Morgunblaðið - 09.11.1982, Síða 16

Morgunblaðið - 09.11.1982, Síða 16
16 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 9. NÓVEMBER 1982 TSíQamatkadulinn ^f}iattif<fctu 12 - 1S Nýr bíll Lada 1600 1982 Hvítur, ekinn 6 þús. km. Verö kr. 110 þus Lancer1400 GL 1980 Blásans, ekinn 26. þús. km.^Ýmsir aukahlutir. Verö 105 þús. (Skipti mögu- leg á odyrari). Toyota Cressita Coupé Rauöur. 2ja dyra. Ekinn 44 þús. km. Sjálfskiplur. snjó- og vefrardekk. Mazda 626 2000 1980 Brúnsans., 5 gira. Ekinn 33 þús. km. Verö 115 þús. (Ath. skipti á sendibíl). Ford Fairmont 1978 Grásans., 2ja dyra, 4 cyl Beinsklptur (4 gíra), aflstýri. Ekinn 60 pús. km. VerO 90 pús Honda Qunted 1981 Qrásans., 5 gira, ekinn 9 þús. km. Verö 155 þús. Mazda 929 Station 1981 Blásans., sjálfskiptur. aflstýri. ekinn 32 þús km. Verö 156 þús. M. Benz 250 1979 Ljósblár (metalic). Ekinn 52 þús. km. 6 cyl. m/öllu. Vökvalæsingar Level- control, nýleg. Endurriövarinn. Verö 330 þús. Volvo 244 GL 1980 Blár, ekinn 23 þús. km. Beinskiptur m/aflstýri, sílsalistar og grjótgrind. Verö 185 þús. Bang&Olufeen bað er unun að eiga Bang & Olufsen Þegar gæöi, hönnun og verö haldast jafn vel í hendur og í Beocenter 7002 hljómtækja- samstæðunni, þá er valið auðvelt. Komdu og leyfðu okkur að sýna þér þessi frábæru hljómtæki, sem fá lof tónlist- ar- og listunnenda. Verð 39.980 — með hátölurum. Greiðslukjör. Beovox S 55 AF ERLENDUM VETTVANGI eftir WILLIAM SAFIRE vildu Bandaríkjamenn í Víet- nam. Vesturlönd samþykkja þetta auðvitað ekki, fulltrúar þeirra vilja okkar menn í Kabúl á bak o(? burt. Þessu svarar Brezhnev- Chernenko-klíkan neitandi, hún vill að við berjumst áfram án þess að auka liðsstyrk okkar, Grishin-klíkan segir einnig nei, en hún vill að við sendum hálfa milljón manna á vettvang og brjótum alla andstöðu á bak aft- ur. Mér finnst skynsamlegast að reyna að bjarga andlitinu með því að finna einhvern þriðja að- ila, sem gæti tryggt það, að ný ríkisstjórn í Afganistan sé ekki and-sovésk og síðan kölluðum við her okkar heim. Veröldin með augum Yuri Andropovs LKONII) Brezhnev er 75 ára og sagt að hann sé ekki við störf i Kreml nema um tvær stundir á degi hverjum. Hann er þó enn forseti Sovétríkj- anna og leiðtogi sovéska kommúnistaflokksins. Miklar vangaveltur hafa verið um það undanfarna mánuði, hvort Brezhnev sé í raun sá sem úrslitum ræður i Kreml. Það kom til dæmis fram í skrifum vestrænna blaða um ræðu þá til dýrðar sovéska hernum sem Brezhnev flutti mið- vikudaginn 27. október og endurtekin bliðuhót hans í garð Kínverja, að þessa afstöðu megi rekja til þess að menn eins og Yuri V. Andropov, fyrrum yfirmaður KGB, og Konstantín U. ('hernenko séu farnir að móta stefnuna. í þeirri grein sem hér birtist setur William Safire, dálkahöfund- ur hjá The New York Times, sig í spor Andropovs og litur á veröldina. essi laglega kona á Krím- skaga sem segist búa yfir yfirnáttúrulegum lækn- ingarmætti kann að hafa gert fé- laga Brezhnev lífið bærilegra, en slíkur kraftur dugar ekki lengi. Valdabaráttan er hafin í Moskvu og ég, Yuri Andropov, er fulltrúi Jæirrar stefnu sem mun sigra. Fylgismenn Brezhnevs vilja hlut Konstantín Chernenkos (eða Kirilenko um stuttan um- þóttunartíma) sem mestan. Þeir vilja óbreytt ástand — efna- hagslegan samdrátt, ævintýra- mennsku í Afganistan, uppgjöf fyrir Israelsmönnum, vonlaus friðmæli við Kínverja og árang- urslausa tilburði til að flækja Bandaríkjamenn í slökunar- stefnunni og SALT. Sumir hershöfðingjanna standa á bak við Viktor Grishin. Vestrænir sérfræðingar í mál- efnum okkar hafa ekki áttað sig á því, að hann er Ariel Sharon Sovétríkjanna. Viktor vill endur- taka Svínaflóa-ævintýrið með öfugum formerkjum — stór- velda-árekstur í íran og Júgó- slavíu, sem kynni að snúa fram- tíðarstöðunni við okkur í hag ef vanmáttugur forseti tekur við af Reagan. Miðstjórnin þarf að taka af- stöðu til þessara mála: Hvaða leið er best til að lokka Banda- ríkjamenn og Vestur-Evrópu- þjóðir til að láta okkur í té þann gjaldeyri, þá tækni og þau mat- væli sem við þörfnumst á sama tíma sem við berjum niður allar