Morgunblaðið - 09.11.1982, Blaðsíða 20
20
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 9. NÓVEMBER 1982
iMtóíTÍíh
Útgefandi hf. Árvakur, Reykjavík.
Framkvæmdastjóri Haraldur Sveinsson.
Ritstjórar Matthías Johannessen, Styrmir Gunnarsson.
Fulltrúar ritstjóra Þorbjörn Guömundsson,- Björn Jóhannsson.
Fréttastjórar Freysteinn Jóhannsson, Magnús Finnsson, Sigtryggur Sigtryggsson.
Auglýsingastjóri Baldvin Jónsson.
Ritstjórn og skrifstofur: Aöalstræti 6, sími 10100. Auglýsingar: Að-
alstræti 6, sími 22480. Afgreiðsla: Skeifunni 19, sími 83033. Áskrift-
argjald 130 kr. á mánuði innanlands. í lausasölu 10 kr. eintakið.
„Því verðum við að
komast til valda...“
Alþýðuflokksmenn héldu
þing sitt um helgina. Við
kosningar í æðstu trúnaðarstöð-
ur urðu enga breytingar, að vísu
dró Vilmundur Gylfason á
Magnús H. Magnússon í vara-
formannskjörinu en það dugði
ekki til, svo að enn verða Vil-
mundur og fylgismenn hans að
bíða í tvö ár. Miðað við aukið
fylgi Vilmundar nú frá því hann
barðist fyrst við Magnús um
varaformennskuna ætti Vil-
mundur að geta haft það næst.
Fyrir kosninguna sagði Vil-
mundur, að ekki væri verið að
kjósa um persónur heldur „mis-
munandi aðferðir og áherslur",
segist hann vera fulltrúi þeirra
sem sameina vilja það sem
hann kallar „klassíska jafnað-
arstefnu" og „ný-róttækni“ —
vafalaust hafa þeir Guðmundur
J. Guðmundsson, Ólafur R.
Grímsson og Stefán Jónsson,
þingmenn Alþýðubandalagsins,
verið fulltrúar „ný-róttækninn-
ar“ á setningarfundi þings Al-
þýðuflokksins! Það hefur legið í
loftinu frá því að Alþýðuflokkur
og Alþýðubandalag töpuðu í
sveitarstjórnarkosningunum í
vor, að flokkarnir sjái þá leið
helsta út úr vandanum að taka
höndum saman.
í setingarræðu þingsins sagði
Kjartan Jóhannsson, formaður
Alþýðuflokksins, að viðræður
sínar við ráðherra í ríkisstjórn
Gunnars Thoroddsens snúist
um þrennt: „Kosningar fari
fram sem fyrst, stjórnarskrá
verði afgreidd og ríkisstjórnin
fari frá svo hefja megi endur-
reisn íslenskra efnahagsmála
og stjórnmája — og hefja nýtt
tímabil í íslandssögunni.“ í
ræðunni sagði Kjartan að „tví-
skinnungurinn í íslenskum
stjórnmálum" nái hámarki í
Sjálfstæðisflokknum. Hann
sagði einnig, að víða um heim
þar sem „íhaldsöflin" hafi kom-
ist til valda hafi þau ráðist á
„velferðarkerfið". „Þegar
harðnar á dalnum vex hættan á
að íhaldsöflin seilist líka til
þess hér á landi... Því verðum
við að komast til valda að af-
stöðnum kosningum," voru
lokaorð Kjartans Jóhannssonar.
Hugmyndaflug formanns Al-
þýðuflokksins nær augsýnilega
ekki lengra en það, að hann ætl-
ar að „hefja nýtt tímabil í ís-
landssögunni" í samvinnu við
framsóknarmenn og kommún-
ista. Kjartan Jóhannsson vill
leggja allt undir til að „komast
til valda að afstöðnum^kosning-
um“, hann er byrjaður að kyrja
sama söngin og ráðherrar Al-
þýðubandalagsins, að þeir hafi
sérlegu hlutverki að gegna sem
gæslumenn velferðarinnar gegn
ágangi „íhaldsaflanna" í
Sjálfstæðisflokknum.
