Morgunblaðið - 09.11.1982, Qupperneq 19

Morgunblaðið - 09.11.1982, Qupperneq 19
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 9. NÓVEMBER 1982 19 A Flóra-Set_________________________ Falleg lýsing fyrir gróöur- skreytingar, fiskabúr o.fl. B Theraterm hitalampinn og Vitalux Ijósalampinn. Vitalux veitir húöinni þann lit sem allir sækjast eftir._________________ OSRAM jafnt utan sem innan dyra. OSRAM alls staðar. Theraterm linar þjáningar þreyttra vööva og viðkvæmra liðamóta. C Solarium Ijósalampinn. í honum eru bæði Theraterm og Vitalux perur sem nota má samtímis eða hvorarfyrirsig. OSRAM HEILDSALA: JÓH. ÓLAFSSON & CO. H/F 43 SUNDABORG 13—104 REYKJAVÍK — SÍMI 82644 Loftvarnaeldflaugar af gerðinni SA-1 á hersýningunni á Rauða torginu á byltingardeginum 7. nóvember. Þær voru fyrst sýndar á hersýningunni 1960. Hersýning í Moákvu á afmæli byltingarinnar Moskvu, 8. nóvember. Al*. MIKIL hersýning fór fram á Rauða torginu í Moskvu á sunnudag i til- efni 65 ára afmælis rússncsku bylt- ingarinnar. Leonid Brezhnew, for- seti Sovétríkjanna fylgdist með her- sýningunni af grafhýsi Lenins, en hún stóð í tvær klukkustundir. Meira en 200 stríðsvélar og hertæki tóku þátt í hersýningunni auk mörg þúsund hermanna. í móttökuathöfn í Kreml eftir hersýninguna sagði Brezhnew, að herstyrkur Sovétríkjanna “ætti að slökkva í glóandi ofnum sumra heimsvaldasinnaðra styjórnmála- foringja" og hann sagði ennfrem- ur, að Sovétríkin væru undir það búin að svara sérhverjum árásar- aðila með “lamandi" gagnárás. Tvö ný svoézk vopn voru sýnd á hersýningunni á sunnudag. Var annað þeirra brynvagn með 30 mm fallbyssu og búinn eldflaugum gegn skriðdrekum. Telja vestræn- ir hernaðarsérfræðingar, að þessi hervagn sé mjög mikið notaður af sovézka hernum í Afganhistan. Valdarán fram- ið í Efri Volta l*arÍ8, 8. nóvembvr. Al*. TVEGGJA ára ríkisstjórn Vestur- Afríkuríkisins Efri Volta var steypt af stóli siðdegis á laugardaginn og árdegis á sunnudaginn, en þeir sem að valdaráninu stóðu eru taldir vera aðilar úr her landsins auk baráttu- hóps sem kallar sig „Samtök þjóðar- verndunar". Annars er lítið vitað um atburðarás í Efri Volta, þvi sam- bandslaust hefur verið þangað síðan á sunnudaginn. Meðan samband var, tilkynnti útvarpið í landinu að útgöngubann væri komið í gildi, jafnframt hvatti útvarpið landsmenn til þess að fylkja sér undir merki nýju stjórnarinnar. Útvarpið lét þess þó ekki getið hverjir skipuðu stjórnina. Lesin var tilkynning frá ráðamönnunum nýju og gamla stjórnin þar sökuð um ævintýra- lega stjórnsýslu og landráð, svo ekki sé minnst á spillingu. Stjórnin sem virðist fallin í Efri Volta var undir stjórn Saye Zerbu hershöfðingja, hún var sem fyrr segir tveggja ára gömul. Hún sett- ist að völdum í nóvember 1980 í valdaráni sem fram fór án blóðs- úthellinga. Ekki er vitað um manntjón að þessu sinni, en talið er að nokkrir hafi fallið. afliroð li«ndon, 8. nóvember. Al*. ÍRANIR hófu stórsókn inn í frak á laugardaginn og á sunnudaginn sagði útvarpið í Teheran, höfuðborg fran, frá stórsigrum írana, sem fóru með hersveitir sinar 10 kilómetra inn í ír- ak og hertóku að minnsta kosti tvær borgir. Utvarpssendingin greindi frá því að 4.000 írakar hafi fallið og 2.000 aðrir teknir höndum á fyrstu klukkustundum og fjöldinn hefði aukist er á árásina leið. Útvarpið hafði þessar tölur eftir háttsettum foringja í íranska hernum. Um- ræddur herforingi gat þess jafn- framt, að íranir hefðu eyðilagt að minnasta kosti 75 skriðdreka og náð á sitt vald 62 brynvörðum hervögnum og 97 vöru- og herflutn- ingabílum á fyrstu 12 klukkustund- um aðgerðanna. 