Morgunblaðið - 12.11.1982, Side 10
10
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 12. NÓVEMBER 1982
Akureyri:
Ellilífeyrisþegum boð
ið ókeypis í Bautann
Menningardagar á Hellissandi
EIGENDUR veitingastaöanna Baut-
ans og Smiðjunnar á Akureyri hafa
ákveöiö að bjóöa öllum ellilífeyris-
þegum, sem þess óska, aö koma og
boröa á Bautanum fram til 22. þ.m.
þeim aö kostnaöarlausu.
Þetta er gert til þess að sýna
ellilífeyrisþegum virðingarvott á
„ári aldraðra" og hafa eigendur
Bautans og Smiðjunnar leitað til
nýstofnaðs félags aldraðra á Ak-
ureyri um að kynna þetta boð.
Ellilífeyrisþegarnir eru vel-
komnir í veitingasali Bautans alla
daga á tímabilinu frá kl. 14—22.
Þeir geta hvort sem er valið af
sérréttamatseðli Bautans, af
kaffihlaðborði, eða þá fengið sér
svið með tilheyrandi, sem á boð-
stólum verða einnig.
„Við teljum, að fólk sem komið
er á efri ár telji það mjög mikið
fyrirtæki að fara á veitingastað að
borða," sagði Stefán Gunnlaugs-
son einn af eigendum Bautans og
Smiðjunnar. „Við viljum um leið
og við bjóðum ellilífeyrisþegunum
JRJ bifreiöasmiðja hf. í Varmahlíö
hefur gefið út kynningarbækling um
þá þjónustu, sem fyrirtækið veitir.
Fyrirtækið var stofnað 1977 og
er stofnandi og eigandi Jóhann R.
Jakobsson bifreiðasmíðameistari
Fyrirtækið hefur sérhæft sig í
smíði yfirbygginga á allar gerðir
í mat á Bautanum sýna þeim að
svo er ekki.“
Nöfn þeirra ellilífeyrisþega, sem
þiggja boð Bautans og koma í mat
fram til 22. nóvember, verða skrif-
uð niður. Þegar þessu lýkur er
áformað að draga út eitt nafn og
mun viðkomandi fá í verðlaun
utanlandsferð, sem gefin er af
Ferðaskrifstofunni Úrvali, en um-
boðsaðili hennar á Akureyri er
Ferðaskrifstofa Akureyrar. Þá
munu þeir ellilífeyrisþegar, sem
verða númer 100, 200, 300 o.s.frv.,
fá boð um ókeypis veislumáltíð í
Smiðjunni.
Veitingahúsið Bautinn verður
12 ára í vor og Smiðjan hefur um
sama leyti verið rekin í fjögur ár.
Eigendur þessara veitingastaða
búa sig nú undir að taka á móti
milljónasta gestinum frá upphafi
og á móti þessum gestum verður
að sjálfsögðu tekið með mikilli
viðhöfn. Hann fær ókeypis veislu-
máltíð í Smiðjunni og einnig
Kaupmannahafnarferð með
Ferðaskrifstofu Akureyrar.
jeppabíla og svokallaðra „pick-up“
bíla. Ennfremur annast fyrirtækið
réttingar, bílaklæðningar, bíla-
málun og glerísetningar.
í bæklingnum er nákvæm lýsing
á þeim yfirbyggingum, sem í boði
eru og myndir birtar. Fylgir ein
myndanna með fréttinni.
UM HELGINA gengst Listaráð
Neshrepps fyrir „Menningardög-
um“ í grunnskóianum á Hellissandi.
Listamennirnir Örn Ingi, Aðal-
steinn Vestmann, Ólafur Torfason
og Sigurður Aðalsteinsson sýna
verk sín. Tónlistarmennirnir
Kristinn Örn Kristinsson, Michael
John Clark og Paula Parker koma
FÖSTUDAGINN 29. október sl.
gekkst Landssamband iönaðarmanna
fyrir málþingi, sem bar yfirskriftina
„Veljum íslenskt — málþing um iðn-
þróun og íslenska innkaupastefnu,"
segir í frétt Landssambands iönaðar-
manna.
Ennfremur segir í fréttinni:
Stjórn Landssambands iðnaðar-
manna hefur haft miklar áhyggjur
vegna minnkandi markaðshlutdeild-
ar ýmissa iðngreina. Sem dæmi um
slíkan samdrátt má nefna, að í hús-
gagnaiðnaði var hlutdeild orðin að-
eins 44 —50%, og hefur farið enn
lækkandi á þeim tíma, sem síðan er
liðinn. Þá er þess að geta, að ísl.
innréttingar hafa allt til ársins 1981
nokkuð haldið hlut sínum á
markaðnum. Hins vegar sýna
innflutningstölur vegna sex fyrstu
mánaða þessa árs, að innflutningur
hefur aukist verulega. Þannig voru
fluttar inn innréttingar fyrir um 17
milljónir kr. fyrstu 6 mánuði þessa
árs, en fyrir 7,1 millj. kr. á sama
tíma í fyrra. Varðandi kökugerð kom
fram, einnig Signý Pálsdóttir
leikkona. Guðlaugur Arason les úr
verkum sínum.
