Morgunblaðið - 09.11.1982, Síða 31

Morgunblaðið - 09.11.1982, Síða 31
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 9. NÓVEMBER 1982 39 Hönnu eigum við öll, vandamenn Elísabetar, henni mikla þakkar- skuld að gjalda. Þeim Elísabetu og Bjarna varð þriggja barna auðið en þau eru: Helgi, prentari, Glæsibæ 5, kvæntur Sigrúnu Þorsteinsdóttur; Ásta, sjúkraliði, Glæsibæ 7, kona undirritaðs og Sverrir, tónlistar- kennari, Bjarnarstíg 10. Öll eiga þau nú á bak að sjá blíðri og umhyggjusamri móður er vildi hag þeirra sem mestan og heill. Eg kynntist tengdaforeldrum mínum á námsárunum, upp úr 1952, og næstu árin var heimili okkar Ástu í húsi þeirra hjóna. Heimilislífið á Bjarnarstíg 10 var fagurt og til fyrirmyndar. Sambúð þeirra Bjarna og Elísabetar var mótuð af gagnkvæmri ást, virð- ingu og trausti. Ég sé þau ljóslif- andi fyrir hugskotssjónum, þar sem þau sátu heima á vetrarkvöld- um bæði að útbúa verkefni fyrir skólastarf komandi dags. Þá var heimili þeirra fagurlega prýtt munum er Elísabet hafði unnið í höndunum, svo listfeng sem hún var. En meira var þó um vert, að þar ríkti andi friðar og kærleika, hjartahlýju, glaðværðar, gestrisni og greiðasemi. Og það var iðulega gestkvæmt á heimili þeirra og oft leikið á hljóðfæri og sungið. Hygg ég að flestir hafi farið ríkari í huga og glaðari í geði af þeirra fundi. Bjarni lést fyrir aldur fram, vorið 1961, og var harmdauði öll- um, er til hans þekktu. Fráfall hans varð Elísabetu mikið sorgar- efni en hún bar harm sinn með hugarstyrk og hélt ótrauð áfram störfum. Og hlýr var hann sá arinn minninganna sem hún gat ornað sér við. Hún hlakkaði þá líka til þess að hitta hann handan mær- anna miklu og þá vini sína aðra, er á undan voru farnir. Það er von mín og bæn, að þeir fagnaðarfund- ir megi nú takast. Elísabet var mjög trúuð kona og átti bjargfasta sannfæringu um annað líf í Guðs hendi á æðri til- verusviðum. Og bænamálið kunni hún vel og var henni tamt á tungu. Ég minnist þess, að þegar hún var hætt að geta unnið þá var hún boðin og búin að biðja fyrir öðr- um, er við örðugieika áttu að etja. Hún fann raunverulega til með öllum sem áttu á einhvern hátt bágt, slík var samúð hennar í garð minnstu bræðra Krists. Ævistarf Elísabetar var að miklum hluta í því fólgið að um- gangast börn og veita þeim fræðslu og þar var hún svo sann- arlega á réttri hillu í lífinu, því að hún var barngóð kona. Barnabörn- in hennar báru hlýhug til hennar, virtu hana og leið vel í návist hennar. Og börnin glöddu hjarta hennar mjög. Nú síðustu árin tvö, er hún var að mestu komin út úr heiminum, virtist það helst geta glatt hana, er hún leit barnabarnabörnin sín koma í heimsókn. Þá brá á ný fyrir því brosi og bliki augans og sá lífsneisti áhuga og elskusemi kviknaði, sem var kvikan í öllu lífi hennar og starfi og gerði hana að svo aðlaðandi og ógleymanlegri persónu. Og nú þegar stundaglas ævi hennar er útrunnið vaknar þökkin í brjóstum vandamanna hennar og vina. Mér reyndist hún í einu og öllu sem besta móðir. Ég þakka Guði mínum fyrir að hafa orðið aðnjótandi hlýju hennar og góð- vildar og bið hann að blessa henni komuna til landa lífsins. Blessuð og heiðruð sé minning hennar. Guðmundur Þorsteinsson Leiðrétting í minningargrein í laugardags- blaðinu um Sigurpál Þorsteinsson brenglaðist frásögnin þar sem greint var frá foreldrum Sigurpáls og sonum þeirra. — Þar átti að standa: „Þau hjón eignuðust þrjá syni. Þeirra elstur var Friðbjörn bóndi í Vík í Fáskrúðsfirði, dáinn 1977, þá Sigurpáll og yngstur var Jón, þóndi í Freyju í Fáskrúðs- firði." Biður blaðið afsökunar á þeim mistökum sem urðu. Hjónaminning: Jón M. Sigurðsson Kristín Sveinsdóttir Fæddur 6. nóvember 1900 Dáinn 2. nóvember 1982 Fædd 29. september 1904 Dáin 24. ágúst 1982 Þegar við fréttum andlátsfregn afa okkar og ömmu, sem létust með aðeins tveggja mánaða milli- bili eftir fárra daga sjúkdómslegu, flugu í