Maður líttu þér nær. Síðan
kratar og kommúnistar sátu
saman í ríkisstjórn 1978 til 1979
hefur efnahagsóstjórnin keyrt
um þverbak og það er hún sem
ógnar velferðarkerfinu. Aðeins
krötum og kommúnistum dett-
ur í hug, að leiðin út úr vandan-
um sé lengra orlof. Sjálfbirg-
ingur krata breytir engu þar
um. Kratar hafa svo sannarlega
ekki stuðlað að festu og ábyrgð í
stjórnmálalífinu undanfarin
misseri. Skammsýni Kjartans
Jóhannssonar er svo sannarlega
dæmafá, ef hann heldur að með
samvinnu krata, framsóknar og
kommúnista takist að „hefja
nýtt tímabil". Um slíka sam-
vinnu er formaður Alþýðu-
flokksins þó að ræða við ráð-
herranefndina um framtíð rík-
isstjórnarinnar.
I
65 ára
ógnarstjórn
ess var minnst um helgina,
að 65 ár eru liðin síðan
kommúnistar náðu völdum í
Sovétríkjunum. Á þessu árabili
hafa líklega jafn margar millj-
ónir manna í Sovétríkjunum
týnt lífi vegna ógnarstjórnar-
innar þar. Sovéska stjórnkerfið
er ómannúðlegt og valdhafarnir
í Kreml setja allt sitt traust á
herinn og mátt hans, eins og
sannaðist í ræðum þeirra og yf-
irlýsingum á byltingarafmæl-
inu.
Hið sviplausa þjóðfélag
ógnarstjórnarinnar þolir verst
af öllu sterka einstaklinga, allir
eiga að vera í sama móti og lúta
einum vilja, þeir sem rísa upp
eru gerðir brottrækir eða lokað-
ir inni: Alexander Solsjenitsyn
og Andrei Sakharov heita tvö
mikilmenni sem hafa rifið sig
undan okinu. Solsjenitsyn var
rekinn úr landi, Sakharov er í
einangrun og má þola margvís-
lega áreitni óbilgjarnrar leyni-
lögreglu. í hinum frjálsa heimi
eigum við að gera byltingar-
afmæli sovésku ógnarstjórnar-
innar að minningardegi um þá
sem risið hafa gegn henni
heima fyrir og týnt lífi vegna
ofsókna hennar.
Framboð Friðriks fær
Krá llalli Hallssyni,
hlaóamanni Mbl. í Luzorn.
„GENS una sumus" — við erum ein
fjölskylda, eru einkunnaroró FIDE,
Alþjóöaskáksambandsins, daglega
setjast hundruð skákmanna hvar-
vetna að úr heiminum að taflborðinu
hér í Luzern og heyja harða baráttu
og menn takast í hendur og þakka
drengilega baráttu þegar upp er
staðið. Olympíuskákmótið setur
mjög svip sinn á allt borgarlíf í Luz-
crn. Það hefur farið vel fram í hví-
vetna og meira að segja kappar eins
og Viktor Korchnoi, hinn landflótta
Sovétmaður, hafa haft hægt um sig.
En annars konar barátta fer fram
— baráttan um forsetaembætti
FIDE. Ilún fer fram að tjaldabaki —
er óvægin og hörð. Þar hafa ein-
kunnarorð FIDE orði að víkja — og
þá fyrst og fremst ber flestum sam-
an um að ('ampomanes hafi innleitt
nýja siði. Það er ákaflega erfitt að
eiga við menn, sem setja málefni til
hliðar en peningana í öndvegi.
„Kosningabarátta ('ampomancs
minnir helst á bandaríska kosn-
ingabaráttu — hann hefur hér fjöl-
mennt lið og heldur hverjum veizlu
sem vill, leitar sífellt færis á að
koma höggi á mig,“ sagði Friðrik
Olafsson í samtali við blaðamann
Mbl.
Framboð Friðriks fær byr
Þrír menn berjast um forseta-
titilinn — Friðrik Ólafsson, for-
seti FIDE sem nú sækist eftir
endurkjöri, Campomanes frá Fil-
ippseyjum og Kazic frá Júgóslav-
íu. Brezki skákfrömuðurinn Ray-
mond Keene sagði fyrir helgi, að
Friðrik ætti í vök að verjast og
tíminn væri að renna út.