Heimafólk tekur líka þátt í
þessum Menningardögum. Ha-
fsteinn Engilbertsson les úr
óprentuðu handriti sínu og
grunnskólakrakkar lesa eigin ljóð,
en þau heita: Ella Björk, Viggó
fram, að á árinu 1981 voru flutt inn
200 tonn af kökum, og flest bendir til
þess, að á þessu ári verði innflutn-
ingurinn u.þ.b. 400 tonn, sem svarar
til þess, að fluttar verða inn um 1
milljón kökur. Þessar upplýsingar
koma m.a. fram í einu erindanna,
sem flutt voru á ráðstefnunni. Jafn-
framt var þar bent á, að e.t.v. lægju
enn víða ónýtt iðnaðartækifæri hér-
lendis. Jafnframt var þar bent á, að
e.t.v. lægju enn víða ónýtt iðnaðar-
tækifæri hérlendis, ekki síst í raf- og
rafeindaiðnaði. Á málþinginu fluttu
fulltrúar hinna ýmsu innkaupahópa
erindi um viðhorf sín til íslensks iðn-
aðar. Þannig komu fram sjónarmið
almennra neytenda, einkafyrir-
tækja, sveitarfélaga og ríkis varð-
andi viðskipti við íslensk iðnfyrir-
tæki. Var þar bent á ýmislegt já-
kvætt hjá innlendum iðnaöi, en einn-
ig varð vart nokkurrar gagnrýni á
innlend iðnfyrirtæki og bent á atriði,
sem þau mættu sinna betur. Þannig
kom sterklega fram hjá ýmsum
ræðumönnum, að forráðamenn
Einar, Eggert Arnar og írís
Bjargmundsdóttir.
Menningardagarnir hefjasf kl.
20.00 laugardagskvöld og standa
til kl. 18.00 á sunnudag.
Tilgangur þessara menningard-
aga er að efla tengsl foreldra og
skóla oa auka áhuga á listum.
Allir eru velkomnir.
iðnfyrirtækja væru slök í því efni að
selja vöru sína og þjónustu.
Markaðsstarfsemi og sölumennska í
íslenskum iðnfyrirtækjum væri eng-
an veginn komin á það stig, að hún
standi jafnfætis því, sem tíðkist hjá
erlendum keppinautum. Stjórnendur
iðnfyrirtækja þyrftu að gefa mik-
ilkvægi sölumála meiri gaum, en
ekki aðeins einblína á framleiðsluna
sem slíka.
Þá voru á málþinginu flutt all-
mörg erindi varðandi hin almennu
starfskilyrði iðnaðar, en þessi skil-
yrði iðnaðar yrðu að vera a.m.k. ekki
lakari en í samkeppnislöndum
okkar, auk þess sem starfsskilyrði
iðnaðar hérlendis mættu ekki vera
slakari en þau, sem landbúnaður og
sjávarútvegur nytu. Að öðru kosti
verður samkeppnishæfni ísl. iðnaðar
ekki tryggð.
Loks var gerð grein fyrir sam-
keppni, sem Landssamband iðnað-
armanna hefði í undirbúningi, varð-
andi hönnun merkis til að auðkenna
íslenskar vörur.
Smíðað yfir bíla í Varmahlíð
Markaðs- og sölustarfsemi
iðnfyrirtækja er ábótavant
Frönsk kvikmyndavika
dagana 13.—21. nóvember
FRÖNSK kvikmyndavika hefst í
Regnboganum laugardaginn 13. nóv-
ember og mun standa til sunnudags-
ins 21. i öllum sölum kvikmynda-
hússins. Þetta er í sjöunda sinn, sem
slík kvikmyndavika er haldin hér á
landi og að þessu sinni eru það 7
kvikmyndir sem sýndar verða og
vekur athygli að þær eru allar mjög
nýjar af nálinni, sú elsta frá árinu
1978, en hinar sex frá árunum 1980
og ’81. Allir myndirnar eru með
enskum skýringartexta.
MOLIERE eða LÍF HEIÐAR-
LEGS MANNS (Moliere ou la vie
dún honnéte homme) er elst þess-
ara mynda, frá 1978 og leikstýrir
Ariane Mnouchkine. Sýningartími
er 4 klukkustundir og 20 mínútur
og er myndin sýnd í tveimur hlut-
um og verður að kaupa miða á
hvora sýningu fyrir sig. Myndin
fjallar um ævi Moliere (1622—
1673), eins frægasta leikritaskálds
Frakka. Myndin er saga baráttu
hans, mistaka og sigra, á öld þegar
íburður gat aldrei hulið hungur,
eymd og áþján, segir m.a. í sýn-
ingarskrá.
