Morgunblaðið - 09.11.1982, Side 47
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 9. NÓVEMBER 1982
27
Christian Keglevits, sem spilar
með Rapid Wien, rotaði dómar-
ann í deildarleik á móti Grazer
AK, en var samt ekki rekinn útat.
Dómarinn hafði gefið Keglevits
rautt spjald fyrir of grófan leik, en
honum líkaði það ekki alls kostar
og þrumaði boltanum því rakleið-
is í haus dómarans meö þeim af-
leiðingum að hann fóll í rot. Þegar
dómarinn rankaði við sér
skömmu síöar hafði hann ekki
hugmynd um hvaö gerst hafði og
leikurinn hélt éfram eins og ekk-
ert heföi í skorist.
— O —
Jimmy Rimmer markmaöur
Aston Villa hefur gerst mynt-
safnari. Fer söfnun hans aöallega
fram á knattspyrnuvellinum og
helst þegar eru sem flestir að
horfa á. Þannig er mál með vexti
aö áhorfendur eru vanir aö henda
smámynt aö markinu, og í einum
leik á síöasta keppnistímabili
datt Rimmer í hug aö safna pen-
ingunum saman, og kom þá í Ijós
að innan um var sjaldgæf og
verömikil mynt. Ágætis auka-
vinna, allavega meðan boltinn er
hinumegin á vellinum.
HÉR fær Bryan Robson afhent gullúr frá Seiko fyrir að skora fyrir
England eftir aðeins 27 sekúndur í leiknum gegn Frökkum á HM í
sumar. Enginn náöi að bæta þaö met kappans og því hreppti hann úrið
góða sem sá skyldi hljóta sem fljótastur væri aö skora í leik í keppn-
inni. Úrið er metiö á 1.500 sterlingspund — um 45.000 krónur — og
segist Robson aðeins munu nota það viö hátíöleg tækifæri. „Ég þori
ekki að taka áhættuna að þaö skemmist ef ég nota það dags daglega,“
segir hann. Eftir að Robson haföi tekið við úrinu var það sent aftur til
Seiko. Ekki var neitt alvarlegt aö, aöeins það að ólin passaöi ekkí fyrir
hann en nú er víst búið að kippa því í liöinn.
Þetta er ekki lögreglumaöur sem Björn Borg er þarna með, heldur
hinn skrautlegi eigandi enska knattspyrnufélagsins Watford, tónlistar-
maðurinn góðkunni Elton John. Þeir eru þarna að leggja á ráðin í
sambandi viö góögeröaleik sem Borg tók þátt í til styrktar fjárhags-
lega illa stöddum bandarískum börnum sem áhuga hafa á tennis og
einnig burði til aö ná árangri í íþróttinni. Keppti Borg viö Vitas Gerula-
itis og tapaöi 6—4.
Síðan í stríöinu hefur England
notaö 300 leikmenn í landslið sitt,
þar af 3 sem eru fæddir utan Eng-
lands. Þeir eru Suður-Afríku-
mennirnír Bill Perry (Blackpool)
og Colin Viljoen (Chelsea), ásamt
Terry Butcher (Ipswich) sem
fæddur er í Singapore.
Thomas Allofs spilar hér eftir
með Kaiserslautern, sem borgaöi
Fortuna DUsseldorf 3 milljónír
Dkr. fyrir hann.
— O —
Dieter Mirnegg, austurríski
landsliðsmaðurinn sem spilar
meö ítalska liðinu Camo (sem
keypti hann frá HSV Duisburg),
hefur lýst því yfir aö hann langi
heim til föðurhúsanna, þ.e. til
austurríska liösins Austria Klag-
enfurt. „Þetta er freistandi,
spurningin er bara sú hvort viö
höfum efni á að kaupa hann heim
frá Ítalíu," segir Walter Ludesch-
er, formaðurinn heima í Austur-
ríki.
