Morgunblaðið - 09.11.1982, Side 29
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 9. NÓVEMBER 1982
37
„í faðmi örlaganna“,
skáldsaga eftir Lilli Palmer
UT ER komin hjá IÐUNNI skáld-
sagan í fartmi örlaganna eftir Lilli
I’almer. Magnea J. Matthíasdóttir
þýddi. — Lilli Palmer var kunn
leikkona úr kvikmyndum og á
leiksviði, ennfremur þekktur
myndlistarmaður, þegar hún sneri
Umsækjend-
ur með við-
talstíma
í TILEFNI prestskosninganna í Frí-
kirkjunni í Reykjavik, sem fram fara
helgina 20. og 21. nóvember næst-
komandi, hefur Morgunblaðið verið
beðið að geta þess, að umsækjend-
urnir verða tii viðtals í kirkjunni,
sem hér segir:
Séra Gunnar Björnsson mið-
vikudaginn 10. nóv. kl. 17—19,
föstudaginn 12. nóv. kl. 17—19,
mánudaginn 15. nóv. kl. 17—19,
þriðjudaginn 16. nóv. kl. 17—19 og
fimmtudaginn 18. nóv. kl. 17—19.
Séra Jón A. Baldvinsson verður
þriðjudaginn 9. nóv. kl. 17—19,
fimmtudaginn 11. nóv. kl. 17—19,
laugardaginn 13. nóv. kl. 17—19,
miðvikudaginn 17. nóv. kl. 17—19
og föstudaginn 19. nóv. kl. 17—19.
Þá er fólki einnig bent á að
hringja til prestanna í síma kirkj-
unnar 14579.
Safnaðarstjórn Fríkirkjunnar
bendir safnaðarfólki á nauðsyn
þess, að það athugi, hvort það sé
ekki áreiðanlega á kjörskrá. Nokk-
ur brögð eru að því, að fólk telji
sig vera í Fríkirkjunni og vilji
vera það, en hafi af einhverjum
ástæðum fallið út af kjörskrá.
Skrifstofa kirkjunnar er opin á
þriðjudögum og fimmtudögum frá
klukkan fimm til sjö í því augna-
miði, að væntanlegir kjósendur
aðgæti kosningarétt sinn.
Prestskosningar verða í Mið-
bæjarbarnaskólanum laugardag-
inn 20. nóvember og sunnudaginn
21. nóvember nk., klukkan 10 til 18
báða dagana.
Margir burt-
fluttir á leik-
sýningu
Stvkkishólmi, I. nóvember, 1982.
LEIKFÉLAGIÐ Grímnir hélt á
laugardagskvöldið sl. upp á 15 ára
starfsafmæli sitt með því að sýna
leikritið Skuggasvein eftir Matthí-
as Jochumsson. Var leikritið sýnt í
félagsheimilinu og hvert sæti
skipað og leikendum mjög vel tek-
ið. Margir fyrrverándi og burt-
fluttir félagar mættu þarna á sýn-
ingunni og á eftir var leikendum
og velunnurum boðið í kaffi og
ræddu menn saman yfir kaffiboll-
unum fram á nótt. í tilefni
hátíðarhalda vegna 90 ára afmæl-
is kauptúnsins, býður Stykkis-
hólmshreppur öllum ellilífeyris-
þegum í plássinu á sýningu leikfé-
lagsins þriðjudaginn 2. nóvember
nk. Fréttaritari.
Haustfund-
ur samtaka
sykursjúkra
SAMTÖK sykursjúkra í Reykjavík
halda árlegan haustfund sinn í kvöld
kl. 20.30 að Holtagörðum v/ Holta-
veg, Reykjavík (hús Sambands ísl.
samvinnufélaga). Á fundinum mun
Gunnar Sigurðsson yfirlæknir halda
fræðsluerindi um sykurþolspróf.
Auk þess mun fara fram dreif-
ing á jólavarningi, en sala þess
varnings hefur verið ein aðal fjár-
öflunarleið samtakanna frá upp-
hafi.
Eru félagsmenn og aðrir vel-
unnarar samtakanna hvattir til að
fjölmenna á fundinn. Stjórnin
sér að ritstörfum. Hún er þýsk að
uppruna, en hefur starfað vestan
hafs og býr nú í Sviss. Ein af bók-
um hennar, Minningar, hefur kom-
ið út á íslensku. Þar rekur hún
hinn viðburðaríka listferil sinn.