60. skriðdrekasveit og 24. landherdeild íraka báru hit- ann og þungann af leiftursókn ír- ana og í fyrrnefndri útvarpsfrétt var þess getið að báðar deildirnar hafi beðið mikið afhroð. Auk þess sögðust íranir hafa grandað þrem- ur herþotum íraka. frakar hafa til þessa aðeins sagt að tilraunir herdeilda írana að komast yfir landamærin hafi mis- tekist, her íraka hafi barið á bak aftur árás íranska hersins. Sendinefnd frá írak fór til Súdan á sunnudaginn með það fyrir aug- um að skrá sjálfboðaliða úr súd- anska hernum sér til aðstoðar. Fljótlega eftir komu sína til Súdan ræddu nefndarmenn við varafor- seta landsins, Omer Mohamed Tayeb, en hann lýsti því yfir meðan á opinberri heimsókn hans til írak fyrir skömmu stóð, að Súdanir myndu senda herlið írökum til að- stoðar. Þá er ekki langt síðan for- seti landsins Gaafar Nimeiri sagði í ræðu að stjórnin væri fús til að senda írökum öflugt aðstoðarlið. W atergate-veisla í Washington Washington, 8. nóvember. Al*. FYRRUM samstarfsmenn Richard Nixons, fyrrverandi Bandaríkjaforseta, komu saman á laugardaginn í miklum veislusal i Washington til þess aö rifja upp gömul kynni og rabba um gömlu góðu dagana, en hápunktur þeirra var reyndar nokkuð bitur, Watergate-hneykslið umtalaða sem varð til þess að ýmsir af nánustu samstarfsmönnum Nixons voru dæmdir til fangelsis- vistar. Meðal gesta á laugardaginn voru auk Nixons, John Mitchell, ('harles ('olson, Ron Ziegler og Rosmarie Woods, einkaritari Nixons. Meðal þeirra sem ekki voru í hópi gesta voru H.R. Italdeman og John Erlichman. Fréttamenn fengu ekki að það hvíli enn á okkur flestum eins ganga um veislusali, en blaða- mannafundur var haldinn í minni sal rétt áður en veislan hófst. Richard Nixon mætti ekki á fund- inn og ræddi ekki við fréttamenn, en þau Colson, Mitchell, Ziegler og Woods gerðu það hins vegar. Ziegler sagði enga ástæðu aðra fyrir veislunni en þá að þessi fyrr- um náni samstarfshópur hefði viljað hittast á ný og rifja upp kynnin. Hann var spurður hversu þungt Watergate-hneykslið hefði í raun verið á herðum Nixon- hópsins. Hann svaraði: „Water- gate er ekki úr sögunni, ég held og mara. Frú Woods lét eftir sér hafa að hún væri stolt af hverri mínútu sem hún vann undir stjórn Nix- ons, sem yrði í minnum hafður sem einn fræknasti forseti Banda- ríkjanna, ef ekki sá fræknasti. Colson, sem eitt sinn sagði að hann myndi ganga fram af ömmu sinni ef það þjónaði hagsmunum Nixons, sagði að hann hefði lifað sinn skammt af harmleikjum um dagana. Nú þegar sá stærsti væri að baki gæti hann ekki annað sagt en að harmleikirnir hafi verið gagnlegri en sigrarnir. A Diana von á sér? London, 9. nóvember. Al*. BRESKA sunnudagsblaðið Sunday I’eople greindi frá því á sunnudaginn að líkur bentu til þess að I)iana Bretaprinsessa væri kona ekki einsömul um þess- ar mundir, en skammt er siðan hún eignaðist með eiginmanni sínum, Karli Bretaprins, fyrsta krúnuerfingja þeirra hjóna. ít- alska kvennablaðið Novella var með sams konar vangavcltur fyrir skömmu, en talsmenn bresku krúnunnar báru það til baka. Sunday People byggir grun sinn á ýmsu í fari Diönu að undanförnu. Blaðið bendir á að hún hafi oft lýst yfir áhuga sín- um að eiga mörg börn og að undanförnu hafi hún birst mun glaðari og kátari en nokkru sinni fyrr. Um helgina var hún stödd í veislu sem samtök barnaheimila í Bretlandi geng- ust fyrir. Þar var einnig sýning á ýmsum leiktækjum smábarna og er prinsessan virti fyrir sér lítið dúkkuhús heyrði blaða- maður SP hana segja: „William litli myndi hafa gaman af að leika sér að þessu með bræðrum sínum og systrum." Þetta eru sem sé rökin, en talsmaður krúnunnar neitaði því hins veg- ar ekki að Diana hefði hitt fæð- ingarlækni sinn nýlega, „en það er ekki óeðlilegt," sagði blaða- fulltrúinn. um helgina írakar guldu mikið

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.