Það þarf meira en einn fót-
boltadómara til að hræða knatt-
spyrnumanninn Erwin Hadewicz
frá VfB Stuttgart. Hann hafði
fengið gula spjaldið frá dómara
leiksíns Jan Redelfs, sem ráö-
lagði honum aö láta skipa sér út-
af þar sem hann ætti á hættu að
fá rauöa spjaldið. Hadewicz haföi
orð dómarans aö engu, spilaði
leikinn til enda og skoraöi sigur-
mark leiksins í sigri Stuttgart,
3—2, yfir Borussia Dortmund í
Bundeslíngunni.
Ef þjálfari Barcelona, Udo Latt-
ek, fengi að ráða vali leikmanna,
myndi hann kaupa Karl-Heinz
Rummenigge til liðsins þetta
keppnistímabil sem næsta út-
lending. Persónulegur óskalisti
Latteks er annars eitthvað á
þessa leiö: 1. Karl-Heinz Rumm-
enigge, nr. 2 Safet Susic (Saraj-
evo), nr. 3. Pierre Littbarski (FC
Köln), nr. 4. Lothar Matthaus
(Mönchengladbach).
— O —
Halifax Town, sem leikur í
fjórðu deildinni, er sagt til sölu.
Liöið skuldar næstum 4 milljónir
kr. og tapar vikulega 40.000 kr.
Þetta er alveg kjöriö tækifæri
fyrir píanistann Billy Joel aö feta í
fótspor kollega síns, Elton John,
sem er með liðið Watford.
— O —
Þrír áhorfendur hnigu niður
með hjartaslag þegar dómarinn
dæmdi vítaspyrnu í grísku deild-
inni milli liðanna Panathinaikos
og Olympiakos Piræus. Tveir
þeirra voru látnir þegar á spítala
var komið.
— O —
Flugslys það, sem lið Man-
chester United lenti í 1958, þegar
það var á leiö heim eftir keppni
við Rauðu stjörnuna í Belgrad og
kostaði átta leikmenn lífið, verður
aðalþema í kvíkmynd sem unnið
er að, með Trevor Howard og
Oscar Werner í aöalhlutverkum.
Myndin veröur frumsýnd 6. febrú-
ar 1983, en þá eru 25 ár liðin frá
slysinu.
Grosswallstadt, stórliöið í
vestur-þýska handboltanum, hef-
ur fengið reikning upp á 575.000
Dkr. frá skattheimtunni. Skatta-
yfirvöld halda því fram aö liöiö
hafi verið full örlátt á gjafir á
sigurhátíðum sínum, en liöiö hef-
ur 4 sinnum í röð orðið alþjóðleg-
ur meistari og unnið Evróputitil
tvisvar. Gjafir þessar voru keypt-
ar fyrir peninga sem leikmenn
áttu að hafa fengið sem feröa-
penínga, en fengu aldrei.
aaamammmammmmmmm
• Zbigniew Boniek ásamt konu sinni en þau búa núna á Ítalíu. Boniek
gengur illa með liði sínu Juventus og háværar raddir eru á lofti þar
sem talað er um aö hann veröi fljótlega seldur. Það eru víst margir
sem vilja festa kaup á þessum snjalla knattspyrnumanni.
mmammmmamaammmmammmmmmmaammmmamma
Þegar liöin Juventus og Cat-
anzaro mættust síöast, en leikn-
um lauk með sigri Catanzaro
1—0, lék markmaöurinn Dino
Zoff sinn 540. leik í A-deildinni og
þar af 302. í röö. Sá er spilaö hef-
ur flesta leikina er Silvano Piola,
senter í heimsliðinu, en hann hef-
ur spilað 566 leiki. Hinn 40 ára
gamli Dino Zoff kemur hins vegar
til með að slá þetta met aö öllu
forfallalausu um næstu áramót.
JIMMY Rimmer, markvörð Aston
Villa, langaöi að sjá leikinn frá
öðru sjónarhorni, sem sagt í
gegnum myndarvélarlinsu. Næst
þegar hans menn voru í sókn
greip hann því tækifærið, stökk
aftur fyrir markið og hér er hann
aö undirbúa sig undir að kíkja í
myndavélina.