tilraunir til frjálsræðis hjá Pól- verjum og Úkraínumönnum? Og hvernig eigum við að brjótast út úr einangruninni gagnvart Kína? Að mínu mati felst fyrsta skrefið í persónudýrkun. Ég yrði eins ólíkur Brezhnev og hann Krúsjeff og Krúsjeff Stalín. Sérhver breyting verður að hafa það yfirbragð að um gjörbreyt- ingu sé að ræða. Þótt ég hafi ver- ið yfirmaður KGB í 15 ár og hafi verið sendur til Búdapest til að berja niður byltinguna í Ung- verjalandi 1956, nýt ég vinsam- legs álits á Vesturlöndum. Ég kann ensku og er vel til fara. Skjólstæðingur minn Arbatov (yfirmaður Stofnunar um Bandaríkin og Kanada í Moskvu, innsk. þýð.) hefur talið kunn- ingjum sínum í Washington trú um að ég sé þannig gerður að ég taki rökum. Það mál sem ég mun nota til að hefja mig til æðstu valda er þetta: Eina leiðin til að njóta ávaxta slökunarstefnunnar án þess að opna hina minnstu frels- isglufu í Austur-Evrópu er að ná samkomulagi um Afganistan. Bröltið þar hefur mistekist. 6% af herafla okkar hafa verið bundin þar og hershöfðingjarnir segja að þeir þurfi 25% af hern- um til að berja alla andspyrnu niður. Vegna átakanna hafa 116 þjóðir fordæmt okkur á allsherj- arþingi Sameinuðu þjóðanna og slík andúð meðal þjóða þriðja heimsins grefur undan áliti á okkur meðal araba og írana. Afganistan-ævintýrið hefur skapað vanda innan okkar eigin landamæra vegna andmæla mú- hammeðstrúarmanna. Við vanmátum þessa bölvuðu afgönsku fjallamenn og töldum þá eins meðfærilega og Ungverja og Pólverja, en þeir eru til þess búnir að fórna gífurlegum fjölda mannslifa fyrir málstaðinn. Hitt er þó verra að þeir hafa búið um sig í Pakistan og stundað hernað þaðan með opinberum stuðningi Bandaríkjamanna og leynilegri aðstoð Kínverja og ísraels- manna. Af þessum sökum hef ég lagt til við miðstjórnina, að við drög- um saman seglin og leitum sam- komulags. Nýíega létum við afg- anska leppa okkar færa Pakist- önum þau boð fyrir milligöngu Sameinuðu þjóðanna, að sovésk- ar hersveitir yrðu kallaðar á brott, ef ekki yrði hróflað við stjórn okkar í Afganistan. Þetta Hinar klíkurnar í miðstjórn- inni segja, að með þessu yrði stjórn kommúnista í fyrsta sinn steypt af stóli — ef við lítum fram hjá Allende í Chile. Þær segja einnig að með þessu yrði ýtt undir Pólverja og bandaríska harðlínumenn. Ég svara þessu með því að segja, að samkomu- lag um Afganistan geti orðið upphafið að sigurgöngu okkar um alla jarðarkringluna. Eftir að hafa samið um Afg- anistan yrði miklu auðveldara fyrir okkur að ná undirtökunum í nýrri ríkisstjórn í íran eftir fráfall Khomeinis. Reyni Sam- staða á ný í Póllandi getum við barið hana niður með hörku án þess að fórna gasleiðslunni til Evrópu. Þegar Bandaríkjamenn reyna að ná sínu fram í Mið- Austurlöndum getum við sam- einað múhammeðstrúarmenn gegn þeim og séð til þess að Hussein, Jórdaníukonungur, ræði ekki við Menachem Begin. Mikilvægara væri þó að næði Kabúl-Iausn mín fram að ganga gætum við hafið nýja friðarsókn í því skyni að neyða Bandaríkja- menn til vopnasamninga, sem staðfesta yfirburði okkar án þess að skuldbinda okkur til að lúta eftirliti útlendinga á yfirráða- svæði okkar. Mikilvægast yrði, að með Kabúl-lausninni næðum við aftur sambandi við ráða- menn í Peking. Allir vita, að Kínverjar vilja að við verðum við þremur kröfum: Fjarlægjum Víetnama frá Kampútseu, sem við getum ekki; köllum heim ein- hverjar af þeim 46 herdeildum sem við höfum við kínversku landamærin, sem við getum sagt að við ætlum einhvern tíma að gera; og hættum ofbeldi gagn- vart þriðja heiminum og helsta bandamanni Kína, Pakistan, með því að hverfa á brott frá Afganistan, en það vil ég að við gerum enda verði að nýju sam- band milli Kína og Sovétríkj- anna eftir það. Næsti foringi í Kreml verður sá sem er fulltrúi sigurstrang- legustu stefnunnar. Brezhnev- Chernenko-klíkan vill engar breytingar, hún kann að fara með völdin í skamman umþótt- unartíma. Síðan verður slagur- inn milli Grishin og mín. Lykill minn að völdunum er í Kabúi, en ég má ekki leika of djarft. (Þýð. Bj.Bj.)

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.