Síðan hefur Lilli Palmer samið
nokkrar skáldsögur og er þessi, f
faðmi örlaganna, þeirra þekktust.
Um efni sögunnar segir svo á
kápubaki: „I faðmi örlaganna er
sagan af Sophie sem er dóttir
þýsks kaupsýslumanns og tyrkn-
eskrar konu. Hún elst upp í Berlín
við allsnægtir en lítið ástríki.
Móðir hennar snýr brátt til síns
heima og föður sinn óttast hún.
Seinna eignast Sophie stjúpmóð-
ur, unga konu sem hún dregst að
af ómótstæðilegri ástríðu. Þetta
mótar svo samband hennar við
karlmenn og endaslepp hjóna-
bönd. Sagan gerist á fyrstu tugum
aldarinnar og heimsstyrjöldin
fyrri kippir stoðum undan þeim
heimi sem Sophie hafði alist upp í.
Egilsstaðir:
Stjórnmálafundur SUS
Hér er brugðið upp lifandi mynd-
um frá Evrópu á árunum milli
stríða. Margar persónur stíga
fram ljóslifandi, en minnisstæðust
verður Sophie sjálf, lífsþorsti
hennar og örlög. Hún berst æ
lengra fram á brún sjálfstortím-
ingar, en varðveitir allt til loka
hina heitu lífsskynjun sina. Hún
getur horfst í augu við sjálfa sig
og gert upp líf sitt af vægðarlausri
bersýni."
í faðmi örlaganna er 272 blaðsíð-
ur. Oddi prentaði.
Kgilsstöóum, 24. október.
í MORGUN efndi Samband ungra
sjálfstæðismanna til almenns stjórn-
málafundar í Valaskjálf á Kgilsstöð-
um. Framsögumcnn af hálfu SUS
voru Geir H. Ilaardc. formaður sam-
bandsins og annar varaformaður
þess, Krlendur Kristjánsson. Af
hálfu heimamanna hafði Einar Rafn
Haraldsson framsögu. Fjölluðu þeir
einkum um valkostina einstaklings-
framtak eða ríkisforsjá. Sunnu-
dagsmorgunn er sjálfsagt ekki
heppilegur fundartími með tilliti til
aðsóknar. Þrátt fyrir það voru fund-
armenn á annan tug og umræður
mjög líflegar að loknum framsöguer-
indum.
Það kom fram í máli Geirs H.
Haarde að SUS hefði ákveðið með
tilliti til þeirra tímamóta, sem nú
væru í íslenskum stjórnmálum, að
efna til funda í öllum kjördæmum
landsins til að ræða stjórnmála-
viðhorfið og hvernig skuli bregð-
ast við þeirri óvissu — sem nú ein-
kennir landsmálin. „Við viljum við
þessar aðstæður vekja sem flesta
landsmenn til umhugsunar um
það, hvort þeir vilja áframhald-
andi ríkisafskipti og meiri skatt-
heimtu eða efla þess í stað frum-
kvæði og dug einstaklingsins til
athafna," sagði Geir. Ennfremur
kom fram í máli hans að Sjálf-
stæðisflokkurinn ætti stórkostleg
tækifæri nú í væntanlegum kosn-
ingum — sem bæri að nýta til
fullnustu.
Undir þetta tók Erlendur Krist-
jánsson og gat þess að margt benti
nú til þess að innanbúðarvandi
Sjálfstæðisflokksins fengi farsæl-
an endi áður en langt um liði.
- Ólafur.
,?,v-
FRA RENAULT „MEÐ TITIL
Cl
Við ættum að geta treyst fulltrúum 52 bíla-
blaða til að velja rétt.
þeir gáfu RENAULT 9 titiUnn
BÍLL ÁRSINS 1982
Besta trygging sem þú getur fengið fyrir
vali góðs bíls- og hagkvæmri fjárfestingu
á tímum sparnaðar.
Renault 9 er ódýr „stór bíll" sem eyðir
ótrúlega litlu. Það þarf ekki að hugsa það
mál lengi til að finna svarið....
Renault 9 er bíllinn fyrir þig.
RENAULT „BÍLL MEÐ TITIL“
KRISTINN GUÐNASON HF.
SUÐURLANDSBRAUT 20. SÍMI 86633