum og
þær jafnvel alveg falliö niöur. Nú
hefur mér veriö tjáö, aö nokkrir
félagar í F.F. ætli aö sýna frí-
merki á ýmsum stööum í borg-
inni og þvi munu margir fagna.
Svo sem oft hefur veriö minnzt
á í þáttum þessum, varö F.F. 25
ára á liönu sumri, og vafalaust er
afmælissýningin FRÍMEX 1982
enn í fersku minni. Félagiö gaf út
sérstakt afmælisrit, og þykir mér
hlýöa aö benda á í sambandi viö
Dag frímerkisins, aö þaö fæst hjá
félaginu og eins í frímerkjaverzl-
unum.
Því miöur gefst ekki kostur á
aö ræöa önnur mál í þessum
þætti, en í næsta þætti verður
m.a. vikiö aö síöustu merkjum
ársins, jólafrímerkjum, sem út
koma 16. nóvember nk.