Morgunblaðið - 09.11.1982, Síða 30

Morgunblaðið - 09.11.1982, Síða 30
38 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 9. NÓVEMBER 1982 + Eiginmaöur minn, SÆMUNDUR E. KRISTJÁNSSON, vélstjóri, Reynimel 88, lézt í Lándspítalanum 5. nóvember. Fyrir hönd barna, tengdabarna og barnabarna, Benedikta Þorsteinsdóttir. + Systir okkar, EDDA BJÖRNSDÓTTIR, Hríngbraut 10, andaöist í Borgarspítalanum aöfaranótt 6. nóvember. Fyrir hönd fjölskyldunnar, Pétur Björnsson, löunn Björnsdóttir. + Eiginkona mín oa móöir okkar, JONÍNA KRISTÍN MAGNÚSDÓTTIR, Borgarholtsbraut 25, Kópavogi, lést í hjúkrunarheimilinu Sunnuhlíö, 6. nóvember. Guójón Siguröur Jónsson og börn. + Móöir okkar, tengdamóöir, amma og langamma, KRISTÍN HELGADÓTTIR, Njélsgötu 43, andaöist á elliheimilinu Grund föstudaginn 5. nóvember. Þorsteinn Örn Þorsteinsson, Margrét Geirsdóttir, Hrafnhildur Þorsteinsdóttir, Sveinn Salómons, barnabörn og barnabarn. + Eiginmaöur minn, GUÐNI JÓNSSON, fyrrverandi bóndi aö Jaöri, Hrunamannahreppi, til heimilis aö Langageröi 15, Reykjavík, lést í Borgarspitalanum hinn 7. þ.m. Kristín Jónsdóttir. + JÓN S. JÓNSSON fré Purkey, Klofningshreppi, Dalasýslu, andaöist í Sjúkrahúsinu Stykkishólmi 7. nóvember. Fósturbörn og aðrir vandamenn. + Eiginmaöur minn, SIGURBERGUR HJALTASON, Kaplaskjólsvegi 31, andaöist 6. nóvember sl. Jaröarförin auglýst síöar. Ingveidur Guömundsdóttir. + Faöir okkar, GUNNLAUGUR JÓNSSON fré Króki, lézt sunnudaginn 7. nóvember. Stefanía Bylgja Lima, Ólafur Gunnlaugsson. + Útlör ELfSABETAR FRIDRIKSDÓTTUR, Bræöraborgarstig 34, fer fram frá Fossvogskirkju miövikudaginn 10. nóvember kl. 3. Fyrir hönd aöstandenda, Anna Friöriksdóttir. Elísabet Helgadótt- ir — Minningarorð í dag verður jarðsungin frá Frí- kirkjunni í Reykjavík, tengdamóð- ir mín Elísabet Helgadóttir handavinnukennari, Bjarnarstíg 10, hér í borg. Hafði hún um nokk- urra ára skeið átt við vanheilsu að stríða og síðustu tæp tvö árin dvalist rúmföst á Landakotsspít- ala, farin að heilsu og kröftum. Dauðinn kom því til hennar eins og lífsins engill og leysti hana undan frekari kröm ellihrumleik- ans. Það var erfitt að sjá jafn atorkusama konu sem Elísabet var, lifa lengi lífi, sem allt gildi hafði misst fyrir hana. Þess vegna bærist þökkin til Guðs nú í brjósti, að andi hennar skuli hafa fengið lausn úr jarðneskum viðjum og geti nú flogið frjáls á vit vina og verkefna á æðri tilverusviðum Guðs eilífa ríkis. Með Elísabetu Helgadóttur er gengin mikilhæf mannkostakona, er bjó yfir víðtæku góðvildarþeli og unni öllu því er fagurt var, satt og gott. Af gnægð góðra kosta, sem henni voru léðir voru góðvild- in og samúðin og lífsgieðin sterk- ustu þættir í eðli hennar og per- sónugerð. Henni var eðlislægt að laða fram hið besta er með sam- ferðamönnum bjó. Þessa nutu vandamenn hennar í ríkum mæli, en ekki síður samstarfsmenn, fé- lagar, vinir og nemendurnir fjöl- mörgu, er nutu leiðsagnar hennar sem kennara. Og nú við ieiðarlok vegferðar hennar er okkur gjarnt að muna hana eins og hún var áður en heilsa og kraftar biiuðu, muna brennandi áhuga hennar á starfi sínu, atorkuna og eljuna í öllu fari hennar og framgöngu, muna geislandi glaðværðina og birtuna sem um hana lék og frá henni stafaði. Já, hver varð ekki að betri manni við það að kynnast Elísabetu og eiga með