Morgunblaðið - 09.11.1982, Side 33

Morgunblaðið - 09.11.1982, Side 33
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 9. NÓVEMBER 1982 41 fclk f fréttum BUXNASTULDUR VELDUR UGG + Eftir að buxum breska fjármálaráðherrans, Sir Geoffrey Howes, var stolið úr svefnvagni þar sem hann var á ferð milli London og Manchester í síðastliðinni viku, hefur ótti manna um skort á öryggi þarlendra ráðherra aukist. Það, að tapa buxum er í sjálfu sér ekki ýkja mikill missir, en augu manna hafa beinst að því hvernig hægt sé aö komast inn og út úr lestarklefum ráðherra um miöjar nætur án þess aö nokkur maður veröi þess var... Sir Geoffrey Howe ásamt eiginkonu sinni. Drottningin við þingsetningu + Hér sést hvar Elísabet II Breta- drottning tekur sér sæti viö setn- ingu breska þingsins á miðvikudag í síðastliðinni viku, en viö þaö tækifæri flytur hún jafnan stefnu- ræöu forsætisráðherra landsins og stjórnar hans fyrir komandi ár. + Þekkir þú úrkynjað lag þegar þú heyrir það? Ef svo er ekki, getur opinber kín- versk stofnun sem hefur tón'- listarleg málefni á dagskrá sinni hjálpað. I nýútkomnum bæklingi sem ber nafnið „Hvernig ber að þekkja úrkynjuð lög“, er að finna lista sem dæmir næstum alla vestræna tónlist úrkynjaða, óheilbrigða og oft á tíðum skaðlega. Er vestræn tónlist varhugaverð? Á síðastliðnum árum hefur áhugi ungmenna í Kína á vestrænni tónlist fariö sívax- andi og hafa yfirvöld þar í landi ekki verið ýkja hrifin af þessari þróun tónlistar- smekks ungu kynslóðarinnar. Því var gripiö til þessa ráðs að gefa út upplýsingabækling þennan um tónlist almennt. Mestur hluti bæklingsins fjall- ar um popplög sungin á kín- versku, en einnig er ráðist harkalega aö jassi, rokki og diskótónlist, sem allt er lagt að jöfnu. Besta leiðin til að þekkja úrkynjuð lög er að hlusta eftir því hvernig sungið er, segir í bæklingnum. Sérstaklega er bent á eftirfarandi atriði til marks um úyrkynjunina: „titr- andi hljómfall, aukanótur sungnar, eða óskýr, og los- aralegur framburður". Einnig ber aö varast sérstaklega alla söngva sem fjalla um ást á ööru en sósíalisma. NÓATÚNI 17 - SÍMAR 1-72-60 & 1-72-61 Hálfir nautaskrokkar 1. flokkur 72 kr. kg. Hálfir svínaskrokkar ■ 79 kr. kg. . Innifalið: Skurður, I hökkun, pökkun og I merking. I L______NÓATÚN__________I Hurðarpumpur Margar stærðir Þettilistar á huröir og glugga. STOFNAÐ 1903 Z ÁRMÚLA 42 ■ HAFNARSTRÆTI 21 BILLYog BRUCE, BILLYogBRUCE, BILLYog BRUCE, Mörgum finnst kannski að þeir félagar Billy Joel og Bruce Springsteen eigi ekki margt sameiginlegt. Það má til sanns vegar færa t.d. hefur Billy verið í 2 ár að fullgera sína plötu með færustu tónlistarmönnum, í toppstúdíóum. Bruce aftur á móti tók „Nebraska“ upp á 4 rása kassettuband heima hjá sér og spilaði á öll hljóðfæri sjálfur. Þó flest sé þar af leiðandi ólikt með „Nylon Curtain“ og „Nebraska“ er eitt þó sameiginlegt, sem allir tónlistarunnendur geta verið sammála um. Hvoru tveggja eru þetta frábærar plötur. Og hana nú! ^KARNABÆR Rauðarárstíg 16, Glæsibæ, Laugavegi 66, Strandgötu, Hafnarfirði. Austurstræti 22, iloinor

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.