Morgunblaðið - 09.11.1982, Qupperneq 5
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 9. NÓVEMBER 1982
5
Seltjarnarnes:
Forseti bæjarstjórnar sýknaður
af áburði vinstri manna 1978
GIJÐMUNDUR L. Jóhannesson,
héraðsdómari kvað nýlega upp dóm í
máli, sem ákæruvaldið höfðaði gegn
ábyrgðarmanni blaðs vinstri manna
á Seltjarnarnesi við bæjarstjórnar-
kosningarnar 1978, en i blaðinu voru
meiðandi ummæli í garð Magnúsar
Erlendssonar, forseta bæjarstjórnar.
í niðurstöðu dómsins eru þau dæmd
dauð og ómerk og ábyrgðarmanni
blaðsins gert að greiða allan máls-
kostnað.
Málsatvik voru þau að fyrir
bæjarstjórnarkosningar 1978 kom
upp kosningamál, þar sem vinstri
menn í sameiginlegu kosninga-
blaði H-listans báru á Magnús Er-
lendsson, forseta bæjarstjórnar,
að hann hefði gert sig sekan um
alvarlegt misferli í meðferð opin-
berra fjármála. Málið snérist um
húseign í eigu gjafasjóðs Sigur-
geirs Einarssonar, en samkvæmt
skipulagsskrá er forseti bæjar-
stjórnar hverju sinni formaður
sjóðsstjórnar og hafði þáverandi
sjóðsstjórn selt honum húseign.
Magnús Erlendsson vildi ekki
una þessum alvarlega áburði og
óskaði eftir við saksóknara, að
málið yrði rannsakað og hann
hreinsaður af þessum alvarlegu
ásökunum.
Við yfirheyrslu hjá rannsóknar-
lögreglu víðurkenndi bæjar-
fulltrúi Alþýðubandalagsins, Guð-
rún L. Þorbergsdóttir, að hafa
skrifað þessar greinar ásamt öðr-
um. Samkvæmt lögum var höfðað
opinbert mál á hendur ábyrgð-
armanni blaðs vinstri manna,
Njáli Ingjaldssyni, en hann hafði
upplýst, að skrif þessi hefðu verið
án hans vitundar, þótt hann
gegndi stöðu ábyrgðarmanns
blaðsins.
Bóndinn í
Purkey látinn
Stykkishólmi, 8. nóvember.
JÓN Jónsson frá Purkey lézt í
sjúkrahúsinu í Stykkishólmi á
sunnudag, 81 árs að aldri. Með láti
Jóns má gera ráð fyrir að Purkey
bætist í hóp þeirra eyja á Breiðafirði,
sem komnar eru í eyði.
Jón Jónsson tók við búi í Purkey
af föður sínum, ásamt tveimur
systrum sínum, sem látnar eru
fyrir nokkrum árum. Hann bjó því
einn síðustu árin, en hafði vetur-
setu í Stykkishólmi yfir blávetur-
inn.
Jón Jónsson var dugnaðarmað-
ur og stöndugur vel.
— Fréttaritari
Skuldbreytingar vegna erfiðleika í rekstri Búlandstinds:
Samvinnuhreyfingin á
nú 73,4% hlutabréfa
SAMBANDIÐ og dótturfyrirtæki
þess, Olíufélagið hf., keyptu á síð-
asta ári meirihluta í Búlandstindi á
Djúpavogi og á nú SÍS með Kaupfé-
lagi Berufjarðar 23,6% hlutabréfa í
fyrirtækinu, Olíufélagið hf. 36,7%.
Þá eiga Samvinnutryggingar 13,1%
hlutafjár, sveitarfélagið 21% og um
70 einstaklingar 5,6%, samkvæmt
upplýsingum sem Mbl. fékk hjá
Gunnlaugi Ingvarssyni,
kvæmdastjóra Búlandstinds.
fram-
o
INNLENT
Gunnlaugur sagði að á síðasta
ári hefðu farið fram skuldbreyt-
ingar og þannig hefði samvinnu-
hreyfingin aukið meirihluta sinn í
fyrirtækinu. Sagði hann að áður
hefði Kaupfélagið átt meirihluta í
Búlandstindi, en fyrirtækið hefði
verið illa statt. Framkvæmdir við
frystihúsbyggingu hefðu legið
niðri um nokkurra ára skeið og
allir bátar hefðu verið seldir frá
Djúpavogi árið 1979 og hefðu
menn séð fram á fólksflótta. Þeg-
ar séð varð hvert stefndi, hefðu
skuldbreytingar farið fram, en
fram til þess tíma hefðu sam-
vinnufyrirtæki staðið undir
rekstrinum með lánum, en þeim
hefði síðan verið breytt í hluta-
bréf, þegar fyrir lá að fyrirtækið
myndi ella verða gjaldþrota.
Tvær milljónir hefðu þá verið
lagðar í fyrirtækið, en lánastofn-
anir hefðu lýst því yfir að ekki
yrði um lán til fyrirtækisins að
ræða nema hlutafé yrði aukið. Lán
hefði fengist og þá verið keyptur
skuttogari, Sunnutindur SU 59.
Einnig sagði Gunnlaugur að sjáv-
arafurðadeild Sambandsins hefði
sett peninga inn í fyrirtækið, og
væri hlutafé nú 9 milljónir alls.
Hins vegar dygði það ekki til, því
fyrirtækið væri enn illa statt. Til
umræðu hefði komið á síðasta að-
alfundi að auka hlutafé um 6
milljónir króna og hefði það verið
samþykkt, væri það mál nú til
frekari athugunar.
„Mánasilfur“
fjórða bindi komið út
IIT ER komið á vegum IÐUNNAR
fjórða bindi ritsafnsins Mánasilfurs,
cn það er úrval úr íslcnskum endur-
minningum og sjálfsævisögum. Gils
Guðmundsson valdi efnið og sá um
útgáfuna. — I þessu bindi eru þa'ttir
eftir 32 höfunda, og eru þar með höf-
undar sem efni eiga í Mánasilfri
orðnir 118 talsins.
Fyrirhugað er að af þessu rit-
safni komi út eitt bindi í viðbót.
— Líkt og í fyrri bindum er hér að
finna þætti frá ýmsum tímum.
Elsti kaflinn er úr Píslarsögu Jóns
Magnússonar, en yngsti höfundur-
inn er Jón Óskar. Níu höfundar eru
á lífi. Efni bindisins er kynnt svo á
kápubaki: „Hér er leitt fram á sjón-
arsviðið fólk úr ýmsum stéttum:
bændur, sjómenn, húsfreyjur,
prestar, læknar, fræðimenn, lista-
menn. Hér segir meðal annars frá
bernskudögum í sveit og kaupstað,
mannraunum, svaðilförum og sál-
arháska og fyrstu sporum á hálli
listamannsbraut. — Mánasilfur er
skuggsjá íslensks mannlífs fyrri
tíðar, ritverk sem jafnt ungir sem
aldnir munu lesa sér til óblandinn-
ar ánægju." — Mánasilfur, fjórða
bindi, er 280 blaðsíður að stærð.
Oddi prentaði.
Þú kemur með þinn DAIHATSU
og keyrir burt á nýjum
DAMATSU
CHARMANT
Verð frá
154.200 kr. með öllu
-r þinn bíll
Mismunur
samningsatriði
TAFT 4x4
Verð frá
220.900 kr. með öllu
t þinn bíll
Mismunur
samningsatriði
Daihatsuumboðið, Armúla 23, — sími 85870-
CHARADE
Verð frá
124.700 kr. með öllu
-f þinn bíll
Mismunur
samningsatriði