gegnum huga okkar marg- ar góðar minningar, bæði frá bernsku og fullorðinsárum. Þegar við systurnar vorum litl- ar var alltaf jafn gaman að fá að fara um helgar til afa Jóns og ömmu Stínu eins og við barna- börnin kölluðum þau, og fá að gista um helgar. Þar var sér bekk- ur fyrir okkur að sofa á og alltaf eitthvað gott með kaffinu fyrir okkur. Á unglingsárum okkar var amma alltaf jafn spennt að fylgj- ast með hvað væri um að vera hjá okkur og á fullorðinsárunum var afi alltaf tilbúinn að leika og spila við langafabörnin, svo við gætum rabbað við ömmu um heima og geima yfir kaffibolla. Afi og amma voru svo lánsöm að halda heilsu allt til hins síð- asta, en helst var að afa hrakaði þessa tvo síðustú mánuði sem hann var án ömmu, enda þau með eindæmum samrýnd, þar sem hjónaband þeirra stóð í tæp 52 ár. Kallið er komið fyrir elskulegan afa okkar og ömmu og erfitt til þess að hugsa að geta ekki heim- sótt þau í Gnoðarvoginn, en við vitum að minningin um þau mun ylja okkur á lífsleiðinni. Við biðj- um Guð að blessa þau og varðveita og þökkum þeim allt sem þau gerðu fyrir okkur. Kristín og Kristjana Ragna Olafsdótt- ir — Minningarorð Fædd 6. mars 1964 Dáin 31. október 1982 Hvað getur maður sagt eða gert þegar maður fréttir að ein besta vinkona okkar og skólafélagi, Ragna Ólafsdóttir, hafi svo skyndilega kvatt þennan heim fyrir fullt og allt? Að við eigum aldrei eftir að heyra né sjá hana aftur. Það er heldur lítið sem mað- ur getur gert og er það einungis á valdi tímans að sefa þá sorg sem við, ásamt öllum öðrum sem hana þekktu, höfum orðið fyrir vegna fráfalls Rögnu. Við kynntumst Rögnu fyrir tveimur árum í fyrsta þekk menntó og urðum góðir vinir. Hún var góður félagi, alltaf kát og hress og mjög vel liðin af félögum sínum. Hún átti auðvelt með að afla sér vina og heillaði fólk með glaðværð sinni og framkomu. Það er mikill missir að slíkum félaga. Það tómarúm sem hún skildi eftir, verður aldrei fyllt en minning hennar mun lifa í hugum okkar það sem eftir er. Við sendum foreldrum hennar, systrum og öðrum aöstandendum, okkar innilegustu samúðarkveðjur og biðjum Guð að styrkja þau og treysta í sorg sinni. Ari, Siggi og Tolli. /Eska, bíð hér eina slund. Ó hvert stefnir fjöriA bráóa? Hvad sem þinni liAur lund, leið mun þinni dauðinn ráða engum hlífir aldri manns ófnarsterka valdið han.s. (óþekktur höf.) í fjarlægð fylgdist ég með því þegar Ragna byrjaði vinnu hjá Hegranesi, við vegavinnu í sumar. Stúlkan í strákaþjóðfélagi. Til að byrja með í hugum allra, „látum okkur sjá“, en hún kom, sá og sigr- aði, dugleg og falleg. Engin á ég orð yfir þetta hörmulega slys, sem dundi yfir og tilgangsleysi þess verður aldrei skilið. Elsku Ólafur og Ágústa, Guð gefi ykkur styrk og þor út á lífið á ný. Til Rögnu. Nú ertu leidd mín Ijúfa lystigarð drottins í, þar áttu hvíld að hafa hormunga ojj rauna fri, við (iuð þú mátt nú mæla, miklu fegri en sól unan og eilíf sæla er þin hjá lambsins stól. Dóttir í dýrðar hendi Drottins, mín, sofðu vært, hann, sem þér huggun sendi, hann elskar þig svo ka*rt. l*ú lifðir jjóðurn (>uði, í (>uði sofnaðir þú, í eilífum andarfriði ætíð sæl lifðu nú. (H.P.) Braga Björnsdóttir Þær fregnir að Ragna hefði dáið í umferðarslysi aðfaranótt 31. október komu eins og reiðarslag yfir okkur félagana. Það virtist svo fjarlægt og óraunverulegt að Ragna, sem alltaf var svo full af lífsfjöri og krafti, væri dáin. Leiðir okkar lágu saman er við öll hófum saman nám við Mennta- skólann í Kópavogi fyrir rúmum tveimur árum. Tókust með okkur kynni sem stóðu æ síðan. Myndað- ist fljótlega fastur kjarni sem hélt mikið saman, var Ragna þar fram- arlega í flokki enda skapgóð og hress. Hún átti auðvelt með að umgangast fólk og var vinmörg. Verður hópurinn aldrei sá sami aftur eftir þennan harmleik. Foreldrum hennar og vanda- mönnum sendum við okkar inni- legustu samúðarkveðjur. Gunni, Dóri, Halli, Matti og