Morgunblaðið - 09.11.1982, Síða 1

Morgunblaðið - 09.11.1982, Síða 1
48 SÍÐUR MEÐ 8 SÍÐNA ÍÞRÓTTABLAÐI ÞRIÐJUDAGUR 9. NOVEMBER 1982 Símamynd AP. Begin forsætisráðherra (annar frá hægri) fyrir framan þrjá dómara sem rannsaka fjöldamorðin í Beirút. Páfínn fer aftur til Póllands í júní \ arsjá, S. nóvember. Al*. JARUZELSKI hershöfdingi og Jozef Glemp erkibiskup tilkynntu í dag eftir leynifund í Varsjá að Jóhannes Páll páfi II kæmi aftur til Póllands í júní nk. Tilgangur pólskra yfirvalda er bersýnilega sá að reyna að kveða niður ný mótmæli, sem óháða verkalýðshreyfingin Samstaða hefur á prjónunum. 250. tbl. fi9. árg.________ Hóta sókn til Bagdad Teheran, 8. nóvember. Al*. ALI KHAMENEI forseti sagöi í dag að innrásarlið írana, sem hefur land- ræmu í Austur-írak á valdi sínu, muni sækja til Bagdad ef nauðsynlegt reyn- ist. Forsetinn tók fram að það væri ófrávikjanleg krafa írana að stjórn Saddam Husseins íraksforseta yrði steypt af stóli. Hann ítrekaði skil- yrði írana fyrir friði: að írakar hörfi frá írönsku yfirráðasvæði, að þeir greiði 150 milljarða dollara í skaðabætur og að Hussein verði „refsað" fyrir innrásina. Manntjón A í* /■ • X • i farviðri Toulou.se, 8. nóvember. Al*. ELLEFU manns að minnsta kosti hafa farizt og rúmlega 20 slasazt í fárviðri, sem hefur gengið yfir Suð- vestur-Frakkland síöan um helg- ina. A.m.k. 10 manns hafa farizt og eins margra er saknað eftir tveggja daga úrhellisrigningu á nokkrum stöðum á Spáni. Tugir þorpa eru einangruð, hundruð manna hafa verið fluttir frá heimilum sínum og truflanir hafa orðið á samgöngum og símasambandi. Mestu flóðin urðu i Katalóníu á Norðaustur-Spáni, en nokkrir hafa farizt í Huelva og Malaga. Miklar skemmdir urðu í gær og í dag af völdum fárviðris í Sviss, þótt slys hafi ekki orðið á mönnum. Vindhraðinn mældist 185 km á klst. Viðræður 1 Madrid Madrid, 8. nóvember. Al*. ÖRYGGISRÁÐSTEFNA Evrópu verð- ur aftur sett á morgun eftir átta mánaða hlé og búizt er við nýjum þrætum austurs og vesturs. Ráðstefnan hófst fyrir tæpum tveim- ur árum, en hlé var gert á henni 12. marz vegna Póllandsmálsins. Vegna fyrirhugaðs vcrkfalls Sámstöðu er bú- izt við að vestrænir / fulltrúar leggi áherzlu á Pólland á ráðstcfnunni. I Washington sagði varnarmála- ráðherra Vestur-Þýzkalands, Manfred Wörner, að hann væri til- tölulega vongóður um að Rússar væru fúsir til alvarlegra viðræðna um fækkun meðaldrægra kjarn- orkueldflauga í Vestur-Evrópu ef stjórn Helmut Kohls héldi velli í marz. Hann hvatti til lausnar á deilunni um Síberiu-olíuleiðsluna og sagði að Vestur-Evrópuríki ættu að gæta sín betur á því að útvega Rússum tæknilegar upplýsingar og veita þeim Ián. Hann sagði að afstaða Vestur-Evrópuríkja til gasleiðsl- unnar þyrfti að breytast að vissu marki, en um leið þyrftu Banda- ríkjamenn að slaka á refsiaaðgerð- um vegna málsins. Verzlunarráð- herra Breta, Peter Rees, gagnrýndi refsiaðgerðirnar enn á þingi í dag og boðaði harða andstöðu gegn þeim. Ronald