Þetta er önnur mynd Ariane
Mnouchkine, sem hefur verið
stjórnandi Sólarleikhússins (Thé-
atre du Soleil) í 18 ár. Hver sýning
þess leikhúss er viðburður, segir í
sýningarskrá og hafði hún 20
milljón franka sjóð þegar hún
hófst handa um gerð verksins.
1.200 búningar voru gerðir fyrir
myndina og 200 manns unnu að
henni í heilt ár, allir á sömu laun-
um, en þannig eru starfsreglur
Sólarleikhússins.
SURTUR (Anthracite). Stjórn-
andi Edouard Niermans (1980), en
hann verður gestur frönsku
kvikmyndavikunnar og mun
kynna mynd sína við opnun vik-
unnar. Sýningartími er 90 mín.
Myndin gerist í gagnfræðaskóla
jesúítareglu og fjallar um sam-
skipti innan hans, en innan þess
lokaða heims sem skólinn er ríkja
gamlar og strangar uppeldishefð-
ir, sem þyggjast á að innræta
nemendum kennisetningar og yf-
irráðalöngun. Faðir Godard, um-
sjónarmaður elstu bekkinga, hefur
viðurnefnið Surtur nv drevmir nm
einhvers konar heilagleika og
fjallar myndin m.a. um að ungur
drengur, einmana og dreyminn
verður að taka afstöðu.
Þetta er fyrsta mynd Edouard
Niermans í fullri lengd, en áður
hefur hann gert styttri myndir.
Henni hefur verið vel tekið og
mun hún að nokkru byggð á æsku-
minningum höfundar.
STÓRSÖNGKONAN (Diva).
Stjórnandi Jean—Jacques Beineix
(1981). Sýningartími 110 mínútur.
Þessari mynd hefur verið lýst sem
fagurfræðilegum „krimma",
draumkenndri „glæpamynd", í
„kitsch“-stíl níunda áratugsins,
setHr meðol annnra [ sýn-
ingarskrá. Hún hlaut 4 Sesar-
verðlaun í febrúar síðastliðnum,
en innan Frakklands má líkja
stöðu þeirra við Óskarsverðlaunin.
Söguþráður er of flókin til að
rekja hann í stuttu máli, en fjallar
meðal annars um eltingarleik við
segulbandsspólu, sem gæti komið
ýmsum aðilum á kaldan klaka.
Einnig kemur við sögu söngkona,
sem ekki vill láta taka upp söng
sinn og ólögleg upptaka aðdáanda
hennar á söng hennar. Aðalþemað
í myndinni er leit, leit sem engan
árangur getur borið.
Þetta er fyrsta mynd leikstjór-
ans Jean-Jacques Beineix og fékk
hann Sesar-verðlaunin fyrir hana,
sem bestu fyrstu mynd.
HREINSUNIN (Coup de tor-
chon). Stjórnandi Bernard Tav-
ernier (1981). Sýningartími 128
mínútur. Myndin gerist árið 1938 í
þúsund manna smáborg í frönsku
V-Afríku og segir frá þegar lög-
reglustjóri staðarins, fremur hug-
laus og lítilfjörlegur persónuleiki
ákveður að losa borgina við óþokk-
ana sem hana byggja. Handrit
myndarinnar er gert eftir skáld-
sögu Bandaríkjamannsins Jim
Thompson „1275 sálir". Þetta er
áttunda mynd Bernard Tavernier
og hefur að minnsta kosti ein
þeirra verið sýnd hér á landi áður.
I sýningarskrá segir að myndin sé
allt í senn, hryllingsmynd, dæmi-
saga, vestri og jafnvel gaman-
mynd á köflum.
NÓTT/ÚTITAKA (Exterieur
nuit). Stjórnandi Jacques Brai
(1980). Sýningartími 110 mínútur.
Myndin segir frá kynnum þriggja
persóna, rithöfundar, jassleikara,
sem hefur brotið allar brýr að
baki sér og konu, sem stundar
leigubílaakstur að næturlagi. Ást-
arsamband tekst með hinum
tveim síðarnefndu. I sýningarskrá
segir meðal annars að þessar
þrjár persónur eigi það sameigin-
legt að geta ekki látið drauma sína
rætast og feli undir hrjúfu yfir-
borði löngunina til að ná sam-
Atriði úr myndinni Stórsöngkonan (Diva), en sú mynd hlaut fjögur Sesar- Daniel Charbonnier, umsjónarmaður frönsku kvikmyndavikunnar, með eina
verðlaun í febrúar síðastliðnum. mynd vikunnar í höndunum. Ljósmrnd Mbl. Krístján Einarsson