Stebbi. Hví skyldi ég ekki um vorbjartar nætur vaka? Vindar lofLsins mildir um enni blaka. (■rös og blóm eru sofnuð og þrösturinn þegir. I*ögnin er voldug og ein yfír grundum og flæðum. Við himinjaðar gýs eldbrim í austurhæðum en upploftið dýpkar og verður fagurblátt. Á nótt nem þessari mætast i miskunn og sátí mannsins klungróttu stígar og himinsins vegir. (S.E.) í þessari dýrðarumgjörð sé ég fyrir mér hóp ungmenna á leið til búða okkar neðan við bæinn Öxl í Húnaþingi. Löngum og ströngum vinnudegi er lokið og nýr dagur tyllir tánum á efstu fjallatinda. Samt hlæja þessi ungmenni og ærslast — ekkert virðist geta þreytt þau — ekkert skert orku þeirra og óbeislaða lífsgleði. Þau eru að byggja vegi, nýja og betri vegi hér norður við Dumbshaf, þar sem sólin að sumri sest aldrei og hvergi er fegurra þegar skaparinn dregur himintjöldin til hliðar. I þessum glaðværa hópi tuttugu ungmenna voru í fyrsta skipti í sumar tvær stúlkur sem unnu að vegagerðinni með okkur. Settu fal- legan svip á vinnuhópinn, lífsglað- ar stúlkur, stoltir vegagerðar- menn með framtíðardrauma í fangi. En nú er stúlkan hún Ragna farin frá okkur — hún byggir ekki fleiri vegi í Húnaþingi né annars staðar. Og við hin sem byggðum vegi saman í sumar og kunnum svo góð skil á allri tækninni, vél- unum og verkfærunum — hér kunnum við engin skil og ekkert ráð er að haldi megi koma, hend- urnar okkar sterku og samtaka eru lamaðar, afllausar í bili. l*ojjnin er voldug og ein yfír grundum og flæóum. I*ú ert gestur á jöró, guó er aö leiða þig heim þar uem gála þín ræóst og lokið er hinsta vanda. Hin stutta og góða kynning okkar Rögnu lifir sterkt í vitund minni. Yndisþokki og elskusemi voru henni svo töm að í erfiði dagsins varð bros frá henni sem sólargeisli bjartur og hlýr. Elsku vinir, Ágústa og Ólafur, foreldrar Rögnu — mér er ljóst að orð mín fá og smá, hreyfa í engu við því sem nú er orðið, en samúð okkar sterk og einlæg er með ykk- ur og fjölskyldunni allri. Ég vil að lokum láta ljóðið tala í þessari kveðju frá Meltröð 8. ..Kn kvöld á hver dagur, cr kul yfir jörðiiu fiöur og koma mun haust er solnar blómvangur frtóur. há vakir þaó afl í úóa glitrandi moldar, sem ekkert sinna smæstu barna skal mÍNsa. í blómsins vitund bærist sem unaóarvissa sá bjarti (>uó, sem er höfundur allra sólna. haó lifír og er í hans dýró, er dagarnir kólna og drjúpandi blöó þe.ss hníga visin til foldar. Kn dýpra og innar tala taugar vors hjarta tungu þess (>uós, er skóp glaóheima eilífbjarta, þann aldadag, sem skín yfír lýóum og löndum og leióir stóran og smáan aó settu marki. I*ótt líói vor ævi í ys og harki og oró vorrar tungu séu léttvæg og smá, samt beina for vorri mió hans heilög og há. — Ileimtún vors anda gróa á fjarlægum ströndum.4' (S.E.) Kveðja frá Meltröð 8. t Móðir okkar, ADALBJÖRG ÓLADÓTTIR, Ljósheimum 20, Reykjavlk, 'lóst i Landspitalanum laugardaginn 6. nóvember. Margrét Jónsdóttir, Steinunn Jónsdóttir, Guörún Jónsdóttir Kratsch, Unnur Jónsdóttir Cannada, Maggý Jónsdóttir, Jens Jónsson. t Eiginmaöur minn, BALDVIN SIGURVINSSON, bóndi, Gilsfjaröarbrekku, veröur jarösunginn frá Garpdalskirkju, laugardaginn 13. þ.m. kl. 14.00. Minningarathöfn veröur haldin i Fossvogskirkju, i dag, þriöjudaginn 9. þ.m. kl. 1.30. Fyrir hönd vandamanna, Ólafía Magnúsdóttir. t Móöurbróðlr minn, PÁLL EINARSSON frá Mórastööum I Kjóa, fyrrverandi húsvöróur, Hótúni 12, veröur jarösettur frá Fossvogskirkju, fimmtudaginn 11. nóvember kl. 10.30. Blóm og kransar afþökkuö, en þeim sem vildu minnast hans er bent a Minningarspjöld Sjálfsbjargar. Fyrir hönd ættingja, Erna Hallbera Ólafsdóttir. t Þökkum af alhug samuö og vinarhug viö andlát og útför GUÐFINNS JÓNSSONAR, Heiöarvegi 5, Selfossi. Sérstaklega viljum viö þakka læknum og starfsfólki á deild 3A Borgarspítalanum. Ingigeröur Guölaugsdóttir, börn, tengdabörn og barnabörn.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.