Morgunblaðið - 09.11.1982, Síða 36

Morgunblaðið - 09.11.1982, Síða 36
44 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 9. NÓVEMBER 1982 Mér erSama. pótt (?ú les'iryfhr öxlincl á rr\kr, -en ekki róÁa kross^átuna." TM R«o U.S P«l Ott.—Mll rtghts resarved ® 1978 Los Angeles Times Syndicate _______________________________________________ HÖGNI HREKKVÍSI pw VEfZ-PiP AE> HALPA „ FEGURWAe- samkeppnina VKKAR, 'a eihhverjum ÖÐAOM STAP.i' Þið glödduð okkur gamla fólkið Magndís Anna Aradóttir, Hrafn- istu, Hafnarfirði, skrifar: „Velvakandi. Mig langar til að senda félögum Lionsklúbbsins Ásbjarnar í Hafn- arfirði hjartans bestu þakkir fyrir komuna hingað 28. október, síð- astliðinn. Lionsmenn. Þið glödduð okkur gamla fólkið með félagsvist og peningagjöfum sem ekki er í fyrsta sinn, því oft áður hafið þið komið hér og fært Hrafnistu rausnarlegar gjafir, sem eru okkur til góðra nota, og ævinlega glatt okkur gamla fólkið með ykk- ar hlýja og glaða viðmóti, sem lifir lengi i minningunni. Samtök ykkar koma þar vel fram, en það er fátt sem bætir betur en hlýtt viðmót í einverunni, en auðvitað er samt mikið gert hér fyrir okkur af stjórnendum Hrafnistu í Hafnarfirði. Hér er mjög gott starfsfólk. En ykkar komur eru okkur minnisstæðar, þó að þið eyðið ekki of miklum penginum frá heimilum ykkar. Eg bið guð að launa ykkur kær- leiksríkar gerðir ykkar." Áfengismál: Tvískinnungurinn og hræsnin verst af öllu Kristinn Vilhjálmsson skrifar: „Velvakandi góður. Nú stendur hér yfir á vegum ríkisstjórnarinnar námskeið um hvernig brugðist skuli við drykkjuskap á vinnustöðum. Rætt var í sjónvarpi við einn starfs- mann Flugleiða um þau mál. Vart þarf að efa að bæði ríkisvaldið og Flugleiðir dragi nú sæmilega rökréttar ályktanir af því sem fram fer á ráðstefnu þessari. Rík- isstjórnin lætur væntanlega af þeim ósóma að stuðla að drykkju- skap með því að veita áfengi í veislum, láta ferðafólki, farmönn- um og flugliðum tollfrjálst áfengi og ólöglegan bjór í té og halda nokkurs konar útsölu á þessu efni ' fyrir starfslið stjórnarráðsins. Og Flugleiðir hætta væntanlega að dæla þessu efni í landslýð í vin- söluhúsum sínum og flugvélum. Aðrir þátttakendur á námskeiði þessu láta væntanlega ekki sitt eftir liggja. Enda er augljóst að ef drykkja er sjúkdómur, sem ýmsir draga nú í efa (WHO hefur fellt alkóhólisma út úr sjúkdómaskrá sinni), þá er lítið vit í að troða upp á menn sjúkdómsvaldinum. Eða hefðum við sigrast á holdsveiki og berklum ef smitberar hefðu leikið lausum hala? Og væri þjóðin lúsa- laus ef einhver hefði grætt á að menn væru grálúsugir? Vitað er að kannabis veldur fíkn í það efni, heróín gerir fólk heró- ínista og sæmilega skýru fólki er ljóst, að á sama hátt er það alkó- hól sem veldur ölvun, vímu og fíkn í það efni. Vonandi styrkir þetta námskeið skilning þátttakenda á þessum grundvallarsannindum. Þeir hætta væntanlega allir að dýrka þetta vímuefni og lúta þeim sem græða á að dreifa því til fólks. Tvískinnungurinn og hræsnin eru nefnilega verst af öllu.“ Senditík hins opinbera og alls konar verkalýðsrekenda Oskar Haraldsson skrifar: „Velvakandi. Mig langar til að vekja athygli á því í fáum orðum, hversu skelfileg sú þróun er sem orðið hefur í ís- lenskum iðnaði og atvinnulífi, með því að benda á auglýsingar í sjón- varpi, útvarpi og blöðum. Þær eru í þessum dúr: Tilbúnar útlendar gardínur; Sérsaumuð föt frá Þýskalandi og Ítalíu; Nýkomin húsgögn frá Ítalíu, Danmörku o.s.frv.; Kaupið St. Michael-fatnað frá Marks og Spencer — Kaupfé- lögin um land allt; Drekkið Tu- borg-öl; Borðið Toro-súpur; Kex og sælgæti frá Englandi, svo að ekki séu nefndir gamlir tertubotnar og eldgömul innflutt brauð, allt neysluvara em við gætum og ætt- um að framleiða sjálf. En hvers vegna gerum við það ekki? EFTA segja sumir. Ekki al- veg. Tolla- og skattastefna stjórn- valda ásamt þeim óhugnanlegu byrðum sem lagðar eru á allan at- vinnurekstur valda hér mestu. Þar á ég við um 40 aukaliði, sem vinnuveitendur þurfa að standa skil á og sendast með í allar áttir, svo sem orlof, Iífeyrissjóð, félags- gjöld, iðnlánasjóðsgjöld, orlofs- heimilasjóð, sjúkrasjóð, útsvör, skatta, meðlög, veikindadaga, helgidaga, tryggingagjöld, launa- skatt, söluskatt og aðstöðugjald, svo að eitthvað sé nefnt. Við þetta bætist stöðugur ófriður á vinnu- stöðum, með alls konar þvælu frá pólitíkusum, öryggis- og vinnu- verndarkjaftöskum, þannig að maður, sem reynir að reka ein- hverja atvinnustarfsemi, er bara senditík hins opinbera og alls kon- ar verkalýðsrekenda. Einhver segir kannski að ríkið hafi nú samþykkt lög um tolla- ívilnanir á efni og tæki til sam- keppnisiðnaðar. Gott og vel. Þeim er þannig framfylgt, að einhverjir gaurar hjá tollinum viðurkenna slíkt ekki í reynd. Og þeir sem í slíku standa verða að greiða allt upp í topp, en er bent á að þeir geti leitað réttar síns hjá einhverjum kerfiskörlum, sem aldrei afgreiða nein mál. Enda stefnir nú allt í bullandi atvinnuleysi."

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.