henni sam- leið á lífsveginum. Elísabet Helgadóttir fæddist hinn 26. nóvember árið 1898 að Klapparstíg 16. Foreldrar hennar voru þau hjónin Helgi Runólfsson steinsmiður og kona hans Ástríð- ur Erlendsdóttir. Helgi var ættað- ur ofan úr Borgarfirði, en ólst upp suður á Miðnesi. Faðir hans, Run- ólfur, er mörgum Islendingum kunnur í sambandi við fundi Haf- steins Björnssonar miðils. Ástríð- ur var ættuð af Álftanesi, en flutt- ist ung til Reykjavíkur, mikil myndar- og rausnarkona. Voru þær mæðgur, hún og Elísabet, ákaflega samrýndar. Alsystini átti Elísabet þrjú og tvö hálf- systkini og eru þau öll látin. Helgi, faðir Elísabetar andaðist árið 1917 og hafði áður átt við laogvarandi vanheilsu að stríða, en Ástríður var mikil hetjukona og lét ekki deigan síga, þótt boðar mótlætis skyllu á henni, heldur barðist hetjulegri baráttu fyrir hag og heill barna sinna. Við lát föður síns var Elísabet innan við tvítugsaldurinn. Hún kynntist í uppvextinum kröppum kjörum og harðri lífsbaráttu og lærði því snemma að treysta á eig- in úrkosti og úrræði. Af miklum dugnaði braust hún til mennta. Hún stundaði handavinnunám í fjóra vetur eftir fermingu í Landakotsskóla hjá nunnunum þar og vann þá jafnframt á spítal- anum fyrir námskostnaðinum og einnig að nokkru leyti fyrir sjúkrahúsdvöl föður síns þar. Má af þessu ráða, hve hart hún varð að leggja að sér og yfir hvílíkum viljastyrk hún bjó. En við þetta nám á Landakoti lét hún ekki sitja, heldur hélt til Danmerkur og stundaði nám við Kunstflidskólann í Kaupmanna- höfn. Þar skaraði hún svo fram úr, að hún hlaut peningaverðlaun og ókeypis skólavist, þá aðeins 19 ára að aldri og 1921 hlaut hún 1. verð- laun fyrir verk sín á heimilisiðn- aðarsýningunni hér í Reykjavík. Hún hélt síðan aftur í námsför til Danmerkur árið 1925. Efir heimkomuna gerðist Elísa- bet handavinnukennari í Vest- mannaeyjum og þar kynntist hún eiginmanni sínum, Bjarna Bjarna- syni kennara frá Efri-Ey í Meðal- landi, en þar hafði hann stundað kennslustörf frá árinu 1923. Þau felldu hugi saman og gengu í hjónaband hinn 28. ágúst árið 1926. Bjuggu þau í húsi Elísabetar að Sólheimatungu við Brekastíg og kenndu þau hjónin bæði við barnaskólann. Ekki festi Elísabet þó yndi í Eyjum og leitaði hugur hennar sí- fellt hingað suður. Fór því svo að þau fluttu hingað vorið 1928 og keyptu húsið nr. 10 við Bjarnar- stíg. Bjarni fékk stöðu við Austur- bæjarbarnaskólann haustið 1930 og þar kenndi hann síðan óslitið til æviloka eða í rúm 30 ár. Bjarni var mannkostamaður hinn mesti, fjölhæfur gáfumaður og góð- menni, víðlesinn bókamaður. Hann unni íslenskri náttúru og var hafsjór af fróðleik um hana. Hann var gæddur óslökkvandi + Eiginmaöur minn, sonur og taðir okkar, SIGURJÓN BÖDVARSSON, Vogatungu 4, Kópavogi, andaöist í Landakotsspítala 7. nóvember. Ólöf Helgadóttir, Böóvar Eyjólfsson, Helgi Sigurjónsson, Hafdís Haraldsdóttir, Böðvar Örn Sigurjónsson, Gestný K. Kolbeinsdóttir, Ragnar Emil Sigurjónsson, Dagbjört Ásmundsdóttir, Anna Jóhanna Sigurjónsdóttir, Ingólfur Proppé og barnabörn. + Eiginmaöur minn og faöir, HAFSTEINN HARALDSSON, Bragagötu 23, veröur jarösunginn frá Fossvogskirkju, miövikudaginn 10. nóv- ember kl. 13.30. Sigrún Björnsdóttir, Dagný Hafsteinsdóttir. + Jaröarför móöur minnar, systur okkar og mágkonu, PÁLÍNU JÓNU