Morgunblaðið - 09.11.1982, Blaðsíða 42
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 9. NÓVEMBER 1982
Jón skoraði
sigurkörfu KR
á síðustu
sekúndu leiksins
Stórskemmtilegri viðureign KR
og ÍBK í úrvalsdeildinni í körfu-
knattleik í Hagaskólahúsinu ó
sunnudag lauk með eins stigs
sigri KR, 74—73, en KR-ingar
geta þakkaö það Jóni Sigurös-
syni aö þeir hirtu bæði stigin í
þessum leik. Skot hans úr erfiðri
stöðu ó síöustu sekúndubrotum
leiksins rataöi ofan í körfuna, en
þegar sekúnda var til leiksloka
voru Keflvíkingar stigi yfir.
Leikur KR og ÍBK var lengst af
góður þótt baróttan hafi verið
mikil, spilið gott og varnirnar
sterkar. Keflvíkingar voru ón Tim
Higgins, sem verið hefur sér-
staklega drjúgur, bæði í vörn og
sókn, en létu þaö sem minnst ó
sig fó og börðust af miklum
dugnaðí allir sem einn og léku
mjög vel.
Um gang leiksins er það aö
segja að hann var í járnum mest-
allan tímann, hvorugum aöilanum
tókst aö ná forskoti eöa komast á
auöan og lygnan sjó. KR-ingar
höföu þó frumkvæöið lengst af, og
í upphafi seinni hálfleiks náöu þeir
níu stiga forskoti, 52—43, og virt-
ust ætla slep'pa, en Keflvíkingar
slepptu þeim aldrei frá sér, minnk-
uöu muninn smátt og smátt og
meö harðfylgi komust þeir yfir,
57—56 þegar átta mínútur voru til
leiksloka.
Síöustu mínúturnar voru æsi-
spennandi, en þá skiptust liöin á
um forystuna og rúmlega 250
áhorfendur skemmtu sér konung-
lega. Þegar rúm mínúta er eftir
náöi Kristján Rafnsson forystu fyrir
KR og síðan komu nokkur hraöa-
upphlaup á báöa bóga sem fóru í
vaskinn, en Þorsteinn Bjarnason
skorar körfu og nær forystu fyrir
ÍBK þegar 11 sekúndur voru eftir
og þótt allt geti gerst í körfu var
eins og Keflvíkingar ætluöu að
haltia forskotinu. KR-ingar reyndu
skot þegar tíminn var aö renna út,
en boltinn skoppaöi af hringnum
og var á leiö aftur fyrir endamörk
þegar Jón Sigurðsson náöi honum
KR — IBK
74:73
og skaut úr nær vonlausri stööu.
Jón var varla búinn aö skjóta þeg-
ar flautan gall, en knötturinn rataöi
rétta leiö, og sigurinn var KR-inga,
sem fögnuöu innilega.
Eins og áöur segir geta
KR-ingar þakkað Jóni sigurinn.
Hann kom fyrst inn á þegar 11
minútur voru til leiksloka, á því
augnabliki sem Keflvíkingar voru
aö ná undirtökunum í leiknum og
ráðleysi var fariö aö gera vart viö
sig í sóknarleik KR-inga. Jón tók
viö stjórninni og leikurinn breyttist
til hins betra hjá KR.
Leikurinn var skemmtilegur á aö
horfa. Keflavíkurliðið á eflaust eftir
aö gera góða hluti, heildin sterk,
vörnin góö og sömuleiðis sóknar-
leikurinn. Liöiö tapar með aöeins
eins stigs mun og mótherjinn hefur
innanborös útlending, sem skoraði
28 stig og mataöi aöra leikmenn
meö góöum sendingum, sem
býsna oft gáfu stig. Hjá KR fengu
ungir og efnilegir menn aö sýna
hvaö í þeim býr, og kom Páll Kol-
beinsson sérstaklega vel frá leikn-
um, einnig Kristján Rafnsson.
Stig KR:
Stewart Johnson 28, Kristján
Rafnsson 14, Páll Kolbeinsson 10,
Ágúst Líndal 8, Jón Sigurðsson 8,
Gunnar Jóakimsson 2, Jón Páls-
son 2 og Stefán Jóhannesson 2.
Stig ÍBK:
Þorsteinn Bjarnason 21, Axel Á.
Nikulásson 18, Jón Kr. Gíslason
16, Björn V. Skúlason 12 og Einar
Ó. Steinsson 6.
— ágás.
McField var frábær
- skoraði 110 stig gegn Skallagrími
í tveimur leikjum
ÞÓR FRÁ Akureyri gerði góða
ferö til Borgarness um helgina.
Léku þeir 2 leiki ó íslandsmóti í 1.
deild í körfuknattleik við heima-
menn, Skallagrím, og sigruðu í
báöum leikjunum, í fyrri leiknum
með 93 stigum gegn 79 og í
seinní leiknum meö 114 stigum
gegn 76.