Reagan forseti vísaði á bug í dag nýlegum yfirlýsingum Leonid Brezhnevs forseta, þar sem Bandaríkjastjórn er sökuð um að magna spennu i heiminum, koma i veg fyrir að áfram miði í viðræðum um kjarnorkumál og jafnvel undir- búa heimsstyrjöld. Reagan sagði að enginn fótur væri fyrir þessum ásökunum. Samkomulagið um heimsóknina náðist rétt áður en öryggisráð- stefna Evrópu kemur aftur saman í Madrid, en þar verður Pólland ofarlega á baugi. Samkomulagið gæti dregið úr áhuga á fyrirhug- uðum verkföllum og mótmæla- göngum á miðvikudaginn og bætt stöðu Pólverja á öryggisráðstefn- unni. Samstaða varð fyrir nýju áfalli í dag þegar Piotr Bednaraz úr stjórn hreyfingarinnar og 12 verkamenn voru handteknir í Wroclaw í Slésíu. Fjögurra manna nefnd, sem Bednaraz er í, skipu- leggur verkföllin. Fyrirrennari hans í nefndinni, Wladyslaw Fras- yniuk, var handtekinn ð.október. Heimsókn páfa hefst 18. júní. Talsmaður páfa staðfesti fréttina, en sagði að leysa þyrfti margt áð- ur en páfi færi í aðra Póllands- ferð. Talsmaður kirkjunnar sagði að undirbúningur heimsóknarinnar hæfist strax. Glemp vildi ekkert segja um fund sinn með Jaruzelski hershöfðingja, hinn þriðja síðan herlög voru sett, en lýsti því yfir að kirkjan væri andvíg ofbeldi þótt hún hefði samúð með rétti „auðmýktrar" þjóðar til að mót- mæla. Samkomulagið gefur til kynna að yfirvöld óttist ekki lengur að heimsókn páfa verði eins mikil sigurganga og fyrri heimsóknin 1979, sem er talin hafa undirbúið jarðveginn fyrir verkföllin er leiddu til stofnunar Samstöðu 1980. Yfirvöld virðast vongóð um að þau hafi þreytt hreyfinguna og þau þurfi ekki að afturkalla heim- boðið. Almenningur tók fréttinni með vantrú, tortryggni en von um að af henni gæti orðið. Einkennilegt þótti að fréttin væri kunngerð á mánudegi og ekki í kirkjum. Margir telja ótrúlegt að rólegt verði orðið í landinu næsta sumar. fyrir forseta. Allt mun ganga að óskum," sagði þjónn nokkur. Þegar opinber úrslit liggja fyrir seinna í vikunni gengur nýja stjórnarskráin í gildi. Þar með verða æðstu leiðtogar stjórnmála- flokkanna, þeirra á meðal Suley- man Demirel og Bulent Ecevit, sviptir öllum pólitískum réttind- um næstu tíu ár. Borgaralegri stjórn verður aftur komið á lagg- irnar eftir kosningar til nýs þings, en ráðgert er að þær fari fram næsta haust. Þangað til verður Evren sem fyrr forseti herráðsins og forseti Þjóðaröryggisráðsins, sem er skip- að fjórum æðstu mönnum herafl- ans. Forsetaráð, skipað herfor- Prentsmiðja Morgunblaðsins Begin átti ekki von á blóðbaði Jerúsalem, 8. nóvember. Al*. MENACHEM Begin forsætis- ráðherra sagði í dag í vitnisburði að hann hcfði óttazt nijög hefnd- arárásir kristinna manna á Mú- hameðstrúarmenn í Beirút í kjöl- far morðsins á Bashir Gemayel í Líbanon, en aldrei gert sér í hug- arlund að hundruð Palestínu- manna yrðu myrtir. Begin sagði nefndinni, sem rannsakar fjöldamorðin í Beir- út, að honum hefði ekki verið sagt fyrirfram frá þeirri ákvörðun