í lok síðustu viku komu hingað
menn til þess að vinna að fram-
boði Friðriks — Guðmundur G.
Þórarinsson, Gunnar Gunnarsson,
forseti Skáksambandsins, Þor-
steinn Þorsteinsson, varaforseti
sambandsins, og Friðþjófur M.
Karlsson, gjaldkeri Skáksam-
bandsins og gjaldkeraefni Frið-
riks.
Og um helgina hafa línurnar
veruleg skýrst og framboð Frið-
riks fengið byr undir báða vængi.
Þing FIDE hefst á morgun og á
fimmtudag verður kosið. Ekki er
enn ljóst hve margir fulltrúar
verða, — sum sambönd gefa um-
boð til þess að kjósa en líklega
verða atkvæði um 116 — gætu þó
orðið eitthvað fleiri. Friðrik hefur
tryggt sér stuðning 42 þjóða í 1.
umferð og virðist nokkuð öruggur
með að komast í 2. umferð. Þó ber
að hafa í huga að atkvæðagreiðsl-
an verður leynileg. Friðriki hefur
tekist að reka fleyga í varnar-
garða Campomanes og mörg ríki
þriðja heimsins hafa í viðræðum
við íslenzku fulltrúana lýst yfir
stuðningi við Friðrik. Kínverjar
styðja hann eindregið, einnig
Indónesar, Hong Kong-búar og
Japanir.
V-Evrópa fylkir sér að baki
Friðriki þó með þeim undantekn-
ingu, að Spánverjar styðja
Campomanes og vegur þar þungt á
metunum sameiginleg tunga. En
það hefur komið á óvart að Wales
hefur ekki viljað gefa upp sína af-
stöðu og hallast menn að því að
Wales styðji Campomanes, sem
var fyrir skömmu í Wales vegna
framboðs síns. Austurríkismenn
hafa nú lýst því yfir við íslenzku
fulltrúana, að þeir styðji Friðrik,
en lengi ríkti óvissa um afstöðu
þeirra og benda má á, að Jung-
wirth, forseti austurríska sam-
bandsins, hugleiddi lengi að fara
fram gegn Friðriki og sló á strengi
Ólympíuskákmótið í Luzern:
Báðar íslenzku sveitir
Krá llalli llallssyni, blaðamanni Mbl.
í laizern.
ÍSLENZKA karlasveitin mætti
ísraclum í 8. umferð Olympíuskák-
móLsins í Luzcrn og lyktaði viður-
eign þjóðanna með jafntefli, 2—2.
Guðmundur Sigurjónsson tefldi
við stórmeistarann Grúnfeld á 1.
borði og lyktaði viðureign þeirra
með jafntefli eftir að Guðmundur
hafði haft undirtökin — en ekki
náð að knýja fram sigur. Jón L.
Árnason og Murey tefldb fjöruga
skák á 2. borði og vakti viðureign
þeirra mikla athygli. Jón L. Árna-
son náði góðri stöðu, en varð að
láta drottningu sína fyrir riddara
og hrók. Jón hafði tvo hróka og tvo
léttamenn gegn drottningu og
hrók Mureys. Gallinn var bara sá,
að Murey hafði frípeð og þó Murey
léti drottningu sína fyrir báða
hróka Jóns þá dugði það ekki —
Murey sigraði í fjörugri skák.
Margeir Pétursson tefldi við
Birnboim á 3. borði og kafsigldi
andstæðing sinn. Jóhann Hjart-
arson átti í höggi við hinn unga
Greenfeld, þeir hafa háð marga
hildi í unglingaskákmótum.
Skömmu fyrir bið missti Jóhann
af að því er virtist vinningsleið, en
Greenfeld hafði fórnað skiptamun
fyrr vanaleg sóknarfæri og hafði
auk þess tvö peð upp úr krafsinu.
Þrátt fyrir að skákin væri dautt
jafntefli, þá fór hún tvívegis í bið.
Greenfeld vildi semja, en fyrirliði
ísraelsku sveitarinnar neitaði eft-
ir að hafa ráðfært sig við Grún-
feld og Murey, sem síðar lágu yfir
biðstöðunni lengi nætur án þess að
finna vinningsleið — og Jóhann og
Greenfeld sömdu síðan í gær-
morgun.