HALLDÓRU HALLDÓRSDOTTUR BENOTO, fer fram frá Fossvogskirkju, fimmtudaginn 11. nóvember kl. 3. Rebekka Kristín Benoto, Páll Halldórsson, Indiana Þórhallsdóttir, Sigrún Halldórsdóttir, Gísli Gíslason, Halldór Halldórsson, Bryndís Eiríksdóttir. áhuga á skógrækt og vann að henni í öllum frístundum sínum hin síðari ár ævinnar. Hann var frábær kennari og heimilisfaðir, vann mikið að málefnum Sumar- gjafar, drengskaparmaður til orðs og æðis. Hans mun ég ætíð minn- ast þegar ég heyri góðs manns get- ið. Elísabet hóf kennslu við Aust- urbæjarskólann haustið 1931 í fyrstu sem stundakennari í sér- grein sinni. En fjórum árum síðar gekk hún í Kennaraskólann til þess að afla sér réttinda til kenn- araembættis og lauk kennaraprófi í sérgrein sinni 1937. Starfaði hún síðan alla tíð við Austurbæjar- skólann uns hún lét af störfum fyrir aldurs sakir. Það lýsti Elísa- betu vel, dugnaði hennar og áræði, að hún skyldi setjast á ný á skóla- bekk, þá orðin húsfreyja og móðir, enda slíkt næsta fátítt á þeim tím- um, en hugurinn og viljastyrk- urinn bar hana ævinlega áfram og hún var staðráðin í því að starfa að sérgrein sinni. Auk kennslustarfa í skólanum kenndi hún ungum stúlkum hann- yrðir í einkatímum á heimili sínu fyrstu starfsárin og hafði reyndar gjört það í meiri eða minni mæli allt frá 16 ára aldri. Lagði hún þá oft hart að sér og var vinnudagurinn iðulega haria langur. Það fer ekki á milli mála, að Elísabet var prýðilega menntuð í starfsgrein sinni og mjög hæfur kennari. Hiklaust má fullyrða, að starfið hafi verið hennar hálfa líf og aldrei kom það fyrir, að hún kæmi of seint til starfa. Hún lagði allan hug sinn í að inna störf sín sem best af hendi og ól í brjósti mikinn metnað fyrir hönd stúlknanna, sem hún kenndi, var vakin og sof- in við að hjálpa þeim að ná sem bestum árangri og efla skilning þeirra og þroska. Og áhugi hennar var svo sannarlega smitandi, enda náðu nemendur hennar stórgóðum árangri undir leiðsögn hennar. Þær eru orðnar margar stúlk- urnar reykvísku er bjuggu vel að því veganesti, sem hún veitti þeim á handavinnusviðinu. Elísabet saknaði þá mjög starfs síns, er hún hætti við skólann og eins saknaði hún mjög vinanna og samstarfsmannanna við skólann er þau hjónin höfðu eignast. Þar var valinn maður í hverju rúmi og samstarf kennaranna mótaðist af heilindum og hollustu. Þegar rætt er um mikil kennslu- störf Elísabetar utan heimilis skal þá engan veginn gleymt, að hún naut dyggilegrar aðstoðar heima fyrir. Til hennar hafði komið á heimili hennar ung stúlka, Hanna Jónsdóttir ættuð ofan úr Borgar- firði. Og þau kynni er tókust með fjölskyldunni og Hönnu urðu svo kær, að hún hefur alla tíð síðan átt heimili hjá þeim á Bjarnar- stígnum eða á sjötta tug ára. Stóð Hanna fyrir heimilishaldi á vetrum, meðan Elísabet stund- aði kennslustörfin, en vann sem matráðskona á ýmsum stöðum á sumrin. Gat Elísabet því helgað sig starfinu miklum mun meir en ella hefði orðið. Hefur Hanna sýnt fjölskyldunni dæamafáa tryggð og svo samrýndar voru þær Elísabet, að það var Elísabetu hvað mest hugarfró að fá Hönnu í heimsókn á spítalann og Hanna hafði annast um hana heim fyrir af sérstakri natni og umhyggju, er heilsu Elísabetar tók að hraka. Fyrir þessa miklu tryggð og fórnfýsi

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.