Fyrri leikurinn var jafn í fyrri
hálfleik, Þór var þó alltaf heldur yfir
og staöan i leikhléi var, 45—39,
Þór i vil. Þór jók muninn strax i
seinni hálfleik, staöan á 6. mínútu
var oröin 63—47 og á 17. mínútu
91—67 fyrir Þór. En Skallagrímur
átti góöan endasprett og á 3 síö-
ustu mínútunum skoruðu þeir 12
stig gegn 2 og sigraöi Þór þvi meö
93 stigum gegn 79. Robert
McField var yfirburöamaður hjá
Þór, hann skoraði 47 stig. Eiríkur
Sigurösson 18 og Valdimar Júlí-
usson 11. Guömundur Guö-
mundsson var bestur í liöi Skalla-
gríms, skoraöi 29 stig, Bragi
Jónsson 18 og Björn Axelsson 12.
Seinni leikurinn var ennþá ójafn-
ari. Skallagrímur hélt í við Þór
fyrstu 10 mínúturnar, á 10. mínútp
var staöan, 14—12, Þór í vil, en
síðan ekki söguna meir því í leik-
hléi haföi Þór náö 20 stiga forystu,
50—30. Sama var uppi á teningn-
um í seinni hálfleik, munurinn var
ennþá 20 stig á 13. mínútu,
75—77, en þá tóku Þórsarar leik-
inn aftur í sínar hendur og sigruöu
meö 38 stiga mun eins og fyrr seg-
ir, 114—76. Robert McField er frá-
bær leikmaður, hann hiröir frá-
köstin, veöur upp völlinn og skor-
ar, hann er allt í öllu hjá Þór og
skoraöi hvorki meira né minna en
63 stig. Eiríkur skoraöi 11 og
Bjarni Sveinsson, Valdimar Júlí-
usson og Jóhann Sigurösson 10
stig hver. Hafsteinn Þórisson skor-
aöi mest fyrir Skallagrím, 23 stig,
Gunnar Jónsson 14, Bragi Jóns-
son 13 og Guðmundur Guömunds-
son 12.
HBj.
Fró úrslitaviðureigninni í 71 kg fiokki. Sigurvegarinn, Halldór Guðbjörnsson, klappar góðlótlega ó kinnina ó
Rúnari Guöjónssyni eftir aö hafa gengið mjög hart aö honum meö hólslás og sigrað hann. Eins og sjó mó er
Rúnar hólfvankaöur. Ljrám.: köe
Reykjavíkurmótiö í judó:
Sigurvegararnir í 71 kg flokki. Fró vinstri: Halldór, Rúnar, Karel og örn, en þeir uröu jafnir í þriðja sæti.
Ljósm.: KÖE
í 71 til 86 kg flokki bar Kári Jök-
ulsson sigur úr býtum. Kári er í
Judófélagi Reykjavíkur. Niels Her-
mannsson varö í ööru sæti og Egill
Sigurðsson i þriöja sæti.
Á SUNNUDAG fór fram Reykja-
víkurmeistaramótið í judó. Keppt
var i þremur þyngdarflokkum
karla, og jafnframt var keppt í
unglingaflokkum, 12—15 óra.
Sextán keppendur voru í karla-
flokkunum þremur, en mikill
fjöldi keppti í unglingaflokkun-
um. Keppni var mjög hörö og
skemmtileg ó mótinu og margar
skemmtilegar viðureignir sóust.
Þaö sást á mótinu að margir
judómenn eru nú í góðri æfingu.
í flokki 86 kg og þyngri bar
Bjarni Friðriksson sigur úr býtum
nokkuð örugglega. Hann lagöi alla
andstæöinga sína af snerpu og
öryggi og glímdi vel. Kristján Valdi-
marsson, bráöefnilegur og ungur
judómaöur úr Ármanni, varö í ööru
sæti í þessum flokki og Runólfur
Gunnlaugsson í þriöja sæti.
í flokki 71 kg og léttari sigraöi
hinn harðskeytti judómaöur Hall-
dór Guöbjörnsson. Halldór glímdi
til úrslita viö Rúnar Guöjónsson og
var mikil harka í viöureign þeirra.
Rúnar var yfir á stigum í lokaglím-
unni, er Halldóri tókst aö ná háls-
lás á Rúnari og tókst aö sigra.
Halldór sýndi aö það er engan
bilbug á honum aö finna og
keppnisskapið og harkan er ávallt
Þrír efstu í 71—86 kg fiokki, talið fró vinstri: Kóri sigraði, Níels varö
annar og Egill þriöji.
sú sama. Karel Halldórsson, Ár- ágæt tilþrif á mótinu. Mótiö fór vel
manni, varö í þriöja sæti og Örn fram, en þaö var í umsjón JFR.
Arnarson líka. Þeir sýndu báöir — ÞR.
Efstu í þyngsta flokki, 86 kg og yfir. Fró vinstri: Bjarni, Kristjón og
RunóHur.
Bjarni Kári og Halldór
sigruðu í sínum flokkum