Á laugardag mættu íslenzka
sveitin Portúgal, sem hefur komið
nokkuð á óvart með góðri frammi-
stöðu. Jafntefli varð á þremur
efstu borðunum, en Jóhann Hjart-
arson náði að knýja fram íslnezk-
an sigur með því að sigra Santos á
9
4. borði — Jóhann hefur staðið sig
mjög vel hér á Ólympíumótinu í
Luzern í Sviss.
Ilelstu úrslit í 7. umferð:
V l»ýzkaland — Sovélríkin 1,5—2,5
llúbncr — Kasparov 0,5—0,5
Cnziker — Polugaevsky 0,5—0,5
liobron — Tal 0,5—0,5
Kindermann — Yusupov 0—1
llolland — Kandaríkin 1,5—2,5
Timman — Browne 0,5—0,5
Sosonko — Alburl 0,5—0,5
Kee — Tarjan 0,5—0,5
Liglerink—Chrisliansen 0—I
Júgóslavía — Tékkóslóvakía 1,5—2,5
Ljubojevic — Horl 0,5—0,5
(■ligoric — Smejkal 0,5—0,5
Ivanovic — Ktacnik 0—1
llulak - Jansa 0,5—0,5
ÁTTUNDA umferðin sem tefld var
á sunnudaginn var aðeins hálfnuð
þegar íslenska sveitin hafði tekið
forystuna í viðureigninni við ísra-
clsmenn, því Birnboim missteig
sig illilega í byrjuninni og átti tap-
að tafl eftir aðeins fimmtán leiki:
Ilvítt: Margeir Pétursson.
Svart: Birnboim (ísrael).
Grúnfeldsvörn.
1. d4 — Rf6, 2. c4 — g6, 3. Rc3 —
d5, 4. cxd5 — Rxd5, 5. e4 — Rxc3,
6. bxc3 — Bg7, 7. Rf3 — c5, 8.
Ilbl
Þessi leikmáti hefur notið
töluverðra vinsælda upp á síð-
kastið, en samt reynist Birnboim
ekki vel með á nótunum. Nú
hefði svartur átt að hróka.
8. — Rc6?, 9. d5 — Re5
Eftir 9. - bxc3, 10. Bd2 -
Bxd2+, 11. Dxd2 nær hvítur peð-
inu aftur með yfirburðastöðu.
10. Rxe5 — Bxe5, 11. Bb5+ —
Kf8?
Svirtur er að vísu ekki öf-
undsverður af hlutskipti sínu
eftir 11. - Bd7, 12. Db3 - 0-0,
13. Bxd7 — Dxd7, 14. 0-0 — b6,
en það var þó skárri kost.ur.
Kanada — Kngland 2,5—1,5
Ivanov — Miles 1—0
Sullles — Nunn 0—1
llerbert — Speelman 0,5—0,5
l)ay — Mestel 1—0
dngverjaland — Danmörk 3,5—0,5
Portisch — Christiansen 1—0
Kibli — Mortensen 0,5—0,5
Sax — Ost-llansen 1—0
Cosm — Kries-Nielsen 1—0
Sviss — Búlgaría 2,5-1 „5
Korchnoi — Tringov 1-0
Wirthensohn — V'elikov 0,5—0,5
Parlos — Jnkiov 1—0
/ueber — Donchev 0—1
Kúmenía — Indónesía 2,5—1,5
(.herogiu — Ardiashyah 0,5—0,5
Suba — llonoko 1—0
Ciocaltea — Adianto 0,5—0,5
(ihinda — Miolo 0,5—0,5
Margeir
unnið efl
12. Bh6+ — Kg8, 13. (+0 — bxc3,
14. Db3 — Bd4, 15. Bc4
Eftir þennan öfluga leik kemst
svartur ekki út úr klemmunni.
15. — Dd6, 16. Khl — b6, 17. f4
— Hb8, 18. e5 — Dd8, 19. f5 —
De8, 20. d6 — e6, 21. fxe6.
Svartur gafst upp, því eftir 21.