Ariel Sharons land- varnaráðherra og Rafael Eyt- ans hershöfðingja, forseta her- ráðsins, að senda vopnaða kristna menn inn í flótta- mannabúðirnar Sabra og Chat- illa. Hvað eftir annað var Begin spurður að því hvers vegna rík- isstjórnin hefði samþykkt að kristnir menn yrðu sendir inn í búðirnar, ef óttazt hefði verið að þeir mundu reyna að koma fram hefndum. Fram komu nýjar sannanir fyrir því að a.m.k. einn maður í Israel, Eytan hershöfðingi, sá fyrir blóðbað. Nefndarfulltrú- inn Yona Efrat skýrði frá því að Eytan hefði sagt stjórninni um einni klukkustund áður en að- gerðirnar í búðunum hófust að kristnir menn mundu reyna að svala hefndarþorsta sínum og allt, sem áður hefði gerzt, mundi hverfa í skugga þeirrar hefndar, sem reynt yrði að ná fram. Begin var einnig spurður ít- arlega um viðvörun Davíðs Lev- ys aðstoðarforsætisráðherra á ríkisstjórnarfundi um blóðbað. Begin sagði að Levy hefði ekki krafizt umræðna um málið og kvaðst ekki hafa fengið upplýs- ingar frá leyniþjónustunni um hugsanlegt blóðbað. Begin gaf ekki skýr svör við því hvort Sharon hefði átt af vara hann við. ingjunum, gegnir störfum unz kjörtímabili Evrens lýkur í nóv- ember 1989, frá því nýtt þing kem- ur saman. Bollalagt er hvort breytingar verði gerðar á ríkisstjórn Bulend Ulusu fyrrverandi aðmíráls þegar Evren vinnur embættiseið sinn. Nýja stjórnmálaflokka verður að stofna fyrir kosningarnar 1983 og finna verður nýja stjórnmála- leiðtoga í stað 100 stjórnmála- manna, sem hefur verið bannað að starfa. Ulusu er einn hugsanlegra flokksleiðtoga framtíðarinnar, ásamt Turgut Ozal fyrrum vara- forsætisráðherra, sem á heiðurinn af velheppnaðri áætlun um við- reisn í efnahagsmálum. Tyrkir styðja Evrin og samþykkja stjórnarskrá Ankara, 8. nóvember. Al*. TYRKIR samþykktu nýja stjórnarskrá með yfirgnæfandi meirihluta í þjóðar- atkvæði i gær og kusu Kenan Evren hershöfðingja forseta til næstu sjö ára. Þegar 90 af hundraði atkvæða höfðu verið talin höfðu 91,5% samþykkt stjórnarskrána. Kjörsókn var um 90 af hundraði, ein mesta í sögu Tyrklands. Ef Tyrkir hefðu setið heima áttu þeir á hættu að missa kosningarétt í fimm Flestir höfðu búizt við að stjórnarskráin yrði samþykkt, en ekki með eins miklum meirihluta atkvæða. „Þetta er furðulegt. Eg er enn að reyna að skilja hvernig þetta gat gerzt og hvað það tákn- ar,“ sagöi tyrkneskur útgefandi. Með því að samþykkja stjórn- arskrána voru Tyrkir í raun og veru að greiða atkvæði gegn hryðjuverkastarfsemi, lýsa yfir stuðningi við Evren og greiða at- kvæði með rólegri aðlögun að þingræðislegri og lýðræðislegri stjórn. „Eg var aldrei í nokkrum vafa um að þjóðin mundi greiða atkvæði með lögum og reglu og pólitísku jafnvægi, sem herfor- ingjarnir tryggja," sagði Sala- haddin Erturer, fyrrverandi emb- ættismaður. Málið var enn einfaldara í aug- um annarra kjósenda. „Við kusum Pasha Baba (viðurnefni sem merkir landsfaðir og herforingi)

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.