— O —
Tveir tyrkneskir leikmenn
fyrstu deildarliösins Eskisehir-
spor voru reknir þegar formaöur
liösins, Yilmaz, lét ekki staðar
numið, heldur sagði í blööum aö
áhangendur liösins ættu aö gefa
þeim eftirminnilega aövörun. „Ef
þið sjáiö þá drukkna, þá gefið
þeim ráðningu, brjótið nefin á
þeim á mína ábyrgð. Þið borgið
þessum mönnum laun, og þiö
skuluð því sjá til þess að þeir
hagi sér vel.“
— O —
Fyrir leik Dana og Pólverja í
heimsmeistarakeppninni síöustu
í handbolta var Pólverjum til-
kynnt aö nú skyldu þeir ekki fá
neinn sigurbónus eins og venja
hafði verið svo framarlega sem
þeir nældu sér í bronsverölaunin.
Sigurbónus gæti kannski falist í
nýjum bíl eöa íbúö, en vegna al-
varlegs efnahagsástands í Pól-
landi var ákveöið aö fara ekki út í
slík útgjöld.
— O —
Metorðalisti yfir hina 1056 at-
vinnumenn í tennis, sem gerður
var af tölvu, hefur vakið mikla at-
hygli í Vestur-Þýskalandi, sér í
lagi þó maður að nafni W. Bor-
enthaler. Hans Bluhm ritstjóri
blaðsins „Tennis magazin" hafði
aldrei heyrt á manninn minnst og
hvergi fundið hann í leikskýrsl-
um, og bað hann því vinsamleg-
ast að láta heyra í sér.
— O —
Fyrir 20 árum var Jim Hershb-
erger spretthlaupari í landsliöi
Kansas — og hleypur enn. Þegar
hann varð fimmtugur nýlega vildi
hann sanna þaö fyrir sem flestum
að hann væri í góðu formi. Fékk
hann 14 menn til að taka þátt (
keppni viö sig i 18 mismunandi
greinum, einn á móti einum, t.d.
10 km hlaupi, hjólreiöum og
körfubolta. Ku Hershberger hafa
haft þetta allt af, þó ekki án þess
að handleggsbrotna og skaða á
sér nefið.
— O —
Samkvæmt Hennes Weisweiler
eru fimm bestu knattspyrnuþjálf-
arar heimsins þessir: Luis Cesar
Menotti, Max Merkel, Ernst
Happel, Miljan Miljanic og Rinus
Michels.
BOB Paisley, framkvæmdastjóri
ensku meistaranna Liverpool, hóf
sitt síðasta keppnistímabil hjá
liöinu á sama hátt og hann mun
reyna að Ijúka því, með því að
bæta enn einum bikarnum í veg-
legt safn félagsins. Hann veitti
viötöku hinum giæsilega bikar
sem fylgir nafnbótinni „fram-
kvæmdastjóri ársins", en það eru
whisky-framleiðendurnir Bell’s
sem heiöra alltaf stjóra ársins á
þennan nátt. Er þetta í fimmta
skipti sem Bob hlýtur þennan titil
og er þaö oftar en nokkur annar.
Hannes Bongartz 34 ára gamall
miðvallarspilari hefur framlengt
samning sinn viö Kaiserslautern
til tveggja ára.
— O —
UEFA dæmdi Real Madrid til að
greiða 120.000 kr. sekt, þar sem
leikmenn ku hafa sýnt allt annaö
en sannan íþróttaanda í UEFA-
keppninni í Kaiserslautern.
• .Hver skyldi hann vera þessi?
Jú, enginn annar en Rummen-
igge, sjálfur knattspyrnumaöur
Evrópu, á leiö á grímuball. Skyldi
búningurinn hafa fengiö verð-
laun?
• Anderlecht borgaði 9 milljónir
íslenskra króna fyrir Erwin Van-
derbergh er þeir keyptu hann frá
Lierse. Á síðasta tímabili skoraði
hann 25 mörk og varð marka-
kóngur í 1. deild í Belgíu þriðja
árið í röð.